Morgunblaðið - 30.12.2006, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 31
an í fjarnámi við Háskólann á Akur-
eyri, sem við stunduðum frá
Reykjanesbæ. Margar stundir átt-
um við í gamla góða skólahúsinu við
Skólaveg þar sem við eyddum öllum
lausum stundum í nám og verkefna-
vinnu um fjögurra ára skeið. Margt
var brallað í verkefnum og lagði
Eygló oft á tíðum lokahöndina á þau
þar sem hún var mjög orðheppin.
Hún var snör að semja inngang og
lokaorð og fljót að greina þá hluti
sem skiptu mestu máli. Fjarnáminu
fylgdu árvissar ferðir til Akureyrar
þar sem við áttum góðar stundir
saman. Í þessum ferðum var fleira
gert en að læra. Eldhúsið var í miklu
uppáhaldi hjá hópnum, Eygló okkar
snaraði þar fram sínum fræga kjúk-
lingarétti sem aldrei mátti sleppa og
nýtur hann mikilla vinsælda okkar á
meðal í dag. Ómissandi var að fara í
fríhöfnina, Hagkaup á Akureyri, fyr-
ir heimkomu.
Eftir að námi lauk héldum við
hópinn og varð hópurinn að fá eitt-
hvert nafn. Til marks um orðsnilld
Eyglóar fékk félagsskapurinn nafn-
ið „Gráu sellurnar“ sökum meðalald-
urs félaganna. Gekk hópurinn undir
því nafni æ síðan.
Eygló var dugleg að kalla hópinn
saman og hittumst við yfir kaffibolla
á kaffihúsum bæjarins. Við munum
halda minningu hennar á lofti með
því að halda áfram að hittast og efla
tengslin.
Kæru Geir, Hulda, Elísa, Karl og
fjölskyldur, missir ykkar er mikill.
Við biðjum Guð að blessa ykkur og
styrkja í sorg ykkar.
Berglind Kristinsdóttir,
Elísa Baldursdóttir,
Sigríður Hannesdóttir,
Sigríður Magnúsdóttir,
Sigrún Helga Sigurðardóttir.
Kveðja frá árganginum 1951
Eygló Þorsteinsdóttir er fallin frá.
Maðurinn með ljáinn hefur höggvið
enn eitt skarðið í hópinn okkar og
það án viðvörunar. Minningarnar
rifjast upp og þær eru ljúfar. Eygló
flutti til Vestmannaeyja þegar þau
þáttaskil urðu í lífi okkar að skrefin
voru stigin frá barnaskólanum upp í
gagnfræðaskólann í bókstaflegri
merkingu. Það þóttu mikil tíðindi,
nánast eins og að komast í tölu full-
orðinna, í það minnsta unglinga.
Þetta var á þeim árum þegar hugir
okkar voru helteknir af Bítlunum og
Rolling Stones, stuttum pilsum,
bleikum varalitum og síkkandi hári á
strákunum. Á sumrin var unnið við
að slíta humar, verka saltfisk eða
snyrta þorsk. Þá ríktu önnur viðmið
varðandi vinnu unglinga en nú.
Eygló féll fljótt inn í hópinn enda
með afbrigðum hress og svaraði fyr-
ir sig fullum hálsi. Hún gekk til liðs
við handboltalið Þórs meðan sumar
bekkjarsystra hennar léku með Tý.
Þarna á milli var mikill rígur og hörð
keppni en það kom ekki í veg fyrir
vináttu utan vallar. Sannur íþrótta-
andi sem Eygló átti sinn þátt í að
skapa með sinni skemmtilegu fram-
komu. Það var lítill hópur sem sat í
landsprófi veturinn 1966–1967 og
stóð eða réttara sagt sat þétt saman.
Þennan vetur fékk landsprófshópur-
inn að fara með fjórða bekk í leik-
húsferð þar sem við sáum meðal
annars rómaða sýningu á Fjalla-Ey-
vindi í Iðnó. Við tókum upp á því að
mæta í afmæli hvers annars sem
einnig treysti vináttuna. Veturinn
leið og leiðir skildu. Sumir héldu til
náms uppi á fastalandinu og áttu
ekki afturkvæmt, aðrir settust að í
Eyjum og búa þar enn. Eygló var
ein þeirra sem fljótlega fann þann
eina rétta og eignaðist börn og bú.
Hún átti þó eftir að leggja land undir
fót og bjó um skeið í Bandaríkjun-
um. Það verður stundum langt á
milli endurfunda hjá okkur enda ár-
gangurinn dreifður í það minnsta
um Evrópu. Því skemmtilegra er að
hittast en nú verður skarð fyrir
skildi. Hvern hefði órað fyrir því að
Eygló yrði sú næsta til að leggja yfir
móðuna miklu. Því fær enginn
breytt og ekki um annað að ræða en
þakka fyrir samveruna og góðar
minningar. Fyrrum skólasystkini
Eyglóar frá Vestmannaeyjum senda
fjölskyldu hennar innilegar samúð-
arkveðjur.
✝
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SNÆBORGAR JÓHÖNNU STEFÁNSDÓTTUR,
Eiðsvallagötu 36,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Bakkahlíðar
og Skógarhlíðar fyrir einstaka hlýju og góða
umönnun.
Með ósk um farsæld á nýju ári.
Bragi Stefánsson,
Helga Sigurlaug Aðalgeirsdóttir, Guðmundur H. Svavarsson,
Allý Halla Aðalgeirsdóttir, Hilmar Brynjólfsson,
Ingibjörg Bragadóttir,
Stefanía Bragadóttir, Gunnar Örn Guðmundsson,
Vala Bragadóttir, Hallur Eyfjörð Þórðarson,
ömmubörn og langömmubarn.
✝
Móðir mín, amma og langamma,
KRISTJANA RAGNHEIÐUR ÁGÚSTSDÓTTIR
frá Búðardal,
sem andaðist á Landspítala-háskólasjúkrahúsi
laugardaginn 23. desember, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju þriðjudaginn 2. janúar kl. 13.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elísabet Magnúsdóttir, Íris Hrund Grettisdóttir,
Magnús Þór Guðmundsson.
✝
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem tóku þátt í
sorg okkar og sýndu með margvíslegum hætti
samúð og hlýhug vegna andláts ástkærs eigin-
manns míns og vinar, föður okkar, tengdaföður og
afa,
GUÐLAUGS BENEDIKTS ARNALDSSONAR.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólksins á deild 11E á
Landspítalanum, líknardeild Landspítalans í
Kópavogi og heimaþjónustu Karítasar. Einnig til
Oddfellow bræðra og að ógleymdum okkar traustu
vinum.
Sá sómi sem hinum látna var sýndur gleymist
aldrei. Guð blessi ykkur öll.
Karlotta Kristjánsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
✝
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir,
dóttir og amma,
EYGLÓ ÞORSTEINSDÓTTIR,
Faxabraut 51,
Keflavík,
sem varð bráðkvödd á heimili sínu á jólanótt verður
jarðsungin frá Keflavíkurkirkju í dag, laugardaginn
30. desember, kl. 11.00.
Jarðsett verður í Kirkjuvogskirkjugarði í Höfnum.
Geir Newman,
Hulda G. Geirsdóttir, Bjarni Bragason,
Elíza M. Geirsd. Newman, Martin Maddaford,
Karl Ó. Geirss. Newman, Margrét Seema Takyar,
Guðfinna Eyvindsdóttir, Karl Jónsson,
Bragi Geir, Eygló Eyja,
systur hinnar látnu og aðrir aðstandendur.
✝
Bróðir minn,
GUNNAR ÞORVARÐARSON
frá Bakka,
Kjalarnesi,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi fimmtudaginn 28. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bjarni Þorvarðarson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
TÖLU KLEMENZDÓTTUR,
Hjallatúni,
Vík í Mýrdal,
áður Suðurhólum 26,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjallatúns fyrir hlýju og góða umönnun.
Guðmundur M. Loftsson, Gréta María Dagbjartsdóttir,
Indriði Loftsson,
Gunnar H. Loftsson,
Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir, Gunnar Hilmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri og góði faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐMUNDUR JÓHANNSSON
húsasmíðameistari,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 3. janúar kl. 13.00.
Margrét Guðmundsdóttir, Friðrik Ágúst Helgason,
Jóhann Bogi Guðmundsson,
Gerður Guðmundsdóttir, Þór Whitehead,
Dröfn Guðmundsdóttir, Sigurður Skúlason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝ Kristín Guð-mundsdóttir
fæddist á Patreks-
firði 23. ágúst 1932.
Hún lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Ísafirði 25. desem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Guðmundur
Kristinn Krist-
jánsson, f. í Bjarna-
reyjum á Breiða-
firði 20. júlí 1900, d.
22. ágúst 1959, og
Ingveldur Gísla-
dóttir, f. í Rauðseyjum á Breiða-
firði 4. apríl 1904, d. 21. febrúar
2005. Systkini hennar eru: Gísli
Briem, f. 1925; Kristján, f. 1927,
d. 1974; Gyða, f. 1928, d. 2002;
Höskuldur, f. 1929; Erlingur, f.
1931; Ólína, f. 1936; Ragna, f.
1938; Jón Sigurður, f. 1940;
Hrafnhildur, f. 1946. Samfeðra er
Magnús Benedikt Guðni, f. 1920,
d. 2005.
Kristín giftist Önundi Hafsteini
Pálssyni vélstjóra frá Flateyri, f.
31. ágúst 1925, d. 7.
apríl 1987. Synir
þeirra eru: 1) Páll
Sigurður, f. 7. sept-
ember 1952. Hann á
fjögur börn og tvö
barnabörn. 2) Úlfar,
f. 20. nóvember
1955. Hann á tvö
börn og eitt barna-
barn. 3) Barði,
kvæntur Elvu Jó-
hönnu Jóhanns-
dóttur, f. 20. desem-
ber 1965. Þau eiga
þrjú börn.
Kristín ólst upp á Patreksfirði.
Hún var nokkur sumur í sveit í
Breiðafjarðareyjum. Hún kom
ung til Flateyrar í vist hjá Maríu
Jóhannsdóttur póstmeistara. Með
húsmóðurstörfum stundaði hún
ýmis verkakonustörf, síðast á
Öldrunarstofnun Flateyrar og í
Esso-skálanum þar til hún lét af
störfum.
Útför Kristínar verður gerð frá
Flateyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
Föðursystir mín hún Kristín lést á
jóladag og langar mig að minnast
hennar með nokkrum orðum.
Stínu var gott heim að sækja og fór
enginn svangur frá hennar húsi á Flat-
eyri og fékk ég oft að njóta gestrisni
hennar í mat, er ég sem ungur maður
kom í heimsókn á hringferð um landið
með olíuskipi. Og skipti ekki máli
hvaða dagur var, alltaf sló Stína upp
matarveislu svo mikilli að jól hefðu
getað kallast og borðaði maður svo
mikið að maður stóð á blístri á eftir.
Var maður þá sendur fram í stofu til að
leggja sig í sófann, svona pakksaddur,
með þeim orðum að þegar eftirrétt-
urinn væri tilbúinn yrði kallað á mann í
seinni hálfleik í matarveislu Stínu.
Þetta er ljóslifandi minning í huga
mínum sem ég mun varðveita. Auk
þess deildum við Stína sama afmælis-
degi og þegar þannig háttar til þá
gleymir maður ekki góðu fólki svo
glatt. Á mannfundum og ættarmótum
var gott að vera nálægt Stínu því þar
var langskemmtilegast og alltaf fjör
mikið. Stína gaf sig líka að félagsmál-
um og starfaði mikið fyrir Slysavarna-
félagið svo eitthvað sé nefnt. Hitti ég
Stínu síðast á liðnu sumri á svona líka
skemmtilegu ættarmóti þar sem hún
virtist vera hress og leika við hvern
sinn fingur.
Það er því með söknuði að ég skrifa
þessar línur, vitandi það að þessi glað-
væra og félagslynda kona er lögð af
stað í sína síðustu ferð. Kristínar verð-
ur sárt saknað af sínum nánustu sem
vildu gjarnan fá að njóta samvista við
hana lengur.
Páli, Úlfari, Barða og fjölskyldum
sendi ég mínar hugheilustu samúðar-
kveðjur.
Valur Höskuldsson.
Hún Stína amma, eins og hún var
alltaf kölluð á okkar heimili, hefur nú
kvatt þetta jarðlíf og er komin á betri
stað. Okkur langar með þessum orðum
að minnast þessarar yndislegu konu
sem alltaf á fastan stað í hjarta okkar.
Hún amma var alltaf svo hlý og góð og
boðin og búin að hjálpa öllum þeim
sem þurftu á að halda. Það eru ófáar
minningar sem hann Önni á frá
bernskuárunum þar sem hann nánast
bjó hjá ömmu og afa á Eyrarveginum.
Sigrún kynntist Sínu þegar hún flutti
til Flateyrar árið 2001. Þá var Önni á
sjó, og þar sem Sigrún þekkti fáa á
staðnum dvaldi hún langtímunum
saman í kaffi hjá Stínu ömmu og
kynntist menningu Flateyrar í gegn-
um tíðina með sögunum hennar. Hún
hafði alltaf frá einhverju skemmtilegu
að segja og var oft glatt að hjalla á
Hjallaveginum. Við minnumst hennar
með söknuð í hjarta og þökkum þann
tíma sem lífið gaf okkur saman.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Önundur Hafsteinn
og Sigrún Svanhvít.
Kristín
Guðmundsdóttir