Morgunblaðið - 30.12.2006, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KÖLD SLÓÐ kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
THE CHILDREN OF MEN kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 4:30 - 7:30 - 9 - 10:30 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2:30 - 4:45 LEYFÐ
DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i. 12 ára
NATIVITY STORY kl. 5:50 B.i. 7 ára
SANTA CLAUSE 3 kl. 3:40 LEYFÐ
BOSS OF IT ALL kl. 8 B.i. 7 ára
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2:30 LEYFÐ
/ AKUREYRI
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.I. 12 ára
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
ERAGON kl. 3 - 5:30 - 8 B.I. 12 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3 - 5:30 LEYFÐ
DÉJÁ VU kl. 10:10 B.I. 12 ára
Óskum landsmönnum
SANNKALLAÐ MEISTARAVERK
SEM KVIKMYNDAÐ VAR AÐ
MESTUM HLUTA Á ÍSLANDI
CLINT EASTWOOD HLAUT
TILNEFNINGU TIL GOLDEN GLOBE
VERÐLAUNA FYRIR BESTU LEIKSTJÓRN
FRAMLEIDD AF STEVEN SPIELBERG EFTIR ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANN CLINT EASTWOOD
FLUSHED AWAY
eeee
V.J.V. TOPP5.IS.
eeee
S.V. MBL.
eeee
L.I.B. TOPP5.IS
eee
Þ.J. FRÉTTABLAÐIÐ
eee
S.V. MBL.
eee
V.J.V. TOPP5.IS
"SNJÖLL OG BRÁÐFYNDIN!"
eeee
HJ, MBL
eeee
S.V. MBL.
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
ÞAÐ ER HÆTTULEGT AÐ
LEITA SANNLEIKANS
- ÞÚ GÆTIR FUNDIÐ HANN...
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
20% afsláttur fyrir alla
viðskiptavini Kaupþings
ef greitt er með korti
frá Kaupþingi
eeee
V.J.V. - Topp5.is
það en gleymdi að setja
nafnið sitt undir. Vík-
verji gat rýnt í skriftina
og komist að uppruna
kortsins. Næsta ár
fékk Víkverji tómt kort
frá sama frænda. Að-
eins utanáskriftin benti
til að þar væri frænd-
inn á ferð.
Það kom fyrir í jóla-
kortum sem Víkverji
fékk þessi jólin að und-
ir stóð „jólakveðjur,
Sigga, Gunni og
bumbubúinn.“ Víkverja
finnst svolítið und-
arlegt að rita ófætt
barn undir jólakort, en
um leið veit hann að þarna er aðeins
verið að koma á framfæri upplýs-
ingum um yfirvofandi fjölgun mann-
kyns. Hins vegar finnst Víkverja al-
veg ferlegt þegar foreldrar skrifa á
heimasíður barna sinna í 1. persónu,
þ.e. eins og óvitinn sé að tala. „Þegar
mamma var að skipta á mér í morg-
un þá bara sprændi ég út um allt og
mamma hló og hló.“ Það var einmitt
það já. Þetta finnst Víkverja skelfi-
lega hallærislegt. Hvenær kemur
svo að því að barnið fer sjálft að
„tala“ á síðunni? Verður barnið sátt
við það sem það „sagði“ við 3ja mán-
aða aldurinn, þegar það sjálft getur
tjáð sig?
Víkverji fær nokkratugi jólakorta á
hverju ári enda er
hann sjálfur sérlega
duglegur að senda
jólakort. Nýjasta tíska
í jólakortafárinu er að
senda út nokkurs kon-
ar annál ársins og
skemmtir Víkverji sér
mikið yfir sögum af
börnum vina og vanda-
manna sem og frásögn-
um af brúðkaupum og
ferðalögum. Víkverji
sendir þó ekki sjálfur
slíkt ágrip, aðallega af
því að hann telur líf sitt
svo lítilfjörlegt að sög-
ur úr því eigi vart erindi til fjar-
skyldra og sjaldséðra vina.
Það er augljóslega misjafnt hvað
fólki finnst eiga erindi í ann-
álajólakortin. Flestir rifja upp
skemmtisögur af börnum og telja
upp staði sem þeir hafi heimsótt á
árinu. Aðrir segja frá því að pall-
urinn við húsið sé loksins tilbúinn
eða að mikið hafi verið étið af páska-
eggjum þetta árið. Enn aðrir
skammast yfir því að enginn hafi
komið í heimsókn til þeirra. Víkverji
tekur slíkt þó lítið nærri sér.
Víkverji fær árlega jólakort frá
einum frænda sínum. Í einu slíku
þakkaði frændinn fyrir árið og allt
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið
hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér
einnig elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Í dag er laugardagur
30. desember, 364. dagur
ársins 2006
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hávaði í kirkjum
ÉG fer eins og aðrir Íslendingar
stundum í kirkjur um jól. Fór ég í
ónefnda kirkju á aðfangadag. Fékk
ég sæti þótt þétt væri setið.
Ég segi þó farir mínar ekki sléttar
því ég heyrði ekki ræðu prestsins
þar sem ég sat aftast. Ekki var það
út af því að presturinn talaði svo lágt
heldur var það grátur ungra barna
sem gerði það að verkum að ég
heyrði nánast ekkert. Hvernig er
það, er ekki hægt að hafa smábörn
heima, ef mögulegt er t.d. hjá ein-
hverjum ættingja, þegar menn fara í
kirkjur? Taka verður tillit til ann-
arra kirkjugesta.
Eins virðist það vera mjög al-
gengt að fólk fari að ræskja sig á
fullu í kirkjum, ekki af nauðsyn að
því er virðist, heldur vegna þess að
viðkomandi er eitthvað taugaveikl-
aður eða með bakflæði á háu stigi
sem kitlar raddböndin. Þetta er
virkilega truflandi, ekki bara fyrir
aðra kirkjugesti heldur einnig prest-
inn hlýtur að vera.
B.G.
Orðsending til KB banka og
slíkra fyrirtækja
AÐAL umræðan í heitu pottunum
nú milli jóla og nýárs eru jólagjafir
bankanna og fleiri þjónustufyr-
irtækja.
Minn banki er KB banki. Mér er
verulega misboðið með gjöfinni sem
kom þaðan; einhvers konar saumað-
ur hattur eða húfa sem reyndist vera
að lokum ílát fyrir epli eða eitthvað
annað, mitt fór beint í ruslafötuna.
Hvað hefur maður við svona lagað
að gera? Ég hef líka séð frá öðrum
fyrirtækjum og það er í flestum til-
vikum lítið skárra.
Væri ekki betra að andvirði þessa
færi til nytsamlegri hluta – að e-r
sem hefði verulega þörf fyrir hjálp
fengi að njóta þess? S.s. kirkjan eða
önnur líknarfélög.
Virðingarfyllst,
Helga Jörgensen.
Ánægja með Byko á Akureyri
MIG langar til að vekja athygli á
mikilli þjónustulund og jákvæðni
starfsfólks Byko á Akureyri.
Ég hef átt í mjög miklum við-
skiptum við verslunina undanfarin
misseri og kem þangað oft í viku.
Mig langar að hrósa versluninni
og starfsfólki hennar. Nýja búðin
var opnuð með glæsibrag fyrr á
árinu og það er eins og það hafi verið
sannkölluð vítamínsprauta fyrir alla
starfsemina.
Gamla verslunin var of þröng og
lítil og það vildi bregða við að þjón-
usta væri hæg og starfsfólk áhuga-
laust. Eftir að nýja verslunin var
opnuð hefur orðið mikil bragabót á
þessu. Fyrir utan breiða ganga og
aðgengilega verslun er starfsfólk
greinilega brosmildara og með rík-
ari þjónustulund en fyrr.
Greinilega er starfsandi nú afar
góður í nýrri verslun. Öll þjónusta
hefur verið til mikillar fyrirmyndar
undanfarna mánuði.
Það er ekki lítils um vert að finna
fyrir jákvæðu viðmóti í verslun sem
maður á í jafnmiklum viðskiptum
við.
Fyrir það þakka ég.
Áskell Harðarson.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forsíðumynd
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Gullbrúðkaup | Í gær, 29. desember,
áttu Leifur Heiðar Bjarnason og Svala
Guðmundsdóttir 50 ára brúðkaups-
afmæli. Þau giftu sig í Patreksfjarð-
arkirkju og þurftu leyfisbréf forseta
vegna ungs aldurs.