Morgunblaðið - 30.12.2006, Side 14
14 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
FÁTT er meira viðeigandi fyr-
ir tónlistaráhugamenn og aðra
en að enda árið með góðum
tónleikum.
Í kvöld, laugardagskvöldið
30. desember, spila hljómsveit-
irnar Retron, Johnny Sexual,
raftríóið Donna Mess og rokk-
sveitin Gavin Portland í Stúd-
entakjallaranum.
12 Tónar gáfu út fyrstu
breiðskífu Gavin Portland í
nóvember síðastliðnum og ber hún nafnið Views
from Distant Towns.
Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 500
krónur inn.
Tónleikar
Fjögur bönd í Stúd-
entakjallaranum
Donna Mess
PILTARNIR Í svörtum fötum
halda sinn síðasta dansleik í
bili á Nasa við Austurvöll í
kvöld. Sárt verður að kveðja þá
drengi en að venju verður það
gert með pomp og prakt. Búast
má við allskonar uppákomum
og jafnvel góðum gestum til
þeirra upp á svið.
Betra er að mæta snemma
til að tryggja inngöngu, segir í
auglýsingu frá Nasa.
Dansað verður upp um alla veggi og búast má
við að Jónsi fari úr að ofan.
Húsið verður opnað kl. 23:00, aldurstakmark er
20 ár og miðaverð er 1500 kr.
Dansleikur
Í svörtum fötum
á Nasa í kvöld
Í svörtum
fötum
ÞANN 5. janúar næstkomandi
fagnar Leikfélag Kópavogs
því að 50 ár eru liðin frá stofn-
un þess. Af því tilefni verður
efnt til afmælisfagnaðar í fé-
lagsheimili Kópavogs, Fann-
borg 2, á afmælisdaginn.
Allir félagar, fyrr og nú, eru
velkomnir ásamt öðrum vel-
unnurum félagsins. Ýmislegt
skemmtilegt verður á boð-
stólum fyrir afmælisgesti,
margir félagar munu stíga á svið og skemmta með
söng og leik, atriði úr uppsetningum félagsins
verða sýnd ásamt mörgu fleiru. Dagskráin hefst
klukkan 20 og boðið verður upp á léttar veitingar.
Leiklist
Leikfélag Kópa-
vogs 50 ára
Frá Kópavogi
LISTASAFN
Reykjavíkur hef-
ur nú greint frá
fjölbreyttri dag-
skrá sem stendur
gestum safnsins
til boða á nýju
ári. Gjörn-
ingaklúbburinn
fagnar á næsta
ári 10 ára sam-
starfsafmæli sínu
og ætla liðskonur klúbbsins að
halda upp á tímamótin með stórri
yfirlitssýningu í Hafnarhúsinu.
Klúbbinn skipa nú þrír myndlist-
armenn, þær Eirún Sigurðardóttir,
Jóní Jónsdóttir og Sigrún Hrólfs-
dóttir. Á afmælissýningunni verða
sýnd ný verk í bland við eldri eftir
þremenningana.
Þá hefur göngu sína sýningarröð
ungra og efnilegra listamanna á
sama stað.
Kjarvalsstaðir
opnaðir á ný
Í febrúarbyrjun verða Kjarvals-
staðir opnaðir á ný eftir breytingar
með sýningu á verkum listamann-
anna Ólafs Elíassonar og Rúríar
auk bandarísku listakonunnar Pat
Steir.
Þá er að vænta viðamikilla yf-
irlitssýninga á verkum Roni Horn í
Hafnarhúsinu, þar sem lögð verður
áhersla á verk sem Horn hefur gert
á Íslandi, og Eggerts Péturssonar á
Kjarvalstöðum.
Franski listamaðurinn Pierre
Huyghe (1962) hefur vakið mikla
eftirtekt síðastliðin ár. Sýningin
Fagnaðargarðurinn (Celebration
Park) verður opnuð í lok febrúar og
er framhald af nýafstöðnum sýn-
ingum hans í Tate Modern og Mu-
sée d’Art moderne de la Ville í Par-
ís. Á sýningunni verða einnig ný
verk sem aldrei hafa verið sýnd áð-
ur, en hún er hluti af Frönskum
menningardögum og verður opnuð
á Vetrarhátíð. Verk eftir Kjarval,
Erró og Ásmund Sveinsson verða
einnig sýnd í nýju ljósi og með nýj-
um áherslum.
Hönnunarsýningin Kvika
Ein viðamesta sýning Listasafns
Reykjavíkur á árinu er hönn-
unarsýningin Kvika sem opnuð
verður á Kjarvalsstöðum um miðj-
an maí í samstarfi við Hönn-
unarvettvang, Listahátíð í Reykja-
vík og iðnaðarráðuneytið.
Sýningarstjóri er Guðrún Lilja
Gunnlaugsdóttir en megináhersla
verður lögð á sérstöðu íslenskrar
hönnunar í ljósi þess hönn-
unarlandslags sem skapast í litlu
samfélagi. Lögð verður áhersla á að
sýna það helsta sem er að gerast í
íslenskri hönnun í dag auk þess
sem dregin verða fram í dagsljósið
óvænt nýsköpunarverkefni.
Ókeypis á fimmtudögum
Sú breyting mun eiga sér stað á
Listasafni Reykjavíkur á nýju ári
að ókeypis verður á sýningar safns-
ins alla fimmtudaga, í stað mánu-
daga sem áður var.
Auk þess gildir aðgöngumiði í
eitt húsa Listasafnsins nú jafnt í öll
þrjú í þrjá daga í röð, það er í Ás-
mundarsafn, Kjarvalsstaði og Hafn-
arhúsið við Tryggvagötu.
Söfn | Listasafn Reykjavíkur kynnir fjölbreytta dagskrá nýs árs
Afmæli Gjörningaklúbbsins,
Pierre Huyghe og Pat Steir
Morgunblaðið/Þorkell
Gjörningaklúbburinn Fagnar tíu ára starfsafmæli á næsta ári með yfirlits-
sýningu í Hafnarhúsinu. Frá vinstri; Eyrún, Sigrún og Jóní.
Pierre Huyghe
RITHÖFUNDURINN George Wal-
ker hefur vakið athygli á óháðum
bókabúðum með því að krefjast
þess að bók hans
verði fjarlægð af
sölu á bresku
vefsíðu Amazon.
Walker, höf-
undur Tales
from an Airfield,
var ekki ánægð-
ur þegar hann
uppgötvaði að
þessi nýjasta bók
hans var til sölu
á Amazon án hans leyfis.
„Það sem Amazon er í raun og
veru að gera er að fá þá óháðu til
að gera markaðsrannsóknir fyrir
sig,“ segir Walker sem er heitur
stuðningsmaður óháðra bókabúða.
„Þegar bók fær ákveðna mikla at-
hygli út í búð og selst vel reyna
þeir að komast yfir öll upplögin og
þar með útiloka óháðar bókabúðir
frá bókinni, en það mun ekki ger-
ast með mínar bækur.“
Walker, sem gaf bók sína út
sjálfur, segist ekki óttast sölutapið
sem gæti hlotist vegna þessa uppá-
tækis. Hann hvetur lesendur til að
heimsækja óháðar bókabúðir og
að nota vefsíður eins og www.lo-
calbookshops.co.uk í staðinn fyrir
Amazon.
Vill ekki
selja bækur
á Amazon
Vekur athygli á
óháðum bókabúðum
Bækur Walker er
á móti risanum.
NÝJASTA myndin um þekktasta
njósnara hennar hátignar, James
Bond, er nú orðin sú tekjuhæsta af
öllum myndunum 21 sem um hann
fjalla. Myndin, Casino Royale, var
frumsýnd fyrr á árinu og hefur
hlotið afbragðsgóða dóma víðast
hvar. Þykir Daniel Craig standa sig
með eindæmum vel í hlutverki
Bond þrátt fyrir að leikaravalið
hafi verið mikið gagnrýnt á sínum
tíma.
Casino Royale hefur halað inn
tæpar 450 milljónir dollara frá því
að hún var frumsýnd nú í nóv-
ember. Skákaði hún þar með vel-
gengni Die Another Day frá árinu
2002, sem rakaði inn 430 milljónum
dollara.
Casino Royale er sýnd í 64 lönd-
um víða um heim.
Casino Royale
tekjuhæst
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
DREIFINGARFYRIRTÆKIÐ
Græna ljósið hyggst herða róðurinn
á nýju ári og ætlar að standa fyrir
allavega einni til tveimur frumsýn-
ingum á óháðum kvikmyndum í
mánuði frá og með 5. janúar næst-
komandi. Þá verður riðið á vaðið
með myndinni Little Miss Sunshine.
Samkomulag hefur náðst við
kvikmyndahús um svokallaðar
Gullnar reglur Græna ljóssins en
þær eru þrjár; ekkert hlé er gert á
sýningum mynda, magn auglýsinga
í upphafi myndar er minnkað og
miðasölu lýkur um leið og sýning
hefst, til að koma í veg fyrir truflun.
Í tilkynningu frá Græna ljósinu
segir meðal annars að markmið fyr-
irtækisins sé að auðga kvikmynda-
flóruna hérlendis og stuðla um leið
að umræðu um kvikmyndir og inni-
hald þeirra. Verður það meðal ann-
ars gert með því að koma á svoköll-
uðum spurt og svarað-sýningum þar
sem áhorfendum gefst tækifæri til
að spyrja leikstjóra eða aðra að-
standendur mynda spjörunum úr að
sýningu lokinni.
Auk þess verður lögð áhersla á
heimasíðu Græna ljóssins sem miðil
fyrir kvikmyndaáhugmenn til að
skiptast á skoðunum og fræðast um
kvikmyndir.
Kóngurinn, drottningin,
forsetinn og brúin
Græna ljósið hefur áður staðið
fyrir sýningu á myndum á borð við
March of the Penguins, Goodbye
Lenin, Super Size Me og City of
God hér á landi. Fjöldi áhugaverðra
mynda er svo væntanlegur til sýn-
inga á næstunni á vegum fyrirtæk-
isins.
The Bridge er heldur óvenjuleg
heimildarmynd en þar er fylgst með
fjölda fólkst úr leyni sem styttir sér
aldur með því að stökkva af Golden
Gate-brúnni í San Fransico. Auk
þess er rætt við aðstandendur og þá
sem hægt var að telja hughvarf á
síðustu stundu.
Ein umdeildasta mynd ársins er
án efa Death of a President þar sem
fjallað er um „morðið“ á George W.
Bush.
Last King of Scotland segir frá
harðstjóranum Idi Amin, sem leik-
inn er af Forest Whitaker, en hann
hefur fengið nær einróma lof gagn-
rýnenda um heim allan fyrir leik
sinn í myndinni.
Síðasta verkefni leikstjórans So-
fiu Coppola er Marie Antoinette.
Þar segir frá hinni goðsagn-
arkenndu drottningu Frakka, frá
hjónabandi hennar og Lúðvíks 16.
og valdatíð hennar frá 19 ára aldri
og fram að falli Versala. Það eru
þau Kirsten Dunst og Jason
Schwartzman sem fara með hlut-
verk hjónakornanna.
Kvikmyndir | Dreifingarfyrirtækið Græna ljósið herðir róðurinn
Óháðar kvikmyndir allan ársins hring … án hlés
Harðstjórinn Forest Whitaker þykir fara vel með hlutverk sitt sem Idi Am-
in í kvikmyndinni The Last King of Scotland, sem sýnd verður á næstunni.
♦♦♦