Morgunblaðið - 15.07.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 9
FRÉTTIR
Aukaafsláttur
á stórútsölunni
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Laugavegi 40, s. 561 1690
Útsala
20-80%
afsláttur
Laugavegi 40 - Sími 561 1690
RALPH LAUREN
Útsala
20-80%
afsláttur
Kvartbuxur á útsölu
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15
opið alla daga
Kringlunni - sími 568 1822
www.polarnopyret.is
Útsala
Enn meiri verðlækkun
50-70% afsláttur
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdótt-
ir menntamálaráðherra hefur að
fenginni tillögu húsafriðunarnefndar
ríkisins ákveðið friðun eftirtalinna
fjögurra mannvirkja:
Heilsuverndarstöðin við Baróns-
stíg í Reykjavík. Friðunin nær til
ytra borðs, ásamt aðalanddyri og
stigahúsi, anddyrum við Barónsstíg
og Egilsgötu auk tilheyrandi fastra
innréttinga, gólfefna og frágangs.
Höfundar byggingarinnar eru arki-
tektarnir Einar Sveinsson og Gunn-
ar H. Ólafsson en heilsuverndarstöð-
in er fyrsta sérhannaða
heilsugæslubygging landsins.
Rjómabúið að Baugsstöðum. Frið-
unin nær til ytra borðs ásamt tækj-
um og tólum, lausum og föstum.
Húsið sjálft er bárujárnsklætt timb-
urhús með lágu risi en varðveislu-
gildi rjómabúsins felst einkum í
menningarsögu, fágæti þess ásamt
einstakri varðveislu alls þess sem
kemur starfseminni við.
Dalatangaviti. Friðunin nær til
ytra og innra borðs vitans. Dala-
tangaviti er elsti uppistandandi viti
landsins en hann var byggður af Otto
Wathne, kaupmanni og útgerðar-
manni á Seyðisfirði.
Gamla sundlaugin að Seljavöllum í
Rangárvallasýslu. Friðunin nær til
laugarinnar, mannvirkja við hana og
nánasta umhverfis. Sundlaugin að
Seljavöllum er elsta steinsteypta
sundlaug landsins.
Tillaga um friðun fjögurra
mannvirkja samþykkt
Steinunn Stefánsdóttir hefur verið
ráðin aðstoðarritstjóri Fréttablaðs-
ins. Steinunn hefur verið blaða-
maður og ritstjórnarfulltrúi á
Fréttablaðinu frá stofnun þess 1.
apríl árið 2001. Frá þessu var
greint í Fréttablaðinu í gær.
Í Fréttablaðinu segir að eftir því
sem næst verði komist sé Steinunn
fyrst kvenna til að gegna svo
veigamiklu starfi á íslensku dag-
blaði en fyrir gegni tvær konur
störfum fréttastjóra á blaðinu. Er
haft eftir Steinunni að hún sé bæði
stolt og ánægð með ríkan þátt
kvenna í stjórnun blaðsins.
„Ég er afar stolt af hlut kvenna
hjá Fréttablaðinu og vona að þetta
sé til marks um breytta tíma hjá
fjölmiðlum,“ segir Steinunn í
Fréttablaðinu.
Steinunn hefur BA-próf í ís-
lensku og almennum málvísindum
og próf í uppeldis- og kennslu-
fræði. Áður en hún hóf störf á
Fréttablaðinu var hún blaðamaður
á DV, upplýsingafulltrúi Fræðslu-
miðstöðvar Reykjavíkur, fræðslu-
fulltrúi Bankamannaskólans og
framhaldsskólakennari. Steinunn
er fædd árið 1961. Hún er gift
Arthuri Morthens og á þrjár dæt-
ur.
Steinunn Stef-
ánsdóttir ráðin
aðstoðarritstjóri
Fréttablaðsins
MEÐAL umræðuefna á fundi Valgerðar Sverrisdóttur,
utanríkisráðherra, með Ann M. Veneman, fram-
kvæmdastjóra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNI-
CEF), í gær var samstarf íslenskra stjórnvalda og UNI-
CEF og enn frekari efling þess.
Utanríkisráðherra fór að auki yfir stefnu íslenskra
stjórnvalda í málefnum þróunarsamvinnu en stuðningur
Íslands við UNICEF hefur aukist mjög á umliðnum ár-
um, samfara aukningu á framlögum Íslands til þróun-
arsamvinnu.
Ann M. Veneman var áður landbúnaðarráðherra
Bandaríkjanna og tók við embætti framkvæmdastjóra
UNICEF á síðasta ári. Stofnunin var sett á fót árið 1946
og stendur vörð um líf barna í 157 löndum.
Morgunblaðið/ Jim Smart
Ræddu eflingu samstarfs
íslenskra stjórnvalda og UNICEF
ÍSLANDSÞÁTTUR sjónvarpsþátt-
araðarinnar Chefs A’ Field, sem
sýndur er á PBS-almenningssjón-
varpsstöðvunum í Bandaríkjunum
fékk nýlega hin virtu CINE Golden
Eagle-verðlaun ársins 2006. Í þátta-
röðinni eru 26 þættir og talið að um 15
milljónir áhorfenda sjái hvern þátt.
Golden Eagle-verðlaunin eru veitt
fyrir það sem þykir skara framúr í
heimilda- og fræðslumyndum. Þau
voru fyrst veitt 1957 og meðal fyrri
verðlaunahafa eru menn á borð við
Steven Spielberg og George Lucas.
Verðlaunaþátturinn var tekinn upp
hér á landi í september 2004 undir
stjórn Heidi Hanson. Matreiðslu-
meistarinn Jeff Tunks, sem m.a.
starfar á veitingahúsunum Ceiba og
DC Coast í Washington, höfuðborg
Bandaríkjanna, kom hingað ásamt
kvikmyndagerðarfólki. Farið var á
sjó með Kristni Aðalsteinssyni á
krókabátnum Sæfara frá Eskifirði og
dreginn þorskur á handfæri. Einnig
var farið í göngur og réttir á Suður-
landi með Sigur-
geir Þorgeirssyni
og fylgst með fénu
koma af fjalli.
Jeff Tunks eld-
ar síðan tvo rétti,
úr þorski og
lambi, og sýnir
áhorfendum
hvernig hann ber
sig að við elda-
mennskuna. Í þættinum er mikil
áhersla lögð á náttúrugæði Íslands og
sjálfbæra framleiðslu sem byggist á
góðri umgengni landsmanna við nátt-
úruna, fiskveiðistjórnun og að sauðfé
gangi sjálfala á sumrin.
Þátturinn var tekinn upp fyrir
breiðtjald og háskerpusjónvarp og sá
fyrsti sem var unninn með þeim hætti
um Ísland. Hann var unninn að frum-
kvæði Baldvins Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Áforms, átaksverkefn-
is um sölu íslenskra
landbúnaðarafurða, og með stuðningi
Iceland Naturally og Icelandair.
Íslandsþáttur
fékk Gullörninn
Heidi Hanson
BLÓÐBANKI Íslands hefur opnað
vefsíðu helgaða stofnfrumum og
rannsóknum á þeim. Á vefnum er
hægt að fræðast um stofnfrumur og
fylgjast með því sem er að gerast á
sviði stofnfrumurannsókna hér á
landi og erlendis. Á forsíðu munu
birtast daglega fréttir af gangi mála
og umræðunni um stofnfrumur og
tengt efni í heiminum í dag.
Verkefnið er stutt af OgVodafone,
sem hefur verið samstarfsaðili Blóð-
bankans í kynningarmálum á síð-
ustu árum.
Er vefnum ætlað að vera fræðandi
fyrir almenning jafnt sem heilbrigð-
isstarfsfólk og nýtast sem upplýs-
ingamiðill á þessu sviði. Fjallað er
um stofnfrumurannsóknir, siðfræði
og lög sem tengjast stofnfrumum og
klíníska stofnfrumumeðferð. Einnig
er greinargóð kynning á nýrri stofn-
frumugjafaskrá Blóðbankans, en
Actavis, Norræna ráðherranefndin
og Kristínarsjóður Krabbameins-
félags Íslands hafa veitt henni stuðn-
ing sinn.
Nýr vefur um
stofnfrumur
TENGLAR
..............................................
www.stofnfrumur.is
www.stemcells.is.