Morgunblaðið - 15.07.2006, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
20% afsláttur!
20% afsláttur af Outback og Fiesta Gusto gas-
grillum. Frí heimsending á höfuðborgarsvæðið.
VÖRUGJALD AFNUMIÐ?
Skýrsla matvælanefndar var
kynnt í gær og m.a. er lagt til að öll
veitingaþjónusta beri 14% virð-
isaukaskatt og að vörugjald á mat-
vöru verði afnumið. Verði tillög-
urnar að veruleika munu þær lækka
útgjöld heimilanna um 50 þúsund
krónur á ári. Ekki náðist samstaða í
nefndinni um afnám tollaverndar á
landbúnaðarvörur og lagði Hall-
grímur Snorrason, hagstofustjóri
því skýrsluna fram sjálfur.
Mánaðarlaun 315 þúsund
Hækkun mánaðarlauna nam að
meðaltali um 12,6% milli áranna
2004 og 2005 og voru meðallaun 315
þúsund krónur í fyrra. Þetta kemur
fram í samantekt Hagstofu Íslands.
Bætt afkoma í fiskvinnslu
Gengislækkun krónunnar hefur
skilað sér í bættum rekstri í fisk-
vinnslu og hefur afkoman batnað
talsvert í greininni. Auk gengislækk-
unar hefur verð á fiskafurðum í er-
lendri mynt haldist hátt.
Lýsir yfir stríði
Hassan Nasrallah, leiðtogi Hiz-
bollah-samtakanna í Líbanon, lýsti
því yfir í sjónvarpi í gær að samtökin
væru tilbúin í stríð við Ísrael. Átök á
svæðinu héldu áfram og hafa 66 Líb-
anar fallið eftir flugskeytaárásir Ísr-
aela.
Þrjú lið dæmd niður
Juventus, Fiorentina og Lazio
voru í gær dæmd niður í 2. deild
ítölsku knattspyrnunnar og Juven-
tus svipt meistaratitlum síðustu
tveggja ára. Rannsóknarnefnd
komst að því að félögin hefðu reynt
að hafa áhrif á úrslit leikja. AC Mil-
an var einnig ákært en var ekki
dæmt niður um deild. Félagið mun
þó byrja með fimmtán stig í mínus á
næsta tímabili.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Bréf 27
Viðskipti 15 Minningar 30/32
Erlent 16/17 Dagbók 36
Suðurnes 19 Víkverji 36
Akureyri 20 Velvakandi 37
Árborg 20 Staður og stund 38
Daglegt líf 21/23 Menning 40/45
Forystugrein 24 Ljósvakamiðlar 46
Listir 26 Veður 47
Umræðan 27/29 Staksteinar 47
* * *
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó-
hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is
Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns-
dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
STJÓRN Strætó bs. hefur samþykkt að fara út í
aðgerðir til að lækka rekstrarkostnað hjá fyrir-
tækinu og koma þannig til móts við mikinn halla-
rekstur. Stofnleið 5 verður lögð niður sem og ferð-
ir um stofnbrautir á tíu mínútna fresti en þær voru
teknar upp með nýju leiðakerfi í fyrra. Í frétta-
tilkynningu frá fyrirtækinu segir að umtalsverðar
breytingar og endurbætur á leiðakerfinu hafi ekki
skilað þeirri fjölgun farþega og aukningu tekna
sem reiknað var með. Þá kemur fram að ljóst sé að
sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, eigendur
Strætó, muni ekki leggja fram meira fé til að rétta
af reksturinn. Fækkun farþega og aukin einka-
bílaeign eru sagðar helstu ástæður rekstrarvanda
fyrirtækisins en einnig spili inn í hækkandi elds-
neytiskostnaður, aukin verðbólga, launahækkanir
og gengisþróun.
Í aðgerðunum felst að akstur á 10 mínútna
fresti á stofnleiðum hefst ekki á ný í haust en ekið
var samkvæmt því kerfi síðasta vetur. Aukavögn-
um verður hins vegar bætt við á mestu annatím-
um. Þá verður stofnleið 5 lögð niður en breytingar
gerðar á þjónustutíma leiðar 19 á móti.
Ármann Kr. Ólafsson, stjórnarformaður Strætó
bs., segir að með þessum aðgerðum sé hægt að
koma í veg fyrir það tap sem fyrirsjáanlegt hafi
verið á rekstri fyrirtækisins. Sveitarfélögin leggi
árlega fram um 1.400–1.500 milljónir króna í
reksturinn en fyrirséð hafi verið að tapreksturinn
næmi um 400 milljónum ofan á þá tölu. Þetta hafi
orðið að stöðva enda geti ekki gengið að sveit-
arfélögin bæti við slíkum upphæðum í rekstur fyr-
irtækisins nú þegar aðhalds er krafist í opinberum
útgjöldum, að sögn Ármanns.
Spurður um breytingarnar sjálfar segir Ár-
mann að með þeim fækki eknum kílómetrum í
kerfinu úr 9,4 milljónum í um 8,6 milljónir kíló-
metra á ári. Hann segir að sú breyting sem tekin
var upp í fyrra að bjóða upp á ferðir á 10 mínútna
fresti hafi ekki haft mikil áhrif, farþegum hafi
haldið áfram að fækka og margir farþegar hafi í
raun haldið áfram að taka sömu vagna og áður.
Aðgerðir Strætó bs. vegna rekstrarhalla eiga að spara 360 milljónir króna
Fella niður stofnleið 5 og
ferðir á 10 mínútna fresti
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
EINHVER gæti haldið að þessi mynd af eldfjallinu
Heklu hefði verið tekin að vetri til en svo er ekki. Mikill
snjór er nú í Heklu, óvenjumikill miðað við að nú er
miður júlí og segja kunnugir á svæðinu að þetta sé til
marks um mikið kuldaskeið að undanförnu auk mik-
illar úrkomu sem hefur verið í sumar.
Er það í samræmi við sumarveðrið víðast hvar á
landinu, en mikil úrkoma hefur verið í sumar, þrátt fyr-
ir að kuldinn hafi ekki verið jafnmikill og á hálendinu.
Víðast hvar er búist við úrkomu og roki á landinu í
dag nema á Austurlandi þar sem búast má við sólskini
og allt að 17 stiga hita. Öllu betra veður verður á morg-
un skv. spám, þurrt verður á nánast öllu landinu fyrir
utan Snæfellsnes þar sem búast má við úrkomu.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Óvenjumikill snjór í Heklu
ELFA Rún Kristinsdóttir, fiðluleik-
ari, hlaut fyrstu verðlaun í al-
þjóðlegri keppni í Leipzig fyrir
unga hljóð-
færaleikara
sem kennd er
við tónskáldið
Johann Seb-
astian Bach.
Að auki hlaut
hún sérstök
verðlaun fyrir
að vera yngsti
keppandinn,
21 árs gömul, sem vinnur til verð-
launa. Elfa Rún mun í dag taka á
móti verðlaunum sínum auk þess að
spila ásamt öðrum verðlaunahöfum
á tónleikum í stóra sal Gewandhaus
tónleikahússins í Leipzig sem rúm-
ar yfir 1900 gesti.
Keppnin fer fram annað hvert ár
og eru verðlaun veitt í þremur
flokkum hverju sinni. Fyrstu verð-
laun fyrir fiðluleik voru síðast veitt
árið 1992 en síðan þá hafa fiðluleik-
arar tvisvar keppt um verðlaunin.
Enginn Íslendingur hefur áður bor-
ið sigur úr býtum í keppninni.
Elfa Rún hefur búið í Freiburg í
Þýskalandi sl. þrjú ár og stundað
þar nám í fiðluleik.
Elfa hlaut
fyrstu
verðlaun
JÓN Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair Group, sagði í samtali við
Morgunblaðið að stjórnendum fyr-
irtækisins hefðu ekki borist neinar
tilkynningar um aðgerðir starfs-
manna IGS á Keflavíkurflugvelli.
Segist hann ekki hafa áhyggjur af
því að seinkun verði á millilandaflugi
næstu daga sökum þess að starfs-
menn hætti að vinna yfirvinnu eða
hægi á störfum. „Það er ekki eins og
við rekum flugstöðina á yfirvinnu,
það er ekki svoleiðis. Við sjáum ekki
fram á neinar seinkanir í þeim mál-
um nema að menn grípi til aðgerða
sem eru ólöglegar,“ segir hann.
Aðspurður hvort öll starfsemi
myndi ganga eðlilega fyrir sig ef
starfsmenn gripu til einhverra að-
gerða sagðist Jón vonast til þess að
svo yrði en ekki væri hægt að full-
yrða um það, ef starfsmenn t.d. færu
að vinna hægar. Hann sagðist þó
ekki trúa því að svo færi og ítrekaði
það að vinnufriður væri á milli
vinnuveitenda og launþega og það
að starfsmenn hægðu á störfum
væri ekki samkvæmt því sem skrif-
að hefði verið undir í kjarasamn-
ingum.
Aðspurður um viðræður við
starfsmenn sagði Jón að rætt hefði
verið um aðstöðu- og álagsmál: „Við
erum að vinna í því að leysa þau. Við
höfum verið að hitta starfsmenn og
ræða við þá og það hefur gengið
ágætlega.“ Jón sagði jafnframt að
vinnuhópar hefðu verið myndaðir
með yfirmönnum og starfsmönnum
IGS. Sum mál væru flókin úrlausnar
en öll mál væru þó í góðum farvegi
og reiknað væri með því að þau
leystust á næstu vikum og mánuð-
um.
Yfirvinnustöðvun
mun ekki hafa
áhrif á starfsemina