Morgunblaðið - 15.07.2006, Síða 48
Ljósmynd/Jesse Flores
Að leik
í sjónum
SKIPSHÖFNIN á hvalaskoðunarbátnum
Faldi náði fyrir skemmstu þessari skemmti-
legu mynd af hnúfubak við fæðuöflun skammt
frá Húsavík.
„Hvalirnir hafa verið einstaklega skemmti-
legir og góðir við að eiga undanfarið. Það er
óvenju mikið af hnúfubak í Skjálfandaflóa og
höfum við orðið vör við þá nánast upp á hvern
dag síðan í lok apríl, allt að níu á ferð í einu,“
segir Stefán Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Hvalaferða – Gentle Giants.
Stefán segir mikla aðsókn vera í hvala-
skoðun og áætlar að liðlega 30.000 manns
heimsæki Húsavík árlega í þeim tilgangi.
„Oft er erfiðara að komast í návígi við hval-
ina ef þeir eru í fæðuleit, en öðrum stundum
slaka þeir á við yfirborðið og taka jafnvel upp
á því að leika við bátana og farþegana. Ég
lenti sjálfur í því fyrr í vikunni að ég fór út
með 14 manna hóp í 20 stiga hita og veit ekki
fyrr en farþegarnir hrópa upp yfir sig þegar
hnúfubakur stekkur upp úr sjónum, aðeins 50
metra frá bátnum. Við nálguðumst hann og
vorum ferðlaus í tæpa klukkustund, og allan
tímann var hvalurinn að leika sér, forvitnast í
kringum bátinn, virti fyrir sér farþegana og
blés yfir þá.“
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
endurskoðun
reikningsskil
skattar / ráðgjöf
www.ey.is
VERÐLAG á veitinga- og gisti-
þjónustu er langhæst á Íslandi
eða 91% hærra en meðalverð á
sömu þjónustu í 25 ríkjum í Evr-
ópusambandinu. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu Hagstofu
Evrópu, Eurostat, en greint er frá
niðurstöðunum í skýrslu matvæla-
verðsnefndar. Formaður nefndar-
innar, Hallgrímur Snorrason hag-
stofustjóri, kynnti skýrsluna í
gær. Hann stendur einn að
skýrslunni vegna þess að ekki
náðist samstaða í nefndinni um
breytingar á tollum á landbúnað-
arvörum.
Veitingaþjónustan ber ýmist
14% eða 24,5% virðisaukaskatt og
fer skattlagningin eftir því um
hvers konar þjónustu er að ræða.
Hallgrímur segir að þetta skatt-
lagningarkerfi sé flókið og ekki
líklegt til að virka sem skyldi.
Hann mælir því með því að öll
veitingaþjónusta beri 14% virðis-
aukaskatt. Það myndi bæði
styrkja ferðaþjónustuna og lækka
útgjöld heimilanna í landinu um
11 þúsund krónur á ári.
Í skýrslu matvælanefndar eru
lagðar fram tillögur sem Hall-
grímur segir að myndu lækka árs-
útgjöld heimilanna um 50 þúsund
krónur. Auk breytinga á virðis-
aukaskatti fela tillögurnar í sér
afnám vörugjalds á matvörum.
Reynir á pólitískan vilja
Hallgrímur segir að með því að
lækka tolla á landbúnaðarvörum
um helming sé hægt að lækka
matarútgjöld heimilanna um 41
þúsund krónur á ári til viðbótar
og 83 þúsund ef tollarnir verða af-
numdir. Fulltrúar landbúnaðarins
í nefndinni bera brigður á þessa
útreikninga, en Hallgrímur segir
að varfærni hafi verið beitt þegar
þetta var reiknað út. Hann segir
að breytingar á tollum sé áhrifa-
ríkasta aðgerð sem hægt sé að
grípa til í þeim tilgangi að lækka
matarkostnað heimilanna.
Matarskýrslan var afhent for-
sætisráðherra í gær. Hallgrímur
hafnar því að um sé að ræða enn
eina skýrsluna um matarverð. Bú-
ið sé að vinna skýrar tillögur um
aðgerðir og reikna út áhrif þeirra.
Hann segir að það eigi eftir að
koma í ljós hvort pólitískur vilji sé
til að gera breytingar í þá veru
sem fjallað er um í skýrslunni.
Verð á gisti- og veitinga-
þjónustu langhæst á Íslandi
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Helmingslækkun tolla | 10
Fjallahlauparar
bíða ræsingar
í hvassviðri
ÞRÁTT fyrir leiðindaveðurspá fyrir dag-
inn í dag var gert ráð fyrir að keppendur í
fjallamaraþoninu milli Landmannalauga
og Þórsmerkur gætu hafið hlaupið nú í
morgun kl. 9. Búist var við stífum mót-
vindi af suðvestri um 10–15 m/sek og
rigningu. Þetta þótti þó ekki nógu mikið
til að fresta hlaupinu en fólk sem verður í
Hrafntinnuskeri, við Bláfjallakvísl og við
Þröngá mun gefa skýrslu um aðstæður
áður en hlauparar fara af stað og gera
grein fyrir því hvort fært er fyrir þá á
þessum stöðum. Komi í ljós að ekki sé fært
verður hlaupinu frestað um einn sólar-
hring.
Annars var veður hvasst á miðhálend-
inu í gær og sagði skálavörður Ferða-
félags Íslands á Hveravöllum að hífandi
rok hefði sett svip sinn á Hveravalladvöl
ferðalanga. Enginn hefði þó lent í meiri-
háttar vandræðum með tjöld þótt sumir
hefðu pakkað saman og farið. Skálinn á
Hveravöllum var þá fullbókaður.
LEIKRITIÐ Leg eftir Hugleik Dagsson
verður sett upp í Þjóðleikhúsinu á næsta
leikári. Þetta staðfesta bæði Hugleikur og
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri.
Verkið fjallar um unga stúlku á mennta-
skólaaldri sem verður ólétt og eru „teknir
allir mögulegir pólar“ á því viðfangsefni,
að sögn leikskáldsins. Davíð Þór Jónsson
semur tónlistina við verkið sem stefnt er á
að verði einhvers konar söngleikur. „Það
er ekki hægt að titla þetta ennþá sem
söngleik. Maður vill ekki flokka verkið al-
veg strax, það er svo margt sem gerist á
æfingum,“ segir Hugleikur sem hlaut
Grímuna í ár fyrir verkið Forðist okkur.
„Við ætlum að veðja stórt á þetta unga
verðlaunaskáld,“ segir Tinna, en ráðgert
er að verkið verði sýnt á Stóra sviðinu.
Þjóðleikhúsið og RÚV
sameini krafta sína
Í Lesbókinni í dag er viðtal við Tinnu
Gunnlaugsdóttur. Í máli Tinnu kemur
meðal annars fram að hún hafi talað við
Pál Magnússon sjónvarpsstjóra á sínum
tíma og lagt til samstarf milli Þjóðleik-
hússins og Ríkissjónvarpsins. Slíkt sam-
starf er borðleggjandi að mati Tinnu;
stofnanirnar geti og eigi að sameina
krafta sína og standa að sjónvarpsleik-
húsi.
Í viðtalinu lítur Tinna yfir nýliðið leik-
ár. Hún greinir frá því hvernig til hafi tek-
ist að hennar mati, bæði listrænt og skipu-
lagslega, ásamt því að tjá sig um það sem
hún kallar „endurreisn Þjóðleikhússins“.
Morgunblaðið/Ásdís
Hugleikur Dagsson segir verkið fjalla um
unga menntaskólastúlku sem verður ólétt.
Leg sett
upp í Þjóð-
leikhúsinu
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
KYNNT voru drög að skipulagi á Kjalarnesi og
tillögur um breikkun hringvegarins á Kjalarnesi
í borgarráði sl. fimmtudag. Að sögn Jónasar
Snæbjörnssonar, umdæmisstjóra Vegagerðar-
innar, er um fyrstu hugmyndir að ræða sem
lagðar voru fram til kynningar en reikna megi
með að ráðist verði í framkvæmdirnar í fram-
haldi af lagningu Sundabrautar. Tillögurnar
fela í sér að Vesturlandsvegur verði breikkaður
í að minnsta kosti fjórar akreinar alla leið upp að
Hvalfjarðargöngum.
„Þetta er komið mjög stutt á veg og er á
skipulagsstigi,“ segir Jónas. Segir hann menn
meðal annars vera að velta fyrir sér staðsetn-
ingu gatnamóta á veginum í framtíðinni og hvor-
um megin núverandi vegar breikkunin muni
eiga sér stað. Tók hann undir að breikkun veg-
arins myndi leysa úr þeim umferðartöfum sem
orðið hafa á Kjalarnesinu á mestu álagstímum.
Jónas leggur áherslu á að þetta verkefni sé
ekki komið á framkvæmdastig. Fyrst verði lokið
við tvöföldun vegarins upp í Mosfellsbæ og
hugsanlega einnig lagningu Sundabrautar þó að
enn sé eftir að ræða þá forgangsröðun.
„Það er smám saman verið að fjölga lóðum og
íbúðarhúsum á Kjalarnesi og þess vegna er gott
að hafa skýrari framtíðarsýn.“
Fyrstu tillögur um breikkun hringvegarins á Kjalarnesi kynntar í borgarráði
Fjögurra akreina braut
upp að Hvalfjarðargöngum
♦♦♦