Morgunblaðið - 14.08.2006, Page 4

Morgunblaðið - 14.08.2006, Page 4
4 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Króatíu í ágúst. Króatía hefur svo sannarlega slegið í gegn hjá Íslendingum. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Króatíu 23. ágúst frá kr. 39.990 Verð kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. tvo fullorðna með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í viku. Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/ íbúð í viku. Munið Mastercard ferðaávísunina FÉLAG flugumferðarstjóra hefur sent Þorgeiri Páls- syni flugmálastjóra bréf þar sem óskað er eftir því að hann lýsi því yfir að það muni ekki gerast aftur að veikur flugumferðarstjóri verði þvingaður til að vinna. Talin er ástæða til að þegar slíkt atvik komi upp hafi það ekki verið með vitund og vilja flugmálastjóra. Bréfið er sent í kjölfar atviks í lok júlí þegar flug- umferðarstjóri sem tilkynnt hafði um veikindi var lát- inn mæta til vinnu eftir að trúnaðarlæknir Flugmála- stjórnar hafði úrskurðað hann vinnufæran, þrátt fyrir andmæli mannsins. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Flug- málastjórnar, segir að Þorgeir Pálsson flugmálastjóri hyggist ekki svara bréfinu í gegnum fjölmiðla, en hann muni svara flugumferðarstjórum bréflega í vik- unni. Í bréfi Félags flugumferðarstjóra er reglugerð um starfsemi Flugmálastjórnar Íslands, þar sem segir m.a. að starfsmaður megi ekki veita öryggisþjónustu vegna loftferða ef hann sé vegna sjúkdóms eða ann- arrar líkrar orsakar óhæfur til að rækja starfann á tryggilegan hátt. „Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur talið að þú, hr. flugmálastjóri, deildir með félaginu þeim metnaði fyrir hönd íslenskrar flugumferðarþjónustu að hún verði ekki aðeins rekin með hagkvæmnissjón- armið í huga heldur einnig, og umfram allt, af full- komnu öryggi. Félagið hefur því ástæðu til að ætla að ákvörðun um að þvinga veikan flugumferðarstjóra til vinnu hafi verið tekin án þinnar vitundar og sam- þykkis,“ segir í bréfinu. Æskilegt að flugmenn komi veikir til vinnu? Þar er flugmálastjóri spurður tveggja spurninga. Annars vegar hvort hann telji að flugumferðarstjóri sem telji sig ófæran um að sinna starfi sínu eigi samt að mæta og sinna störfum sínum frekar en að til- kynna forföll. Hins vegar hvort hann telji það ásætt- anleg eða æskileg vinnubrögð að stjórnendur ís- lenskra flugfélaga færu að fordæmi Flugmálastjórnar og þvinguðu flugmenn sína veika til vinnu. Að lokum fer Félag flugumferðarstjóra fram á að flugmálastjóri lýsi því yfir að það gerist ekki aftur að veikur starfsmaður verði þvingaður til vinnu. Flugumferðarstjórar óska svara flugmálastjóra um veikindi Ekki gert með vitund og vilja flugmálastjóra? LÖGREGLAN í Keflavík stóð tvo karla og eina konu að innbroti í Vogum á Vatnsleysuströnd á þriðja tímanum í aðfaranótt sunnudags. Í bifreið þremenninganna fannst góss sem tengist að minnsta kosti tveimur innbrotum, einu í Grinda- vík og öðru í Keflavík. Að sögn lög- reglu var um talsvert magn af ráns- feng í bílnum og mikið verðmæti í honum falið. Fartölvur, mynda- vélar, skartgripir og talsvert magn peninga var meðal þess sem fannst. Þremenningarnir voru í haldi lög- reglu í gær og reiknar hún með því að krafist verði gæsluvarðhalds yf- ir þeim á grundvelli rannsókn- arhagsmuna. Fólkið hefur marg- sinnis áður komið við sögu lögreglunnar í Keflavík í tengslum við svipuð mál. Stóð þrennt að innbroti í Vogum „ÞAÐ ER þessum hópi líkt að vilja særa og meiða á gleðidögum,“ segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formað- ur samtakanna ’78, um auglýsingu á vegum Samvinnuhóps kristinna trú- félaga sem birtist í Morgunblaðinu á laugardag. Auglýsingin ber yfirskriftina „Frjáls úr viðjum samkynhneigðar“ og segir Hrafnhildur samtökin ekki munu gera veður út af auglýsing- unni. Auglýsingin sé vart svara verð þar sem hún dæmi sig sjálf. Það hafi sýnt sig og sannað að ferli á borð við það sem auglýst er geti verið mjög skaðlegt veikum einstaklingum. „Við komum til með að vinna áfram að hamingju einstaklingsins eins og hann er, í stað þess að reyna að troða honum í ákveðið hlutverk.“ Kristinn Ásgrímsson, for- stöðumaður Hvítasunnukirkjunnar í Keflavík, sagði í samtali við RÚV að trúfélögin Hvítasunnukirkjan, Krossinn, Vegurinn og Betanía stæðu að baki Samvinnuhópi krist- inna trúfélaga. Vinna að ham- ingju einstaklings- ins eins og hann er ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar missti stjórn á bifreiðinni á Fljótsdalsheiði um miðjan dag í gær með þeim af- leiðingum að bifreiðin fór út af veg- inum og valt. Maðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en hann fann fyrir eymslum í lær- um og víðar. Maðurinn er þó ekki alvarlega slasaður. Bíllinn er hins vegar gjörónýtur og þykir lögreglu á Húsavík mikil mildi að ekki hafi farið verr. Bílslys á Fljótsdalsheiði ÍSLANDSMÓT barna, unglinga og ungmenna í hestaíþróttum var hald- ið um helgina á Brávöllum, fé- lagssvæði Sleipnis á Selfossi. Mótið tókst með ágætum í mildu veðri og þátttaka var mikil en um 450 skrán- ingar voru í keppnisgreinar. Til sam- anburðar voru 330 skráningar á Ís- landsmót fullorðinna sem fram fór í júlí síðastliðnum. Efstur í fimmgangi í unglinga- flokki var Ragnar Tómasson á Leyni frá Erpsstöðum og Ólafur Andri Guðmundsson í ungmennaflokki á Leiftri frá Búðardal. Í fjórgangi í barnaflokki sigraði Ragnar Bragi Sveinsson á Hávarði frá Búðarhóli, Óskar Sæberg í unglingaflokki á Þyt frá Oddgeirshólum og Rósa Birna Þorvaldsdóttir sigraði í fjórgangi í ungmennaflokki á Byl frá Kleifum. Gústaf Ásgeir Hinriksson stóð efst- ur í barnaflokki í töltinu á Hrafnfaxa frá Hraukbæ, Hekla Katharína Kristinsdóttir sigraði á Nútíð frá Skarði í unglingaflokki og Katla Gísladóttir fór með sigur af hólmi í töltinu í ungmennaflokki á Órator frá Grafarkoti. Keppendum í yngri flokkum vex ásmegin með hverju árinu sem líður og ekki er annað að sjá en að framtíðin sé björt í hesta- mennskunni. Knáir krakkar á Íslandsmótinu Morgunblaðið/Eyþór Hekla Katharína Kristinsdóttir í glæsilegri töltsveiflu á Nútíð frá Skarði. Þær stöllur sigruðu í tölti í unglingaflokki. LEIKFÉLAGIÐ Sýnir stendur um þessar mundir fyr- ir kómískri útisýningu á verki Antons Pavlovítsj Tsjekhoff, Mávinum. Leikfélagið hefur sótt Svarfdæla heim undanfarin ár og sett upp sýningu á Hánefs- staðarreit í Svarfaðardal í tengslum við Fiskidaginn mikla á Dalvík. Í ár var engin undantekning þar á og léku meðlimir leikhópsins á als oddi í ágætis veðri í dalnum á laugardaginn. Guðjón Þorsteinn Pálm- arsson leikstýrði hópnum við góðar undirtektir við- staddra. Morgunblaðið/RAX Leikhús í fjallasal BJÖRGUNARSVEITIR Slysavarnafélagsins Lands- bjargar hófu í fyrrakvöld leit að tveimur dönskum ferðamönn- um sem hringdu í Neyðarlín- una um hálftíuleytið að kvöldi laugardags. Mennirnir sögðust vera í sjálfheldu í klettum Kistufells í Austurbyggð og gerði þoka á svæðinu þeim erf- itt fyrir að lýsa staðarháttum fyrir starfsmönnum Neyðarlín- unnar. Þeir voru í GSM-sam- bandi á meðan á leit stóð og fundust þeir að lokum, klukkan hálffimm í gærmorgun. Menn- irnir voru orðnir kaldir og hraktir en heilir á húfi. Nokkur viðbúnaður var vegna ófara mannanna, sex björgunarsveit- ir tóku þátt í leitinni auk þess sem til stóð að senda leitar- hunda og þyrlu Landhelgis- gæslunnar á staðinn þegar mennirnir bárust í leitirnar. Í sjálf- heldu á Kistufelli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.