Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt tæplega fimmtugan karl-
mann í eins mánaðar skilorðsbundið
fangelsi fyrir kynferðisbrot en hann
hafði í vörslum sínum tvær hreyfi-
myndir sem sýna börn á kynferðis-
legan og klámfenginn hátt. Myndirn-
ar fundust í tölvu mannsins á
viðgerðarverkstæði í júní sl. og lagði
lögreglan hald á tölvuna í kjölfarið.
Maðurinn játaði brot sitt skýlaust
og með hliðsjón af því að hann vill
leita úrræða til að vinna bug á hinum
óeðlilegu kenndum þótti rétt að skil-
orðsbinda refsinguna. Hann hefur
áður sætt refsingu fyrir samskonar
brot.
Héraðsdómarinn Guðmundur Jó-
hannesson kvað upp dóminn og flutti
Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari
málið af hálfu ákæruvaldsins.
Dæmdur
fyrir
barnaklám
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Bændasamtökum Íslands er með-
alverð síðustu 500 þúsund lítra
greiðslumarks í mjólk sem seldir
hafa verið 280 kr. pr. lítra. Það er
hækkun um 10 krónur á lítra frá
síðustu mánaðamótum, þegar verð-
ið losaði 270 kr.
Þetta kemur m.a. fram á vef
Landssambands kúabænda á slóð-
inni: www.naut.is.
Þar kemur einnig fram að verðið
fór lækkandi þegar líða tók á haust-
ið, en hefur hækkað aftur nú um
áramótin. Samkvæmt því sem þar
segir hefur framleiðsla mjólkur
gengið vel undanfarna mánuði og
er nú ríflega 116 milljónir lítra.
Sala mjólkurafurða hefur einnig
gengið vel.
Minnt er á að mjólkuriðnaðurinn
sé búinn að lofa greiðslum fyrir 119
milljónir lítra mjólkur. Tekið er
fram að fljótlega fari að skýrast lín-
ur um hvert greiðslumark mjólkur
á framleiðsluárinu 2007–2008
verði.
280 kr.
per lítra
♦♦♦
MAGNÚS Stefánsson félagsmála-
ráðherra undirritaði í gær þjón-
ustusamning við AE starfsend-
urhæfingu í félagsmálaráðuneytinu
sem felur í sér úttekt á þjónustu við
geðfatlaða, auk gerðar og miðlunar
fræðsluefnis. Að sögn ráðherra
mun samningurinn stuðla að því að
geðfatlaðir fái notið sín sem full-
gildir borgarar samfélagsins sam-
kvæmt stefnumótun og fram-
kvæmdaáætlun ráðuneytisins árin
2006–2010. Bendir hann á að eftir
því sem þekking ráðuneytisins sé
meiri á því hvernig notendur meti
þjónustuna sem veitt er, þeim mun
betri árangurs geti menn vænst.
Samkvæmt upplýsingum frá fé-
lagsmálaráðuneytinu sérhæfir AE
starfsendurhæfing sig í starfs- og
atvinnuendurhæfingu öryrkja,
einkum með áherslu á úrbætur fyr-
ir þá sem búa við geðröskun. Samn-
ingurinn tekur til áranna 2007 og
2008 og felur meðal annars í sér að
AE starfsendurhæfing tekur að sér
gerð fræðsluefnis um þjónustu við
geðfatlaða og miðlun á efninu til
starfsmanna svæðisskrifstofa um
málefni fatlaðra.
Á fyrri hluta samningstímans
verður lögð sérstök áhersla á fjög-
ur svæði úti á landi þar sem þjón-
usta við geðfatlaða er veitt á vegum
ráðuneytisins. Svæðin tengjast Ísa-
firði, Egilsstöðum, Húsavík og Ak-
ureyri. Fræðsluefnið verður byggt
á valdeflingu og notendarann-
sóknum sem og batarannsóknum,
jafnt erlendum sem innlendum. Í
úttekt sinni á þjónustu sem veitt er
geðfötluðum mun AE starfsend-
urhæfing nýta svokallaða Nsn-
aðferð, sem stendur fyrir „Notandi
spyr notanda“.
Meðal þess sem gert verður er að
safnað verður upplýsingum um að-
stöðu til endurhæfingar og stuðn-
ingsþjónustu, framboð á þjónustu,
framboð á tækifærum til mennt-
unar eða atvinnuþátttöku. Við út-
tektina mun einnig verða til
fræðsluefni sem nýtt verður á nám-
skeiðum fyrir starfsfólk og not-
endur. Notendur sem vinna við út-
tektina munu starfa í svonefndu
Hlutverkasetri undir handleiðslu
sérfræðinga á vegum AE starfs-
endurhæfingar.
Leið til að efla virkni ein-
staklinga með geðröskun
Hlutverkasetur er, eftir því sem
fram kemur í fréttatilkynningu
ráðuneytisins, vinnustaður fagfólks
og starfsfólks með reynslu af geð-
sjúkdómum sem vinnur að starfs-
endurhæfingu. Auk þess verða
stundaðar rannsóknir, framkvæmt
gæðaeftirlit á heilbrigðisþjónustu
og námskeiðahaldi sinnt auk
tengla- og ráðgjafarstarfa, haldnir
verða fyrirlestrar og boðið upp á
fræðslu fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Meginmarkmið Hlutverkaseturs
er að efla virkni fólks með geð-
röskun og skapa því tækifæri til
áframhaldandi starfa á almennum
vinnumarkaði með eftirfylgd. Þann-
ig eflist sjálfstæði þess og lífsgæðin
aukast en um leið er aukin verð-
mætasköpun í samfélaginu og kom-
ið í veg fyrir að þetta fólk verði var-
anlega á örorkubótum.
Eflir sjálfstæði geðfatlaðra
Samningur um út-
tekt á þjónustunni
Morgunblaðið/Ásdís
Undirritun Auður Axelsdóttir og Elín Ebba Ásmundsdóttir, fyrir hönd AE
starfsendurhæfingar, Magnús Stefánsson og Dagný Jónsdóttir.
KJÖRSTJÓRN VG
á höfuðborgarsvæð-
inu hefur nú gengið
frá tillögu sinni til
félagsfunda um
uppröðun í fimm
efstu sæti á lista til
alþingiskosninga í
Reykjavík norður,
Reykjavík suður og
Suðvesturkjör-
dæmi. Tillaga kjör-
stjórnar er á þessa leið:
Reykjavík norður:
Katrín Jakobsdóttir
Árni Þór Sigurðsson
Paul Nikolov
Steinunn Þóra Árnadóttir
Kristín Tómasdóttir
Reykjavík suður:
Kolbrún Halldórsdóttir
Álfheiður Ingadóttir
Auður Lilja Erlingsdóttir
Guðmundur Magnússon
Jóhann Björnsson
Suðvesturkjördæmi:
Ögmundur Jónasson
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Gestur Svavarsson
Mireya Samper
Andrea Ólafsdóttir
Tillaga VG um
framboðslista tilbúin
Ögmundur
Jónasson
Kolbrún
Halldórsdóttir
Katrín
Jakobsdóttir
PARKINSONSSAMTÖKIN hafa
fengið styrk að upphæð þrjár millj-
ónir króna úr Minningarsjóði Mar-
grétar Björgólfsdóttur.
Hjónin Þóra Hallgrímsson og
Björgólfur Guðmundsson tilkynntu
um styrkinn á jólafundi Parkin-
sonssamtakanna, sem haldinn var
2. desember síðastliðinn. Hjónin
stofnuðu minningarsjóð um Mar-
gréti dóttur sína í ársbyrjun 2005
og lögðu fram stofnfé að fjárhæð
500 milljónir króna. Markmið sjóðs-
ins er að stuðla að heilbrigðu líferni
og bættu mannlífi og að efla mennt-
un, menningu og íþróttir.
Styrkurinn mun gera Parkin-
sonssamtökunum kleift að stórauka
allt starf í þágu parkinsonssjúkra.
Vill stjórn samtakanna færa þeim
hjónum Þóru og Björgólfi bestu
þakkir fyrir þennan höfðinglega
styrk, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu.
Styrkveiting F.v.: Stofnendur minningarsjóðsins, Þóra Hallgrímsson og
Björgólfur Guðmundsson, ásamt sr. Jóni Bjarman og Hönnu Pálsdóttur frá
Parkinsonsamtökunum.
Parkinsonssamtökin fá
þriggja milljóna styrk
KOMIÐ hefur í ljós að ránið í 11–11
versluninni í Gilsbúð í Garðabæ á
þriðjudagskvöld var sviðsett með
þátttöku starfsmanns verslunarinn-
ar og þriggja félaga hans. Upp úr
krafsinu höfðust nokkrir tugir þús-
unda króna og voru piltarnir allir
handteknir í kjölfar atburðarins.
Þeir hafa játað sinn hlut í verknaðin-
um og telst málið upplýst hjá rann-
sóknardeild lögreglunnar í Hafnar-
firði. Málið er rannsakað sem
þjófnaður eða fjárdráttur en ekki
sem rán.
Tildrögin voru þannig að mennirn-
ir sammæltust um verknaðinn með
því að starfsmaðurinn lék fórnar-
lamb ræningjanna. Hann sagðist
hafa verið sleginn í andlitið af ræn-
ingjanum en að sögn lögreglu virðist
það nú hafa verið fyrirfram ákveðið.
Sviðsettu rán
til að stela
peningum
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt karlmann að nafni
Egidijus Narvadas í þriggja og
hálfs árs fangelsi fyrir smygltil-
raun á tæpum 4,5 kg af amfetamíni
til landsins í ágúst sl.
Fíkniefnunum hafði verið komið
fyrir afar vandlega í bíl sem mað-
urinn flutti inn með Norrænu til
Seyðisfjarðar. Í bílnum voru 26
pakkar með efnunum límdir á bak
við mælaborðið, ofan á gírkassa og
undir teppum í hólfum sem skorin
höfðu verið út í einangrun bílsins.
Tók það tollverði 3-4 tíma að kom-
ast að efnunum.
Maðurinn kvaðst aldrei hafa látið
bílinn í hendur annarra lengur en
2-3 tíma í senn. Hann geymdi bíl-
lyklana í íbúð sinni auk þess sem
bíllinn var með þjófavarnakerfi
sem hefði átt að gera viðvart ef átt
hefði verið við bílinn án hans vit-
undar.
Framburður fyrir dómi
þótti mjög ótrúverðugur
Sú skýring mannsins að einhver
hefði komið fyrir efnunum án hans
vitundar þótti dóminum afar ótrú-
verðug einkum þegar litið var til
þess að um mikið magn var að
ræða sem gengið var frá með mjög
vönduðum hætti og hefði tekið
langan tíma, eða um heilan dag að
mati deildarstjóra tollgæslunnar.
Dóminum þótti fjarstæðukennt að
að einhver ótilgreindur maður eða
menn hefði komið svo miklu magni
af efnum fyrir í bílnum án vitundar
mannsins upp á von og óvon um
viðbrögð mannsins eða afdrif efnis-
ins í vörslu hans.
Málið dæmdi Ingveldur Einars-
dóttir héraðsdómari. Verjandi var
Erlendur Þór Gunnarsson hdl. og
sækjandi Kolbrún Benediktsdóttir
saksóknari hjá ríkissaksóknara.
Þriggja og hálfs árs
fangelsi fyrir 4,5 kg
af amfetamíni
Kom fíkniefnunum fyrir í bíl sem flutt-
ur var til hingað til lands með Norrænu