Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON TAKTU AFSTÖÐU. GRÁTBROSLEGASTA GAMANMYND SUMARSINS ÞAR SEM JENNIFER ANISTON OG VINCE VAUGHN VAR HREINLEGA Á KOSTUM. SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK FRÁ LEIKSTJÓRA "TROY" OG "PERFECT STORM" HALTU NIÐRI Í ÞÉR ANDANUM. MÖGNUÐ SPENNA FRÁ BYRJUN TIL ENDA. SAMBÍÓIN KRINGLUNNI ER EINA VINCE VAUGHN JENNIFER ANISTON TAKTU AFSTÖÐU. GRÁTBROSLEGASTA GAMANMYND SUMARSINS ÞAR SEM JENNIFER ANISTON OG VINCE VAUGHN VAR HREINLEGA Á KOSTUM. EINA LEIÐIN TIL AÐ VINNA ER AÐ MISSA STJÓRNINA SÝNDI BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI KVIKMYNDIR.IS FRÁ FRAMLEIÐENDUM „THE INCREDIBLES“ & „LEITIN AÐ NEMO“ eeee V.J.V, Topp5.is FERSK, HUGLJÚF OG RÓMANTÍSK ÞAR SEM STÓRSTJÖRNURNAR KEANU REEVES OG SANDRA BULLOCK FARA Á KOSTUM.EKKI MISSA AF ÞESSARI PERLU. ALGJÖRT AUGNAKONFEKT. EIN ALLRA BESTA MYND ÁRSINS. BRYAN SINGER KOMIN Í HÓP ÞEIRRA FREMSTU MESTA OFURMENNI HEIMS HEFUR SNÚIÐ AFTUR. OFURMÖGNUÐ STÓRMYND OG SÚPERSKEMMTUN FYRIR ALLA. SÚPERMAN ER SANNARLEGA KOMINN AFTUR. M.M.J. KVIKMYNDIR.COM SUPERMAN RETURNS kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.I. 10 ÁRA CARS M/- ÍSL TALI kl. 2 THE FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 5 B.I. 12 ÁRA THE LAKE HOUSE kl. 8 - 10:10 SUPERMAN kl. 2 - 5 - 8 - 11 THE BREAK UP kl. 8 - 10.10 BÍLAR M/- ÍSL TALI kl. 2 - 5 SUPERMAN kl. 2:50 - 5:50 - 9 - 10:40 B.I. 10.ÁRA. THE BREAK UP kl. 3:45 - 6 - 8:15 - 10:40 THE LAKE HOUSE kl. 3:45 - 6 - 8:15 - 10:30 BÍLAR M/- ÍSL TAL. kl. 3:30 - 5:50 CARS M/- ENSKU TAL. kl. 8:15 KEEPING MUM kl. 3:45 - 6 - 8:15 B.I. 12.ÁRA. THE POSEIDON ADVENTURE kl. 10:30 B.I. 14.ÁRA. S.U.S. XFM 91,9„...EINHVER BESTA AFÞREYING SUMARSINS...“ TOMMI KVIKMYNDIR.IS eeee SUPERMAN RETURNS SKAPAR SÉR SESS MEÐAL BESTU MYNDASÖGU-KVIKMYNDUM SEM GERÐAR HAFA VERIÐ V.J.V. Topp5.is H.J. MBL. eee FRÁBÆR SUMARMYND HLAÐIN SPENNU OG MÖGNUÐUM ATRIÐUM. Þ.Þ. FRÉTTABLAÐIÐ Þetta eru sögur, aðallegasorgleg ástarljóð þar semuppreisnin og dauðinn erusamofin örlögum persón- anna. Ég er auðvitað búinn að vera með dauðann á heilanum í mörg ár. Flestir Naglbítatextarnir voru til dæmis um dauðann. Þetta er allt ótrúlega hrátt, platan er róleg, mikið bara kassagítar og söngur,“ segir Villi um frumburðinn sem hann hefur verið að taka upp einn í London und- anfarna mánuði. „Ég fékk svo frá- bært fólk til að spila með mér á nokkrum lögum. Jóel Pálsson spilar á bassaklarinett og saxófón, Hrafn Thoroddsen í Ensími spilar á píanó og fótstigið orgel og Viðar Hrafn Steingrímsson spilar á kontrabassa. Það eru nokkur lög þarna þar sem ég er ekki einn að spila en annars er þetta aðallega söngur og kassagítar og svo einhver hljóð.“ Söng niður í leðrið Villi flutti til London ásamt Þórdísi kærustu sinni síðastliðið haust en hún er þar í meistaranámi. Hann var þá mikið búinn að vera að mála á Ís- landi, hafði haldið þrjár sýningar um sumarið og tónlistin var ekki ofarlega í huga hans á þessu tímabili. „Ég leigði mér vinnustofu með ein- hverjum krökkum þegar við vorum nýflutt til London og ætlaði að halda áfram að mála en fyrstu þrjá mán- uðina þarna úti gerði ég ekki neitt. Ég sat heima á meðan Þórdís var í skólanum að hitta fólk alls staðar að úr heiminum. Við vorum ekki með netið eða sjónvarp. Ég fékk mér kaffi, rölti út á pöbbinn, fór stundum á vinnustofuna en vildi ekki mála. Þetta var ótrúlega súrt tímabil og ég fór mikið að spá í lífið og tilveruna. Einn daginn eftir svona þrjá mán- uði byrjaði ég að spila á gítarinn og fór að semja tónlist eftir langt hlé. Það var ótrúlega góð tilfinning að byrja að skapa eitthvað aftur,“ segir Villi og fer í framhaldi að útskýra fyr- ir blaðamanni að upptökuferlið hafi verið ansi heimilislegt. „Ég á lítið upptökutæki sem ég tengi við fartölv- una mína og tvo mjög ódýra söng- míkrófóna en ég á ekki einu sinni sta- tíf fyrir þá. Mig langaði rosalega mikið til þess að byrja að taka upp eftir að ég fór að semja, vildi læra á tölvuforritið og geta gert þetta allt sjálfur. Ég ákvað að prófa að setja míkrófónana á leðurbarstól sem var í íbúðinni okkar og festi þá með beltinu mínu svo þeir myndu haldast kyrrir. Svo sat ég við hliðina á stólnum og söng niður í leðrið úr dálítilli hæð og þetta hljómaði alveg ótrúlega vel. Þannig að ég hélt áfram að semja og taka upp.“ Villi segist ekkert hafa viljað ákveða strax hvað hann ætlaði að gera við tónlistina. Hann hélt áfram að semja og taka upp og svo kom að þeim tímapunkti að hann uppgötvaði að hann var kominn með plötu. Hann hefur tekið upp ein þrjátíu lög og er búinn að skera plötuna niður í tutt- ugu eins og staðan er í dag. Villi úti- lokar hins vegar ekki að hann eigi eft- ir að taka upp meira. „Ég var lengi búinn að ætla að hætta að semja og fara að huga að útgáfunni og fleiru í tengslum við hana en svo bara gat ég það aldrei. Mér var alltaf að detta eitthvað nýtt í hug. Var að hlusta á eina upptöku þegar mér datt eitthvað annað í hug og náði þá í gítarinn og tók upp og platan öll er mest unnin þannig. Hún er tekin upp í svefn- herberginu og eldhúsinu, ef einhver var að horfa á sjónvarpið kom hljóðið frá því oft inn á upptökuna. Ég hef notað glös og penna og trommað á gítarinn. Þetta er mjög heimatilbúið. Það er oft mikið sírenuvæl úti á götu og það fékk bara að fljóta með stund- um ef takan tókst vel. Mér finnst það ekki skemma neitt, þetta er mjög hrátt og þannig vil ég hafa það.“ Stefnir á útgáfu í haust Villi var kominn ágætlega á veg með upptökurnar þegar hann ákvað að fara með þetta alla leið, klára sköpunina, og fyrir utan smávinnu fyrir enska boltann á Skjá einum í London hefur hann ekki unnið neitt meðfram tónlistinni. Og er nú að sjá fyrir endann á verkefninu. „Ég er mjög ánægður með plötuna, þetta er allt öðruvísi en það sem ég hef gert í tónlist hingað til. Ég vil ekki henda einu einasta lagi og stefni á að gefa plötuna út í haust. Ég ákvað aldrei hvort þetta ætti að vera stutt plata eða löng plata og ég þoli ekki þegar fólk ákveður fyrirfram til dæmis að gera stutta plötu bara til þess að gera stutta plötu. Ef þetta verður tvöföld plata verður þetta tvöföld plata. Ég nenni ekki að standa í því að passa að viss lög séu nákvæmlega nógu löng svo þau henti fyrir einhverja spil- unarlista í fjölmiðlum. Ef sagan er sjö mínútur er lagið sjö mínútur.“ Allir textarnir eru á ensku og er þetta í fyrsta sinn sem Villi semur á erlendri tungu. Hann segist vera al- gjörlega laus við þá fordóma að ís- lenskir tónlistarmenn megi ekki syngja á ensku. Það að platan sé ekki á íslensku geri hana auðvitað að- gengilegri fyrir erlendan markað. Mikilvægt sé að fólk syngi eitthvað sem vit er í og ef sú er raunin er hon- um alveg skítsama á hvaða tungumáli sungið er. Lag í spilun fljótlega Villi segist stefna að því að senda lag í spilun í íslenskt útvarp seinna í sumar eða í byrjun haustsins. Hann var í stuttu fríi á Íslandi þegar blaða- maður náði tali af honum fyrr í vik- unni en hélt aftur til London á fimmtudaginn þar sem hann er nú að leggja lokahönd á upptökurnar. Þær hefur hann unnið alfarið sjálfur eins Ástin, dauðinn og einlægnin Vilhelm Anton Jónsson, betur þekktur sem Villi Naglbítur, hefur undanfarið ár verið búsettur í London þar sem hann hefur tekið upp sína fyrstu sólóplötu. Jón Gunnar Ólafsson ræddi við hann um heimilislegt upptökuferlið, gripinn sjálfan, sköpunina og sitthvað fleira. Morgunblaðið/Eggert „Ég er mjög ánægður með plötuna, þetta er allt öðruvísi en það sem ég hef gert í tónlist hingað til,“ segir Villi um fyrstu sólóplötu sína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.