Morgunblaðið - 15.07.2006, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 43
KVIKMYNDIN See No Evil er helst merkileg fyrir
þær sakir að fjölbragðaglímusamband eitt í Bandaríkj-
unum stendur að baki framleiðslu hennar. Í kvikmynd-
inni sjálfri sést það best á því að þekktur glímukappi
þar vestra er í hlutverki illmennisins en fyrir aðra en
Bandaríkjamenn og e.t.v. örfáa íslenska áhugamenn um
fjölbragðaglímu, ætti það að hafa litla merkingu.
See No Evil er eins dæmigerð og unglingahrollvekja
getur mögulega orðið. Grunlausir unglingar fastir í
byggingu þar sem snarbilaður morðingi gengur laus.
Fórnarlömbin taka upp á öllum þeim klisjum sem fræg-
ar eru í sambærilegum myndum, eins og að neyta eitur-
lyfja, hafa samfarir og ráfa um húsakosti einsömul –
allt kjörástæður til að tapa lífsandanum.
Unglingarnir eru að þessu sinni vandræðagemsar af
meðferðarheimili sem fengin eru til að fríska upp á yf-
irgefið hótel. Umsjónarmaður þeirra er fyrrverandi lög-
reglumaður sem missti aðra höndina nokkrum árum áð-
ur í átökum við fjöldamorðingjann Jacob Goodnight en
svo skemmtilega vill til að það er einmitt hann sem læð-
ist um ganga hótelsins og slátrar unglingunum. Fórn-
arlömbin eru einnig þessir dæmigerðu hrollvekjuung-
lingar; ljóshærða druslan, hrokafulli og leiðinlegi
gaurinn og flippaði blökkumaðurinn. Það er aðallega að
nýja staðalímynd sé að finna í dýraverndarsinnanum
sem hlýtur að lokum afskaplega kaldhæðinn dauðdaga.
Sagan er næfurþunn og í raun bara afsökun til þess
að slátra fólki á sem skemmtilegastan hátt og það verð-
ur að segjast að þar tekst leikstjóranum nokkuð vel
upp. Hann nýtir þá aðferð vel að fara yfir strikið í
hrotta- og subbuskap og þegar kemur að því að murka
lífið úr gemlingunum, þá er oft notast við sömu tækni
og sjá má í CSI-þáttunum þegar sýnt er hvernig innyfli
verða fyrir meiriháttar hnjaski. Ég er ekki frá því að ég
hafi heyrt einn bíógest kúgast yfir tilteknu atriði sem
var virkilega ógeðfellt. Það er merki um gæði.
Þar fyrir utan sést það glögglega að leikstjórinn
Gregory Dark er mikill stílisti, enda vann hann lengi
við gerð tónlistarmyndbanda eftir að hafa byrjað fer-
ilinn sem annar helmingur The Dark Brothers – klám-
myndaleikstjóra-tvíeykis sem tröllreið bransanum á ní-
unda áratugnum. Hvað kvikmyndaleik varðar er þessi
mynd frekar slöpp og ekki bætir það úr skák að flestir
unglinganna eru Ástralir að leika Bandaríkjamenn.
Glímukappinn Kane er hins vegar fullkominn Jacob,
eins langt og það nær, segir varla orð í allri myndinni
og er slíkt tröll að vexti að augnaráðið eitt gæti kramið
meðalmann.
See No Evil er fullkomin mynd fyrir unglinga. Hún
fer svo gjörsamlega yfir strikið í ofbeldi að það verður
að lokum fyndið og ætti að henta þeim strákum sér-
staklega vel sem vilja fá kærustuna í fangið á meðan á
sýningu stendur. Hins vegar skilur hún lítið eftir sig og
verður væntanlega öllum gleymd og grafin innan tíðar.
Gjugg í borg
KVIKMYNDIR
See No Evil – Leikstjórn: Gregory Dark. Aðalhlutverk: Kane, Christina Vidal,
Michael J. Pagan, Samantha Noble og Steven Vidler. Bandarík-
in, 85 mín.
Laugarásbíó
„See No Evil er fullkomin mynd fyrir unglinga.“
Ómar Örn Hauksson
Undirbúningur er hafinn að þriðjuShrek-myndinni en hinar tvær
sem komu út árið 2001 og 2004 hafa
verið með þeim allra vinsælustu sem
Dream Works Animation hefur fram-
leitt. Útgáfudagur er áætlaður um
miðjan maí á næsta ári og þær Holly-
wood-stjörnur sem þegar hafa sam-
þykkt að ljá persónunum raddir sínar
eru sem fyrr Mike Myers, Eddie
Murphy, Cameron Diaz, Antonio
Banderas, Rupert Everett, Julie
Andrews og John Cleese. Fjölmargir
aukaleikarar bætast í þennan fríða
flokk en þekktastur þeirra er líklega
Justin Timberlake sem mun leika Ar-
tie, uppreisnargjarnan frænda Fíónu
prinsessu sem er einmitt leikin af
kærustu hans, Cameron Diaz.
Spilatækja-salir á
borð við
Fredda sem
stóð í Hafn-
arstræti eru
svo gott sem
útdauðir í dag
en þrátt fyrir
það hugsa margir til daga spilatækja-
salanna með hlýhug. Þetta veit tölvu-
leikjaframleiðandinn Xbox sem ætlar
nú á næstu vikum að setja kraft í út-
gáfu á klassískum spilatækjaleikjum
(Live Arcade) á borð við þá sem voru
spilaðir í Freddum heimsins. Pac-
Man, Frogger og fleiri leikir hafa
þegar verið útfærðir og endurhann-
aðir með nýjustu tækni og gerir Xbox
ráð fyrir að um 50 leikir í viðbót verði
komnir á markað fyrir árslok.
Fólk folk@mbl.is
Sími - 551 9000
-bara lúxus
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10:15
...Myndir þú breyta
heiminum með henni
...eða gera eitthvað
allt annað?
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt
lífi þínu? Hvað myndir þú gera ...?
K R A F T M E S TA
HASARMYND ÁRSINS
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu?
Hvað myndir þú gera ...?
...Myndir þú breyta
heiminum með henni
...eða gera eitthvað allt
annað?
Sýnd kl. 6, 8 og 10 STRANGLEGA B.i. 16 ára
Sýnd kl. 6, 8 og 10:15 B.i. 12 ára
EINA LEIÐIN
TIL AÐ VINNA
ER AÐ MISSA
STJÓRNINA
-bara lúxus
Salma hayekpénelope cruz
kl. 4 ÍSL. TAL
Skrolla og Skelfir
Á SALTKRÁKU
kl. 2 ÍSL. TAL kl. 2 og 4 ÍSL. TAL
K R A F T M E S TA
HASARMYND ÁRSINS
Stick It kl. 5.40, 8 og 10.20
The Benchwarmers kl. 3, 6, 8 og 10 B.i. 10 ára
Click k 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára
Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára
Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 3 Síðustu sýn.
X-Men 3 kl. 3 Síðustu sýn.
Rauðhetta m. íslensku tali kl. 3 Síðustu sýn.
YFIR 50.000 GESTIR!
FJÖLSKYLDUDAGAR • 400 kr. miðinn*
*Sýningar merktar með rauðu