Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 37 DAGBÓK Hvernig var líf fólks á landnámsöld? Sýningin er opin alla daga frá 10–17 Aðalstræti 16 101 Reykjavík www.reykjavik871.is Íbúðir Hópur ungmenna á aldrinum 18 til 23 árahefur í sumar staðið fyrir vitund-arvakningarátaki sem þau nefna Götu-hernaðinn. Um er að ræða samstarfs- verkefni Ný-ungar, Sjálfsbjargar, Reykjavíkurborgar og Hins hússins og er markmið Götuhernaðarins að bæta ímynd hreyfihamlaðra. Leifur Leifsson er forsprakki hópsins: „Verk- efnið varð til fyrir tveimur árum þegar við hlutum styrk frá ÍTR til að gera ungt hreyfihamlað fólk meira áberandi í samfélaginu. Okkur langaði til að vinna verkefni með öðrum formerkjum en oft vill verða í verkefnum af þessu tagi. Margir eru að gera góða hluti fyrir öryrkja og hreyfihamlaða í sam- félaginu, en okkur þykir fullalgengt að neikvæðni og bölsýni, dramatík og þunglamaleiki séu áber- andi. Við vildum fríska upp á umræðuna og hleypa nýju blóði í baráttuna, og hafa húmorinn að vopni,“ segir Leifur. Árið 2004 einbeitti hópurinn sér að aðgengi hreyfihamlaðra í miðborginni, s.s. á kaffihúsum og í verslunum: „Í stað þess að vera með mótmæla- göngu vorum við með meðmæla-göngu, þar sem við mæltum með góðu aðgengi þar sem úrbóta var þörf,“ útskýrir Leifur. Í ár tekur Götuhernaðurinn fyrir auglýsinga- menningu samtímans: „Með húmornum snúum við öllu á hvolf og gerum minnihlutahópinn að meiri- hlutahóp. Við gerum grín að þeim auglýsingum sem mest ber á um þessar mundir, og vinnum bug á fordómum með gríninu,“ segir Leifur. Grín-auglýsingarnar sýnir hópurinn á vefsíðunni Öryrki.net þar sem jafnframt má fylgjast með framvindu verkefnisins og fræðast um hópinn sem að átakinu stendur: „Meðal nýlegra verkefna er háðsútgáfa af fótboltaauglýsingum Landsbankans sem mikið eru sýndar þessa dagana. Við fórum þannig að, að við söfnuðum saman nokkrum þekkt- um íslenskum öryrkjum, fengum m.a. til liðs við okkur Helga Hjörvar, Guðmund Magnússon, Kristínu Rósu Hákonardóttur og Katrínu Helga- dóttur, og létum þau spila bocchia, sem er í augum margra dæmigerð öryrkjaíþrótt. Slagorðið er síð- an: „Við elskum bocchia. – Öryrki.net“,“ segir Leif- ur. „Við hentum líka grín að Egils-kristals auglýs- ingu, og snerum slagorði auglýsinganna á haus: „Það sést hverjir eru í hjólastól“.“ Aðrar auglýsingar sem hópurinn hefur gert að sínum eru auglýsingar fyrir Sprite, Dressmann, Staur og Egils appelsín. Um þessar mundir vinnur hópurinn að lagi sem fljótlega verður aðgengilegt á Oryrki.net: „Í laginu kristallast andi verkefnisins; ef þú vilt verða töff, þá skaltu vera í hjólastól. Það er í raun inntak þess sem við höfum verið að prédika í allt sumar, að það er svo óendanlega „kúl“ að vera öryrki að hinn gangandi mann hreinlega langar að vera hjólastól.“ Sem fyrr segir má sjá afrakstur starfs Götuhern- aðarins í sumar á slóðinni www.Oryrki.net. Samfélagsmál | Staðalmyndum íslenskra auglýsinga snúið á haus á Öryrki.net Með húmorinn að vopni  Leifur Leifsson fæddist í Reykjavík 1984. Hann stundar nám á félagsfræðibraut Borgarholtsskóla. Leif- ur starfaði sem skrif- stofumaður í Fé- lagsmiðstöðinni Miðbegin 1999 til 2002 og hefur einnig unnið fyrir Ný-ung, unglinga- hreyfingu hreyfihaml- aðra. Árið 2005 hlaut Leifur viðurkenningu Evrópusambandsins fyrir heimildarmyndina Öryrkjann ósigrandi. Foreldrar Leifs eru Anna Arndís Árnadóttir sérh. leikskólaleiðbeinandi og Leifur Jónsson skartgirpaheildsali. Árnaðheilla ritstjorn@mbl.is 1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. e3 d5 4. Bd3 c5 5. b3 Bd6 6. O-O O-O 7. Bb2 Rc6 8. Rbd2 cxd4 9. exd4 b6 10. a3 Bb7 11. Re5 Dc7 12. De2 Re7 13. f4 b5 14. Hf3 Hac8 15. Hc1 b4 16. a4 Rg6 17. Hcf1 Re4 18. Hh3 f5 19. Bxe4 dxe4 20. Dh5 Bxe5 21. fxe5 Dxc2 22. Dxh7+ Kf7 23. Hg3 Dxd2 24. Hxg6 Hg8 Í Leon á Spáni var haldið afar öflugt mót í byrjun júní á þessu ári þar sem Veselin Topalov (2804), Viswanathan Anand (2803), Francisco Ponz Vallejo (2666) og Lazaro Bruzon (2652) voru einu keppendurnir. Keppnin fór þannig fram að teflt var til undanúrslita og svo til úrslita. Í fyrri undaúrslitunum mættust Kúbverjinn Bruzon og Ind- verjinn Anand. Að loknum fjórum at- skákum voru leikar jafnir og þurfti því að grípa til þess ráðs að tefla hrað- skákir. Bruzon hafði hvítt í fyrstu hrað- skákinni og leiddi þá skák nú laglega til lykta: 25. Hxe6! Kxe6 26. Dxf5+ Ke7 svartur hefði orðið mát eftir 26... Kd5 27. Dd7#. 27. Df7+ Kd8 28. e6 e3 og svartur gafst upp áður en hvítur fékk að máta hann með 29. Dd7#. Anand náði að jafna metin í næstu skák og bar að lokum sigur úr býtum í einvíginu og komst í úrslitaeinvígi mótsins þar sem hann mætti heimsmeistaranum Vesel- in Topalov. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Hvítur á leik. Varadekk týndist á leið norður Kjöl FÖSTUDAGINN 30. júní var ég á ferð norður Kjöl og á leiðinni frá Flúðum að afleggjaranum í Kerl- ingafjöll tapaði ég varadekki undan tjaldvagni. Ef einhver hefur fundið dekkið og hirt það upp þá vinsam- legast hafið samband við Eirík í síma 892 9781 eða 554 4465. Siglufjörður - týnd filma MÁNUDAGINN 10. júlí sl. tap- aðist filma úr myndavél í skógi skógræktar Siglufjarðar. Finnandi er beðinn að hringja í síma 562 1643. fyrir Sjálfið til að uppgötva í þeim mikilfenglega Tilvist Mína og Sköpun. Besta leiðin til að segja þessa bæn er að segja eða hugsa orðin með notkun viljastyrks, ásamt því að halda athyglinni á punkti rétt fyrir ofan miðjuna milli augabrún- anna. Þegar hugurinn skilur hug- tökin og viljinn er notaður sam- tímis, munu hugtökin í bæninni virkjast og bænin mun hafa áhrif. Ef bænin er sögð af alvöru hvern dag mun vaxa innra með þér skiln- ingur á þínu sanna sjálfi. Sveinn Jónsson. Hver þekkir fólkið? ÞAKKARKORT með þessari mynd var sent á Dóru og Eddu en kom í pósthólfið hjá fólki sem kannast ekkert við kortið. Ef Dóra og Edda kannast við þetta kort eru þær beðnar að hafa samband við Gunn- ar í síma 897 1781. Bæn fyrir nýja öld Ég er skapari Alheimsins. Ég er faðir og móðir alheims- ins. Allt kom frá mér. Allt snýr aftur til mín. Hugur, andi og líkami eru hof mín, Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 102 ÁRA afmæli. Í dag, 15. júlí, er102 ára Margrét Hann- esdóttir, Langholtsvegi 15, Reykjavík. Hún er að heiman í dag. 90 ÁRA afmæli. Í dag, 15. júlí, erníræð Júlíana Valtýsdóttir. Hún dvelst á sambýlinu í Gullsmára 11 í Kópavogi. Vinir og vandamenn drekka kaffi með heiðurskonunni kl. 15. 60 ÁRA afmæli. Í dag, 15. júlí, ersextugur Kristófer Þorleifsson geðlæknir, Urðarhæð 6, Garðabæ. Hann verður að heiman í dag. Vandvirkni. Norður ♠Á754 ♥Á102 ♦KG ♣ÁKD10 Suður ♠KD9 ♥G5 ♦ÁD5 ♣G9763 Suður spilar sjö lauf og fær út hjartakóng. Hvernig er áætlunin – í smáatriðum? Athygli sagnhafa beinist fljótlega að fjórða spaðanum í borði, enda verður þrettándi slagurinn að koma þar. Ef liturinn brotnar 3–3 (35,5%) þarf ekki að hafa neitt fyrir hlutunum, en eftir útspilið er hugs- anlegt að þvinga vestur með spaða- lengd og hjartadrottningu. Sem sagt: Sagnhafi drepur á hjartaás, tekur öll trompin og tígulslagina og vonar það besta. Ertu sammála? Norður ♠Á754 ♥Á102 ♦KG ♣ÁKD10 Vestur Austur ♠G10 ♠8632 ♥KD983 ♥764 ♦KG ♦109843 ♣ÁKD10 ♣5 Suður ♠KD9 ♥G5 ♦ÁD5 ♣G9763 Þriðji möguleikinn er til – að G10 falli undir hjónin og nían fríist. En þá þarf að prófa spaðann ÁÐUR en slag- irnir eru teknir í láglitunum, því ann- ars vantar samgang til að taka á spaða- ásinn. Mundirðu eftir þessu? BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 SÝNING á ljósmyndum Vigfúsar Birgissonar er í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Skotinu. Í Skotinu er varpað ljósmyndum úr skjávarpa á 150 x 190 cm stóran vegg og þannig myndað flæði ljós- mynda sem gefa hugmynd um vinnuferli og afmörkuð verkefni eins ljósmyndara. Á sýningunni í Skotinu sýnir Vig- fús myndir af vatnsyfirborði sjávar sem í einu flæði flétta saman gárur og bárur og ótal litbrigði hins bláa og í þeim staðfestast hin mögnuðu hughrif litarins sem kallaður hefur verið litur eilífðarinnar. Sýningin stendur til 15. ágúst. Sýning Vigfúsar Birgissonar í Skotinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.