Morgunblaðið - 14.08.2006, Page 3

Morgunblaðið - 14.08.2006, Page 3
Skilríki sem gefin eru út af opinberum aðilum eru: Vegabréf, ökuskírteini og nafnskírteini. *Að gefnu tilefni er nauðsynlegt að taka fram að debet- og kreditkort eru ekki löggilt skilríki. Með lögum er nú skylda að framvísa persónuskilríkjum* og svara tilteknum spurningum þegar stofnað er til nýrra viðskipta hjá fjármálafyrirtækjum. Með því að hafa ávallt handbær skilríki, sem gefin eru út af opinberum aðilum, getur þú staðfest hvenær sem þörf er á að það sért örugglega þú sem átt viðskiptin. Stjórnvöld hafa sett ströng lög gegn því alþjóðlega vandamáli sem stafar af peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Lögin gera fjármálafyrirtækjum skylt að afla glöggra upplýsinga um viðskiptavini. Kynning á helstu atriðum laganna er að finna í SBV- bæklingi sem liggur frammi í afgreiðslu fjármálafyrirtækja. Nánari upplýsingar er að finna á www.sbv.is Það er von SBV að viðskiptavinir sýni því skilning að ný lög hafa gengið í gildi og taki vel breyttum verklagsreglum fjármálafyrirtækja! IN N F O R M / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.