Morgunblaðið - 15.07.2006, Side 14

Morgunblaðið - 15.07.2006, Side 14
14 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HOLLVINA- SAMTÖK varð- skipsins Óðins verða stofnuð í haust, að frum- kvæði Sjó- mannadagsráðs. Guðmundur Hall- varðsson, alþing- ismaður og for- maður ráðsins, lagði fram tillögu þess efnis á fundi stjórnar Sjó- mannadagsráðs í vikunni og var hún samþykkt. Hugmyndin gengur út á að varðskipið Óðinn verði gert að minjasafni þorskastríðsáranna. „Það voru sorglegt tíðindi þegar varðskipið Ægir var selt út landi á sínum tíma. Að vísu var búið að breyta því nokkuð. Það er búið að eyðileggja varðskipið Þór, sem tók þátt í öllum þorskastríðunum. Það varðskip sem eftir er, og tók þátt í tveimur af þremur þorskastríðum, er Óðinn og það er nánast óbreytt frá upphafi,“ sagði Guðmundur. Að vísu var á sínum tíma sett þyrluskýli og þyrlupallur á Óðinn, en búnaður er að miklu leyti upprunalegur eða því sem næst. Til dæmis er talið að Burmeister & Wain-vélarnar í Óðni, sem eru upprunalegar frá því skipið var smíðað 1958, séu þær einu sinn- ar gerðar sem enn eru gangfærar í skipi í heiminum. „Þetta eru sögulegar minjar um mikinn sigur ey- og fiskveiðiþjóð- arinnar Íslands í þessum stríðum, einkum við Breta,“ sagði Guð- mundur. „Menn verða þess varir í dag að ungt fólk, sem kemur hingað til Íslands, veit ekkert um þorska- stríðin. Það trúir því varla að þau hafi verið háð, hvað þá að Íslend- ingar hafi borið sigur úr býtum. Til framtíðar litið er Óðinn safngripur og tengist mikilli sagnfræði. Hann mun laða að sér erlenda ferðamenn sem munu skoða skipið. Væntanlega yrði sögusafni þorskastríðanna kom- ið fyrir í skipinu og í tengslum við það.“ Guðmundur kvaðst sjá fyrir sér að skipið verði staðsett við Sjóminja- safnið í Reykjavík. Hann vonast til að stór hópur fólks muni leggja holl- vinasamtökunum lið. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir 2006, sem var rætt á Alþingi haustið 2005, flutti Guðmundur tillögu þess efnis að heimild til ríkisstjórnarinnar til að selja varðskipið Óðinn yrði tekin út úr frumvarpinu. Það var sam- þykkt með öllum greiddum atkvæð- um stjórnarsinna. Hann sagði að sumum yxi í augum kostnaður við að gera Óðinn að safni. En hvað kostar það? „Það kostar eitt ársverk á hverju ári, auk rafmagns, hita og annarrar umsýslu, að upphæð um 12 milljónir. Fimmta hvert ár þarf að taka skipið í slipp og skvera sem kostar fimm milljónir að auki,“ sagði Guð- mundur. Morgunblaðið/Sverrir Hollvinasamtök varðskipsins Óðins stofnuð í haust Guðmundur Hallvarðsson. VALTÝR Valtýsson, sveitarstjóri í Bláskógabyggð, telur ekkert óeðli- legt við þau þjónustugjöld sem inn- heimt eru af eigendum sumarhúsa í sveitarfélaginu. Í frétt Morgunblaðs- ins á þriðjudag kom fram hjá Sveini Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Landssambands sumarhúsaeigenda, að álögur á eigendur sumarhúsa hefðu aukist mjög síðastliðin ár vegna hækkunar á þjónustu- og fast- eignagjöldum. Benti hann sérstak- lega á gjöld sem greiða þyrfti í Blá- skógabyggð og að fólk væri farið að selja sumarhús sín vegna sífellt hækkandi útgjalda til hins opinbera. Valtýr viðurkennir að fasteigna- gjöld hafi hækkað umtalsvert síðast- liðin ár en það hafi gerst samhliða því að fasteignamat húsnæðis hafi hækkað. Þetta eigi við um sumarhús eins og íbúðarhús um land allt. Sveit- arfélögin ákveða álagningarhlutfall- ið sjálf og benti framkvæmdastjóri Landsambands sumarhúsaeigenda á að af 10 milljón króna húsi í Reykja- vík væru greiddar 20 þúsund krónur í fasteignagjöld á ári en af 10 milljón króna eign í Bláskógabyggð væru greiddar 60 þúsund krónur. Valtýr telur þennan samanburð ósanngjarnan og samkvæmt álagn- ingarprósentu í Reykjavík ættu við- miðunartölur sem Sveinn nefnir um fasteignaskatt í Reykjavík að vera 25% hærri. „Fasteignamat í Reykja- vík er mun hærra á íbúðarhúsnæði og því þarf lægri prósentu til að ná sömu krónutölu á hvern fermetra af húsnæði.“ Fasteignagjöld eru skattur en ekki þjónustugjald Hann bendir á að fasteignagjaldið sé skattur, en ekki þjónustugjald, sem notaður sé til að standa undir ýmsum rekstri sveitarfélagsins. Ekki sé heimild fyrir því í lögum að innheimta lægri fasteignagjöld af sumarhúsum en af öðrum fasteign- um innan sveitarfélagsins, eins og al- mennum íbúðarhúsum, sem falli undir A-hluta fasteignagjalda eða 2. grein reglugerðar um fasteigna- skatt. Álagningarhlutfallið sé ákveð- ið með hliðsjón af rekstrarstöðu sveitarfélagsins hverju sinni og í samræmi við lög og reglugerð sem sett hafa verið af Alþingi og ráðu- neyti. „Ef menn halda að Bláskóga- byggð sé að safna í sjóð með þessum hætti þá er það alls ekki svo,“ segir Valtýr. Í máli Sveins Guðmundssonar kom einnig fram að sorphirðugjald í Bláskógabyggð hefði tvöfaldast á síðastliðnum sex árum og nýtt rotþróargjald lagt á sem ekki væri í samræmi við þann kostnað sem þjónustunni fylgdi. Valtýr efast um þann kostnað sem Sveinn nefndi varðandi losun á rótþró og segir hann ekki vera í takt við þær raun- tölur sem sveitarfélagið þurfi að greiða fyrir þá þjónustu. Í dag séu strangar kröfur gerðar til þess hvernig staðið sé að málum hvað þetta varðar og rotþróargjaldið, sem er 4.500 krónur á ári, sé í samræmi við raunkostnað. Valtýr bendir einn- ig á að þrátt fyrir að sorphirðugjald- ið hafi hækkað síðastliðin ár þá standi gjaldið ekki undir þeim kostn- aði sem sveitarfélagið ber af sorp- hirðunni. „Við vonuðumst eftir því að gjaldið næði upp í 80% þess kostnaðar sem kæmi til vegna þjónustunnar en við erum ekki of bjartsýn á að það tak- ist.“ Hann bætir við að staðan sé þessi þrátt fyrir að sveitarfélaginu hafi tekist að hagræða mikið í þess- um málum upp á síðkastið. Telur álögur á sumar- húsaeigendur eðlilegar Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is  Hinn 25. maí síðastliðinn varði Páll Matthíasson geðlæknir dokt- orsritgerð sína við Geðfræðastofn- un Lundúnaháskóla (Institute of Psychiatry, University of London). Titill ritgerðarinnar var: „Dealing with treatment resistance to clo- zapine: Charac- teristics of treat- ment response in schizop- hrenia“. Ritgerðin fjallar um ákveðna þætti í meðferð geð- klofa sem er al- varlegur geð- sjúkdómur sem herjar á um það bil einn af hverjum hundrað manns. Rannsóknir Páls lúta að geðklofa sem ekki svarar hefð- bundinni geðrofslyfjameðferð. Notkun tveggja geðrofslyfja sam- tímis, clozapine og amisulpride, var könnuð með klínískum rann- sóknum. Jafnframt var sérhæfðri heilaskönnunaraðferð (Single Pho- ton Emission Tomography, SPET) beitt í sjúklingum til að skilja hvaða þættir dópamínboð- efnakerfis heilans tengjast svörun við lyfjunum. Niðurstöðurnar sýndu samverkandi árangur af notkun lyfjanna í sérvöldum hópi mjög veikra sjúklinga. Undirstrika niðurstöðurnar hversu ólíkir mis- munandi hópar sjúklinga með geð- klofa eru og mikilvægi þess að beita skipulegum vinnubrögðum við val á réttri lyfjameðferð þeirra. Páll fæddist í Reykjavík árið 1966 og eru foreldrar hans Matt- hías Guðjónsson verslunarmaður og Guðrún Guðjónsdóttir kennari. Hann útskrifaðist úr Mennta- skólanum í Reykjavík 1986 og lauk embættisprófi frá læknadeild Háskóla Íslands 1994. Hann lauk sérfræðiprófi í geðlækningum frá Maudsleyspítalanum í Lundúnum og starfar nú sem yfirlæknir á The Huntercombe Hospital- Roehampton þar í borg, jafnframt því að stunda áfram rannsóknir við Geðfræðastofnun Lundúnahá- skóla. Páll er kvæntur Ólöfu Björnsdóttur myndlistarmanni og eiga þau tvö börn, Valdemar og Júlíu. Doktors- vörn í læknisfræði hvaða námi viðkomandi nemandi hafi lokið stúd- entsprófi og gera kröfur um hvað stúdentinn hafi lært á námstímanum. Aðalheiður Steingrímsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, sat í starfsnámsnefnd og fagnar því að skólarnir fái meira frelsi og sveigj- anleika. „Í þessu felst mikil nýjung og þetta er það sem skólarnir hafa verið að biðja um í langan tíma.“ Öll umræða er framundan Hún bendir á að bæði kennarar og stjórnendur framhaldsskólanna hafi lengi verið ósáttir við bind- ingu námsins í kjarna, kjörsvið og val en nær eng- inn sveigjanleiki hafi verið til að útfæra nýjar leið- ir. Með því að auka fjölbreytnina og opna dyrnar FULLTRÚI Kennarasambands Íslands í starfs- námsnefnd segir of snemmt að fullyrða hvaða áhrif tillögur nefndarinnar hafi á áform um að stytta nám til stúdentsprófs en vonar að þær verði til þess að opna umræður um menntamál á breiðum grundvelli. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá fela til- lögur starfsnámsnefndar, sem kynntar voru í vik- unni, í sér að hætt verður að greina á milli bóknáms og starfsnáms. Stúdentsprófið verði endurskil- greint þannig að það eitt muni ekki lengur veita nemendum aðgang að háskólum landsins. Háskól- ar og atvinnulíf munu því þurfa að líta til þess úr fyrir því að blanda meira saman starfsnámi og bók- námi skapist fjölmörg tækifæri til náms og einnig sé jákvætt að efla eigi samstarfið milli skólastiga. Aðalheiður segir að of snemmt sé að fjölyrða um hvaða áhrif tillögurnar hafi á umræður um að stytta náms til stúdentsprófs. Tillögur starfsnáms- nefndar muni verða sendar inn í þrjár samráðs- nefndir sem starfa muni á vegum menntamála- ráðuneytisins og Kennarasambands Íslands á grundvelli hins svokallaða tíu punkta samkomu- lags. „Öll umfjöllun og umræða er framundan og það er mikilvægt að hún snúist um inntak náms- ins,“ segir Aðalheiður. „Ég bind þó vonir við að allt það sem er í þessari skýrslu verði til þess að menn geti siglt framhjá þeim blindskerjum sem hin menntapólitíska umræða hér hefur strandað á.“ Eflir samstarf skólastiga Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is BÆJARRÁÐ Kópavogs ákvað á fundi sínum á fimmtudag að sam- þykkja tillögur bæjarstjóra um nið- urskurð verklegra framkvæmda á fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyr- ir árið 2006. Eru þetta gert til að koma til móts við óskir ríkisstjórnar Íslands um að draga úr framkvæmdum til að minnka þenslu og vinna á móti verðbólgu. Sá fyrirvari er gerður um fram- kvæmd tillagnanna að önnur sveit- arfélög fylgi Kópavogsbæ og komi einnig til móts við óskir ríkisstjórn- arinnar. Tekur til 15 verkliða Gert er ráð fyrir að skera niður um 411 milljónir króna og taka alls til 15 verkliða í gildandi fjárhags- áætlun. Alls var gert ráð fyrir framkvæmdum að fjárhæð 3,5 millj- arða króna og er því um 12% nið- urskurð að ræða, en sé horft til þeirra framkvæmda sem eftir eru á árinu nemur niðurskurðurinn 30– 40%. Kópavogur sker niður fram- kvæmdir ♦♦♦ HAGSMUNARÁÐ íslenskra fram- haldsskólanema skorar á mennta- málaráðherra að hverfa frá áformum um styttingu náms til stúdentsprófs og beiti sér þess í stað fyrir auknu frelsi innan framhaldsskólanna. Stjórn hags- munaráðsins fundaði um tillögur nefndar um endurskoðun starfs- náms en í þeim felast hugmyndir að breyttu umhverfi alls fram- haldsskólanáms á Íslandi. Í fréttatilkynningu frá stjórn Hagsmunaráðs íslenskra fram- haldsskólanema kemur fram að ráðið fagni því að í tillögunum virðist horfið frá skerðingu náms til stúdentsprófs. Hagsmunaráð styðji hugmyndir starfsnáms- nefndar um aukið valfrelsi til náms á framhaldsskólastigi og telur rökrétt að hver ein- staklingur eigi að fá tækifæri til að stýra sínu námi og námstíma í samræmi við eigin áhuga og kröf- ur. Ráðið telur þó að ræða þurfi tillögurnar betur og skilgreina þurfi betur útfærslu framkvæmd- arinnar. Ennfremur skorar stjórn Hags- munaráðsins á menntamálaráð- herra að hverfa frá áformum um styttingu náms til stúdentsprófs og auki þess í stað frelsi innan framhaldsskólanna. Horfið verði frá áformum um styttingu náms

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.