Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 36
|laugardagur|30. 12. 2006| mbl.is
staðurstund
Arnar Eggert Thoroddsen skrif-
ar minningargrein um hljóm-
sveitina Í svörtum fötum sem
leggur nú upp laupana. » 39
af listum
Jólasveinninn minn eftir Andr-
és Indriðason er ágæt lesning
með börnum sem eru upptekin
af tilvist sveinka. » 41
umsögn
Félagarnir í Baggalút áttu mest
seldu plötuna um jólin að þessu
sinni, Sálin og Gospel fylgja fast
á hæla þeirra. » 39
tónlistinn
Kvikmyndin Stranger than
Fiction, með Will Farrell, verður
frumsýnd hér á landi á nýárs-
dag. » 45
bíó
Sigurjón Björnsson fjallar um
bókina Undir hamrastáli. Upp-
vaxtarsaga og mannlífsmyndir
úr Arnarfirði. » 38
gagnrýni
Broadway
Á skemmtistaðnum Broadway við
Ármúla 9 verður stórdansleikur með
Sálinni hans Jóns míns. Fjölmargir
plötusnúðar hita upp og spila í hlið-
arsölum. Miðaverð er 2.500 krónur.
www.broadway.is
Café Oliver
Á Oliver við Laugaveginn verður
húsið opnað klukkan 00:45. Þar er
hægt að panta borð fyrir hópa en
síðast þegar fréttist voru flest borð í
húsinu pöntuð. Plötusnúðarnir Suzy
& Elvis munu halda uppi góðri
stemningu langt fram eftir nóttu.
Miðaverð er 2.500 krónur.
www.cafeoliver.is
við hurð ef ekki verður uppselt.
Miðaverð er 2.000 krónur og fylgir
glaðningur hverjum miða.
www.pravda.is
Prikið
Á hinum rótgróna skemmtistað
Prikinu við Bankastræti geta áhuga-
menn um hipp-hopp og rapptónlist
fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar
munu hinir upprunalegu Rottweiler
hundar halda uppi stuðinu, auk
góðra gesta, meðal annars Danna
Deluxe og Dóra DNA. Aðgangur er
ókeypis og húsið verður opnað
klukkan 1 eftir miðnætti.
www.prikid.is
Annað
Kiddi Bigfoot spilar á Sólon.
Á Hverfisbarnum heldur Flass
FM rautt partý.
Skeletor og Baktus halda uppi
stemningu á Barnum.
Þá ber að geta þess að lokað verð-
ur á Vegamótum, Dillon og á
Kaffibarnum.
NASA
Á NASA við Austurvöll verður nýja
árinu fagnað með því að hverfa aftur
til fortíðar. Þar munu plötusnúð-
arnir Curver og Kiki-Ow spila tón-
list frá tíunda áratugnum, eða 90’s
tónlist eins og hún kallast í daglegu
tali. Þau hafa staðið fyrir nokkrum
svona 90’s partíum á þessu ári sem
heppnast hafa vel. Miðaverð er 2.500
krónur í forsölu. www.nasa.is
Pravda
Á Pravda við Austurstræti verður
húsið opnað rétt eftir miðnætti. Þar
mun DJ Áki Pain sjá um tónlistina á
eftir hæðinni en Maggi Paranoya á
neðri. Miðar eru seldir í forsölu og
Komdu með í
gamlárspartí
Nóg verður um að vera í skemmtanalífi höf-
uðborgarinnar annað kvöld þegar nýja árið geng-
ur í garð. Fjölmargar skemmtanir hefjast strax
upp úr miðnætti og ættu flestir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Jóhann Bjarni Kolbeinsson
skoðaði það helsta sem verður á boðstólum.
Ljósmynd/Gúndi
Fjör Café Oliver er einn heitasti staðurinn í Reykjavík og þar verður nóg um að vera á gamlárskvöld.
Hipp-hopp Strákarnir í Rottweiler halda uppi stuðinu á Prikinu.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
fer í tónleikaferð til Evrópu dagana
11.–21. febrúar. Þrennir tónleikar
verða haldnir í Þýskalandi; í Köln 12.
febrúar, þá í Düsseldorf og
Braunschweig. Einir tónleikar verða
haldnir í Zagreb í Króatíu, en loka-
tónleikarnir verða í Vínarborg í
Austurríki 19. febrúar. Hljómsveit-
arstjóri í ferðinni verður aðal-
hljómsveitarstjórinn, Rumon
Gamba, en einleikari verður rúss-
neski píanósnillingurinn Lilya Zil-
berstein. Helga Hauksdóttir, tón-
leikastjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, segir að hljómsveitin
verði með tvær tónleikaefnisskrár.
„Lilya verður með tvo konserta
meðferðis, Grieg-konsertinn og Pag-
anini-tilbrigðin eftir Rakhmaninov.
Tvær sinfóníur verða með í för; nr. 2
eftir Sibelius og nr. 5 eftir Sjostako-
vits, og síðan verður upphafsverk
hverra tónleika ýmist Forleikurinn
að Galdra-Lofti eða Trílógía eftir
Jón Leifs, en í Zagreb spilum við
nýtt króatískt verk. Það er mikill
undirbúningur sem fylgir svona ferð
og hann er búinn að standa yfir í um
það bil ár.“
Það er umboðsskrifstofa í Þýska-
landi, Musica vivendi, sem skipu-
leggur ferðina að sögn Helgu, en
fyrirtækið skipulagði líka síðustu
tónleikaferð hljómsveitarinnar til
Þýskalands árið 2003. „Þeir gerðu
það mjög vel – allt stóðst og var í
mjög góðu lagi. Við þurfum bara að
koma sjálfum okkur og hljóðfær-
unum til Þýskalands. Þeir sjá um
allt annað,“ segir Helga.
Í ferðinni leikur hljómsveitin í
bestu tónleikahúsum á hverjum stað
og segir Helga það algjöra upplifun.
„Þá lyftist nú aldeilis brúnin á fólk-
inu okkar og maður þekkir þetta oft
ekki fyrir sömu hljómsveit. Það er
upplifun að spila þar sem hljóðfærin
hljóma og útkoman verður allt öðru-
vísi en við erum vön. Áheyrendur úti
sýna mikla hrifningu og í síðustu
Þýskalandsferð þurftum við alltaf að
spila að minnsta kosti tvö aukalög
eftir standandi fagnaðarlæti, og
jafnvel endurtaka þau.“
Þótt umboðsskrifstofan sjái um
skipulag ytra krefst ferðalagið gríð-
armikils undirbúnings hér heima að
sögn Helgu, ekki síst flutningur
hljóðfæranna. „Hann hefur þegar
staðið í rúmt ár. Við berum ábyrgð á
hljóðfærum gagnvart hljóðfæraleik-
urunum og erum búin að láta byggja
sérstaka kassa sem eiga að verja
þau eins og hægt er. Öll hljóðfæri
fyrir utan þau smæstu fara því ofan í
þar til gerða kassa og kistur. Það
fylgir líka heljarmikil skriffinnska í
sambandi við tollinn.“
Fleiri tónleikaferðir Sinfón-
íuhljómsveitarinnar eru ráðgerðar á
næstu misserum.
Sinfónían í Evrópureisu
Tónleikaferð „Það er upplifun að spila þar sem hljóðfærin hljóma og út-
koman verður allt öðru vísi en við erum vön,“ segir Helga Hauksdóttir.