Morgunblaðið - 14.08.2006, Síða 36

Morgunblaðið - 14.08.2006, Síða 36
36 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Á DÖGUM íslenska þjóðveldisins giltu hér á landi lög, sem almennt ganga undir nafninu Grágás, eða grágásarlög. Með Gissurarsáttmála, sem Íslendingar gerðu við Hákon konung Hákonarson árið 1262, lauk sögu þjóðveldisins og þá varð að setja hinum nýja hluta konungsrík- isins lög, er betur samræmdust þeim lögum er giltu í Noregi. Sá sem það gerði var Magnús konungur Hákonarson. Hann kom til ríkis eftir föður sinn árið 1264 og hófst fljótlega handa um að setja ríki sínu ný lög. Þau voru tilbúin ár- ið 1269 og hlaut Magnús við- urnefnið lagabætir af þessari iðju. Árið 1271 lét Magnús ganga frá nýrri lögbók fyrir Ísland og kom Sturla Þórðarson með hana hingað til lands þá um vorið. Hún var í munni manna nefnd Járnsíða og mun það hafa stafað af því að járn- bent spjöld voru utan um eitthvert eintak hennar. Járnsíða mun einna síst kunn af hinum fornu lögbókum Íslendinga, enda gilti hún aðeins í áratug, uns Jónsbók leysti hana af hólmi árið 1281. Hún hefur og miklu sjaldnar verið gefin út en bæði Grágás og Jónsbók og kom síðasta útgáfan út árið 1847. Þessi nýja útgáfa var þannig orð- in tímabær og þörf. Hún hefur að geyma texta Járnsíðu og að auki Kristinrétt Árna biskups Þorláks- sonar, sem var lögtekinn árið 1275 og kom í stað þess kristinréttar sem gilti á þjóðveldistímanum. Texti þessara gömlu lagabálka er hér prentaður á nútímamáli með glögg- um skýringum. Útgefendur rita fróðlegan og greinargóðan inngang og í bókarlok er atriðisorðaskrá. Þetta er handhæg útgáfa, snotur að öllum frágangi og gott dæmi um að vel má gefa út sögulegar heim- ildir án þess að efna til rándýrra glæsirita. Tveir laga- bálkar frá 13. öld BÆKUR Járnsíða og Kristinréttur Árna Þorlákssonar Sögufélag, Reykjavík 2005. 220 bls. Útgefendur: Haraldur Bernharðsson, Magnús Lyngdal Magnússon, Már Jónsson. Jón Þ. Þór BAROKKHÓPURINN Teneritas flytur verk frá sautjándu og átjándu öld eftir ítölsk, frönsk og spænsk tónskáld á næstu sum- artónleikum Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Tónleikarnir fara fram á morgun. Leikin verða verk eftir Alexis Magito, Fraçois Cou- perin, Marin Marais, Gaspar Sanz og Johann Sebald Triemer en Teneritas-hópinn skipa þau Hanna Loftsdóttir sem spilar á gömbu, Ólöf Sigursveinsdóttir á barokkselló og sænski lútuleikarinn Fredrik Bock. Hanna segir blandað þjóðerni verkanna helgast af því að gamban og sellóið hafi á sín- um tíma átt sinn hvorn heimavöllinn, gamban hafi verið mjög vinsæl í Frakklandi meðan sellóið hafi verið vinsælla á Ítalíu. Hópurinn spilar þó flest verkin saman en þó oftast með eina aðalrödd í forgrunni meðan hin hljóð- færin mynda undirleik. Um aldur og eðli verkanna á efnisskránni segir hún það vera eitthvað við hljóðheim barokksins sem heilli. „Það er svo mikil dýpt í barokktónlistinni sem er engu að síður laus við þennan ofsa og rosalegu tilfinningaróm- antík, eins og maður finnur t.d. í rómantískri tónlist. Það er allt sagt en á knappari máta.“ Hanna útskýrir nánar hvað liggur hér að baki. „Við mótun hendinga er reynt að ná fram smáatriðunum í tónlistinni frekar en að spila langar línur. Maður nær þess vegna fram öðru litrófi. Svo er hljómur hljóðfæra þar sem notaðir eru girnisstrengir heillandi. Hann er svo þýður,“ en Hanna stundar nám í barokkselló- og gömbuleik í Hollandi. Latneska nafnið teneritas þýðir einmitt mýkt og vísar þannig í barokkhljóminn. Upp- runalega var Teneritas dúett og þá skipaður Hönnu og Ólöfu sem hafa þekkst frá því að þær voru ungar hnátur við hljóðfæranám. „Við fengum svo Fredrik til liðs við okkur til að gera efnisskrána fjölbreyttari,“ upplýsir hún og bætir við að eftir tónleikana á Sig- urjónssafni stefni hópurinn að frekara tón- leikahaldi úti á landsbyggðinni. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og er aðgangseyrir 1.500 krónur. Tónlist | Teneritas-hópurinn á Listasafni Sigurjóns Ólafssonar Þýðir barokktónar Morgunblaðið/Árni Sæberg „Það er allt sagt í barokktónlistinni en á knappari máta,“ segir Hanna Loftsdóttir sem heldur á gömbu hægra megin á myndinni. Til vinstri er Ólöf Sigursveinsdóttir með barokkselló. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is www.lso.is Nú um helgina var tekin til sýningamyndin Aðalhlutverk: Rosa Furr íMuseum of Modern Art í New York(MoMA). Myndin er áhugaverð meðal annars fyrir þær sakir að íslensk kona, Lára Martin, stóð að gerð myndarinnar. Myndin kom út árið 2000 sem lokaverkefni Láru til mastersgráðu við hinn virta kvikmynda- skóla Californian Institute of the Arts (CalArts). Skólinn var stofnaður af Walt Disney í upphafi sjöunda áratugar til að færa saman sviðslistir og sjónlistir.Kvikmyndin, sem var verkefni Láru, vakti talsverða lukku í skólanum og var tekin til yfirlitssýningar í MoMA á bestu verkum CalArts síðustu þrjá áratugi. Yfirlitssýningin hefur staðið frá 25. maí, þar sem sýnd eru bestu verk síðustu þrjá áratugi við skólann. Myndin var sýnd 10. og 12. ágúst í sýningarhópi með t.a.m. verki eftir Paul Reubens (Pee Wee Herman). Á meðal ann- arra þekktra leikstjóra sem sýna á þessari yf- irlitssýningu er James Mangold sem gerði mynd- irnar Walk the Line, Heavy og Copland. Sýningin inniheldur því bæði „stór nöfn og þá sem eru að fara út í lífið með nýjar hugmyndir“, líkt og Lára kemst að orði. Til heiðurs Josephine Baker Lára er fædd og uppalin í Reykjavík og hefur að eigin sögn verið kvikmyndaáhugakona frá því hún var 12 ára. Hún var meðlimur í Fjalakett- inum í menntaskóla, og gekk í Menntaskólann við Sund. Eftir það fór hún út á vinnumarkaðinn: vann hjá Ríkisútvarpinu í nokkur ár á tónlist- ardeildinni og var prófarkalesari á Þjóðviljanum á undan því. „Svo fór ég að dunda mér við að gera stutt- myndir og sótti um nokkra skóla og komst inn í þá. Ég valdi að fara til Bandaríkjanna þar sem faðir minn er frá New York. Pabbi, og reyndar báðir foreldrar mínir, voru í skemmtanaiðn- aðinum, voru dansarar. Og afi var einn af döns- urunum fyrir Josephine Baker.“ Þessi tenging fjölskyldu Láru við kvikmynda- stjörnuna Josephine Baker varð til þess að sjálf persónan Rosa Furr sem stuttmyndin sem heitir í höfuðið á er byggð á Baker og myndin tileinkuð henni. Myndin er einnig „óður til þöglu mynd- anna og viðleitni til að endurskrifa kvikmynda- söguna“, að sögn Láru. Kvikmyndir ritskoða efni sitt Sú viðleitni er komin til af miklum áhuga Láru á kvikmyndasögunni og þeirri staðreynd að þús- undir af þöglu myndunum týndust. „Við höfum lesið kvikmyndasöguna þannig að hún sé á einn hátt: hverjir séu bestu kvikmynda- leikstjórarnir o.s.frv., en það sem margir gera sér ekki grein fyrir er að um 90% allra þögla mynda brunnu eða var fleygt sökum skorts á plássi. Þá fannst mér vera hér tækifæri til að skoða og ímynda sér hvað gæti hafa verið til. Getur verið að á þessum tímapunkti hafi einhverjir gert kvik- myndir þar sem svartir og hvítir og samkyn- hneigðir og allir þeir sem hafa verið settir út á jaðarinn hafi ekki verið þar? Að einhvern tímann hafi ekki verið litið á okkur sem jaðarmenningu og að gerðar hafi verið myndir með okkur í mið- plotti: þar sem við erum bara venjulegir þegnar í samfélaginu? Ég fór af stað með þá hugmynd að ég ætlaði að gera svo gamla mynd að þegar fólk sæi hana þá liti hún út alveg eins og hún hefði verið tekin upp 1926 og ég hefði bara skeytt hana saman eða þrif- ið hana. Og þá kemur í ljós allt önnur saga en við eigum að venjast í þöglu myndunum.“ Lára skeytir í myndinni saman persónum sem í þöglu myndunum virðast bundnar af kyn- eða kyn- þáttahlutverkum. Í myndinni er svört kona sterk persóna, en ekki mátti sýna Bandaríkjamenn af afrískum uppruna sem sterkar persónur á tímum þöglu myndanna. Yfirleitt léku málaðir hvítir menn svarta menn. Auk þess á í myndinni að gifta svörtu konuna hvítum manni en slík sam- skipti kynþáttanna var mikið tabú í þöglu mynd- unum. „Kvikmyndir hafa alltaf verið ritskoðaðar. Eða frá því þær fóru að vera kapítalísk vara. Það voru nokkrar kvikmyndir sem komust ekki inn í kvik- myndahúsin því þær sögðu sannleika úr sam- félaginu af fólki sem var ekki litið á sem merki- legan pappír. Þannig að það var nóg pláss til að fara inn á þessi mið og ég gerði það.“ Og það gerði Lára með þeim árangri að út kom þessi mynd sem stóð sig ágætlega á kvikmyndahátíðum víða um heim og fékk útbreiðslu í Bandaríkjunum og Kanada. Var þörf á að endurskrifa kvikmyndasöguna? „Sagan er náttúrlega skrifuð af einhvers konar sigurvegurum. Það er svo margt sem verður út- undan í söguskoðuninni. Sannleikurinn á bakvið sigurvegarana er oft frekar ljótur. Kvikmynda- bransinn er alveg gargandi viðskiptaheimur og ekkert endilega fallegur. Það eru ekki allir með- vitaðir um hversu ljótur þessi heimur hefur verið, því það er glamúrinn sem alltaf er á toppnum.“ Uppfærir söguna af Búkollu Lára Martin er annars á leið heim til Íslands einmitt vegna kvikmyndasögunnar. Í haust mun hún kenna áfanga í kvikmyndasögu við Háskóla Íslands og hvetur fólk til að koma og endurskoða söguna. Námið verður í boði í hugvísindadeild- inni, hluti af kvikmyndasögu og -fræði sem Guðni Elísson sér um. Lára verður að eigin sögn með þögla tímabilið. Eftir að myndin Starring: Rosa Furr var gerð árið 2000 hefur Lára haft ýmislegt á sinni könnu. „Ég hef verið að vinna með fólki úti í Hollywood í auglýsingabransanum, verið að framleiða og ver- ið aðstoðarleikstjóri í sjálfstæðum kvikmyndum.“ Hún framleiddi til að mynda heimildarmyndina Wild West, sem fjallar um sögu eyðimerkurinnar, og það er indíáni sem segir söguna. Nýverið fékk hún handritastyrk hér heima til að vinna mynd í fullri lengd. „Þetta verður gam- anmynd með alvarlegum undirtón. Maður þarf oft að nota húmorinn til að segja alvarlega sögu. Þetta er um kálfinn hennar búkollu, hana Lukku. Þetta er nútímaútfærsla á Búkollusög- unni, þar sem tröllin eru stóriðjufyrirtæki og svona önnur skrímsli sem eru að eyðileggja og vilja drepa Búkollu. Kýrin táknar í sögunni land- ið. Ef við förum vel að Búkollu þá gefur hún okk- ur töfrahárin sín.“ Lára segir söguna vera „elemental, svo full- komna í öllum fjórum frumefnunum; eldi, vatni, jörð og lofti“. Hún er að klára síðari útgáfu á handritinu og við tekur fjármögnun. Með henni vinnur að verkefninu góður og reyndur mann- skapur, sem svo einkennilega vill til að eru öll í nautsmerkinu ásamt Láru; þau Hilmar Örn Hilmarsson, Valdís Óskarsdóttir og Friðrik Þór Friðriksson. Myndin verður tekin upp hér á landi og líkt og myndin um Rósu Furr er óður til þöglu mynd- anna og Josephine Baker, verður næsta mynd óð- ur til þessa lands. „Mér er ekki alveg sama um hvað er að gerast hérna. En ég vona að unga fólkið, sem er okkar eina von, vakni til meðvit- undar áður en við förum of langt í vitleysunni.“ Kvikmyndir | Lára Martin sýndi í MoMA í New York Endurskrifar söguna út frá sjónarhóli jaðarmenningar Morgunblaðið/Golli Lára Martin hefur í nógu að snúast; hún mun kenna kvikmyndasögu við HÍ næsta haust og undirbýr mynd byggða á sögunni um Búkollu. Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson hsb@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.