Morgunblaðið - 17.07.2006, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 2006 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
SÍFELLT fleiri Danir eru hættir að nenna að elda heima hjá sér, sam-
kvæmt tölum um stóraukna veltu danskra veitinga- og kaffihúsa sem
Horesta, dönsku ferðaþjónustusamtökin, hafa reiknað út og greint er
frá í Børsen. Velta veitingahúsanna nam 23,6 milljörðum danskra
króna á síðasta ári, nærri 300 milljörðum króna, sem er aukning um
rúm 8% frá árinu 2004 er veltan nam 21,8 milljörðum. Árin þar á und-
an hafði veltan verið svipuð, en árið 2001 átu og drukku Danir á veit-
ingahúsum fyrir 20,8 milljarða danskra króna. Þriðja hvert veitinga-
hús í Danmörku sýndi meira en 10% vöxt á síðasta ári. Þó að Danir
séu nú veitingahúsaglaðir má ekki gleyma því að inni í þessum tölum
eru heimsóknir ferðamanna, sem hafa eðlilega ekki í nein eldhús að
venda á sínum ferðalögum. En alltaf er gott að geta samglaðst frænd-
um vorum, Dönum.
Danir nenna ekki að elda
Reuters
Út að borða Þriðja hvert veitingahús í Danmörku sýndi meira en tíu prósenta
vöxt á síðasta ári, en sífellt fleiri Danir eru hættir að borða heima hjá sér.
HANNES Hilmarsson tók í gær við
stöðu forstjóra Air Atlanta Icelandic
af Hafþóri Hafsteinssyni sem verður
stjórnarformaður félagins. Þá tekur
Davíð Másson við stöðu forstjóra Av-
ion Aircraft Trading af Hafþóri Haf-
steinssyni sem verður starfandi
stjórnarformaður félagins. Hafþór
mun áfram leiða Flugþjónustusvið
Avion Group sem forstjóri þess
afkomusviðs.
Aukin áhersla á framtíðarsýn
Hannes, sem er 41 árs, hefur verið
framkvæmdastjóri fjármálasviðs og
aðstoðarforstjóri Air Atlanta Ice-
landic frá því um síðustu áramót.
Davíð, sem er 38 ára, hefur verið í
stjórnendastöðum hjá Air Atlanta
Icelandic síðastliðin 13 ár, bæði hér-
lendis og erlendis, nú síðast sem
framkvæmdastjóri sölu- og mark-
aðssviðs Air Atlanta Icelandic.
Jóhann Kárason tekur við stöðu
framkvæmdastjóra sölu- og mark-
aðssviðs Air Atlanta Icelandic af
Davíð Mássyni. Jóhann, sem er 33
ára, hefur starfað hjá Air Atlanta
Icelandic síðastliðinn 14 ár bæði hér-
lendis og erlendis.
Í tilkynningu til Kauphallar Ís-
lands kemur fram að Hafþór kemur
til með að leggja aukna áherslu á
framtíðarsýn, þróun viðskiptatæki-
færa og samhæfingu félaga innan
Flugþjónustusviðsins ásamt því að
vera stjórnarformaður Air Atlanta
Icelandic og Avion Aircraft Trading.
Hann mun einnig koma að dag-
legum rekstri Avion Aircraft Trad-
ing sem er ný afkomueining innan
Flugþjónustusviðsins.
Skipuritsbreytingar
hjá Avion Group
RÍKUM einstaklingum fjölgar
stöðugt í heiminum. Í Morgun-
korni Glitnis er vitnað í nýja
skýrslu Merrill Lynch og Cap-
gemini þar sem fram kemur að
8,7 milljónir manna á heimsvísu
hafi átt meira en eina milljóna
dollara í hreinni eign, um 75
milljónir króna. Hafði fjölgað í
þeim hópi um 6,5% milli ára.
Vöxturinn er mestur meðal fólks
í Asíu en hins vegar eru flestir
milljónamæringarnir í Evrópu
og N-Ameríku, eða alls 5,7 millj-
ónir. Heildareignir þessa fólks
námu á síðasta ári um 33,3 billj-
ónum dollara, af þeim voru 30%
í hlutabréfum, 21% í skulda-
bréfum, 16% í fasteignum, 13%
í innlánum og peningum og af-
gangurinn var í öðrum fjárfest-
ingum.
Merrill Lynch og Capgemini
spá því að árið 2010 verði eignir
þessa fólks komnar í 44,6 billj-
ónir dollara. Í Morgunkorninu
kemur fram að hér á landi eigi
um þrjú þúsund manns 100
milljónir króna í hreinni eign og
þar yfir, eða um 2,7% Íslend-
inga. Samkvæmt því erum við
hlutfallslega betur stæð en
margar aðrir þjóðir, miðað við
skilgreiningu Merrill Lynch og
Capgemini á ríkidæmi fólks.
Hinum
ríku fjölg-
ar stöðugt
Í JÚNÍ sköpuðust 121 þúsund ný
störf á bandarískum vinnumarkaði en
á sama tíma hækkuðu laun um 3,9%
sem er mesta launahækkun í fimm ár.
Hvort tveggja var á skjön við spár
greiningaraðila sem gerðu ráð fyrir
175.000 nýjum störfum og að laun
myndu hækka um 0,3%. Atvinnuleysi
mældist 4,6% og hélst óbreytt frá
fyrri mánuði en það hefur ekki mælst
minna síðan í júlí 2001. Frá þessu er
greint í Hálffimm fréttum KB banka.
Eins og fram hefur komið hækkaði
bandaríski seðlabankinn stýrivexti
sína um 0,25 prósentustig í síðustu
viku og standa vextirnir nú í 5,25%.
Ástæður síðustu vaxtahækkunar
sögðu forsvarsmenn bankans vera
hættu á áframhaldandi verðbólgu-
þrýstingi vegna hækkandi orku- og
vöruverðs, þrátt fyrir að dregið hefði
úr eftirspurn.
Í Hálffimm fréttum segir að nýjar
fréttir af vinnumarkaði nú hafi dregið
úr verðbólguvæntingum markaðs-
aðila og horfum á frekari stýrivaxta-
hækkunum.
Í könnun meðal markaðsaðila kom
í ljós að eftir að tölurnar voru kynntar
gerðu 57% aðspurðra ráð fyrir að
seðlabankinn hækkaði vexti sína um
0,25 prósentustig í ágúst næstkom-
andi samanborið við 67% fyrir birt-
ingu.
Ekki hafa verið gefin nein afdrátt-
arlaus merki um áframhaldið hjá
bankanum svo þróun hagvísa á næst-
unni má líklega ráða þar miklu.
Fjölgun starfa í Bandaríkj-
unum undir væntingum