Morgunblaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 34
34 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ýmislegt bendir til þess að nautið fái þjórfé í dag, þó að það sé ekki í starfi sem að öllu jöfnu kallar á svoleiðis. Þú uppskerð bendingar, viðauka, stig og það sem best er, áþreifanleg merki um velþóknun. Naut (20. apríl - 20. maí)  Getur þú haft tvær andstæðar skoðanir í kollinum á sama tíma og haldið áfram að gegna hlutverki þínu að mestu leyti? Ef þú getur það, muntu ekki eiga í vand- ræðum með það sem himintunglin luma á í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Sumir hafa svo hvetjandi áhrif á tvíbur- ann að hann á erfitt með að sofna á kvöldin eftir að hafa hitt þá. Njóttu þess- arar lifandi tilfinningar, hún er býsna óvenjuleg. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Smávegis frægð er í kortunum hjá krabbanum næstu þrjá daga. Kannski birtist nafnið þitt í fréttabréfi fyrirtæk- isins, bæjarblaðinu eða það ber á góma í spennandi kreðsum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Gerðu það sem þú þarft til þess að gera þig sýnilegri. Ef þú auglýsir hæfileika þína eiga tækifærin auðveldara með að hafa upp á þér. Í kvöld færðu tækifæri til þess að taka tómstundagaman þitt alvar- lega. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Meyjan þarf ekki staðfestu, seiglu og aga til þess að ná markmiði sínu. Það sem hún þarfnast er ástríða. Ef mögu- leikinn á að uppskera það sem þú þráir kveikir ekki bál innra með þér, er mál að þú takir það af listanum. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vogin hefur reynslu í því að vita hvernig þjónusta hennar gagnast öðrum. Ef þú getur komið því til skila í dag til fimm einstaklinga (með þínum venjulegu töfr- um) opnarðu nýjar leiðir fyrir peninga að flæða til þín. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Væntingar þínar til þinna nánustu aukast í dag. Er til of mikils mælst að eiga ástvin sem getur dregið björg í bú og steikt hana á pönnu? Himintunglin hvetja þig til þess að biðja um það – bara aðeins hærra. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Nú er tími til þess að endurskoða nokk- uð sem þér þótti einu sinni fyndið. Bog- maðurinn Winston Churchill sagði eitt sinn, ef öll skilyrði fyrir fullkomnu gríni koma saman, er fyndni mjög alvarlegt mál. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Margir laðast að steingeitinni en hún þarf að gæta þess með hverjum hún er í slagtogi. Óæskileg áhrif gera þig mjög ólíka sjálfri þér. Rómantíkin hitnar og kólnar og bráðum þarftu að kalla hlutina sínu rétta nafni – hamslausa hrifningu. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Kannski er bara heimskulegt að halda sig við fyrri áætlun. Vatnsberinn er sveigjanlegur og athugar annað slagið hvort hún sé að ganga upp. Tvíburar og krabbar gegna lykilhlutverki í velgengni þinni. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Mikilvæg viðfangsefni klárast þegar þú færð að minnsta kosti eina manneskju í lið með þér. Láttu undan óviðráðanlegri þörf fyrir að slást í hópinn með ein- hverjum. Þú upplifir kraft sem er mun meiri en þversumman. Stjörnuspá Holiday Mathis Hið nautnafulla tungl í nauti er hrifið af öllu sem er lostætt, gómsætt, líflegt og hljómþýtt. Ekkert af þessu þarf að kosta peninga og er reyndar oft frítt, en undir áhrifum nautsins langar okkur að eyða peningum í það samt sem áður. Kannski er heimspekin sú að fólki hættir til eð meta það sem það borgar fyrir meira en það sem er gefins. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Teneri- tas-hópurinn heldur tónleika 15. ágúst kl. 20.30. Hópinn skipa Ólöf Sigursveins- dóttir, barokkselló, Hanna Loftsdóttir, gamba, og Fredrik Bock, lúta. Þau flytja barokktónlist eftir 17. og 18. aldar tón- skáldin Alexis Magito, François Couperin, Marin Marais, Gaspar Sanz og Johann Se- bald Triemer. Reykholtskirkja | Tékkneski tónlistarhóp- urinn Musica ad Gaudium heldur tónleika í kirkjunni 15. ágúst kl. 20. Eydís Fransdóttir óbóleikari hefur starfað með hópnum frá 1992. Salurinn, Kópavogi | Sembaltónleikar 16. ágúst kl. 20, Musica ad Gaudium frá Tékk- landi flytur tónlist frá endurreisnar- og barokktímabilinu. Frítt inn. Nánar á www.salurinn.is og í s. 5700 400. Myndlist 101 gallery | Serge Comte – sjö systur – seven sisters. Til 2. sept. Opið fim.–lau. kl. 14–17. Art-Iceland Mublan | Fyrsta samsýning gallerísins Art-Iceland.com. Listamennirnir sem sýna eru Árni Rúnar Sverrisson, Helga Sigurðardóttir og Álfheiður Ólafs- dóttir. Sýningin er í versluninni Mublunni, Nýbýlavegi 18, Kópavogi. Byggðasafn Garðskaga | Samsýning: Reynir Þorgrímsson. Reynomatic-myndir eru litríkar nærmyndir af náttúrunni. Björn Björnsson tréskúlptúr. Hver mynd segir sýna sögu. Opið kl. 13–17 alla daga. Nýtt kaffihús er á staðnum. Café Karólína | Karin Leening sýnir en hún málar, teiknar, býr til teiknimyndir og kenn- ir börnum myndlist. Stendur til 1. sept. DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým- isverk til 26. ágúst. Opið virka daga og laugardaga kl. 14–18 í sumar. Eden, Hveragerði | Vaddý (Valgerður Ing- ólfsdóttir) heldur myndlistarsýningu í Eden í Hveragerði 14.–28. ágúst. Á sýning- unni eru akrýl-, vatnslita-, olíu- og past- elmyndir eingöngu eftir íslenskum fyr- irmyndum. Energia | Sölusýning á landslagsmyndum eftir myndlistarmanninn Mýrmann. Stend- ur út ágústmánuð. Nánari uppl. á http:// www.myrmann.tk. Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval og með henni er sjónum beint að hrauninu í Hafnarfirði. Tólf listamenn. Til 28. ágúst. Hallgrímskirkja | Sumarsýning á verkum Ásgerðar Búadóttur veflistakonu stendur til 26. ágúst. Handverk og Hönnun | Til sýnis er íslensk- ur listiðnaður og nútímahönnun eftir 37 aðila. Á sýningunni eru hlutir úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Sýningin stendur til 27. ágúst. Opið alla daga kl. 13– 17, aðgangur er ókeypis. Kaffi Sólon | Kolbrún Róberts sýnir af- strakt málverk. Sýningin ber titilinn Him- inn & jörð. Stendur til 1. sept. Ketilhúsið Listagili | Hrefna Harðardóttir sýnir veggskúlptúra úr leir. Sýning fram- lengd til 19. ágúst. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning Lo- uisu Matthíasdóttur. Sýningin rekur allan listamannsferil Louisu í sex áratugi. Til 20. ágúst. Listasafn Íslands | Landslagið og þjóðsag- an, sýning á íslenskri landslagslist frá upp- hafi 20. aldar og túlkun þjóðsagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jónssonar. Op- ið í Safnbúð og í Kaffitári í kaffistofu. Ókeypis aðgangur. Opið daglega kl. 11–17, lokað mánudaga. Til 19. ágúst. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn- ing á listaverkum sem voru valin vegna út- hlutunar listaverkaverðlaunanna Carnegie Art Award árið 2006. Til 20. ágúst. Erró – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós, þær nýjustu frá síð- astliðnu ári. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins. Fag- urfræði var höfð að leiðarljósi við val verk- anna og hefðbundin listasöguleg viðmið látin víkja fyrir samhljómi þeirra. Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á sýningunni sem spannar tímabilið frá alda- mótunum 1900 til upphafs 21. aldarinnar. Til 17. sept. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Lokað á mánudögum. Safnið og kaffistofan opin alla aðra daga yfir sumarið kl. 14–17. Sýn- ing á völdum skúlptúrum og portettum Sigurjóns Ólafssonar. Tónleikar á þriðju- dagskvöldum. Sjá nánar á www.lso.is. Norræna húsið | Ljósmyndir frá Austur- Grænlandi eftir danska ljósmyndarann Ole G. Jensen. Til 27. ágúst. Opið virka daga til kl. 9–17, laugardaga og sunnudaga kl. 12– 17. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til 28. ágúst. Saltfisksetur Íslands | Sigrid Österby með sýningu sem hún nefnir Táknmyndir. Opið alla daga kl. 11–18. Stendur til 4. sept. Thorvaldsen Bar | Málverkasýning Arnars er opin gestum og gangandi á opn- unartíma staðarins. Stendur til 8. sept- ember. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning í tilefni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla stendur yfir á Reykjavíkurtorgi, Tryggva- götu 15, 1. hæð. Opin virka daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Ókeypis aðgangur. Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú- inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk- aðist í kringum aldamótin 1900. Þjóðlegar veitingar í Gamla Presthúsinu. Opið dag- lega kl. 9–18, fimmtud. 9–22. 500 kr. inn, frítt fyrir börn. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga í sumar kl. 9–17. Hljóðleiðsögn á ís- lensku, ensku, þýsku og sænsku. Marg- miðlunarsýning og gönguleiðir í nágrenn- inu. Frekari uppl. á www.gljufrasteinn.is og í s. 586 8066. Iðnaðarsafnið | Á safninu getur að líta vél- ar og verkfæri af öllum stærðum og gerð- um, framleiðsluvöru o.fl. Opið daglega kl. 13–17 til 15. sept. 400 kr. inn, frítt fyrir börn. Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í Bjarnarfirði, sem er bústaður galdra- manns. Litið er inn í hugarheim almúga- manns á 17. öld og fylgst með því hvernig er hægt að gera morgundaginn lítið eitt bærilegri en gærdaginn. Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst. Landnámssýningin Reykjavík 871±2 | Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld sem fannst við fornleifauppgröft í Reykja- vík 2001. Fróðleik um landnámstímabilið er miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla daga kl. 10–17. Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Sýning í Þjóðarbókhlöðu. Myrkraverk og misindismenn. Reykjavík í íslenskum glæpasögum. Ritað í Voðir. Sýning Gerðar Guðmundsdóttur. Sýning á teikningum Halldórs Bald- urssonar, sem eru byggðar á Vetrarborg- inni eftir Arnald Indriðason. Teikningar Halldórs eru til sölu. Opið mán.–fös. kl. 9– 17, lau. kl. 10–14. Minjasafnið á Akureyri | Sumarsýning. Ef Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 geðvondur, 8 digurt, 9 tekur, 10 málm- ur, 11 slitni, 13 kjánar, 15 höfuðfats, 18 mannsnafn, 21 gerist oft, 22 bæli, 23 sætta sig við, 24 spjalla saman. Lóðrétt | 2 skræfa, 3 snáði, 4 ljúka, 5 mergð, 6 hæðir, 7 þrjóskur, 12 veiðarfæri, 14 ekki göm- ul, 15 hitti, 16 dragsúg, 17 al, 18 skriðdýr, 19 at- vinnugrein, 20 fuglinn. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 rupla, 4 bugar, 7 móður, 8 rjótt, 9 sút, 11 annt, 13 fita, 14 erfir, 15 bull, 17 ílát, 20 þrá, 22 lofar, 23 bæt- um, 24 rúnir, 25 tjara. Lóðrétt: 1 rimpa, 2 peðin, 3 aurs, 4 bert, 5 glófi, 6 rétta, 10 útför, 12 tel, 13 frí, 15 bólur, 16 lyfin, 18 letja, 19 tomma, 20 þrír, 21 ábót.  Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.