Morgunblaðið - 19.10.2006, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 17
Eftir Rósu Erlingsdóttur
í Kaupmannahöfn
MIKIÐ hefur verið rætt um útrás
íslenska viðskiptalífsins sem nú
teygir anga sína til margra landa
Evrópu. Í Kaupmannahöfn hafa ís-
lenskir fjárfestar vakið ómælda eft-
irtekt Dana með stærri og minni
fjárfestingum meðal annars með
kaupum á flaggskipum danskra
verslana, Magasin du Nord og Illum
Bolighus. Á dögunum bættist við út-
gáfa danska Fréttablaðsins, Nyhed-
savisen, sem gefið er út til höfuðs
ótal fríblöðum sem dreift er um
samgöngukerfi stærstu borga Dan-
merkur. Ekki má gleyma einu vin-
sælasta kaffihúsinu á Norðurbrú,
The Laundromat Café, en þar fæst
að sögn eigenda besta fiskisúpan í
Kaupmannahöfn og fyrir skömmu
bættist við útibú á Austurbrú.
Eins og gefur að skilja eru tilfinn-
ingar og skoðanir Dana á íslensku
útrásinni blendnar en margur Dan-
inn skilur ekkert í hversu stórtæk
litla þjóðin í norðri getur verið.
Um síðustu helgi bætist enn ein
fjöðrin í hatt íslensku útrásarinnar.
Á besta stað í gömlu Kaupmanna-
höfn, Pilstræde 12, sem er aðeins
steinsnar frá Strikinu og mitt í
besta hverfi sérverslana, verður
opnuð hárgreiðslustofan Loft Salon.
Eigendur stofunnar eru þekktir
hárgreiðslumeistarar eða þau Elsa
Haraldsdóttir á Salon Veh og
Hreiðar Árni Magnússon áður á Sa-
lon Reykjavík ásamt Jóhanni Tóm-
asi Sigurðssyni lögfræðingi.
Þegar blaðamaður leit inn á stof-
una í vikunni voru smiðir að leggja
síðustu hönd á uppsetningu innrétt-
inga sem allar eiga uppruna sinn á
Íslandi og Ítalíu. Hönnun stofunnar
var í höndum Kristjáns Garðarsson-
ar, arkitekts hjá Andrum.
Ekki bara hárgreiðsla
Stíll stofunnar er látlaus og nútíma-
legur og greinilegt að skapa á um-
hverfi þar sem viðskiptavinurinn á
kost á meira en bara hárgreiðslu þó
hún verði eflaust í aðalhlutverki. Á
meðan alþjóðlegt lið hárgreiðslu-
meistara var að prófa nýju græj-
urnar á fyrstu viðskiptavinunum
áttu þeir síðarnefndu kost á að
dreypa á hvítvíni, fá finasta
espresso eða kaffi latte. Á stofunni
er eingöngu unnið með Redken hár-
snyrtivörur.
Eftir verslunarleiðangur í ís-
lensku vöruhúsin á Strikinu stendur
því ekkert lengur í vegi fyrir að fá
fyrsta flokks hárgreiðslu í hjarta
miðborgarinnar „á íslensku“.
Innan skamms verður hægt að
nálgast allar nánari upplýsingar um
hina nýju hárgreiðslustofu á vef-
slóðinni www.loftsalon.dk, eða bara
panta tíma í síma +45 3393 6303.
Hárið og íslenska útrásin
Íslensk hönnun Kristján Garðssson, arkitekt hjá Andrum, hannaði stof-
una og allar innréttingarnar eiga uppruna sinn á Íslandi og Ítalíu.
OPNAÐ hefur verið fyrir nýja
upplýsingaveitu, nefnd Tollalínan,
fyrir innflytjendur og útflytjendur á
vef tollstjóra, tollur.is, þar sem þeir
geta sótt margvíslegar upplýsingar
er tengjast fyrirtæki þeirra í tollaf-
greiðslukerfi Tollstjórans í Reykja-
vík, sem notað er af öllum tollstjór-
um og þjónar fyrirtækjum á
landsvísu.
Hægt er að fá upplýsingar um
vörusendingar fyrirtækisins og
stöðu þeirra í tollafgreiðsluferli, af-
greiðslu- og skuldfærsluheimildir
fyrirtækisins, skuldfærð aðflutn-
ingsgjöld og gjalddaga þeirra og
skuldastöðu aðflutningsgjalda.
Opin allan sólarhringinn
Þjónustan er persónutengd við fyr-
irtækin þannig að starfsmenn þeirra
verða að hafa lykilorð til að fá að-
gang að upplýsingunum og eru með
þeim hætti bundnar við fyrirtækið.
Upplýsingamiðlunin er þannig veitt
með meira öryggi um að réttur aðili
sé að fá umbeðnar upplýsingar.
Jafnframt er upplýsingaveitan opin
24 tíma alla daga vikunnar með teng-
ingu við tollafgreiðslukerfi tollstjóra.
Í tilkynningu segir að Tollalínan
sé einn þáttur í þeirri stefnu toll-
stjóra að veita góða þjónustu, bæta
aðgengi að upplýsingum og auka
skilvirkni og gæði upplýsingamiðl-
unar til viðskiptamanna tollsins.
Leiðbeiningar um Tollalínuna
ásamt umsóknareyðublaði má finna
á tollur.is. Jafnframt er bent á að
margvíslegar upplýsingar er hægt
að sækja á tollur.is um tollamál. Nýj-
asta viðbótin er tollskráin í heild
sinni ásamt öllum þeim tollum og
gjöldum, sem greiða ber við innflutn-
ing vöru. Ennfremur eru veittar
upplýsingar um hvaða leyfa og vott-
orða er krafist vegna vöru í toll-
skrárnúmeri og aðrar upplýsingar er
tilheyra því, en þessar upplýsingar
hafa ekki verið jafnaðgengilegar fyr-
irtækjum og almenningi til þessa.
Flokkar og kaflar tollskrárinnar
ásamt athugasemdum þeirra og al-
mennum túlkunarreglum eru einnig
birtar.
Ný upplýs-
ingaveita
á netinu
◆
INNKAUPAKORT VISA
Nýr dagur – ný tækifæri
Bjarni reddar öllu.
• Innkaupakort VISA er ókeypis kreditkort.
• Ekkert stofngjald, árgjald eða seðilgjald.
• Kortið er ætlað í rekstrarinnkaup og kemur
í stað beiðna- og reikningsviðskipta.
• Lengri greiðslufrestur.
Hægt er að sækja um Innkaupakort VISA á www.visa.is og hjá öllum bönkum og sparisjóðum.
Nánari upplýsingar í síma 525-2280
Úttektartímabil Innkaupakorts er almanaksmánuður og
gjalddagi reiknings 25. næsta mánaðar.