Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, af-
hjúpaði í gær upplýsingaskilti í Grímsstaðavör við
Ægisíðu. Skiltinu er ætlað að greina frá tilurð út-
gerðarinnar og veita innsýn í sögu hennar.
Vörin er kennd við bæinn Grímsstaði sem reis á
svæðinu um miðja nítjándu öld og var langlífastur
sjö slíkra við Skerjafjörð og ef til vill muna margir
eftir því að hafa kíkt í grásleppuskúrana og keypt
sér í soðið.
Ákveðið hefur verið að varðveita minjar þær sem
er að finna í vörinni. Telur borgarstjóri varðveisl-
una nauðsynlega, grásleppuskúrarnir séu minn-
isvarði um útgerð grásleppubátanna og þá vösku
trillukarla sem þar sóttu sjóinn.
Morgunblaðið/Sverrir
Minnisvarði um útgerð grásleppubáta
HEILDARMÁNAÐARLAUN hækk-
uðu að meðaltali um 12,6% milli áranna
2004 og 2005 og námu að meðaltali 315
þúsund krónum í fyrra, að því er fram
kemur í nýrri samantekt Hagstofu Ís-
lands á launum á almennum vinnu-
markaði.
Niðurstöðurnar eru byggðar á upp-
lýsingum frá fyrirtækjum í iðnaði,
byggingastarfsemi, verslun og við-
gerðaþjónustu, samgöngum og flutn-
ingum. Í grunninn eru þetta sömu
starfsstéttir og kannanir kjararann-
sóknanefndar aðila vinnumarkaðarins
náðu til á sínum tíma, en athugunin
tekur ekki til launa opinberra starfs-
manna, starfsfólks í fjármálaþjónustu
eða í sjávarútvegi.
Að baki ofangreindum heildarmán-
aðarlaunum var vikulegur vinnutími að
meðaltali 46,5 stundir. Regluleg mán-
aðarlaun í fyrra samkvæmt athugun-
inni, þ.e.a.s. án yfirvinnu, voru 244 þús-
und kr. og árslaun voru að meðaltali 4,2
milljónir króna. Um 80% þeirra sem
könnunin náði til voru með fimm millj-
ónir króna eða minna í árslaun.
Heildarmánaðarlaun voru hæst í
byggingarstarfsemi og mannvirkja-
gerð, 345 þúsund kr., og lægst í mat-
væla- og drykkjarvöruiðnaði, 284 þús-
und krónur. Í verslun og
viðgerðarþjónustu voru heildarlaunin
311 þúsund og í samgöngum og flutn-
ingum 313 þúsund kr. Regluleg mán-
aðarlaun, þegar yfirvinna er ekki tekin
með, eru til muna lægri, sem eðlilegt
er. Þannig eru regluleg mánaðarlaun í
matvæla- og drykkjarvöruiðnaði að
meðaltali 205 þúsund krónur og í bygg-
ingarstarfsemi og mannvirkjagerð 242
þúsund kr.
Misjöfn launadreifing
Fram kemur einnig að dreifing
mánaðarlauna er mjög mismunandi
eftir atvinnugreinum. Þannig eru al-
gengustu árslaunin í matvæla- og
drykkjarvöruiðnaði og samgöngu- og
flutningastarfsemi 2,75–3,25 milljónir
króna. Helmingur launamanna í mat-
vælaiðnaði er með undir 3,25 milljón-
um í árslaun og 34% þeirra sem eru í
samgöngum og flutningastarfsemi. Í
samgöngum eru hins vegar 4% starfs-
fólks með hærri árslaun en 10 millj-
ónir, en innan við eitt prósent launa-
manna í matvælaiðnaði nær þeim
árslaunum. Þá er tæplega helmingur
starfsmanna í byggingarstarfsemi og
mannvirkjagerð með hærri árslaun en
4,75 milljónir króna.
Þegar skoðuð eru laun eftir starfs-
stéttum kemur fram að stjórnendur
eru með hæstu heildarmánaðarlaunin
eða 507 þúsund kr. að meðaltali, sem
eru tvöföld heildarmánaðarlaun verka-
fólks að meðaltali. Sérfræðingar voru
með 430 þúsund kr. í heildarmánaðar-
laun, sérmenntað starfsfólk 353 þús-
und kr., þjónustu-, sölu- og afgreiðslu-
fólk 280 þúsund kr., skrifstofufólk 262
þúsund kr. og iðnaðarmenn 368 þús-
und kr. Verkafólk vann lengstan
vinnutíma eða 50,6 stundir að meðaltali
á viku.
Þá kemur einnig fram að dreifing
launa er mjög mismunandi eftir starfs-
stéttum. Þannig er rúmlega helmingur
stjórnenda með regluleg laun sem eru
hærri en 425 þúsund krónur og 3%
þeirra eru með meira en 825 þúsund
kr. í regluleg laun á mánuði. Algengast
er að regluleg laun verkafólks séu á
bilinu 125–175 þúsund kr. á mánuði og
98% þess eru með lægri regluleg mán-
aðarlaun en 425 þúsund kr.
Þegar launin eru skoðuð með hlið-
sjón af aldri kemur fram að þau eru
hæst á aldrinum 40–49 ára hjá báðum
kynjum en lægst á aldrinum 18–20 ára.
10–13% hækkun
launa milli ára
Heildarmánaðarlaun voru að meðaltali 315 þúsund krónur
í fyrra samkvæmt nýrri launakönnun Hagstofu Íslands
Eftit Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
LITHÁINN Romas Kosakovskis var í hér-
aðsdómi Reykjavíkur dæmdur í tveggja og
hálfs árs fangelsi fyrir að reyna að smygla
inn tæpum 2 lítrum af vökva með amfeta-
mínbasa og fyrir óleyfilegan innflutning 678
ml af brennisteinssýru. Efnin, sem unnt er
að framleiða rúm 2,3 kg af amfetamínsúlfati
úr, flutti ákærði til Íslands og fundu toll-
verðir þau í flöskum í farangri hans í Leifs-
stöð.
Ákærði neitaði sök og sagðist ekki hafa
vitað um raunverulegt innihald umræddra
flaskna. Hann hefði keypt þær á útimarkaði
í heimabæ sínum, Kaunas, og talið sig þá
vera að kaupa flösku af Tequila, flösku af
ávaxtasafa og síðan hafi hann fengið sóda-
vatnið í kaupbæti.
Dómurinn taldi þessar skýringar út í hött
og það hlyti að teljast ótrúleg tilviljun að
umræddar flöskur skyldu þá einmitt inni-
halda efni sem notuð eru saman til fram-
leiðslu á amfetamíni í neysluformi, auk þess
sem ein þeirra virtist hafa innihaldið skað-
laust efni, líklega sódavatn.
Sagðist hafa átt að drekka úr einni
flöskunni hjá tollvörðum
Ákærði hélt því fram að eftir að hann hafi
verið stöðvaður af tollvörðunum hafi þeir
stungið upp á að hann drykki úr einni flösk-
unni. Eftir áskorun þeirra hafi hann tekið
eina flöskuna og drukkið úr henni.
Þessi framburður ákærða stangaðist að
mati dómsins á við vitnisburð tollvarðanna.
Hver flaska hefði þá innihaldið margfaldan
banvænan skammt og væri það ólíklegt að
um einskæra tilviljun gæti hafa verið að
ræða þegar ákærði greip til þeirrar einu
flösku í farangri hans sem ekki hafði að
geyma banvæn efni.
Var það mat dómsins að viðbrögð hans að
þessu leyti bentu til vitneskju hans um inni-
hald flasknanna og hafi jafnvel verið und-
irbúin með það í huga að villa um fyrir toll-
vörðum.
Ásgeir Magnússon héraðsdómari dæmdi
málið. Verjandi var Björgvin Jónsson hrl.
og sækjandi Daði Jónsson frá ríkissaksókn-
ara.
Tveggja og
hálfs árs
fangelsi
Regluleg mánaðarlaun karla voru 267 þúsund krónur að meðaltali á árinu
2005 og voru þau 69 þúsund kr. hærri en hjá konum sem voru að meðaltali
með 198 þúsund kr. í laun. Hjá báðum kynjum er hækkun reglulegra launa
milli ára um 10%.
Meiri munur er launum karla og kvenna þegar heildarmánaðarlaun eru
skoðuð. Konur eru með 241 þúsund í heildarmánaðarlaun í fyrra að með-
altali en karlar voru að meðaltali með 100 þúsund kr. hærri laun eða 342
þúsund kr. Karlmenn unnu að meðaltali 46,6 stundir á viku, fjórum klukku-
stundum lengur en konur sem unnu 42,6 stundir að meðaltali.
Þegar árslaunin eru skoðuð kemur fram að karlar voru að meðaltali með
4,5 milljónir króna í árslaun í fyrra og konur með 3,3 milljónir. 15,7% af
árslaunum karla eru vegna yfirvinnu, en 9,5% af árslaunum kvenna.
Þá kemur einnig fram að launamunur kynjanna er minnstur í yngsta ald-
ursflokknum, en eykst síðan jafnt og þétt þar til í aldursflokknum 40–49
ára og helst eftir það svipaður.
100 þúsund kr. munur
EINHVERJAR tafir hafa orðið
á afgreiðslu steypu frá BM Vallá
til stíflustæðisins við Kára-
hnjúka undanfarna daga. Þegar
haft var samband við Ómar R.
Valdimarsson, talsmann Imp-
regilo, staðfesti hann við Morg-
unblaðið að BM Vallá hefði af-
greitt minna magn af steypu í
síðustu viku en gert hafði verið
ráð fyrir, eða 700 tonn í stað
1.700 tonna.
„Við erum nú að steypa káp-
una á stíflunni og hefur stíflu-
gerðin hingað til verið á nokkuð
góðu skriði, en þetta getur hins
vegar valdið töfum,“ segir Ómar.
Þorsteinn Víglundsson, for-
stjóri BM Vallár, segir að notk-
un á steypu í júní hafi verið
meiri en gert var ráð fyrir, ef til
vill vegna góðs veðurs á svæðinu
og því hafi þetta komið upp.
„Síðan kom flutningaskip um
síðustu helgi með sementsfarm
og annað skip mun lenda um
næstu helgi, þannig að birgða-
staðan er mjög góð,“ segir Þor-
steinn.
Steypuskortur við Kárahnjúka
LÖGREGLAN á Akureyri stöðvaði
þrettán ökumenn fyrir of hraðan
akstur í Öxnadal í gær. Sá sem
hraðast fór var á rúmlega 130 km
hraða. Enginn var þó svipur öku-
skírteininu en allir eiga ökumenn-
irnir von á sektum.
Lögreglan hóf síðan í gærkvöldi
allsherjarátak í Öxnadalnum kl. 19
og átti eftirlitið að standa til kl. eitt
um nóttina þar sem hver einasti bíll
á svæðinu yrði stöðvaður og ástand
ökumanna kannað. Eftirlitið var
liður í átaki ríkislögreglustjóra í
eftirliti á þjóðvegunum.
Þrettán gómaðir
í Öxnadal
LÖGREGLAN í Keflavík var við
hraðamælingar á Reykjanesbraut-
inni í gær og stöðvaði þrjá öku-
menn fyrir hraðakstur. Sá sem
hraðast ók mældist á 134 km hraða
og hinir tveir á 120–130 km hraða.
Mega þeir búast við sektum vegna
þess.
Tekinn á
134 km hraða
LOKA þurfti Hvalfjarðargöng-
unum að hluta í gærkvöldi þegar
grafa, sem flutt var með vöru-
bifreið í gegnum göngin, rakst upp
í loft ganganna með þeim afleið-
ingum að glussi sprautaðist um
göngin. Lögreglan í Reykjavík fékk
tilkynningu skömmu fyrir klukkan
átta og var göngunum lokað. Að
sögn lögreglunnar þurfti að stjórna
umferð um göngin á meðan hreins-
un stóð yfir en henni lauk um tíu-
leytið. Umferðarstjórnun gekk
greiðlega og vildi lögregla koma á
framfæri þakklæti til ökumanna
sem voru til fyrirmyndar. Mikið
hefur verið rætt um að ökumenn
fari um göngin með of háan farm
og sagði lögreglan það vera ótrú-
legt að þetta skuli gerast eftir um-
ræðu síðustu daga. Ökumaður bif-
reiðarinnar má búast við sekt.
Hvalfjarðargöng
lokuð í tvo tíma