Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Sendum landsmönnum öllum hugheilar óskir
Þökkum farsæl og
SIGMUNDUR E. Ófeigsson, fram-
kvæmdastjóri Norðlenska, segir að
alltaf verði erfitt fyrir innlenda
kjötframleiðendur að keppa við þá
sem selja innflutt kjöt af ýmsum
ástæðum. „En við höfum hreinleik-
ann umfram aðrar þjóðir og það
vegur stöðugt þyngra. Mér skilst
að lönd sem hafa verið að opna sín
landamæri hvað þetta varðar séu
smám saman að missa landbún-
aðinn til landa þar sem er mun
ódýrara að framleiða landbúnaðar-
vörur. Þetta á til dæmis við um
Dani, sem hafa á síðustu misserum
og árum verið að horfa á eftir sín-
um landbúnaði hverfa úr landi,
fyrst og fremst til Póllands, þar
sem vegna lægra launastigs er
mun ódýrara að framleiða vörurnar
en í Danmörku. Ef stjórnvöld hér
fara einhverja svipaða leið – opna
landamæri og fella niður tolla –
gætum við verið að horfa upp á
eitthvað svipað gerast hér á landi.
Hættan er sú að þá myndi flæða
hingað kjöt frá Evrópu og þar með
yrði grundvellinum að stórum
hluta kippt undan landbúnaði og
þar með fyrirtækjum eins og Norð-
lenska,“ segir Sigmundur á vefsíðu
fyrirtækisins.
Hverfur
landbúnaður
úr landi?
MEGAS og Magga Stína semja tón-
list, m.a. fjölda sönglaga, við leik-
ritið Lífið – notkunarreglur eftir
Þorvald Þorsteinsson sem Leik-
félag Akureyrar frumsýnir í mars í
samstarfi við Nemendaleikhús leik-
listardeildar LHÍ. Megas hefur
aldrei áður samið tónlist við heila
leiksýningu og raunar aðeins einu
sinni samið tónlist við annan texta
en sinn eigin.
Leikritið, Lífið – notkunarreglur,
sem Þorvaldur Þorsteinsson skrifar
sérstaklega fyrir LA, verður frum-
sýnt 16. mars. Um er að ræða leik-
rit með söngvum en þar semja tón-
listarmennirnir sönglög við texta
Þorvaldar Þorsteinssonar.
Þetta er í fyrsta skiptið sem Meg-
as semur tónlist við heila leiksýn-
ingu. Hann segist kresinn á texta
sem hann vinnur með. „Á tónlist-
arferli mínum hef ég einungis unn-
ið með eigin texta að undanskildum
Passíusálmum Hallgríms Péturs-
sonar. Ég er hins vegar afar
spenntur fyrir verkefninu og textar
Þorvaldar kveiktu verulega í mér,“
segir Megas, Magnús Þór Jónsson.
Megas og Magga Stína, Margrét
Kristín Blöndal, hafa áður unnið
saman með góðum árangri en nú í
haust kom út hljómdiskur þar sem
Magga Stína túlkar lög Megasar.
Lífið – notkunarreglur er að
sögn Þorvaldar ævintýrið um okk-
ur öll – og fullt af hlýju og bullandi
húmor. Þetta er fyrsta leikritið sem
Þorvaldur skrifar fyrir LA, en áður
hafa verk hans verið sýnd við góðar
undirtektir í Þjóðleikhúsi, Borg-
arleikhúsi og víðar. Nokkur verka
hans hafa verið sýnd víða um heim.
Meðal rómaðra verka Þorvaldar
eru … and Björk of course, Blíð-
finnur og Skilaboðaskjóðan.
Kjartan Ragnarsson leikstýrir
uppsetningunni en hann er sem
kunnugt er einn reyndasti leikstjóri
landsins en hefur aldrei áður unnið
fyrir LA. Uppsetningin er sam-
starfsverkefni Leikfélags Akureyr-
ar og Nemendaleikhús leiklist-
ardeildar Listaháskólans. Leikarar
eru leikhópur LA og útskrift-
arárgangur Nemendaleikhússins.
„Það er okkur í leikhúsinu af-
skaplega mikil ánægja og heiður að
fá alla þessa merku listamenn og
reynslubolta til liðs við leikhúsið
við uppsetningu þessarar sýningar.
Okkur finnst sannarlega spennandi
að sjá hver útkoman verður úr
þessum kokkteil ungra og kraft-
mikilla leikara og reynslumikilla
listrænna stjórnenda,“ sagði Magn-
ús Geir Þórðarson, leikhússtjóri
LA, í samtali við Morgunblaðið.
Í kynningu á verkinu segir á
heimasíðu Leikfélags Akureyrar:
„Hvað var það nú aftur sem við átt-
um að gera við þetta blessaða líf?
Erum við kannski að misskilja þetta
allt saman? Eða er ástin ef til vill
svarið sem allt snýst um? Litríkur
hópur fólks stendur frammi fyrir
áleitnum spurningum um framtíð-
ina og eigin hlutverk í lífinu, spurn-
ingunum sem enginn virðist geta
svarað svo vel sé, enda fylgir
sjaldnast bæklingur með börnunum
sem fæðast í þennan heim. Hér er
fjallað um sundurleitan samtíma og
óvissa framtíð á svo mannlegum og
hrífandi nótum að allir verða ríkari
á eftir.“
Megas og Magga Stína semja
tónlist í nýtt leikrit Þorvaldar
Megas hefur aðeins einu sinni áður samið tónlist við annan texta en sinn eigin
Magnús Þór
Jónsson - Megas
Þorvaldur
Þorsteinsson
Margrét Kristín
Blöndal
Magnús Geir
Þórðarson
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | Örn Davíðsson, 16 ára
frjálsíþróttamaður, og Bergþóra
Kristín Ingvarsdóttir, 17 ára fim-
leikakona, voru kosin íþróttamaður
og íþróttakona Árborgar fyrir árið
2006. Niðurstaða kjörsins var
kynnt á árlegri uppskeruhátíð
íþrótta- og tómstundaráðs Árborg-
ar þar sem einnig voru kynntar
ýmsar styrkveitingar ráðsins.
Þetta er í fyrsta sinn sem karl og
kona eru valin í þessu kjöri.
Alls voru 16 íþróttamenn og
-konur tilnefnd til kjörsins og
fengu allir viðurkenningu frá
ráðinu fyrir góðan árangur og
hvatningu til að halda áfram sinni
íþróttaiðkun.
Vill ná árangri
Örn Davíðsson sagðist mjög
ánægður með það að hafa verið
kjörinn íþróttamaður Árborgar.
Hann fer um hverja helgi til Hafn-
arfjarðar þar sem hann æfir frjáls-
ar íþróttir undir leiðsögn Eggerts
Bogasonar þjálfara við góðar að-
stæður. „Svo er ég líka í handbol-
taakademíunni og æfi handbolta á
virkum dögum. Ég hef ekki alveg
ákveðið hvaða grein ég legg fyrir
mig, mér finnst handboltinn mjög
skemmtilegur og líka frjálsar
íþróttir,“ sagði Örn en aðalgreinar
hans eru kastgreinar, kúla, kringla
og spjótkast og svo hástökk.
„Markmiðið er að komast á Ólymp-
íuleika og ná árangri þar, hvort
sem það er í handbolta eða frjáls-
um,“ sagði Örn.
Mikil hvatning
„Ég er mjög ánægð með þessa
viðurkenningu og mér finnst mjög
gaman að fá hana. Þetta er mikil
hvatning fyrir mig og ég tek fullt
mark á henni og ætla að standa
mig vel á næsta ári,“ sagði Berg-
þóra Kristín Ingvarsdóttir, fim-
leikakona og íþróttakona Árborgar
2006. Hún hefur æft fimleika í 12
ár og segist ákveðin í að halda því
áfram. „Mér finnst gaman að æfa
fimleika, við erum með góða þjálf-
ara og æfum fjórum sinnum í viku,
tvo og hálfan tíma í senn, og þetta
er góður félagsskapur. Svo er gam-
an að takast á við ný, krefjandi
verkefni. Við erum aðallega í
trompfimleikum og erum 30 í hóp
en þegar við förum á mót er hópn-
um skipt upp í tvö lið. Markmiðið
hjá okkur í Selfossliðinu er að vera
í einu af þremur efstu sætunum á
Íslandsmótinu í fimleikum,“ sagði
Bergþóra Kristín.
Vilja ná árangri í íþróttum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Íþróttamenn Árborgar Örn Davíðsson frjálsíþróttamaður og Bergþóra
Kristín Ingvarsdóttir fimleikakona með verðlaunagripi sína.
Selfoss | „Ég fer að vinna
eftir áramótin og stefni
svo á nám í Listaháskóla
Íslands næsta haust,“
sagði Helga Mjöll Stef-
ánsdóttir sem hlaut við-
urkenningu skóla-
nefndar Fjölbrautaskóla
Suðurlands fyrir bestan
heildarárangur, við
brautskráningu frá skól-
anum 22. desember.
Alls brautskráðust 74 nemendur, þar af
43 stúdentar. Helga Mjöll hyggur á nám í
grafískri hönnun en hún hefur líka áhuga á
listsköpun. „Ég hef áhuga á slíku, að hanna
merki og fleira sem þessi grein býður upp
á. Jú, jú, ég hef mjög gaman af að teikna og
mála og sest stundum niður til að teikna og
mála myndir af ýmsu tagi,“ sagði Helga
Mjöll sem stundaði nám á listabraut með
viðbótarnám til stúdentsprófs.
Hollvinir skólans afhentu tveimur nem-
endum námsstyrk. Guðbjörg Arnardóttir
flutti ávarp 10 ára stúdenta og afhenti skól-
anum gjöf frá þeim. Sigurður Gísli Guð-
jónsson flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta
þar sem hann þakkaði skólanum fyrir hönd
nemenda.
„Ég hef mjög
gaman af að
teikna og mála“
Helga Mjöll
Stefánsdóttir