Morgunblaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 39
Sýnd kl. 4, 6 og 8
HÖRKU SPENNUMYND Í ANDA JAMES BOND
ÞÚ ERT ALDREI
OF UNGUR
TIL AÐ DEYJA
Sýnd kl. 8 og 10.15 B.i. 14 ára
Mögnuð
spennu
mynd
í anda „
24“
eeee
K.M. - Sena
COLIN FARRELL JAMIE FOXX
ACADEMY AWARD WINNER
Sýnd kl. 4, 7 og 10-POWER B.i. 16 ára
Sýnd kl. 4 og 6 ÍSL. TAL
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sími - 551 9000
S.U.S XFM 91.9
eeeee
H.J. Mbl
3,75 af 4
Ó.T. Rás 2
ÓVISSUBÍÓ kl. 8
A Praire Home Company kl. 3, 5.45, 8 og 10.15
Ástríkur og Víkingarnir kl. 3 og 6
Silent Hill kl. 8 og 10.40 B.i. 16 ára
The Da Vinci Code kl. 5 og 10 B.i. 14 ára
Click kl. 3, 5.50, 8 og 10.10
Benchwarmers kl. 3
400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
Útvarp einsog
þú hefur aldr
ei upplifað þa
ð áður
Frábær gamanmynd með íslandsvininum John C. Reilly
sem sló svo eftirminnilega í gegn í Þjóðleikhúsinu.
FRÁ MICHAEL MANN LEIKSTJÓRA
“COLLATERAL” OG “HEAT”
SVALASTA SPENNUMYND SUMARSINS
Sýnd kl. 10 B.i. 12 ára
POWERSÝNING KL. 10 Á STÆRSTA thx TJALDI LANDSINS
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
GÓÐ HEILSA
GULLI BETRI
Magi og melting
Acidophilus
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
GJÖLL er dúett þeirra Sigurðar
Harðarsonar, sem er betur þekktur
sem Siggi Pönk, og Jóhanns Eiríks-
sonar, eða Jóa Eiríks úr Reptilicus
og síðar Product 8. Báðir eru þeir
þungavigtarmenn í neðanjarð-
artónlistinni á Íslandi. Jóhann var
brautryðjandi í íslenskri iðnaðar- eða
industrialtónlist á sínum tíma. Skóp
Reptilicus sér nokkuð nafn á erlendri
grundu og vakti athygli fyrir víraða
hljóðskúlptúra og raftónlist þar sem
gengið var fram á ystu nöf.
Starfi þessu hefur Jóhann svo
haldið áfram leynt og ljóst, m.a. í
gegnum sveit sína Product 8. Siggi
Pönk er þekktur sem söngvari muln-
ingsrokkaranna í Forgarði helvítis,
hiklaust brjáluðustu hljómsveit Ís-
landssögunnar. Sigurður, sem er
menntaður hjúkrunarfræðingur,
hefur einnig getið sér orðs sem ljóð-
skáld, þýðandi og allra handa at-
hafnamaður, hvort heldur í skipu-
lagningu tónleika eða mótmæla- og
friðarsamkomum.
Í febrúar kom út fyrsta plata
Gjallar, Way through Zero, á þýska
merkinu ant-zen. Um er að ræða til-
raunakennda raftónlist sem sveiflast
úr kolniðamyrkri og drunga yfir í
hvíslandi fegurð. Verkið skiptist í
fimm kafla og segja sögu af manni
sem missir vitið smátt og smátt;
þunglyndi og drungi leiðist út örviln-
un og ofsareiði þar til að manninum
tekst að brjótast úr vítahringnum og
öðlast þar með sátt við sjálfan sig og
um leið sálarró.
Höndum fórnað
Blaðamaður sló á þráðinn til
Sigga, en hann skiptir nú tíma sínum
á milli Hollands og Íslands og var
hann staddur í fyrrnefnda landinu er
svarað var.
„Ég og Jói höfum verið kunningjar
í nokkur ár,“ segir Siggi, spurður um
tildrög plötunnar. „Einhvern tíma
kom sú hugmynd upp að við mynd-
um búa til tónlist saman og við urð-
um strax sammála um það að stýra
frá þessum hefðbundnu ljóðadiskum,
þar sem ljóð eru lesin við undirleik,
nokkuð sem mér finnst hundleið-
inlegt. Við ákváðum umfram allt að
leggja áherslu á að röddin væri hluti
af tónlistinni. Jói týndi þá saman dót
sem hann átti og ég kom með texta
eða sögu sem ég skrifaði sérstaklega
fyrir þetta.“ Siggi segir m.a. um
söguþráð plötunnar að söguhetjan
uppgötvi á endanum að hatrið sé
marklaust, það geri ekkert annað en
að eyða. Hann finni friðinn í sjálfum
sér og kemst að því að kúgararnir
falli fyrir eigin sakir á endanum.
„Já, sumir gagnrýnendurnir hafa
mikið verið að pæla í þessu, sumir
um of meira að segja,“ segir hann og
bætir við að síðustu tíu ár hafi hann
þróað með sér smekk fyrir tilrauna-
tónlist.
„Eftir því sem maður eldist víkkar
smekkurinn, alltént hjá mér. Sumir
kjósa að þrengja hann. Það er mjög
hollt að gera eitthvað nýtt með nýju
fólki.“ Nokkur kláruð eintök voru
síðan send út á hugsanlegar útgáfur
og stökk þýska útgáfan ant-zen á
gripinn. „Þeir fórnuðu höndum af
hamingju,“ segir Siggi og kímir.
„Flestar útgáfur ant-zen eru reynd-
ar með rólegra sniði en djöfulgang-
urinn okkar. Þannig að þeir eru að
taka annan pól í hæðina með þessari
tilteknu útgáfu.“ Way through Zero
hefur fengið slatta af dómum og það
fína, en net þeirra miðla sem sinna
jaðartónlist er býsna þéttriðið.
Dreifikerfið er þá gott, og platan hef-
ur verið að rata í hillur sértækra
plötubúða um heim allan.
Efni með Gjöll er þá væntanlegt á
deiliplötu í Frakklandi og þeir fé-
lagar eru hálfnaðir með næstu plötu
en ant-zen hefur fullan hug á að gefa
út meira.
Tónlist | Gjöll gefur út Way through Zero
Frá kolniða-
myrkri til hvísl-
andi fegurðar
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Morgunblaðið/Billi
Siggi Pönk er annar helmingur Gjallar ásamt Jóa Eiríks úr Reptilicus.
www.ant-zen.com
Miðasala á tónleika SufjanStevens í Fríkirkjunni
hefst í dag á midi.is og í versl-
unum Skífunnar. Tónleikarnir
verða í Fríkirkjunni 16. og 17.
nóvember, en Stevens kemur
þar fram með fjögurra manna
hljómsveit sinni. Að sögn
Gríms Atlasonar hjá Austur-
Þýskalandi verða fáir miðar í
boði þar sem fáir komist fyrir í
kirkjunni.
Fólk
folk@mbl.is
Á ALÞJÓÐLEGRI kvikmyndahátíð
í Reykjavík (RIFF) sem fer fram
dagana 28. september til 8. október
nk. verður efnt til samkeppni um
bestu heimildarmyndina í samvinnu
við Apple IMC. Landsmönnum öll-
um er heimilt að taka þátt í henni.
Umfjöllunarefni eða yfirskrift
myndarinnar á að vera „Fjölskyldan
mín“. Fólk ræður sjálft hvernig efn-
istökum er háttað.
Myndin má ekki vera lengri en tíu
mínútur og á að vera kllippt með
iMovie hugbúnaðinum frá Apple.
Hafi fólk hins vegar ekki aðgang að
hugbúnaðinum býðst því aðstaða til
eftirvinnslu hjá Apple IMC á Ís-
landi. Myndum á að skila á DVD-
diski fyrir 15. september nk.
Ilmur Kristjánsdóttir leikkona
(Stelpurnar), Árni Ólafur Ásgeirs-
son leikstjóri (Blóðbönd) og Bjarki
Guðjónsson, fulltrúi Apple IMC,
skipa dómnefnd sem mun velja
bestu myndirnar. Þær verða sýndar
á lokadegi RIFF, 8. október, sem
verður tileinkaður fjölskyldunni. Þá
verður fjöldi spennandi viðburða í
boði og nýjar og öðruvísi barna-
myndir sýndar.
Til mikils er að vinna fyrir sig-
urvegarann því besta heimagerða
heimildarmyndin fær í verðlaun
MacBook fartölvu frá Apple. Apple
mun jafnframt bjóða upp á námskeið
í notkun iMovie í tengslum við
keppnina og fer fyrsta námskeiðið
fram föstudaginn 18. ágúst kl. 16 hjá
Apple IMC á Íslandi. Námskeiðin
munu síðan halda áfram á hverjum
laugardegi fram til 9. september.
Myndum skal skilað í lokuðu um-
slagi til:
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík
„Fjölskyldudagur“
Kirkjutorgi 4
101 Reykjavík
Kvikmyndir | RIFF stendur fyrir heimildarmyndasamkeppni
Fartölva fyrir
bestu myndina
Heimildarmyndin Gargandi snilld eftir Ara Alexander bar nafn með réttu
en það er til mikils að vinna fyrir snilldarmynd í samkeppni RIFF.