Morgunblaðið - 30.12.2006, Side 30
30 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Eygló Þor-steinsdóttir
fæddist í Reykjavík
30. mars 1951. Hún
varð bráðkvödd á
heimili sínu í Kefla-
vík hinn 25. desem-
ber síðastliðinn.
Foreldar Eyglóar
eru Guðfinna Sig-
urlilja Eyvinds-
dóttir, f. 3. des.
1921, og Þorsteinn
Kristján Þórðarson,
f. 18. mars 1917, d.
30. maí 1960. Seinni
maður Guðfinnu er Karl Jónsson,
f. 12. des. 1919, og gekk hann
Eygló í föðurstað. Systur Eyglóar
eru: Lilja, f. 7 júlí 1940, maki Gylfi
Sigurjónsson, Aðalheiður Laufey,
f. 6. des. 1941, maki Gunnar
Björnsson, og Elíza, f. 28. ágúst
1946.
Eygló kynntist eftirlifandi
eiginmanni sínum, Geir Newman,
á unglingsaldri og þau giftu sig á
gamlársdag 1975. Foreldrar hans
eru Raymond G. Newman, f. 4.
okt. 1921, d. 24. apríl 1981, og
Hulda Karlsdóttir, f. 10. mars
1927, d. 4. júlí 1962. Börn Eyglóar
og Geirs eru: 1) Hulda Guðfinna,
f. 21. júlí 1969, gift Bjarna Braga-
syni, f. 7. apríl 1970.
Börn þeirra eru
Bragi Geir, f. 16.
maí 2002, og Eygló
Eyja, f. 15. feb.
2005. 2) Elíza María,
f. 24. apríl 1975,
sambýlismaður
hennar er Martin
Maddaford, f. 15.
mars 1966. 3) Karl
Óttar, f. 27. desem-
ber 1976, sambýlis-
kona hans er Mar-
grét Seema Takyar,
f. 24. ágúst 1979.
Eygló ólst upp í Reykjavík og
Vestmannaeyjum. Hún starfaði
við skrifstofu- og bankastörf,
rekstur eigin bókaverslunar og
síðar rekstur umboðsskrifstofu
fyrir Sjóvá o.fl. fyrirtæki í Kefla-
vík. Eygló lagði stund á nám sam-
hliða vinnu sinni og útskrifaðist
sem stúdent frá FS 1993 og við-
skiptafræðingur frá Háskólanum
á Akureyri 2005. Hún stundaði
nám við Háskóla Íslands í vetur
og stefndi að því að ljúka kennslu-
réttindum sem framhaldsskóla-
kennari.
Útför Eyglóar verður gerð frá
Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11.
Mamma var ljósið í lífi allra í fjöl-
skyldunni. Að hún skyldi kveðja á
kvöldi ljósanna, sjálfu aðfangadags-
kvöldi, er sárara en orð fá lýst en um
leið er það tenging við ljósið fallega
og friðinn sem það veitir okkur. Nú
logar kertaljós við mynd hennar og
sefar sorgina sem lamar okkur öll.
Allar fallegu minningarnar hellast
yfir og þær eru ljúfsárar. Sárar af
því við erum ekki tilbúin til að
kveðja konu sem við elskum svo
heitt, ljúfar að því þær eru allar svo
fallegar og góðar.
Mamma var sterk kona og hún
var okkur systkinunum ómetanlegur
stuðningur á leið okkar um lífið.
Hún lagði okkur lífsreglurnar og
innleiddi okkur sjálfstæði, athafna-
semi, dugnað og kjark og það var
auðvelt að læra þær reglur þegar
fyrirmyndin var svo góð. Mamma
var aðeins 18 ára þegar hún átti mig
og hafði ekki tök á því að stunda
nám á þeim árum, en hugur hennar
stefndi alltaf til náms og hún lét ekk-
ert stöðva sig í því að ná takmarki
sínu. Þegar við systkinin vorum ung
fór hún til náms við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og lauk þaðan verslun-
arprófi. Síðar hélt hún náminu
áfram og varð stúdent frá sama
skóla árið 1993 og í framhaldinu
sótti hún nám, bæði í Endurmennt-
unardeild HÍ og við Háskólann á
Akureyri, þaðan sem hún lauk prófi
sem viðskiptafræðingur á síðasta ári
með miklu stolti. Í vetur fór hún í
frekara nám við Háskóla Íslands og
stefndi hugur hennar til kennslu í
framhaldinu.
Mamma var alltaf útivinnandi og
réttindi kvenna voru henni hugleik-
in. Þrátt fyrir miklar annir við vinnu
og heimilishald hafði hún alltaf tíma
fyrir okkur systkinin og hún fylgdi
okkur eftir í námi, hestamennsku,
tónlist, kvikmyndagerð og öllum
þeim fjölbreyttu verkefnum sem við
kusum að leggja fyrir okkur. Alltaf
vissi maður af henni á bak við sig,
hún var kletturinn okkar. Mamma
var vel gefin og eldklár og oftar en
ekki hringdi maður í hana þegar
reikna þurfti út einhverja hluti eða
skipuleggja fjármál og framkvæmd-
ir.
Mamma og pabbi urðu par ung að
árum og þau voru ótrúlega samstíga.
Í tugi ára hafa þau verið saman öll-
um stundum, unnið saman, verið
heima saman, ferðast um heiminn,
farið í veiðiferðir og sumarbústaðinn
og notið lífsins. Þau hafa líka staðið
saman af sér mikla storma og stór
áföll og nú stendur pabbi berskjald-
aður gegn stærsta áfalli lífs síns, að
sjá á eftir ævifélaga sínum allt of,
allt of snemma. Mömmu var hug-
leikið að halda fjölskyldunni saman
en hún var aldrei eigingjörn og hún
hvatti okkur öll til náms og starfa er-
lendis þrátt fyrir að hún hefði svo
gjarnan viljað hafa börnin sín alltaf
nálægt sér. Í dag erum við þakklát
fyrir að hafa öll verið á landinu þeg-
ar mamma kvaddi og við þökkum
fyrir að hafa verið með henni í gleði
þessa síðustu daga hennar hér á
jörðinni.
Þegar börnin mín fæddust gekk
mamma inn í ömmuhlutverkið af
miklum kærleik. Hún elskaði Braga
Geir og Eygló Eyju óendanlega mik-
ið og hún sýndi það svo sannarlega í
verki. Hún var svo stolt af þeim og
fylgdist grannt með þroska þeirra
og framförum. Hún hringdi á hverj-
um degi til að tala við þau, var alltaf
tilbúin til að passa og oftar en ekki
bauð hún prinsinum sínum óumbeð-
ið að vera hjá sér um helgar og þá
var öll athyglin á honum og þau nutu
samvistanna af heilum hug. Fallegar
skeljar úr fjöruferðum og listaverk
úr ýmsum efnum minna okkur nú á
þessar góðu stundir sem við munum
varðveita alla tíð. Það er sárt að
hugsa til þess að hún fái ekki meiri
tíma með börnunum sem hún elskaði
svo heitt og að þau muni ekki eiga
ömmu Eygló að í uppvextinum, en
við þökkum fyrir ástina sem hún gaf
þeim, áhugann, tímann og þolin-
mæðina og ekki síður ráðlegging-
arnar í uppeldinu og styrkinn sem
hún veitti ef eitthvað bjátaði á. Af
henni lærði ég að kærleikurinn og
þolinmæðin reynast best í barna-
uppeldi. Hún var okkur Bjarna stoð
og stytta í öllum málum, góður ráð-
gjafi og góður vinur.
Mamma var glæsileg kona og hún
geislaði af innri styrk og hlýju.
Margir eiga um sárt að binda við
fráfall hennar og hennar er innilega
saknað af fjölskyldu, foreldrum,
systrum, frændfólki og vinum. Við
getum aðeins beðið almættið um
styrk til handa okkur öllum og trúað
því að hún taki á móti okkur á ný
þegar þessari jarðvist lýkur.
Minningin um yndislega mann-
eskju lifir áfram og yljar okkur á
þessum svörtu sorgardögum. Megi
Guð veita pabba styrk til að takast á
við þetta hræðilega áfall og erfiða
tíma framundan, styrkja yngri
systkini mín í djúpri sorg eftir ljúfa
mömmu sína, hjálpa litlu ömmu-
börnunum að skilja af hverju amma
er farin og umvefja alla þá sem nú
syrgja af öllu hjarta.
Elsku mamma, hvíldu í friði, takk
fyrir að leiða okkur svona langt – ég
veit þú fylgir okkur alla tíð.
Þín elskandi dóttir,
Hulda.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Við þökkum ömmu fyrir alla ást-
ina sem hún gaf okkur og leiðsögn-
ina inn í lífið. Við munum alltaf eiga
ömmu Eygló í hjartanu og vitum að
hún vakir yfir okkur um ókomna tíð.
Við þökkum fyrir lesturinn og leik-
ina, fjöruferðir og bókasafnsheim-
sóknir, svamlið í lauginni, sam-
veruna við eldhúsborðið, kossa á
kinn og ljúfa stroku um enni. Megi
elsku, besta hjartans amma hvíla í
friði. Minningin og kærleikurinn lif-
ir.
Litlu ömmubörnin,
Bragi Geir og Eygló Eyja.
Látin er svilkona mín Eygló Þor-
steinsdóttir, langt um aldur fram.
Mér er bæði ljúft og skylt að minn-
ast hennar. Liðin eru 34 ár síðan ég
kynntist Eygló fyrst þegar ég kom í
fjölskyldu eiginmanns hennar. Hún
kom frá Vestmannaeyjum og var
hér hjá systur sinni sem bjó í Kefla-
vík, fór í gagnfræðaskólann hér í
Keflavík og þar kynntist hún lífs-
förunaut sínum, Jerry, og stóðu þau
þétt saman í 40 ár, hún fyrst og
fremst sem eiginkona, vinur og sam-
starfsfélagi manns síns til margra
ára.
Það er af svo mörgu að taka eftir
þetta langa viðkynningu við þessa
stórmerku konu, allt sem hún gerði
var vandlega íhugað, hún var góðum
gáfum gædd, góður námsmaður, góð
eiginkona og móðir en síðustu fjögur
ár var nýtt og skemmtilegt verkefni
hjá þeim hjónum, sem var að vera
amma og afi. Gleðilegt var að sjá
hvað hún var frábær amma, alltaf
tilbúin að passa og sjá hvað hún,
Bragi Geir og Eygló Eyja, barna-
börn hennar, náðu vel saman, hann
dýrkaði ömmu sína eins og börn
hennar gerðu einnig.
Jólin gengin í garð með allri sinni
dýrð, aðfangadagskvöld komið og
við fjölskyldan mætt á Faxabrautina
eins og öll jól sem ég man eftir, allt
eins og á að vera, allir glaðir og kát-
ir. Við skiptumst á jólakveðjum og
þakkað er fyrir gjafir og síðan er
haldið heim út í kalda jólanóttina.
En skjótt skipast veður í lofti, allt
gerðist svo hratt og við öll dofin sem
í leiðslu, við gátum ekki trúað þessu,
þetta var allt svo óraunverulegt,
maðurinn með ljáinn kominn á sjálfa
jólanóttina. Eftir sitja allir ættingjar
hennar og vinir sem syrgja hana
mjög. En við eigum svo góðar minn-
ingar um frábæra konu sem Eygló
var og reyndist öllum vel sem á
þurftu að halda. Hún var svo traust
og sterk kona sem var heima í öllu,
sama hvert umræðuefnið var.
Að endingu viljum við Jón þakka
fyrir allt sem Eygló gerði fyrir okk-
ur þegar við þurftum á að halda og
vonum að við getum veitt Jerry og
börnum þeirra þann stuðning sem
þau þurfa um ókomna framtíð.
Elsku Jerry, Hulda, Elíza, Kalli,
foreldrar, systur, tengdabörn og
barnabörn, við Jón vottum ykkur
dýpstu samúð okkar.
Þórunn Garðarsdóttir.
Ekki áttum við von á þeim frétt-
um að hún Eygló, yngsta systir
hennar mömmu, hefði orðið bráð-
kvödd á heimili sínu á jólanótt.
Okkur systurnar langar til að
minnast hennar með nokkrum orð-
um og þakka margar góðar stundir,
bæði hér í Eyjum og á hennar góða
heimili í Keflavík þar sem við vorum
alltaf velkomnar, hvenær sem var, í
helgarferðir, próflestur eða næturn-
ar fyrir utanlandsferðir. Það var
eins og sólarhringurinn væri lengri
hjá Eygló, þótt það væri nóg að gera
hjá henni í fullri vinnu, með fjöl-
skyldu og í námi við Háskólann, hún
átti alltaf tíma fyrir okkur og aðra í
fjölskyldunni. Fyrir þetta viljum við
þakka að leiðarlokum og segja að við
komum til með að sakna hennar
mikið.
Sif og Hlíf Gylfadætur.
Og skín ei ljúfast ævi þeirra yfir
sem ung á morgni lífsins staðar nemur.
og eilíflega, óháð því sem kemur
í æsku sinnar tignu fegurð lifir.
Sem sjálfur drottinn mildum lófa lyki
um lífsins perlu í gullnu augnabliki.
(Tómas Guðm.)
Elsku Eygló. Þakka þér fyrir að
vera hluti af lífi mínu, svo lengi sem
ég man. Þegar við vorum litlar var
ég litla dýrið sem skemmdi leikföng-
in þín, á meðan þú varst í skólanum.
Þú fékkst túkall fyrir að passa mig,
en fyrir túkallinn mátti fá átta
froska hjá Silla og Valda.
Þegar ég stækkaði elti ég þig á
handboltaæfingar og stalst til að
máta fötin þín, þegar þú varst ekki
heima. Þú varst fyrirmyndin mín í
einu og öllu. En þú varst líka hlý og
sterk og alltaf til staðar fyrir mig og
mína.
Þakka þér fyrir þolinmæðina og
kærleikann sem þú gafst mér og allt
sem þú kenndir mér um lífið og til-
veruna. Þakka þér fyrir að vera þú,
og ég á eftir að sakna þín mikið.
Í harmanna helgilundum
hugur minn unir sér.
Ég krýp þar á hverju kvöldi
í kyrrðinni og bið fyrir þér.
(Tómas Guðm.)
Megi guð og allar góðar vættir
vaka yfir þér og fjölskyldu þinni og
ástvinum öllum.
Kveðja frá Albert og strákunum.
Emilía.
Á einu andartaki, sjálfa jólanótt-
ina, breyttist gleðistund fjölskyld-
unnar á Faxabraut 51 í skelfingu og
sársauka. Svo stutt getur verið á
milli gleði og sorgar, lífs og dauða.
Þvílíkt högg fyrir fjölskyldu og vini
Eyglóar Þorsteinsdóttur, þessarar
sterku, greindu og hjartahlýju konu.
Þvílík sorg að missa hana svo óvænt,
hana sem var í blóma lífsins.
Leiðir okkar Eyglóar og eigin-
manns hennar, Geirs Newman, lágu
saman þegar sonur minn, Fróði
Finnsson og dóttir þeirra, Elíza
María kynntust. Þau voru á átjánda
ári og bæði á bólakafi í spennandi og
skapandi tónlist í hljómsveitum sín-
um. Þau urðu fljótlega kærustupar
og sálufélagar og þar sem foreldrar
Elízu bjuggu í Keflavík var hún oft
með annan fótinn á heimili okkar
Fróða í Reykjavík. Ég veit líka að
honum fannst mjög gott að heim-
sækja fjölskyldu hennar á Suður-
nesjum, enda var honum tekið þar
opnum örmum.
Síðar þegar Fróði greindist með
krabbamein sýndu Eygló og Geir
honum ómetanlega hlýju og stuðn-
ing og Eygló reyndist honum sem
besta móðir þá tíma sem hann dvaldi
á heimili þeirra hjóna. Elíza tók líka
veikindum Fróða af einstöku hug-
rekki og það var aðdáunarvert að
fylgjast með henni í gegnum veik-
indi hans. Hún var honum mikill
styrkur og gleðigjafi. Ég sé hana
enn fyrir mér þar sem hún kom
gangandi inn spítalaganginn með
fiðluna á öxlinni til að dvelja hjá
Fróða sínum á sjúkrahúsinu yfir
nóttina. Hún var þá gjarnan að
koma af vel heppnuðum tónleikum
þar sem hún og hennar vinsæla
hljómsveit hafði spilað. Allir vildu
þekkja Elízu eftir slíka tónleika og
skemmta sér með henni, en hún
valdi nærveru Fróða. Þetta sagði
sína sögu um hana og það atlæti sem
hún hafði hlotið í uppvexti sínum.
Þessi mynd gleymist aldrei.
Frá andláti Fróða árið 1994 hefur
samband mitt við Elízu og fjölskyldu
hennar aldrei rofnað og hefur sú vin-
átta verið mér ómetanleg. Ég þakka
Eygló fyrir samfylgdina, jafnt á erf-
iðum tímum og gleðistundum í lífi
okkar beggja.
Lífið heldur áfram og við lifum því
eins vel og við getum með minningu
um frábæra konu í hjörtum okkar.
Hafi Eygló þökk fyrir allt það sem
hún gerði fyrir Fróða minn og mig
sjálfa. Fjölskyldu hennar, þeim
Geir, Huldu, Bjarna, Elízu, Martin,
Karli, Margréti, barnabörnunum og
öðrum aðstandendum votta ég sam-
úð mína og vona að í þungri sorginni
megi góðar minningar um Eygló
vera þeim huggun.
Edda Þórarinsdóttir.
Í ferð okkar starfsmanna Sjóvá til
Barcelóna í haust voru þau Eygló og
Geir hress og ánægð í stórum hópi.
Eftir langvarandi og farsælt starf
hjá Sjóvá höfðu þau áunnið sér
traust og virðingu samstarfsmanna
sinna. Þessi samrýndu hjón höfðu
einnig byggt upp gott og einlægt
samband við hundruð viðskipta-
manna félagsins í Reykjanesbæ.
Geir tók við umboði Sjóvá í Kefla-
vík árið 1985 og enda þótt Eygló hafi
ekki formlega hafið störf hjá félag-
inu fyrr en árið 1990 þá var hún í
Sjóváliðinu frá fyrsta degi. Umboðið
blómstraði í höndum þeirra hjóna
enda áttu þau það sameiginlegt að
vilja gera hag félagsins á svæðinu
sem mestan. Geir hefur um árabil
verið eins konar sendiherra Sjóvá á
Suðurnesjum en Eygló sá um að all-
ir innviðir starfseminnar hjá Sjóvá
væru skilvirkir og góðir. Því hlut-
verki sinnti hún með stakri prýði.
Eyglóar er minnst af samstarfs-
mönnum sem kjarnorkukonu sem
lagði sig fram í starfi og átti góð
samskipti við sína samstarfsmenn.
Hún stóð við allt sem hún lofaði og
fylgdi málum einstaklega vel eftir.
Þau hjónin hafa um árabil verið
áhugasöm um öflugt félagslíf starfs-
mannafélagsins og skemmst er að
minnast þess þegar Eygló flutti
minni karla á þorrablóti Sjóvá fyrir
nokkrum árum og sló rækilega í
gegn. Þannig var hún bæði ákveðin
og fylgin sér og hins vegar hvetjandi
og skemmtileg í hópi samstarfs-
manna og vina.
Við biðjum góðan Guð að veita
Geir, börnum þeirra og fjölskyldu
allri styrk á þessum erfiðu tímum.
Minning um heilsteypta og merka
konu lifir.
Fyrir hönd samstarfsmanna hjá
Sjóvá,
Þór Sigfússon.
Við erum komnar hérna saman til
að kveðja kæra vinkonu, Eygló Þor-
steinsdóttur. Leiðir okkar lágu sam-
Eygló Þorsteinsdóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast
fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss
er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem
kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er
um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og
börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast
er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í
minningargreinunum.
Undirskrift | | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að
senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar-
greina vita.
Minningargreinar