Morgunblaðið - 30.12.2006, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
laugardagur
30. 12. 2006
FÖGNUM NÝJU ÁRI
Í VERÐLAUNALEIK VIKUNNAR EIGA SKARPSÝNIR KRAKKAR
AÐ FINNA ORÐ SEM TENGJAST ÁRAMÓTUM >> 2
Ætli pabbi horfi á sömu ský og ég? » 3
Vísindamaður Geir Andersen hefur mikinn áhuga á uppgötvunum og rannsóknum.
Einu sinni var strákur sem hét
Bjarni. Hann var 8 ára. Honum
var boðið í afmæli hjá Palla og
Lovísu. Á leiðinni í afmælið hitti
hann álf sem heitir Laddi. Og
hann gaf honum eina ósk. Hann
sagði: „Ég óska mér að allir séu
vinir.“ Þegar hann kom í afmæl-
ið sá hann að óskin hafði ræst því
allir voru vinir.
Guðjón Bjarki Hildarson
8 ára
Óskin
Gömul þjóðtrú segir frá því að ef menn komi sér vel
fyrir á krossgötum uppi á hæð þar sem sér til fjög-
urra kirkna á jólanótt geti dregið til tíðinda. Síðar
var trúað að nýársnótt væri mögnuð.
Trú manna var að álfarnir væru á ferðinni þessa
nótt. Þeir kæmu úr öllum áttum og vildu fá þann sem
sæti á krossgötunum til að færa sig. Ef maðurinn
sæti sem fastast bæru þeir honum ýmsar gersemar,
gull og fagurklæði. Maðurinn mætti ekkert þiggja
né tala við álfana. Þegar dagaði átti maðurinn að
standa upp og segja: „Guði sé lof, nú er dagur um
allt loft.“ Þá hyrfu allir álfarnir en skildu gersem-
arnar eftir. Ef maðurinn svaraði hins vegar og þæði
boð álfanna þá yrði hann vitstola.
Sagan segir að maður sem hét Fúsi hafi setið úti á
jólanótt og neitað öllu sem álfarnir buðu honum.
Hann stóðst síðan ekki mátið þegar álfkona kom og
bauð honum flot eins og haft er út á soðinn fisk. Þá
leit Fúsi upp og sagði: „Sjaldan hef ég flotinu neit-
að.“ Hann trylltist og var ekki mönnum sinnandi eft-
ir þetta. Þessi setning Fúsa er orðtæki.
Margir trúðu því að álfarnir flyttu á nýársnótt.
Húsmæður þrifu húsin einstaklega vel fyrir nýárið.
Sumar dustuðu motturnar og tautuðu fyrir munni
sér: „Komi þeir sem koma vilji, fari þeir sem fara
vilji, mér og mínum að meinaleysu.“ Fólk óttaðist
álfana en bar jafnframt mikla virðingu fyrir þeim.
Það trúði því að ef menn væru góðir við álfana væru
álfarnir góðir við mennina.
Álfasaga
Ef þig langar að
búa til sparibauk
þarftu:
plastflösku
pappír
skæri
liti
korktappa
Það sem gera
þarf:
klipptu út eyr-
un eins og
mynd A sýnir
og límdu á flöskuna.
rófan er búin til úr pappísrs-
strimli sem þú klippir út og lím-
ir á.
þú litar og límir síðan korktapp-
ana sem fætur.
Gangi þér vel!
Sparigrís
b rn
Íslensk menning 2006
Laugardagur 30. 12. 2006
81. árg.
lesbók
BRINGSMALASKALLI ZIDANES
Í AUGUM MARGRA VAR HÉR UM AÐ RÆÐA ÓHEYRILEGT ÓDÆÐI
SEM GERÐI FYRRI HETJUDÁÐIR ZIDANES AÐ ENGU » 16
Þetta ár var ár myspace ef eitthvað » 13
laugardagur 30.
12. 2006
íþróttir mbl.is
íþróttir
Íslendingalið í fallbaráttu á Englandi >> 4
Í BESTU DEILDINNI
DÓRA STEFÁNSDÓTTIR SAMDI AÐ NÝJU VIÐ MALMÖ FF OG
ER BJARTSÝN Á AÐ LIÐIÐ GETI VEITT UMEÅ KEPPNI >> 4
Morgunblaðið/Günther Schröder
Vistaskipti Ásgeir Örn Hallgrímsson t.v. er til athugunnar hjá nokkrum handknattleiksliðum í Þýskalandi og Danmörku um þessar mundir. Meðal þeirra
er Füsche Berlin sem virðist stefna rakleitt upp í efstu deild þýska handknattleiksins á næstu leiktíð. Allt stefni í að Ásgeir yfirgefi Lemgo í vor.
x
xxx Íslenska U19 ára landsliðið í
handknattleik leikur úrslitaleik
gegn Þjóðverjum á alþjóðlega
mótinu í Þýskalandi í kvöld.xxx
x
x
x
Strákarnir sigruðu Frakka,
22:21, í undanúrslitum mótsins í
gær. Ólafur Bjarki Ragnarsson
skoraði 10 mörk fyrir íslenska liðið
í leiknum.
Íslensku strákarnir tryggðu sér
sætið í undanúrslitunum með
tveimur góðum sigrum í fyrradag.
Þeir unnu þá Pólverja, 22:19, og
Svisslendinga, 26:20. Ólafur Bjarki
var líka markahæstur gegn Pól-
verjum með 10 mörk en þeir Anton
Rúnarsson og Ólafur Gústafsson
skoruðu mest gegn Svisslend-
ingum, 6 mörk.
Strákarnir töpuðu fyrsta leikn-
um í riðlakeppninni fyrir Þjóð-
verjum, 22:18.
Fyrirsögn
19pt hér
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Hér kemur texti. Hér kemur texti.
Fyrirsögn
19pt hér
Eftir Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
ÁSGEIR Örn Hallgrímsson er undir smásjá þýska
handknattleiksliðsins Füchse Berlin samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, en hann er laus undan
samningi við þýska 1. deildar liðið Lemgo um mitt
næsta ár. Füchse Berlin er langefst í norðurriðli 2.
deildar, hefur fullt hús stiga að loknum átján um-
ferðum og virðist stefna rakleitt upp í 1. deild. Af
þeim sökum eru forráðamenn liðsins farnir að huga
að því að styrkja liðið fyrir átökin í efstu deild á
næsta ári og er Ásgeir einn þeirra sem koma sterk-
lega til greina.
„Það getur alveg verið að Füchse Berlin sé inni í
myndinni,“ sagði Ásgeir í samtali við Morgunblaðið
í gær. „Nokkrar fyrirspurnir hafa borist en engin
formleg tilboð ennþá. Einhver félög hafa spurst
fyrir um mig og nú er ég að skoða hvað af því er
spennandi og hvað ekki,“ sagði Ásgeir ennfremur.
Ásgeir er nú að leika sitt annað keppnistímabil
með Lemgo og rennur samningur hans út í vor. Fé-
lagið hefur ekki boðið honum nýjan samning en fari
svo og verði boðið spennandi þá segir Ásgeir það
geta komið til greina að vera áfram hjá Lemgo.
Ekkert bendi þó til þess um þessar mundir.
„Ég hef sagt forráðamönnum Lemgo að ég sé
farinn að líta í kringum mig þar sem þeir hafa ekki
nefnt neitt framhald við mig eftir að núgildandi
samningur rennur út um mitt ár,“ segir Ásgeir sem
hefur leikið stórt hlutverk með Lemgo síðustu tvo
mánuði eftir að aðalhornamaður liðsins, Florian
Kehrmann, meiddist alvarlega.
Það eru ekki einungis þýsk lið sem hafa spurst
fyrir um Ásgeir samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. Dönsk úrvalsdeildarlið hafa einnig velt
Ásgeiri fyrir sér, m.a GOG.
„Ég á ekki von á að eitthvað gerist í mínum
samningamálum fyrr en eftir heimsmeistaramótið í
handknattleik í febrúar nema eitthvað mjög spenn-
andi tilboð berist fyrir þann tíma,“ sagði Ásgeir í
gær.
Berlin skoðar Ásgeir Örn
! "#$%"$$&
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 26/27
Staksteinar 8 Minningar 28/32
Veður 8 Kirkjustarf 33/34
Viðskipti 12 Menning 36/39
Erlent 13 Leikhús 38
Menning 14 Myndasögur 40
Akureyri 16 Dægradvöl 41
Árborg 16 Staður og stund 42
Suðurnes 17 Bíó 42/45
Landið 17 Víkverji 44
Daglegt líf 18/23 Velvakandi 44
Forystugrein 24 Ljósvakamiðlar 46
* * *
Innlent
Sjómannafélag Reykjavíkur og
Matsveinafélag Íslands sameinuðust
í gær í nýju stéttarfélagi, Sjómanna-
félagi Íslands. Í næstu viku verður
allsherjaratkvæðagreiðsla um úr-
sögn úr Sjómannasambandi Íslands
og þar með ASÍ. » Baksíða
Sala á íslenskum fiskmörkuðum
fór í 106.500 tonn á árinu sem er
nokkru meira en áætlanir gerðu ráð
fyrir. Heildarverðmætið var um 14,8
milljarðar króna. » 4
Olíuverslun Íslands átti lægsta
tilboðið í útboði á eldsneyti fyrir bif-
reiðar í eigu Reykjavíkurborgar.
Þetta er fyrsta útboðið á eldsneyti
hjá borginni í nokkur ár, eða frá því
olíusamráðsmálið kom upp. » 6
Erlent
Gerald Ford, 38. forseti Banda-
ríkjanna, náðaði Richard M. Nixon
1974 vegna náins sambands sem
ríkti á milli þeirra. » 13
Stjórnvöld í Ísrael hyggjast ekki
láta lausa palestínska fanga að þessu
sinni en það hafa þau ávallt gert á
síðari árum áður en múslímahátíðin
Eid Al-Adha hefst. Oftast hefur ver-
ið um tugi fanga að ræða en alls
munu nú um 9.000 Palestínumenn
sitja í fangelsum Ísraela. » 13
Viðskipti
Úrvalsvísitalan hækkaði um
15,83% á árinu 2006 en um síðustu
áramót stóð vísitalan í 5.534,39 stig-
um en nú er hún 6.410,48 stig.
Hæsta gildi sínu náði úrvalsvísitalan
í lok dags 15. febrúar, stóð þá í
6.925,45 stigum og hafði þá hækkað
um 25% frá áramótum.
Úrvalsvísitalan náði hins vegar sínu
lægsta gildi á árinu hinn 27. júlí,
5.258,54 stigum. » 12
BJÖRN Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, gaf í gær út
reglugerð um flutning ýmissa verk-
efna úr dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu í Reykjavík til sýslumanns-
embætta víða um landið.
Sýslumaðurinn í Vík mun annast
útgáfu Lögbirtingablaðsins og sjá
jafnframt um veitingu leyfa fyrir
rekstur útfararþjónustu. Sýslumað-
urinn á Sauðárkróki mun annast
framkvæmd laga um sjóði og stofn-
anir sem starfa samkvæmt sérstakri
skipulagsskrá. Sýslumaðurinn í
Stykkishólmi mun halda skrá um
kaupmála fyrir allt landið. Sýslu-
maðurinn í Búðardal mun annast
veitingu leyfa til ættleiðingar. Sýslu-
maðurinn á Hvolsvelli mun sjá um
veitingu happdrættisleyfa. Sýslu-
maðurinn í Hafnarfirði mun annast
löggildingu fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasala. Þá hefur verið ákveðið
að sýslumaðurinn á Hólmavík annist
löggildingu dómtúlka og skjalaþýð-
enda.
Sýslumannsembættin efld
Í fréttatilkynningu frá dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu kemur fram
að áður hafi ráðherra ákveðið að
Innheimtumiðstöð sekta- og sak-
arkostnaðar yrði hjá sýslumann-
inum á Blönduósi, málefni bóta-
nefndar yrðu hjá sýslumanninum í
Siglufirði og útgáfa vegabréfa hjá
sýslumanninum í Keflavík. Sýslu-
maðurinn í Kópavogi annast með-
ferð gjafsóknarmála.
„Um áramótin tekur gildi nýtt
skipulag lögreglunnar í landinu, þar
sem umdæmi munu stækka og eflast
en lögreglustjórum fækka. Með
þeim verkefnaflutningi sem nú hefur
verið ákveðinn, og heimild er fyrir í
nýsamþykktum lögum frá Alþingi,
er stefnt að því að efla starfsemi um-
ræddra sýslumannsembætta að
þessu leyti, á þessum tímamótum.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
hugar að flutningi fleiri verkefna til
sýslumannsembætta eftir því sem
tilefni gefast og lög heimila,“ segir
og í tilkynningunni.
Verkefni flutt úr ráðu-
neyti til sýslumanna
Dómsmálaráðherra hugar að flutningi fleiri verkefna
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, veitti í gær þremur aðilum
viðurkenningu Alþjóðahúss, „Vel að
verki staðið“, fyrir lofsverða frammi-
stöðu í málefnum innflytjenda á Ís-
landi. Þeir sem viðurkenninguna
hlutu voru Morgunblaðið, séra
Miyako Þórðarson og Anna Guðrún
Júlíusdóttir.
Viðurkenningin þjónar þeim til-
gangi að vekja athygli á jákvæðu
starfi sem unnið er hér á landi í mál-
efnum innflytjenda.
Vandaðar greinar
Í umsögn dómnefndar um Morg-
unblaðið segir að blaðið hafi lagt sig
fram um að skrifa vandaðar og upp-
byggilegar greinar um málefni inn-
flytjenda og endurspeglað með eins
raunsönnum hætti og kostur er sam-
setningu þjóðfélagsins. Til þess hafi
blaðið sett sér og haft að leiðarljósi
siðareglur um fjölmenningarlegt
samfélag. Reglurnar séu í meginat-
riðum þær að ekki sé greint frá kyn-
þætti, kynhneigð, þjóðerni, trú eða
því hvort meintir lögbrjótar með bú-
setu á Íslandi tilheyri ákveðnum
minnihlutahópum í þjóðfélaginu,
nema slíkar upplýsingar séu nauð-
synlegar fréttaflutningnum.
Í umsögn dómnefndar um séra
Miyako Þórðarson segir að hún hafi
unnið brautryðjendastarf í þágu
heyrnarlausra með stofnun safnaðar
heyrnarlausra innan Þjóðkirkjunn-
ar. Miyako sé eini presturinn sem
kunni íslenska táknmálið en hún
hlaut vígslu árið 1981 sem prestur
heyrnarlausra. Hún hafi einnig
byggt upp jákvæð samskipti milli
Japans og Íslands.
Miyako stofnaði söfnuð heyrnar-
lausra að eigin frumkvæði innan
Þjóðkirkjunnar og hefur hróður
hennar borist út fyrir landsteinana
og hún verið fyrirmynd annarra.
Segir í umsögninni að Alþjóðahús
vilji með þessari viðurkenningu
heiðra manneskju sem hafi unnið
óeigingjarnt starf og hjálpað fólki í
sárustu neyð í öðru landi en hennar
föðurlandi.
Gera vefsíðu um
heimaland sitt
Í umsögn dómnefndar Alþjóða-
húss um Önnu Guðrúnu Júlíusdótt-
ur, kennara við Breiðholtsskóla, seg-
ir að hún hljóti viðurkenninguna
fyrir uppsetningu og vinnu við Fjöl-
menningarvef barna, sem var settur
upp árið 2002. Síðan þá hafi Anna
Guðrún unnið að stöðugu viðhaldi og
endurbótum á vefsíðunni, ávallt í sín-
um frítíma.
Hugmyndin að Fjölmenningarvef
barna varð til haustið 2000 þegar
móttökudeildin í Breiðholtsskóla var
opnuð. Börn sem hafa flutt með for-
eldrum sínum til Íslands víða að úr
heiminum og hafa stundað nám í
móttökudeildinni í Breiðholtsskóla
taka þátt í því að búa til síðu um sitt
heimaland.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðurkenning Verðlaunahafar, Miyako Þórðarson, Anna Guðrún Júlíusdóttir og Ólafur Þ. Stephensen, aðstoð-
arritstjóri Morgunblaðsins, ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, en hann afhenti verðlaunin.
Verðlaunaðir fyrir
lofsverða frammistöðu
Störfuðu með jákvæðum hætti að málefnum innflytjenda
Í HNOTSKURN
»Morgunblaðið fær viður-kenningu fyrir vandaðan
og yfirvegaðan fréttaflutning
um málefni innflytjenda.
»Séra Miyako Þórðarsonfær viðurkenningu fyrir
óeigingjarnt starf í þágu fólks
í sárustu neyð í öðru landi en
hennar föðurlandi.
»Anna Guðrún fær viður-kenningu fyrir uppsetn-
ingu og vinnu við Fjölmenn-
ingarvef barna, sem var settur
upp árið 2002.