Morgunblaðið - 14.08.2006, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 14.08.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 25 UMRÆÐAN BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ALLIR eiga að kannast við mála- ferlin í Njálu með sín lýrit o.s.frv. Hvenær var á Alþingi Íslendinga sú venja treyst í sessi að einfaldur meirihluti réði, hvenær sekt og sönnunarbyrði innleidd, hefnd- arskyldan afsögð? 1117, árið áður en Hafliðaskrá með sinn Vígslóða, – fyrir atfylgi klerka undir forystu kirkjuhöfðingjans Gissurar biskups. Hann sneiddi á sínum tíma hjá Brimum í sinni vígsluför; erkibisk- upinn þar var á bandi keisarans, hélt á fund páfa. Baugatal hefur af fræðimönnum sumum verið álitið mótfrumvarp við Vígslóða í und- irbúningi laganna eins og fræðast má um í afmælisriti Magnúsar Más Lárussonar sjötíu ára í ritgerð eftir Björn Sigfússon háskólabókavörð og bíóstjóra sælla minninga. Þjóð- félög, sem búa í þokkabót við stjórnskipan, sem sniðin er eftir stjórnsýslufyrirkomulagi reglu Dóminikana, sbr. valddreifingu, stjórnunarstig miðstjórnar og sveitastjórna, eru í frumgerð sinni kristin, en ekki eitthvað annað. Fóstureyðingar eru leyfðar, hvað sem allri ofbeldis og mannréttinda- umræðu líður. Hvað er ofbeldi, ef um það hefur verið gert þegjandi samkomulag, að dauði fósturs af mannavöldum sé fullorðinsmál, en ekki barna.? Helst skal stunda á að dekstra uppvaxandi kynslóðir að reyna ekki að skilja það, sem þeirra bíður seinna að taka á og þegja um. Auðvitað ber látlaus og lýjandi of- beldisumræða svokölluð og almenn- ur dólgsháttur keim af berri hræsni og tvískinnungi. Nægir, sé krufið til rótar að kenna bjargræðisvegum og afþreyingu þegnanna um almenna dægradvöl? Loks: Hvað líður klinki hins op- inbera og offorsi gagnvart landi og þjóð, landi, sem gangnamenn af Fljótsdal og nágrannar þar til ný- verið höfðu einir farið um að ein- hverju ráði, stöku hreindýraskytta eða ferðalangar; að sönnu ósnortið land, langt utan alfaraleiðar, að Landsvirkjun var falið erindið, lít- illa sanda, lítilla sæva. Þrjóti þá ekki erindið þar efra barbara nú- tímans, vekfræðingastóðið, pólitíska valdið, íslenzka borgarastétt ásamt aftaníossum mun látum ekki linna. Upp af vellinum rís heljar drullu- vilpa, musteri mannorðsins. Sveipir sýnilegir, blikur á lofti. Einhvers- staðar hringlar í bauki, hjartataug, annarsstaðar ekki; DVD diskar hafa leyst af hólmi vídeóið. Skolli gnístir tönnum. Samviskan mun áfram á kreiki sama þó brattgengir dæsi og strjúki loðinni loppu um belg. JÓN BERGSTEINSSON, verkamaður. Hvort heldur hnit eða hnota Frá Jóni Bergsteinssyni: FRÁ því var skýrt í Morg- unblaðinu 2. ágúst, að til standi að setja upp útilistaverkið Ljós eftir Hrein Friðfinnsson, við Mennta- skólann á Ísafirði. Verkið verður sett upp í minningu Jóns Sigurðs- sonar og verður afhent 1. des. nk., segir Ólína Þorvarðardóttir skóla- meistari í viðtali við blaðið. Hér er vissulega um ánægjuleg tíðindi að ræða, sem gerast að frumkvæði hjónanna Maríasar Þ. Guðmundssonar og Málfríðar Finnsdóttur frá Ísafirði. En nauð- synlegt er að leiðrétta það sem kemur fram í niðurlagi áð- urnefndrar ágætu umfjöllunar. Þar segir: „Þessi súla mun standa á skólalóðinni og síðan verða einkunnarorð Jóns Sigurðs- sonar: Sómi Íslands, sverð þess og skjöldur, meitluð í stein á jörðinni í kringum súluna.“ Frá því er að segja, þetta voru alls ekki einkunnarorð forsetans. Þau voru Eigi víkja, ef einhver voru. Íslendingar í Kaupmanna- höfn gáfu Jóni innsigli með ein- kunnarorðunum Eigi víkja er hann hélt á Þjóðfundinn 1851. Mynd af innsiglinu má sjá í steindum glugga Steinþórs Sigurðssonar í Minningarkapellu Jóns Sigurðs- sonar á Hrafnseyri. Dr. Lúðvík Kristjánsson segir að vísu frá því, að Jón notaði þessu einkunnarorð aldrei mjög mikið, en það er önnur saga. Hitt er svo annað, að þeir hinir sömu Íslendingar í Kaupmanna- höfn létu setja silfursveig á kistu Jóns við minningarathöfn um þau hjón í Garnisonskirkju eftir lát þeirra 1879. Á silfursveignum stóð eftirfarandi áletrun: „Óskabarn Íslands, sómi þess, sverð og skjöldur.“ HALLGRÍMUR SVEINSSON Brekku, Dýrafirði Óskabarn Íslands Frá Hallgrími Sveinssyni: Í MORGUN- BLAÐINU og Fréttablaðinu 2. ágúst sl. birtist sín hvor greinin eftir Rannveigu Guð- mundsdóttur alþm., báðar um matarverð hér á landi. Rannveig hefur um árabil verið hvað ötulust við að berjast fyrir lægra matarverði, m.a. með því að afnema inn- flutningshömlur á matvælum. Að þessu sinni ber þó nýrra við, í báðum greinunum birtir hún skilning á stöðu íslenskra bænda sem ég minnist ekki að hafa séð fyrr í skrifum hennar eða mál- flutningi. Í Morgunblaðsgreininni segir hún: „Lækkun matarverðs snýst ekki um aðför að bændum heldur uppstokkun á úreltu kerfi tolla og vöru- gjalda …“ Og: „Lyk- illinn að lausn felst í sáttagjörð við bændur um nýtt og betra skipulag styrkja við landbúnað, samhliða afnámi tolla og vöru- gjalda á innfluttum matvælum.“ Í greininni í Frétta- blaðinu segir hún: „Gera þarf áætlanir í samráði við bændur um hvernig lækka má matarverð verulega án þess að það komi niður á eðli- legum stuðningi við bændur …“ Það er ánægjulegt að lesa þau orð Rannveigar að íslenskir bænd- ur þurfi eðlilegan stuðning og þar með að íslensk matvælaframleiðsla sé þjóðinni nauðsyn. Mér hefur t.d. fundist nokkuð djúpt á þeirri skoðun í málflutningi ASÍ og Neytendasamtakanna að und- anförnu. En hér er komið að kjarna málsins. Íslenskur landbúnaður á sér ekki aðeins tilverurétt, heldur er hann einn fánaberi þeirra for- réttinda að búa á Íslandi, þar sem eru gæði, ferskleiki og hollusta matvæla. Um þessar mundir ber- ast fregnir frá útlöndum um þurrka í Evrópu og víðar um heim sem draga úr vexti gróðurs. Fregnirnar greina frá minni upp- skeru útigrænmetis en vant er og áföllum í fóðuröflun og kornrækt. Annars staðar í heiminum eru skaðar vegna úrkomu og flóða og fellibyljir ætla að skila sér eins og í fyrra. Umræða um veðurfars- breytingar af mannavöldum verð- ur sífellt meira áberandi. Það er eðlilegt að við bregðumst við þess- um tíðindum með því að styrkja okkar eigin matvælaöflun. Tryggingar hvers konar þykja sjálfsagðar í nútímaþjóðfélagi og sumar eru lögboðnar. Jafnframt óska allir sér þess að þurfa ekki að verða fyrir skaða þó að trygg- ingar bæti hann. Ásamt andrúms- lofti og vatni er manninum ekkert jafn mikilvægt og að eiga vísan mat. Sú hugsun að við þurfum að leggja eitthvað á okkur til að tryggja þann aðgang er þó ekki öllum jafn ljós. Þeir úti í heimi sjá um það. Það er jafn sjálfsagt að mat- arverð sé sanngjarnt eins og verð á öðru sem við kaupum, en það þarf að meta í samhengi við heild- armynd kjara okkar og velferðar. Í hraðfleygum heimi getur losnað um það sem áður var föst stærð, t.d. aðgangur að ódýrum mat- vælum. Það er ánægjulegt að Rannveig Guðmundsdóttir hefur gengið fram fyrir skjöldu og bent á að ís- lenskir bændur þurfi á eðlilegum stuðningi að halda. Ég hef séð því fleygt í slúðurdálkum blaða að hún hyggist ekki gefa kost á sér til þingsetu í næstu kosningum. Ekki hætta, Rannveig. Ekki hætta á þingi, Rannveig Matthías Eggertsson skrifar um matarverð og stöðu ís- lenskra bænda ’Það er ánægjulegt aðRannveig Guðmunds- dóttir hefur gengið fram fyrir skjöldu og bent á að íslenskir bændur þurfi á eðlilegum stuðningi að halda.‘ Matthías Eggertsson Höfundur er fyrrv. ritstjóri Búnaðarblaðsins Freys. MEÐ meiri velmegun, minni hreyfingu og breyttu fæðumynstri hefur þjóðin okkar þyngst á undanförnum árum og ýmsir áhættu- þættir vegna þessa komið fram í auknum mæli s.s. hjarta- og æðasjúkdómar, syk- ursýki og þunglyndi. Vegna aukinnar um- ræðu um gildi hreyf- ingar og mataræðis hefur hreyfing og heilsuefling ýmiss kon- ar vaxið í daglegu lífi landsmanna á und- anförnum árum og er það vel. Íþrótta- og Ólympíusam- band Íslands, ÍSÍ, sambandsaðilar þess og fjöldi fagaðila á vettvangi hreyfingar og hollustu hafa hvatt al- menning til að hugsa um heilsuna í víðtækum skilningi. ÍSÍ hefur m.a. staðið fyrir hvatningarátakinu Ís- land á iði, fyrirtækjakeppninni Hjól- að í vinnuna og Kvennahlaupi ÍSÍ svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur sam- bandið staðið fyrir fjölda námskeiða og ráðstefna um gildi hreyfingar. Á undanförnum vikum hefur reglulega verið rætt um samfélags- lega skyldu fyrirtækja vegna góðs árangurs þeirra og hagnaðar. Mér þykir ástæða til að nefna og þakka í því sambandi þátt Glitnis í heilsueflingu og íþróttastarfi. Auðvitað hafa fjölmörg fleiri fyr- irtæki og bankar á landsvísu verið afar dugleg á þessum vett- vangi og ber að þakka það starf. Það gleymist stundum að minnast á það sem vel er gert á þessum vettvangi. Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum hversu myndarlega Glitnir hefur auglýst og hvatt landsmenn til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis 19. ágúst nk. Hvatningin hef- ur staðið yfir í langan tíma, allir ald- urshópar hvattir til að vera með og í raun er verið að setja þennan við- burð í nýjan farveg fjölskyldu- skemmtunar. Auglýsingarnar hafa ekki bara þann tilgang að fá þátt- töku í hlaupinu sjálfu heldur einnig að hvetja fólk til hreyfingar. Og að sjálfsögðu að auglýsa nafn bankans. Glitnir hefur einnig verið afgerandi í stuðningi sínum við afreksíþrótta- starf á Íslandi með þátttöku í Ól- ympíufjölskyldunni frá upphafi. Að lokum er rétt að minnast á framgöngu Bjarna Ármannssonar, forstjóra Glitnis, í umræðu um þætti bankans í heilsueflingu. Með kröft- ugri framgöngu sinni og eigin þátt- töku er Bjarni ekki einungis að hvetja starfsfólk Glitnis og efla and- ann í bankanum. Hann er að gefa tóninn til annarra stjórnenda, for- svarsmanna og ráðamanna í sam- félaginu um að vera góðar fyr- irmyndir í leik og starfi. Og hann er að sinna samfélagslegri ábyrgð bankans. Gott framtak Glitnis í þágu heilsueflingar Stefán Konráðsson skrifar um þátt Glitnis í heilsueflingu og íþróttastarfi ’… í raun er verið aðsetja þennan viðburð í nýjan farveg fjölskyldu- skemmtunar. ‘ Stefán Konráðsson Höfundur er framkvæmdastjóri ÍSÍ. JAKOB Björnsson ritar grein í Morgunblaðið þann 11. júlí um at- huganir Bandaríkjamanna og sam- starfsaðila á möguleikanum á því að fergja allt koldíoxíð, sem losnar við orkuframleiðslu, í berglögum. Þetta hef- ur verið rætt hér á landi líka sem kunn- ugt er. Ef þetta tekst er vissulega um mik- ilvægt skref að ræða í umhverfis- og orku- málum heimsins þar sem jarðefnaeldsneyti er eins mikilvægt og raun ber vitni. Hvort svarið við spurning- unni um hina end- anlegu lausn sé já- kvætt er nú sennilega háð því hvort menn hugsi í áratug- um eða árhundruðum. Jakob minnist líka á hvernig ork- an sem unnin er úr kolunum verð- ur nýtt. Þar leikur rafmagn að sjálfsögðu stórt hlutverk en hann bendir líka á vetni fyrir öll þau flutninga- og samgöngutæki sem við þekkjum í dag. Þar sem Íslend- ingar vilja vera í forustu í vetni- svæðingu heimsins er nauðsynlegt að benda á eftirfarandi. Aðalatriði „Futuregen“-verkefnisins er ekki framleiðsla vetnis, enda er hér um aldargamla framleiðsluaðferð að ræða. Aðalatriðið er söfnun koldíoxíðsins þannig að nýta megi orku jarðefnaelds- neytis, sérstaklega kola, án þess að senda koldíoxíðið út í and- rúmsloftið. Ég veit ekki hvort Jakob sjálf- ur lítur á þetta inn- legg sitt sem stuðning við vetnishugmyndir okkar Íslendinga, sem ég tel glórulausar, en þessar hugmyndir Bandaríkjamanna hvorki sanna né afsanna neitt í þeim efnum. Ég vil bara ítreka það sem ég hef bent á annars staðar, að það er ekki líklegt að sóun 75– 80% raforkunnar með vetn- isvögnum eða bílum, í stað þess að nýta yfir 60% af þessari orku í rafknúið samgöngutæki eða enn betur til annarrar framleiðslu, sé framtíðarlausn á orkumálum heimsins. Þeir sem vilja kynna sér upp- lýsta umræðu um framtíðarmögu- leika vetnis sem orkumiðils fyrir samgöngutæki geta farið inn á heimasíðu European Fuel Cell For- um. Slóðin er www.efcf.com og ætti sérstaklega að fara inn á Reports- flipann og líta á skjal E17 sem inniheldur PowerPoint-kynningu eftir Svisslendinginn Ulf Bossel. Framtíðarlausn á orkumálum heimsins Sigþór Pétursson fjallar um umhverfis- og orkumál ’Hvort svarið við spurn-ingunni um hina end- anlegu lausn sé jákvætt er nú sennilega háð því hvort menn hugsi í ára- tugum eða árhundr- uðum.‘ Sigþór Pétursson Höfundur er prófessor í efnafræði við Háskólann á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.