Morgunblaðið - 15.07.2006, Side 42

Morgunblaðið - 15.07.2006, Side 42
42 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ „ÞESSI plata er í raun og veru búin að hafa svolítið langan aðdraganda,“ segir tónlistarmaðurinn Magga Stína um forsögu þess að hún vinnur nú að nýrri plötu. Platan hefur að geyma bæði ný og gömul lög eftir Megas og er stefnt á útgáfu í haust. „Ég hef áður sungið inn á safnplötu með lögum eftir Megas og svo söng ég nokkur lög á miklum tónleikum sem haldnir voru honum til heiðurs í tilefni af sextugsafmæli hans í fyrra. Það má segja að hugmyndin að plöt- unni hafi kviknað þá.“ Magga Stína segir að hún hafi fengið til liðs við sig mikið til sama fólkið og var með henni á tónleik- unum. „Ég er alltaf jafn heppin. Með mér eru algjörir rjómamenn; Matthías Hemstock, Kristinn Árna- son, Hörður Bragason og Þórður Högnason. Megas hefur svo fylgst með og lagt fallega blessun sína yfir verkefnið. Þrjú áður óútgefin Megasar-lög Þegar Magga Stína er spurð út í lagavalið segir hún að þar ráði engin „tekkník“ , nær sé að segja að laga- valið sé tilfinningalegt. „Valið er persónulegt. En það spannar engu að síður yfir allan feril Megasar. Svo verða alla vega þrjú áður óútgefin lög á diskinum. Megas var svo elskulegur að leyfa mér að velja úr lögum eftir sig enda sískapandi maður. Við erum búin að taka upp alla grunna. Nú er bara eftir að ryksuga svolítið og bóna og svoleiðis. Við höf- um tekið upp í Gimsteini hjá honum Rúnari [Júlíussyni]. Það hefur verið alveg ótrúlega huggulegt og fallegt.“ Bókaútgáfa fetar nýjar slóðir Bókaútgáfan Bjartur mun gefa út plötu Möggu Stínu, sem er enn sem komið er án titils. „Mér fannst það skemmtileg hugmynd. Þó lögin hans Megasar séu auðvitað gullfalleg þá er hann engu að síður svo mikill maður orðsins. Þannig að mér fannst mjög viðeigandi að leita til Bjarts. Og þeir sögðu bara: „Já auð- vitað, hvernig lætur þú?“ Ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem Bjartur gefur út plötu.“ Tónlist | Magga Stína vinnur að plötu með lögum Megasar Morgunblaðið/Árni Torfason Magga Stína hefur flutt lög Megasar. Hér skoða þau upptökur af tónleikum sem haldnir voru í Austurbæ í fyrra. Elskulegur og sískapandi Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is Eins og alþjóð veit var þaðBandaríkjamaðurinn Chris Pierson sem var sendur heim úr raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova sem sýndur var aðfaranótt fimmtudags. Magni hafði að margra mati átt besta flutninginn kvöldið áður þegar hann söng Who-lagið „My Genera- tion“ fyrir þá félaga í Supernova og má með sanni segja að hann hafi tekið sig saman í andlit- inu eftir flutning síðustu viku. Eftir þriðju- dagskvöldið bjuggust flestir því við að Magni kæmist vand- ræðalaust áfram yfir í næstu keppnisviku sem kom svo á daginn því Magni var ekki einu sinni á meðal þeirra fjögurra sem hlutu fæst at- kvæði áhorfenda. Á spjallsíðu keppninnar má sjá að margir eru óánægðir með að Chris skyldi vera sendur heim og benda þeir á að Zayra hefði frekar átt reisupassann skilið. Ganga sumir svo langt að segja að þre- menningarnir í Supernova hafi mun meiri áhuga á kvenkynskepp- endunum og því sé það til einskis fyrir Magna og hina strákana í keppninni að halda í vonina. Þegar næsta umferð hefst verða þrettán söngvarar eftir til að keppa um hylli þeirra Gilby Clarke, Jasons Newstead og Tommy Lee sem skipa Supernova hljómsveitina. Sjö kvenmenn og sex karlmenn.    Á netsíðu Viðskiptablaðsins kemur fram að danski ryksugu- framleiðandinn Nilfisk hefur gert athugasemd við notkun hljóm- sveitarrinnar NilFisk á nafni fyr- irtækisins. Aðdragandi málsins er sá að hljómsveitin hélt tónleika í Kaup- mannahöfn og við það tækifæri sendu liðs- menn sveit- arinnar eintak af nýútgefn- um disk þeirra á skrifstofu ryksugu- framleið- andans. Þessari vinalegu gjöf var ekki tekið betur en svo að sveitin fékk bréf frá lögfræðingi fyrirtæk- isins þar sem krafist er að allur varningur merktur Nilfisk svo sem bolir, geisladiskar og annað slíkt yrði gerður upptækur. Að sögn Jó- hanns Vignis Vilbergssonar, eins af liðsmönnum sveitarinnar, var ákveðið að senda fyrirtækinu ein- tak þar sem samstarf við Nilfisk umboðið á Íslandi hafði alltaf verið gott. Hann segir að oft hafi hljóm- sveitin í samstarfi við umboðið gert samninga um auglýsingar og kynningu af ýmsu tagi, báðum að- ilum til framdráttar. Þá er víst að samband hljómsveitarinnar og ryksugufyrirtækisins muni eitt- hvað breytast í kjölfar þessa máls en vonandi næst að leysa málið á farsælan veg. Fólk folk@mbl.is Chris Pierson Tommy Lee The Benchwarmers kl. 4(400 kr.), 6 og 8 B.i. 10 ára Bandidas kl. 4 (400 kr.), 6 og 8 B.i. 10 ára FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 10 B.i. 12.ára. Click kl. 10 B.i. 10 ára Sími - 564 0000Sími - 462 3500 ROBIN WILLIAMS eee Topp5.is - VJV ÓVÆNTASTA, KYNÞOKKA- FYLLSTA OG SKEMMTI- LEGASTA GRÍNMYND ÁRSINS FRÁ HÖFUNDI BRING IT ON www.xy.is eee B.J. BLAÐIÐ eee S.V. MBL. eee V.J.V.Topp5.is SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS. MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ? Yfir 51.000 gestir! eee L.I.B.Topp5.is 3 fullorðnir ættu að geta unnið hrottana í hverfinu ...eða hvað? Stick It kl. 5.40, 8 og 10.20 The Benchwarmers kl. 6, 8 og 10 B.i. 10 ára Click kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára Click LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára Just My Luck kl. 2 og 4 Síðustu sýn. RV kl. 2 og 4 Síðustu sýn. Rauðhetta m. íslensku tali kl. 2 og 4 Síðustu sýn. Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 2 og 4 Síðustu sýn. 400 kr .400 kr. 400 kr. 400 kr. 400 kr . 400 kr. FJÖLSKYLDUDAGAR í Smárabíó og Regnboganum 400 kr. miðinn* *Sýningar merktar með rauðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.