Morgunblaðið - 19.10.2006, Síða 1

Morgunblaðið - 19.10.2006, Síða 1
viðskipti FLJÚGA HÁTT VOGUNARSJÓÐIRNIR GEGNA SÍFELLT STÆRRA HLUTVERKI Í FJÁRMÁLAHEIMINUM » 10 ÁHÆTTUÁLAG á skuldatrygg- ingar skuldabréfa bankanna hefur lækkað nokkuð að undanförnu. Sam- kvæmt upplýsingum frá sérfræðing- um á fjármálamarkaði hefur álagið á fimm ára skuldabréf Kaupþings banka á eftirmarkaði lækkað um 0,17 prósentustig frá því í lok sept- embermánaðar og er það nú 0,54%. Álagið á bréf Glitnis hefur lækkað um 0,09 prósentustig og um 0,08 pró- sentustig á fimm ára bréfum Lands- bankans. Áhættuálagið á bréf Landsbanka er 0,48%, en það er lægst hjá Glitni, eða 0,36%. Álagið á bréf bankanna er nú lægra en það var þegar umræða hófst meðal erlendra greiningaraðila um fjármögnun bankanna og ís- lenska hagkerfið hófst í febrúar. Sér- fræðingar gera þó ekki ráð fyrir því að bönkunum muni bjóðast jafngóð kjör á evrópskum skuldabréfamörk- uðum og þeir nutu í fyrra. „Ekki almenn þróun“ Viðskipti með skuldatrygginar hafa vaxið gríðarlega á þessu ári og hefur tryggingarálag margra fyrirtækja lækkað umtalsvert sökum þessa. Ingvar Heiðar Ragnarsson, for- stöðumaður fjármálasviðs Glitnis, segir þó lækkun álagsins hjá ís- lensku viðskiptabönkunum ekki vera hluta af almennri þróun á markaðin- um. „Þegar vísitölur sem mæla trygg- ingarálag evrópskra banka eru skoð- aðar þá sést að þær hafa verið verið mjög stöðugar allt árið, þannig að al- mennt hefur fjármögnunarkostnað- ur bankanna lítið breyst á tíma- bilinu. Þegar evrópskir bankar, sem hafa sambærilegt lánshæfismat og ís- lensku bankarnir, eru skoðaðir sér- staklega þá sést að tryggingaálag þeirra hefur sömuleiðis lítið sem ekkert breyst. Af þessu má ráða að sú lækkun sem hefur átt sér stað á undanförnum misserum er nær ein- göngu bundin við íslensku bankana,“ segir Ingvar Heiðar. Álagið lækk- ar á bankana Álagið er nú lægra en það var í febrúar Morgunblaðið/RAX Jákvæð þróun Álagið á skuldabréf bankanna hefur lækkað. ÁRANGUR íslensku útrásarfyr- irtækjanna er einstakur og áhuga- verður. Þetta sagði Snjólfur Ólafs- son, prófessor Háskóla Íslands, á kynningarfundi í gær. Þar var kynnt rannsóknarverkefni sem Viðskiptafræðistofnun hefur ákveðið að ráðast í, en ætlunin er að rannsaka útrás íslenskra fyr- irtækja á tímabilinu 1998–2007. Snjólfur sagðist telja að þetta verkefni væri ekki komið af stað núna nema vegna þess að stjórn- endur Háskólans hefðu ákveðið að setja skólanum háleit markmið, um að verða meðal hundrað bestu háskóla í heimi. „Flestir efast um að það sé raunhæft markmið, en fyrir tíu árum hefðu fæstir talið það raunhæft markmið að við ætt- um þessi öflugu útrásarfyrirtæki.“ Sagði hann að rannsóknarverk- efnið væri viðleitni til að taka þátt í því að stórefla Háskólann. Fyrirtækin styrkja Fram kom í máli Snjólfs að nokkur af þeim útrásarfyrirtækjunum hefðu ákveðið að taka þátt í verk- efninu með fjárframlögum. Sagði hann að það hefði gert að verkum að Viðskiptafræðistofnun hefði getað ráðið sérstakan starfsmann til að sinna verkefninu, en Auður Hermannsdóttir, sem útskrifast sem MS í viðskiptafræði um næstu helgi hefur verið ráðin til starf- ans. Hann sagði að með slíkri virkri þátttöku fyrirtækjanna mætti m.a. gera ráð fyrir betri að- gangi að þeim, til hagsbóta fyrir verkefnið. Einstakur árang- ur íslenskra útrásarfyrirtækja Morgunblaðið/Kristinn Róbert Wessman, forstjóri Actavis, segir frá tilboðinu í króatíska lyfjafyr- irtækið Pliva og hvað tekur við eftir að tilboðinu var ekki tekið. »18 fimmtudagur 19. 10. 2006 viðskipti mbl.is Svenn Dam, Napóleón fríblaðanna » 22

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.