Morgunblaðið - 30.12.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 23
! "#$ %&&'( (( )))$ * $+,
-.+ (/%0' ! + % '
1 % '
Barnsmeðlag hækkar um 6%
frá og með 1. janúar 2007
Samkvæmt reglugerð um hækkun bóta
almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar
frá 14. desember 2006.
Meðlag með 1 barni er nú kr. 17.249,-
en verður kr. 18.284,-
ársins
Við erum þriðja kynslóðin semsnæðir af þessu stelli,“ seg-ir Margrét Jóhanna Jó-
hannsdóttir verslunarstjóri í Vill-
eroy & Boch og á við
forkunnarfagurt matarstell sem
prýðir áramótaborð fjölskyld-
unnar. Noritake stellið sem er sjö-
tíu ára gamalt og ófáanlegt í dag
er sérlega fallegt, upprunnið í Jap-
an. Foreldrar hennar, þau Guðrún
Jónsdóttir og Jóhann. J. Ólafsson
reka Heildverslun Jóhann Ólafsson
og co. þar sem stellið var selt og
fyrir tíu árum keyptu þau inn í
Noritake stellið úr dánarbúi. „Það
fólk hafði keypt stellið af okkur
sjötíu árum áður. Skilafresturinn
var því einn sá lengsti sem þekkist,
eða sextíu ár!“ segja þau og hlæja
dátt.
Stellið fallega er notað við hátíð-
leg tækifæri eins og gamlárskvöld
en þá kemur fjölskyldan saman,
borðar góðan mat og nýtur nær-
verunnar. Þá er á borðum foie gras
í forrétt, hreindýr í aðalrétt og
pavlova í eftirrétt. „Mamma ætti að
opna veitingastað, hún er þvílíkur
snilldarkokkur!“ segir Margrét Jó-
hanna.
Eftir matinn fyllist húsið svo af
gestum og frændfólki sem eyðir
áramótunum saman, sprengir
gamla árið í burt og fagnar því
nýja. Í morgunsárið á nýju ári seg-
ir móðir Margrétar Jóhönnu það
svo ómissandi að hlusta á fallega
tónlist á meðan þau hjónin ganga
frá eftir þessa síðustu veislu hvers
árs. Það sé bæði hátíðlegt og
skemmtilegt.
Fallegur borðbúnaður
Undirlagsdiskarnir eru
einnig Noritake og silf-
urhnífapörin keypti faðir
Margrétar Jóhönnu í
Bretlandi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glæsilegt Borðið rúmar allt að 12 manns og er sérlega glæsilegt. Fallega skreyttir undirlagsdiskarnir eru líka Nori-
take og setja fallegan svip á borðið. Silfurhnífapörin keypti faðir Margrétar Jóhönnu í Bretlandi en glösin í Belgíu.
Ófáanlegt Noritake stell
Hátíðlegt Kristals-
glösin fallegu eru
keypt í Belgíu og hafa
hvert sinn litinn.
Grímur Þær keypti móðir
Margrétar Jóhönnu í Washington
fyrir sjö árum og tilheyra nú ára-
mótafagnaðinum.