Morgunblaðið - 15.07.2006, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÍSRAELAR hótuðu í gær að lífláta Hassan
Nasrallah, leiðtoga Hizbollah, sem þeir hafa
lengi haft illan bifur á og jafnvel tekið í tölu
helstu illmenna sögunnar.
„Hann hefur grafið sína eigin gröf,“ sagði
Roni Bar-On, innanríkisráðherra Ísraels. „Við
jöfnum sakirnar við hann þegar þar að kemur.“
Dagblöð í Ísrael sögðu í gær að landið stæði
frammi fyrir stríði og ganga þyrfti milli bols og
höfuðs á Hizbollah-mönnum hvað sem það
kostaði.
„Skotmarkið: Nasrallah,“ sagði í flennifyr-
irsögn á forsíðu söluhæsta dagblaðs Ísraels,
Yediot Aharanot. „Ákvörðunin um örlög hans
hefur þegar verið tekin og hann verður líflát-
inn. Núna er þetta aðeins spurning um hvenær
tækifæri gefst til þess,“ sagði blaðið í forystu-
grein.
Dagblaðið Maariv tók í sama streng og sagði
að koma þyrfti í veg fyrir að liðsmenn Hizbol-
lah gætu gert flugskeytaárásir á Ísrael frá
sunnanverðu Líbanon. „Hizbollah má aldrei
komast að landamærunum. Það þarf að upp-
ræta þessa vá. Nasrallah verður að deyja,“
sagði Maariv í forystugrein.
Blaðið hélt því jafnvel fram að
Nasrallah, Mahmoud Ahmad-
inejad, forseti Írans, og Khaled
Meshaal, leiðtogi Hamas, væru
„ef til vill jafnvel enn hættu-
legri“ en Adolf Hitler.
Virtur meðal sjíta
Nasrallah nýtur mikillar virð-
ingar meðal sjíta í Líbanon,
þykir gæddur persónutöfrum,
fljúgandi mælskur og snjall
samningamaður. Hann er álit-
inn einn af áhrifamestu mönn-
um Líbanons.
Nasrallah er 45 ára og var
kjörinn leiðtogi Hizbollah árið 1992 eftir að
Ísraelar drápu forvera hans, Abbas al-Musawi,
eiginkonu hans og þriggja ára dóttur þeirra í
loftárás. Hizbollah, sem þýðir „Flokkur Guðs“
á arabísku, er ein af helstu hreyfingum sjíta í
Líbanon. Hún var stofnuð eftir innrás Ísraela í
Líbanon árið 1982 til að berjast gegn hernámi
landsins.
Hreyfingin var stofnuð með aðstoð klerka-
stjórnarinnar í Íran og aðhyllist íslamska hug-
myndafræði Ruhollah Khomeinis erkiklerks,
leiðtoga íslömsku byltingarinnar í Íran. Hiz-
bollah vill stofna íslamskt ríki í
Líbanon en kveðst viðurkenna að
það sé ekki hægt nema með sam-
þykki þjóðarinnar.
Auk klerkastjórnarinnar í Íran
nýtur Hizbollah stuðnings ráða-
manna í Sýrlandi.
Hreyfingin er sökuð um að hafa
staðið fyrir mannskæðum
sprengjutilræðum og tekið marga
Vesturlandabúa í gíslingu á níunda
áratug aldarinnar sem leið þegar
borgarastríð geisaði í landinu. Hiz-
bollah hefur neitað þeim ásökunum
en er enn á lista Bandaríkjastjórn-
ar yfir hryðjuverkasamtök í heim-
inum. Hreyfingin rekur nú sjúkrahús, skóla,
fréttastofu og fékk fjórtán sæti af 128 á þingi
landsins í kosningum fyrir rúmu ári. Tveir
fulltrúar Hizbollah eiga sæti í stjórn landsins.
Margir Líbanar telja að hreyfingin eigi heið-
ur skilinn fyrir þátt hennar í því að knýja Ísr-
aela til að binda enda á 22 ára hernám Suður-
Líbanons árið 2000.
Jafnvel þeir stjórnmálamenn Líbanons, sem
njóta stuðnings vestrænna ríkja, hafa hafnað
kröfu Sameinuðu þjóðanna um að afvopna Hiz-
bollah.
Ísraelar hóta að lífláta
leiðtoga Hizbollah
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Hassan Nasrallah
SIGFÚS Ingi Sigfússon, aðstoðarmaður utan-
ríkisráðherra, sagði í samtali við fréttavef
Morgunblaðsins í gær að utanríkisráðuneytið
hefði samið við Norðmenn um að flytja Ís-
lendinga, sem eru staddir í Beirút í Líbanon,
úr landinu komi til þess að norsk yfirvöld
ákveði að flytja norska ríkisborgara þaðan.
Utanríkisráðuneytið veit af tíu Íslend-
ingum sem eru staddir í Líbanon. Í flestum
tilfellum hafa fjölskyldur fólksins látið vita af
því og ráðuneytið hefur reynt að hafa sam-
band við Íslendingana.
Þrír starfsmenn flugfélagsins Atlanta, sem
eru staddir í Beirút, hafa þegar óskað eftir
aðstoð við að komast þaðan en aðrir Íslend-
ingar í landinu höfðu ekki enn farið fram á
slíkt í gær.
Straumur fólks er nú frá Líbanon en tugir
almennra borgara hafa látið lífið í loftárásum
Ísraela á landið síðustu tvo daga. Hægt er að
komast út úr landinu til norðurs en danska
utanríkisráðuneytið varar fólk við því að
hugsanlegt sé að það verði fyrir loftárásum á
þeirri leið. Ráðuneytið ráðleggur þó fólki
sem statt er í suðurhluta landsins að halda
norður á bóginn. Um 1.700 Danir munu vera í
Líbanon, að sögn fréttavefjar Jyllands-
Posten.
Ísraelar gerðu aftur loftárás á eina al-
þjóðaflugvöll Líbanons í gær og réðust einnig
á orkuver og þjóðveg að höfuðborg Sýrlands.
Samið við Norð-
menn um flutn-
ing Íslendinga
JAPANIR halda á 50 kílógramma
kyndlum er þeir ganga upp og nið-
ur brattan steinstiga við inngang
shinto-hofs í Nachikatsuura í
Wakayama-héraði í Japan. Gangan
er hreinsunarathöfn til að undirbúa
flutning á guðum í helgiskrínum úr
hofinu að nálægum fossi.
AP
Stigi hreinsaður
að shinto-sið
BRETAR eru æfir yfir mynd af
Díönu prinsessu sem birtist í ítölsku
tímariti en hún er tekin á slysstað
augnabliki áður en hún lést. Á
myndinni sést prinsessan, sem ligg-
ur í flaki bílsins, fá súrefnisgrímu
eftir bílslysið sem olli dauða hennar í
ágúst 1997.
Bresku götublöðin, sem mörg
hver eru þekkt fyrir að kalla ekki
allt ömmu sína þegar kemur að
fréttaskrifum og
myndbirtingu,
voru fremst í
flokki þeirra sem
mótmæltu mynd-
birtingunni af
Díönu. „Skamm-
ist ykkar,“ sagði
The Sun og Daily
Express sagði
myndina „afkára-
lega“ og að blaðið
myndi aldrei birta hana.
Talsmenn minningarsjóðs Díönu
sögðu myndina bera vott um slæman
smekk. „Margir hafa óbeit á þessari
ákvörðun blaðsins. Ritstjórinn virð-
ist ekki hafa hugsað um hvaða áhrif
myndirnar hafa á fjölskyldu henn-
ar,“ sagði talskona sjóðsins. Moha-
med al Fayed, faðir Dodi, sem lést
ásamt Díönu í slysinu, sagði mynd-
birtinguna „andstyggilega.“
Ritstjóri ítalska blaðsins Chi, sem
birti myndina, sagði hana „áhrifa-
mikla“ en ekki særandi.
Bretar æfir
yfir mynd
af Díönu
Díana prinsessa.
Washington. AFP. | Valery Plame,
fyrrverandi starfsmaður banda-
rísku leyniþjónustunnar CIA, hefur
lögsótt Dick Cheney, varaforseta
Bandaríkjanna, fyrir aðild að sam-
særi um að skýra blaðamönnum frá
leynilegri atvinnu hennar.
Plame og eiginmaður hennar, Jo-
seph Wilson, fyrrverandi sendi-
herra, lögsækja einnig Karl Rove,
fyrrverandi stjórnmálaráðgjafa
George W. Bush forseta, og Lewis
Libby, fyrrverandi starfs-
mannastjóra varaforsetaembætt-
isins. Eru þeir sakaðir um að hafa
komið upplýsingunum um atvinnu
Plame á framfæri við fjölmiðla í því
skyni að „refsa“ eiginmanni hennar
fyrir að andmæla fullyrðingum
Bush í ræðu sem hann flutti árið
2003 til að réttlæta innrásina í Írak.
Cheney lögsóttur
Mumbai. AP. | Manmohan Singh, for-
sætisráðherra Indlands, sagði í gær
að árangur gæti ekki náðst í friðar-
viðræðum við Pakistana vegna
Kasmír-héraðs fyrr en pakistönsk
yfirvöld beittu sér af meiri hörku
gegn hryðjuverkamönnum. Singh
sagði að mennirnir sem gerðu árás-
ina á Mumbai á þriðjudag hefðu
„fengið stuðning handan landamær-
anna“ og vísaði þar til Pakistan.
Ummælin gefa til kynna að sam-
skiptin á milli þjóðanna séu aftur að
versna en þau hafa batnað síðustu
ár. Pakistönsk stjórnvöld hafa neitað
því að eiga nokkurn þátt í árásunum
þar sem um 200 manns létust þegar
átta sprengjur sprungu í lestum.
Singh sagði að Pakistanar hefðu fyr-
ir tveimur árum fullvissað Indverja
um að í landinu yrði ekki hvatt til eða
aðstoðað við hryðjuverk. „Það verð-
ur að ganga eftir áður en friðarferlið
og önnur ferli geta haldið áfram,“
sagði hann.
Í máli hans kom fram að lögreglu-
menn væru vissir um að hryðju-
verkasamtök væru starfandi í
Mumbai og víðar á Indlandi og að
þau fengju stuðning frá Pakistan.
Hann nefndi ekki hvers konar stuðn-
ing hann ætti við, hvatningu, tækni-
lega aðstoð, þjálfun eða fjármagn.
Pakistönsk stjórnvöld hafa lengi við-
urkennt að þau séu hlynnt baráttu
aðskilnaðarsinna í indverska hluta
Kasmír.
Litlu munaði að stríð brytist út á
milli þjóðanna árið 2002 en síðan þá
hafa samskiptin batnað og friðarvið-
ræður átt sér stað. Hins vegar hefur
lítið þokast í samkomulagsátt í
stærsta deilumálinu, yfirráðum yfir
Kasmír sem nú er skipt á milli
þeirra. Ekki er vitað hvort fundur
utanríkisráðherra landanna sem átti
að vera í næstu viku, verði haldinn.
Leita þriðja mannsins
Yfirvöld á Indlandi gáfu í gær upp
nafn þriðja mannsins sem grunaður
er um aðild að tilræðinu. Maðurinn
gengur aðeins undir nafninu Rahil
en yfirvöld höfðu áður birt myndir af
tveimur öðrum mönnum sem þau
leita, Sayyad Zabuddin og Zulfeqar
Fayyaz. Ekki var gefið upp hverrar
þjóðar þeir eru né hvaðan myndirnar
koma en af myndunum mátti ráða að
þeir væru ungir að árum.
Rannsóknin náði yfir til nágranna-
ríkisins Nepal þar sem lögregla
sagðist í gær hafa handtekið tvo
Pakistana í tengslum við rán á hinu
öfluga RDX-sprengiefni árið 2001
þegar 16 kíló af efninu fundust í íbúð.
Hún sagði verið að rannsaka hvort
þeir tengdust árásunum í Mumbai.
Gæti verið dínamít
Embættismenn hafa látið að því
liggja að samtökin Lashkar-E-Ta-
yyaba, sem berjast gegn yfirráðum
Indverja yfir hluta Kasmír-héraðs,
hafi staðið fyrir árásunum og margir
segja að meint notkun á RDX-
sprengiefni sanni að svo hljóti að
vera. Samtökin neita því hins vegar
alfarið og indverskar fréttastofur
sögðu frá því í gær að rannsóknir
sýndu að líklega hefði einhvers kon-
ar iðnaðarsprengiefni verið notað,
eins og dínamít eða jafnvel ammóní-
umnítrat.
Pakistanar gagnrýndir á Indlandi
Beiti hryðju-
verkamenn
meiri hörku
Reuters
Forsætisráðherra Indlands ræðir
við mann, sem særðist í sprengju-
árásunum, á sjúkrahúsi í Mumbai.
♦♦♦