Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 48
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 364. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Heldur vaxandi
suðvestanátt, 10–
15 m/s sunnantil.
Skýjað með köfl-
um og yfirleitt þurrt norð-
austantil. Kólnandi. » 8
Heitast Kaldast
8°C 2°C
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands fer í
tónleikaferð til þriggja Evrópulanda í
febrúar. Þrennir tónleikar verða í Þýska-
landi, í Köln, Düsseldorf og Braunsch-
weig, einir í Zagreb í Króatíu og einir í
Vínarborg í Austurríki. Rumon Gamba,
aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar, verður stjórnandi á öllum
tónleikunum, en rússneski píanósnilling-
urinn Lilya Zilberstein verður einleikari
með hljómsveitinni, að sögn Helgu
Hauksdóttur, tónleikastjóra hljómsveit-
arinnar. „Lilya verður með tvo konserta
meðferðis, Grieg-konsertinn og Pag-
anini-tilbrigðin eftir Rakhmaninov. Tvær
sinfóníur verða með í för; nr. 2 eftir
Sibelius og nr. 5 eftir Sjostakovits, og
síðan verður upphafsverk hverra tón-
leika ýmist Forleikurinn að Galdra-Lofti
eða Trílógía eftir Jón Leifs, en í Zagreb
spilum við nýtt króatískt verk. Það er
mikill undirbúningur sem fylgir svona
ferð og hann er búinn að standa yfir í
um það bil ár.“ | 36
Sinfónían í
tónleikaferð
Morgunblaðið/Kristinn
Tónleikaferð Hróður Sinfó fer nú æ víðar.
TILTEKNAR undantekningar eru gerðar
frá almennri hækkun fasteignamats um
10% en það lækkar hvergi. Er það í sam-
ræmi við þróun undanfarinna ára þar sem
fasteignamat hefur almennt hækkað.
Dæmi má taka af fasteignamati íbúðar í
fjölbýlishúsi í Reykjavík sem eftir hækk-
unina hljóðar upp á fimmtán milljónir
króna. Árið 2001 hefði matsverð þeirrar
fasteignar verið um 7,7 milljónir króna,
rúmur helmingur þess sem það er um
þessar mundir.
Hækkunina nú er fyrst og fremst að
rekja til breytinga á verðlagi fasteigna á
árinu sem er að líða og er hún mismikil
eftir landsvæðum.
Að mati Péturs Stefánssonar, formanns
yfirfasteignamatsnefndar, eru breyting-
arnar nokkuð jafnar yfir landið allt og í
takt við verðþróun í landinu. | Miðopna
Fasteignamat
hækkar enn
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
„ÞETTA bar gríðarlega brátt að,“ sagði Huld
Óskarsdóttir sálfræðinemi sem eignaðist litla
dóttur með hraði í fyrrakvöld. Huld býr ásamt
manni sínum, Sigurði Högna Jónssyni, nema í
upplýsingatækni, og fjögurra ára dóttur þeirra,
Bergþóru, á Eyrarsunds-stúdentagörðunum á
Amager í Danmörku.
Í fyrrakvöld kenndi Huld sín og hringdi á
fæðingardeild sjúkrahússins í Hvidovre til að
láta vita að sennilega væri hún að fara að eiga.
Sigurður fór með Bergþóru í pössun kl. 21.00 og
kom heim tíu mínútum síðar og þau pöntuðu
leigubíl.
„Við fórum niður í lyftunni og barnið kom
bara um leið og leigubíllinn. Í orðsins fyllstu
merkingu,“ sagði Huld. „Ég stóð fyrir utan hús-
ið og var farin að krossleggja fæturna. Hugsaði:
Guð minn góður. Leigubíllinn er of seinn! Ég
trúði því að ef ég kæm-
ist í bílinn gæti ég náð
á spítalann í tæka tíð.“
Huld var ekki búin
að missa legvatnið en
fann að barninu lá
mikið á. „Um leið og
ég settist inn í leigubíl-
inn fann ég að það var
eitthvað á leiðinni, fór
með hendurnar ofan í
buxurnar og kom upp
með stúlkuna! Vatnið fór um leið og hún kom út.
Þetta gerðist svo ofboðslega hratt!“
Huld segir að um leið og hún snerti kollinn á
stúlkunni hafi hún sagt leigubílstjóranum að
hringja í neyðarlínuna og biðja um sjúkrabíl.
„Hann spurði hvað símanúmerið væri í 112,“
sagði Huld. „Leigubílstjórinn var alveg úti að
aka og langmest sjokkeraður af okkur. Ég sagði
manninum mínum að hringja í Ingibjörgu
Hrefnu Björnsdóttur vinkonu mína, sem er
hjúkrunarfræðingur, og býr í næstu blokk. Hún
kom með handklæði til að vefja um stúlkuna. Ég
vöðlaði naflastrengnum einhvern veginn um þá
litlu og eiginlega stakk henni inn á mig.“
Sjúkrabíllinn kom von bráðar með lækni,
enda sjúkrabílastöð skammt frá. „Þeir settu
klemmur á naflastrenginn og pabbinn fékk að
klippa á strenginn inni í leigubílnum. Leigu-
bíllinn fór aldrei af stað með okkur. Aumingja
leigubílstjórinn var alveg ringlaður. Hann fór
út úr bílnum og gekk bara í hringi þangað til
læknirinn kom,“ sagði Huld. Hún telur að
leigubílstjórinn sé uppalinn í öðrum menning-
arheimi en vestrænum. „Hann hefur örugg-
lega aldrei mátt sjá fæðingu eða neitt slíkt.
Hvað þá einhverja brjálaða konu sem kemur
inn í leigubílinn og tekur út úr sér barn! Hann
var algjörlega lamaður þegar við vorum að
fara og læknarnir að sinna honum. Þeir sögðu
honum að þetta væri allt í lagi.“
Litla stúlkan var 11,5 merkur að þyngd og
hefur verið nefnd Álfheiður. Þær mæðgur
komu heim af fæðingardeildinni síðdegis í
gær og heilsast báðum vel.
Barnið kom um leið og leigubíllinn
Ljósmynd/Sigurður H. Jónsson
Mæðgur Álfheiður Sigurðardóttir í faðmi
móður sinnar, Huldar Óskarsdóttur, eftir að
þær komu á fæðingardeildina.
Álfheiði lá mikið á að
komst í heiminn.
„ÞEGAR við erum búnir að klára
alla okkar þjálfun og fá allan okkar
búnað erum við betur settir en áður
þar sem við höfum alltaf þann
möguleika að senda tvær þyrlur frá
okkur með fólki sem þekkir stað-
hætti,“ segir Auðunn F. Kristins-
son, yfirstýrimaður og sigmaður
hjá Landhelgisgæslu Íslands, um
muninn á starfsemi Gæslunnar fyr-
ir og eftir brottför varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
Umsvif flugdeildar Gæslunnar
hafa aukist gríðarlega á síðari hluta
ársins og afar viðburðaríkt ár nán-
ast að baki.
Í haust fékk Gæslan stóra leigu-
þyrlu og á fyrstu dögum nýs árs
kemur til landsins minni leigu-
þyrla, sambærileg að stærð og TF-
SIF en að öllu betur búin. Í maí nk.
er svo búist við að stór leiguþyrla
taki við af þeirri sem kom í haust en
hún hentar ekki nægilega vel til
leitar og björgunaraðgerða.
„En hún virkar vel í ýmis önnur
verkefni, til dæmis hífingar, og það
er ósköp eðlilegt þar sem það tekur
afar langan tíma að fá fullbúna leit-
ar- og björgunarvél,“ segir Auðun
sem er fullviss um að efling Gæsl-
unnar hafi verið til þess að tryggja
betur öryggi og þjónustu.
„Að undanförnu höfum við verið
að nota oftar tvær þyrlur en þegar
við kölluðum varnarliðið út þannig
að þetta hefur bætt öryggi okkar
og þjónustuna við landsmenn. Þeg-
ar búið er að þjálfa allt starfsfólkið
verður þetta svo enn betra.“
Nær stanslaus þjálfun hefur ver-
ið hjá starfsmönnum flugdeildar-
innar og þyrlurnar mikið notaðar.
Er það meðal annars vegna þess að
mikið er af mannskap sem allur
þarf lágmarksþjálfun og hefur orð-
ið til þess að Gæslan hefur aukið
löggæslu á sjó og hefur getað sinnt
ýmsum verkefnum.
Hristir upp í | Miðopna
Telja sig vera betur
setta án varnarliðsins
Í HNOTSKURN
» Björgunin við Sandgerðivar sú fyrsta sem Björn
Brekkan Björnsson tók þátt í
sem flugstjóri.
» Gæslan fékk stóra leigu-þyrlu í haust og í vor
mun önnur hentugri leysa
hana af hólmi.
» Nú eru oftar notaðartvær þyrlur en er varn-
arliðið var kallað út. Hefur
það orðið til að bæta öryggi
og þjónustu við landsmenn.
KANNSKI hafa skipverjar á skuttogaranum
Snorra Sturlusyni hitt á óskastund á miðunum
nú í desember. Hvað sem því líður hefur árið
verið hagstætt íslenzkum sjómönnum þar sem
fiskverð hefur hækkað verulega, bæði í íslenzk-
um krónum og erlendum gjaldmiðlum talið.
Tekjur þeirra hafa því aukizt á þessu ári, þrátt
fyrir að heildarafli ársins verði minni en í fyrra.
Samdrátturinn er nær allur í loðnu en botnfisk-
afli hefur aukizt.
Ljósmynd/Einar Gíslason
Undir regnboganum
AÐALFUNDUR Sjómannafélags
Reykjavíkur (SR) samþykkti í gær
einróma að félagið og Matsveina-
félag Íslands sameinuðust í nýju
stéttarfélagi, Sjómannafélagi Ís-
lands. Birgir Hólm Björgvinsson,
gjaldkeri og framkvæmdastjóri SR,
sagði að eftir viku yrði framhalds-
aðalfundur SR þar sem boðuð yrði
allsherjaratkvæðagreiðsla um úr-
sögn úr Sjómannasambandi Íslands
og þar með úr ASÍ.
Birgir sagði að málið ætti sér lang-
an aðdraganda. Hann sagði einnig að
menn hefðu verið óánægðir með
kjarasamninga og vildu prófa eitt-
hvað nýtt. Félagsstofnunin hefur
ekki áhrif á gildandi kjarasamninga
eða lífeyrissjóðaaðild félagsmanna. Í
SR eru 600–700 starfandi sjómenn
og matsveinarnir eru um 100. Birgir
sagði að í SR væru töluvert margir
sjómenn utan af landi og tímabært
að breyta nafninu. „Við teljum okkur
ná til fleiri og viljum styrkja og
stækka félagið með nýju nafni,“
sagði Birgir. Nafnið Sjómannafélag
Íslands var skráð árið 2001 og félag-
inu sett stjórn þá en ekki hefur orðið
úr formlegri starfsemi fyrr en nú.
Nýtt sjó-
manna-
félag
♦♦♦