Morgunblaðið - 19.10.2006, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2006 27
viðskipti/athafnalíf
NÆSTKOMANDI laugardag
munu Robert A. Mundell, Nób-
elsverðlaunahafi í hagfræði og pró-
fessor við Columbia háskóla, og
Assar Lindbeck, prófessor í al-
þjóðahagfræði við háskólann í
Stokkhólmi og fyrrverandi formað-
ur sænsku Nóbelsverðlaunanefnd-
arinnar, taka á móti heiðursdokt-
orsnafnbót við viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands.
Af því tilefni munu Mundell og
Lindbeck halda opna fyrirlestra á
vegum viðskipta- og hagfræðideild-
ar á morgun, föstudaginn 20. októ-
ber kl. 15.00–17.00 í sal 132 í Öskju.
Frá þessu er greint í tilkynningu
frá viðskipta- og hagfræðideild Há-
skóla Íslands.
Lindbeck mun fjalla um velferð-
arríki nútímans í sínum fyrirlestri,
hverju þau hafa áorkað, og jafn-
framt um vandkvæði og end-
urbætur þessu tengt. Mundell mun
hins vegar fjalla um alþjóðlegt fyr-
irkomulag peningamála í heimi
tveggja ríkjandi gjaldmiðla. Fyr-
irlestrarnir fara fram á ensku.
Tveir nýir heiðurs-
doktorar við HÍ
Morgunblaðið/Ómar
Fleiri heiðursdoktorar Fyrr í þessum mánuði var Michael E. Porter
prófessor við Harvard háskóla gerður að heiðursdoktor.
ÞEIR sem lesa viðskiptafréttir
hafa eflaust einhvern tímann rekið
augun í fréttir þar sem vitnað er í
fjárfestingarráðgjöf greiningardeilda
bankanna. Þar er ýmist mælt með
undirvogun, markaðsvogun eða yf-
irvogun og þessi meðmæli síðan rök-
studd. Þessi hugtök vefjast eflaust
fyrir einhverjum og er því ekki úr
vegi að fara aðeins yfir merkingu
þeirra.
Fyrst ber að nefna að þessi hugtök
eiga aðeins við ef fjárfestar eru með
eignasöfn sem innihalda hlutabréf í
fleiri en einu fyrirtæki, yfirleitt er
miðað við vel dreifð eignasöfn þá
helst eignasöfn sem fylgja eftir upp-
byggingu einhverrar vísitölu.
Til þess að gefa sem besta mynd af
því hvað hugtökin fela í sér er nauð-
synlegt að gera fyrst grein fyrir upp-
byggingu vísitalna. Tökum sem dæmi
Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands.
Úrvalsvísitalan endurspeglar verð-
mæti 15 veltumestu, að öllu jöfnu, fé-
laganna sem skráð eru í Kauphöllina
en þess ber þó að geta að vægi fyr-
irtækjanna er ekki jafnt. Þannig er
vægi KB banka mun meira en vægi
Össurar, enda er KB banki mun
stærra fyrirtæki og velta með hluta-
bréf bankans er almennt mun meiri
en velta með hlutabréf Össurar.
Þannig vegur KB banki ríflega 38% í
Úrvalsvísitölunni en Össur aðeins ríf-
lega 1%.
Undirvogun – mælt með sölu
KB banki vegur 38%. Af þessu er
hugtakið vogun í fjármálafræði dreg-
ið, það er verið að vega, þ.e. vigta.
Gefur okkur nú að greiningardeildir
bankanna geri ráð fyrir að bréf í KB
banka muni lækka á næstunni og
mæli með undirvogun. Í eignasafni
fjárfestis sem miðar við Úrvals-
vísitöluna – það er ekki óalgengt að
hlutabréfasöfn séu þannig uppbyggð
að þau miði við vísitölu – myndi KB
banki vega ríflega 38% en ef mælt er
með undirvogun, er mælt með að
fjárfestirinn selji einhvern hluta
bréfa sinna til þess að hann verði ekki
fyrir tapi þegar gengi bréfa bankans
fer að lækka. Rétt er að vekja athygli
á að hér er ekki verið að spá að gengi
bréfa KB banka muni lækka, hér er
um dæmi að ræða og liggur beinast
við að nota bankann sem dæmi þar
sem hann er langstærsta fyrirtækið
sem skráð er í Kauphöll Íslands.
Yfirvogun – mælt með kaupum
Víkjum nú aftur að voguninni. Geri
greiningardeildir bankanna ráð fyrir
að gengi bréfa KB banka endurspegli
rétt verðmæti bankans, og að það
muni haldast stöðugt, er mælt með
markaðsvogun. Þetta felur í sér að
eigandi eignasafns sem miðað er við
Úrvalsvísitöluna ætti að mati þess er
gefur út ráðgjöfina
að halda eign sinni í bankanum
stöðugri, þ.e. hvorki selja né kaupa.
Sé hins vegar gert ráð fyrir að bréf
bankans muni hækka á næstunni er
mælt með yfirvogun. Í eignasafni
sem miðað er við Úrvalsvísitöluna
felur þetta í sér að fjárfestir ætti að
bæta við bréfum í KB banka, þ.e.
kaupa.
Til þess að draga þetta saman felur
ráðgjöf um undirvogun í sér að fjár-
festar ættu að selja einhvern hluta
bréfa sinna, markaðsvogun felur í sér
að fjárfestar ættu að halda eign sinni
stöðugri og yfirvogun felur í sér ráð-
gjöf um kaup. Nauðsynlegt er að
gera sér grein fyrir því að þetta á þó
fyrst og fremst við um vel dreifð
eignasöfn.
spurt@mbl.is
Vogarskálar
fjárfestanna
? | Vogunarráðgjöf
HTC, sem áður hét Qtek, er stærsti framleiðandi lófatölvusíma í
heiminum. HTC stendur fyrir High Tech Computer og er
fyrirtækið aðalsamstarfsaðili Microsoft í Windows PC stýrikerfum
fyrir lófatölvusíma.
HTC sameinar síma og tölvu í einu tæki. Þú getur valið úr
lófatölvusímum sem eru samlokusímar, símum með lyklaborði og
símum hlöðnum aukabúnaði. HTC sameinar símann, tölvupóstinn
og gagnasamskipti í einu tæki.
Qtek hefur fengið nafnið HTC
HTC 8500
Samlokusími sem keyrir á
Windows Mobile
Smartphone PC-stýrikerfinu.
Næfurþunnur samlokusími,
2,2 tommu 65 þús. lita skjár,
Quad-Band virkni og 1,3
megapixla myndavél.
HTC 8310
Hlaðinn aukabúnaði. Keyrir á Windows Mobile 5.0
stýrikerfinu sem opnar ýmsa möguleika í
gagnavinnslu, samstillingu við PC o.fl. Bluetooth-
tenging, WLAN og Quad-Band virkni.
HTC (TyTN)
Keyrir á Windows Mobile 5.0 Pocket
PC stýrikerfinu. 400 MHz örgjörvi,
útdraganlegt lyklaborð á hliðinni,
auðvelt að skrifa texta með íslenskum
stöfum. Quad-Band sími, WLAN og
Bluetooth-tenging, stuðningur við öll
helstu vinnuforritin frá Microsoft og
2,0 megapixla myndavél.
HTC 9100
Minnsti en um leið öflugasti lófatölvusíminn. Keyrir
á Windows Mobile 5.0 Pocket PC stýrikerfinu.
Útdraganlegt lyklaborð á hliðinni, auðvelt að skrifa
texta. Quad-Band sími, WLAN og Bluetooth-
tenging, stuðningur við öll helstu vinnuforritin frá
Microsoft og 1,3 megapixla myndavél.
Stærsti framleiðandi
á lófatölvusímum í
heiminum
· Windows Mobile 5,0 stýrikerfi
· Þú getur notað HTC til að tengjast Outlook, skoðað og sent tölvupóst
(Microsoft Pocket Outlook)
· Þú getur tengst MSN
· Þú getur vafrað um á netinu
· Microsoft Windows Media Player 10 – nýjasti spilarinn frá Microsoft
· Microsoft ActiveSync við Exchange Server
· Microsoft Pocket Office: Word, Excel og PowerPoint
· Þráðlaus nettenging Wi-Fi gerir þér kleift að tengjast hvar og
hvenær sem er (Hot-Spot)
HTC (MTeor)
HTC MTeor er fyrsti 3G
snjallsíminn sem keyrir á Windows
Mobile 5,0 stýrikerfinu.
Bluetooth-tenging, 3ja banda
virkni, háhraðagagnaflutningur,
GPRS/EDGE/UMTS stuðningur.
HTC lófatölvusímar fást hjá söluaðilum um land allt
P
IP
A
R
•
S
ÍA
Ármúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.is