Morgunblaðið - 30.12.2006, Side 38

Morgunblaðið - 30.12.2006, Side 38
38 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ GESTIR þáttarins Orð skulu standa í dag eru Ásta K. Ragnarsdóttir námsráðgjafi og Pétur Gunnarsson blaðamaður. Þau ásamt liðstjór- unum Hlín Agnarsdóttur og Davíð Þór Jónssyni fást við þennan fyrri- part, með áramótakveðju til hlust- enda: Með von um frelsi og friðarsól við fögnum nýju ári. Vegna hátíðanna verða botnar við þennan og síðasta fyrripart birtir saman að viku liðinni. Botnlaus tilkynning Orð skulu standa Hlustendur geta sent botna sína á netfangið ord@ruv.is eða bréfleið- is til Orð skulu standa, Ríkis- útvarpinu, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík. SIGURJÓN Einarsson, um langan aldur prestur á Kirkjubæjarklaustri, er Arnfirðingur að ætt og uppvexti. Flestum uppvaxtarárum sínum eyddi hann á Fífustöðum í Fífu- staðadal. Sá dalur er einn Ketildal- anna á suðurströnd Arnarfjarðar. Í Ketildölum var mikil byggð fram undir miðbik síðustu aldar og merki- legt og að mörgu leyti sérstætt mannlíf. Um það bil helmingur þessarar vænu bókar gerist á bernsku- og æskustöðvunum vestra. Þar er frá mörgu sagt. Vitaskuld fáum við að fylgjast með drengnum, heimili hans, foreldrum og nánasta skyldu- liði, en það er ekki nema lítill hluti frásagnarinnar. Brugðið er upp lif- andi og snjöllum mannlífsmyndum og persónulýsingum, sagt er frá ætt- artengslum, ættir eru raktar, greint er frá atvinnuháttum til sjós og lands, húsakosti og mörgu fleiru. Frásögnin er því breið, spannar stórt svið og er skýr og greinargóð. Maður verður vissulega miklu fróð- ari um Vestfirðinga og vestfirskar aðstæður á fyrri hluta síðustu aldar og raunar lengra aftur í tímann. Síðan kemur að því að höfundur byrjar skólanám sitt. Hann sest í Menntaskólann á Akureyri og lýkur þaðan stúdentsprófi. Frá þeim tíma er frásögnin sömuleiðis breið og lit- rík. Sagt er frá kennurum, skóla- meisturum (Sigurður Guðmundsson og Þórarinn Björnsson), vinum og félögum, félagsmálum og pólitískum afskiptum, því að nafni minn var snemma pólitískur. Framan af var hann framsóknarmaður en færðist smátt og smátt lengra til vinstri. Öll sumur vann hann fyrir námi sínu, einkum á togurum, en einnig við sjó í heimabyggð sinni. Þar er líka frá ýmsu að segja. Að loknu stúdentsprófi kenndi hann einn vetur, en hóf síðan guð- fræðinám í Háskóla Íslands. Þar segir sitthvað af kennurum guð- fræðideildar, félögum og starfi og hugðarefnum utan náms. Ekki löngu eftir námslok í guð- fræði var hann valinn til að vera einn af þremur fararstjórum á heimsmót Alþjóðasambands æskunnar, sem haldið var í Moskvu. Hlutverk hans var þar meðal annars að sjá um fjár- málin. Þá var það sem Morgunblaðið sæmdi hann titlinum ,,rúbluprestur“ sem hefur víst fylgt honum lengst af. Sagan af tilefni til þeirrar nafngiftar er sögð hér og er býsna skondin. Ævisögunni lýkur þegar Sigurjón Einarsson er orðinn cand. theol., kvæntur maður og farinn að huga að framhaldsnámi. Hann er enn ekki vígður. Hið eiginlega ævistarf hans er framundan. Eins og nærri má geta er margt sagt og víða komið við sögu á þétt- prentuðum 400 blaðsíðum. Bókin er afar efnismikil, því að lítið eða ekk- ert er um óþarfar málalengingar. Höfundur er hinn prýðilegasti stíl- isti. Hann ritar hreint og fallegt mál, lipran og hlýjan stíl og segir afar skemmtilega frá. Jafnvel ættfræðin, sem sumum finnst stundum hörð undir tönn, verður skemmtileg í frá- sögn þessa góða sögumanns. Lík- lega nýtur nafni minn þess að hann ólst upp með góðu sagnafólki sem hafði yndi af frásögnum. Þessi bók er því tvímælalaust með allra bestu sjálfsævisögum sem ég hef lengi les- ið. Gildir það bæði um efni og frá- sagnarhátt. Vel er frá henni gengið að öllu leyti. Til að mynda eru skrár í bók- arlok í góðu lagi (tilvísanaskrá, myndaskrá og nafnaskrá). Úr Ketildölum að Klaustri BÆKUR Sjálfsævisaga Eftir Sigurjón Einarsson, Mál og menning 2006, 407 bls. Undir hamrastáli. Uppvaxtarsaga og mannlífsmyndir úr Arnarfirði Sigurjón Björnsson Bandaríski hnefaleikarinn MikeTyson var handtekinn í Scott- sdale í Arizona í fyrrinótt grunaður um ölvun við akstur og fyrir að vera með kókaín í fórum sínum. Tyson yfirgaf næturklúbb um klukkan 1.45 að þarlendum tíma um nóttina og var handtekinn þegar hann ók á lögreglubíl utan við klúbb- inn. Að sögn lögreglu var Tyson greinilega undir áhrifum áfengis. Leitað var á honum og í bíl hans og þar fannst kókaín. Tyson var einn í bílnum þegar þetta gerðist. Hann dvaldi í fanga- klefa í nótt og verður væntanlega leiddur fyrir dómara í dag. Fólk folk@mbl.is Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali Fréttir í tölvupósti ÓFAGRA VERÖLD Fim 4/1 kl. 20 2. sýning Gul kort Fös 12/1 kl. 20 3. sýning Rauð kort Sun 21/1 kl. 20 4.sýning Græn kort Fös 26/1 kl. 20 5.sýning Blá kort Í kvöld kl. 20 Fös 5/1 kl. 20 Lau 13/1 kl. 20 Fös 19/1 kl. 20 SAN FRANCISCO BALLETTINN Samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík og Borgarleikhússins. Mið 16/5 kl. 20 UPPS. Fim 17/5 kl. 20 Fös 18/5 kl. 20 Lau 19/5 kl. 14 Lau 19/5 kl. 20 Sun 20/5 kl. 14 Sun 20/5 kl. 20 Miðaverð 4.800 Sun 7/1 kl. 20 AUKAS. Sun 14/1 kl.20 AUKAS. Lau 20/1 kl. 20 AUKAS. Lau 27/1 kl. 20 AUKAS. Síðustu sýningar DAGUR VONAR Mið 10/1 kl. 20 Fors. Miðaverð 1.000 Fim 11/1 Afmælissýning UPPS. Fös 12/1 kl. 20 Fim 18/1 kl. 20 Sun 21/1 kl. 20 Fös 26/1 kl. 20 Sun 7/1 kl. 20 Sun 14/1 kl. 20 Lau 20/1 kl. 20 Síðustu sýningar Lau 6/1 kl. 20 Fim 11/1 kl. 20 Fim 18/1 kl. 20 Lau 27/1 kl. 20 Síðustu sýningar RONJA RÆNINGJADÓTTIR Í dag kl. 14 UPPS. Sun 7/1 kl. 14 Sun 14/1 kl. 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Lau 6/1 kl.20 Lau 13/1 kl. 20 Fös 19/1 kl. 20 Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00. SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt. Kúlan Smíðaverkstæðið kl. 20:00 PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker. Lau. 6/1 nokkur sæti laus, fös. 12/1 kl. 16:30 nokkur sæti laus, lau. 13/1 örfá sæti laus, lau. 20/1. Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis. Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is. STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1, lau. 27/1. SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson. Í dag lau. 30/12 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, lau. 6/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus. BAKKYNJUR eftir Evrípídes 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1. Stóra sviðið kl. 20:00                                      ! "                  !    "  ! # $ %       &'#    ( ) !  ###     $    "!( *++ $,-- .#   # +/#-- ! )00" 1 '  !  ! /#   # ,-#-- !     & # ,#--- 1 2 ( ,  + 3 4   # 5#  # # ,- 1   6     %   &  % 37889: 398&"2 1 ;'9<= #"   12  4 >>>#  '   ( &  % )    &  % 389 "?2:289 ;9@A0 BC9&:A8 ";98D E 1 ,*      *-F     !  *+ +     &  ,-.  / 0 1     2 Gleðilega hátíð! LA óskar landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar. Karíus og Baktus – sýnt í Rýminu Lau 30. des kl. 14 örfá sæti laus. Síðasta sýning! Svartur köttur – forsala hafin Fös 19. jan kl. 19 Forsýn – UPPSELT Lau 20. jan kl. 19 Frumsýn – UPPSELT Næstu sýningar: 21/1, 25/1, 26/1, 27/1. Sala hafin! www.leikfelag.is 4 600 200 Hátíðarhljómar við áramót Flytjendur: Kristinn Sigmundsson óperusöngvari Ásgeir H. Steingrímsson trompet Eiríkur Örn Pálsson trompet Hörður Áskelsson orgel Á efnisskránni eru ma: bassaaríur úr Messíasi og Jólaóratóríunni auk verka eftir Albinoni, Scarlatti o.fl. Miðasala í Hallgrímskirkju - sími 510 1000 Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju 3.-31. des. 2006 Listvinafélag Hallgrímskirkju - 25. starfsár 31. desember 2006, gamlárskvöld kl. 17.00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.