Morgunblaðið - 31.12.2006, Síða 4

Morgunblaðið - 31.12.2006, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ H austið 1992 lýsti Elísabet Breta- drottning yfir því í frægri ræðu að undanliðnir mánuðir hefðu verið henni réttnefnt „hryll- ingsár“. Drottningin beitti lat- neska orðasambandinu „annus horribilis“ til að lýsa því hvernig lífið hefði leikið hana á árinu enda virtist hrikta í stoðum sjálfs konungdæm- isins í Bretlandi eftir skilnaði og hneykslismál innan fjölskyldunnar útvöldu. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti árinu 2004 sem „annus horribilis“ í lífi sínu og var það hald manna að með því hefði hann vísað til ásakana um spillingu í tengslum við olíusölu Íraka. Vísast mun George W. Bush kjósa að lýsa árinu sem hann kveður nú senn eins og við hin á annan veg en þennan; forseti Bandaríkj- anna virðist enn sem fyrr sannfærður um rétt- mæti eigin ákvarðana og lætur engan bilbug á sér finna. Árið 2006 var á hinn bóginn „annus horribilis“ í lífi Bush forseta; í flestum efnum rættust spár hinna svartsýnustu og þegar horft er fram á veginn blasir aðeins við eitt: óvissa. Á árinu sem nú er að líða hrundi stefna Bush forseta í Írak til grunna. Ástandið þar virðist aðeins lúta einu lögmáli; að geta sífellt farið versnandi. Repúblikanaflokkur forsetans beið afgerandi ósigur í haustkosningunum vestra og í beinu framhaldi af þeirri niðurstöðu þurftu tveir af dyggustu stuðningsmönnum og um margt öflugustu málsvarar utanríkisstefnu hans, þeir Donald Rumsfeld varnarmálaráð- herra og John Bolton, sendiherra hjá Samein- uðu þjóðunum, að taka pokann sinn. Grunnatriðum í stefnu forsetans hafnað Hrunadansinn gerðist æsilegri á síðari helm- ingi ársins. Kjósendur lýstu yfir því að þeir hefðu glatað trú á stefnu forsetans í málefnum Íraks og myndu ekki sætta sig lengur við að ungir Bandaríkjamenn yrðu sendir til landsins til þess að deyja. Þverpólitísk nefnd, svo- nefndur Rannsóknarhópur vegna Íraks (e. „Iraq Study Group“), skilaði af sér skýrslu þar sem öllum grunnatriðum í stefnu forsetans í málefnum Íraks var hafnað og því lýst yfir að ástandið myndi versna með skelfilegum afleið- ingum ef henni yrði haldið til streitu. Loks jókst mannfall í röðum Bandaríkjamanna en þó einkum Íraka til mikilla muna á síðari hluta ársins þegar draumurinn um nýtt ríki lýðræðis og stöðugleika í miðjum arabaheiminum drukknaði í blóði sem vígaflokkar sjíta og súnníta úthella hvar sem því verður við komið. Talið er að um 100.000 Írakar yfirgefi nú heimalandið á mánuði hverjum. Flestir flýja til nágrannalandanna, Sýrlands, Jórdaníu og Ír- ans. Það ferðalag er afar hættulegt; mannrán eru algeng á þeim leiðum en þannig fjármagna vígasveitir súnníta og sjíta baráttu sína. Vitað er að fjölmargir þeirra sem freistað hafa þess að flýja vargöldina í Írak hafa verið myrtir. Orðræðan breyttist enda í samræmi við þessi skelfilegu framþróun mála. Sennilega var það nú í desembermánuði sem Bush forseti hætti að ræða um „sigur“ í Írak og tók þess í stað að vísa til þess að „verkinu“ bæri að ljúka og að ekki kæmi til álita að kalla liðsaflann heim fyrr en „árangri“ hefði verið náð. Er George W. Bush lýsti yfir því eftir árás flugu- mana Osama Bin Ladens á Bandaríkin árið 2001 að hafið væri „hnattrænt stríð gegn hryðjuverkaógninni“ urðu margir til þess að spyrja hvernig skilgreina bæri „sigur“ í þeim átökum sem augljóslega væri mikilvægt til að fá fram vitneskju um hvenær þeim kynni að ljúka. Svar hefur enn ekki fengist við þessari spurningu. Í Írak, sem þó virðist vera helsti orrustuvöllur hnattræna stríðsins nú um stundir, eru menn sýnilega hættir að bera spurninguna upp. Öflugasti talsmaðurinn á förum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hef- ur raunar löngum gætt sín á því að beita ekki hugtökum á borð við „sigur“ í ræðum sínum um Írak en líkt og Bush segir hann ekki koma til álita að kalla herliðið heim fyrr en „verkefn- inu“ sé lokið. Óvíst er hvort Blair auðnast að verða vitni að því. Það hlýtur að teljast harla ólíklegt þar sem félagar í Verkamannaflokkn- um þvinguðu hann í ár til að lýsa yfir því að hann muni láta af embætti á nýja árinu. Óvin- sældir sökum innrásarinnar í Írak riðu bagga- muninn í því efni. Líklegt er að Blair láti af embætti í maímánuði. Þar með missir George W. Bush öflugasta talsmann sinn. Og eins og til að núa salti í sárið er því nú óspart haldið fram í Bretlandi að kenningar um hið „einstaka sam- band“ Bretlands og Bandaríkjanna séu draum- órar einir; Blair hafi á engan veg haft áhrif á stefnu Bandaríkjastjórnar í Írak þótt öðru hafi verið haldið fram. Seint verður sagt að árið 2006 hafi verið „annus mirabilis“ breska for- sætisráðherrans. Hermönnum fjölgað í Írak? Bandaríkjaforseti hefur boðað að hann muni strax í upphafi ársins gera grein fyrir nýrri stefnu í málefnum Íraks. Er þá bæði horft til hernaðarlegra þátta og pólitískra. Í skýrslu þingnefndarinnar er að finna tillögur sem nýst gætu Bush á þessum erfiðu tímamótum. Þær tillögur lúta bæði að sjálfri framkvæmd hern- aðarins í Írak og að pólitísku frumkvæði Bandaríkjamanna í málefnum Mið-Austur- landa. Forsetinn hefur sagt að ýmislegt nýti- legt megi finna í skýrslu Rannsóknarhópsins en öðrum tillögum þingnefndarinnar hefur hann beinlínis hafnað. Leiðtogar nefndarinnar hafa á hinn bóginn haldið því fram að tillögur hópsins séu ekki þess eðlis að úr þeim megi velja en hafna öðrum. Tillögurnar tengist allar innbyrðis og því verði að velja þær allar eða hafna þeim öllum. Ógerlegt er að segja til um hvaða leik Bush forseti velur í þeirri erfiðu stöðu sem hann er nú í. Forsetinn er slyngur og reyndur stjórn- málamaður og ekki er óhugsandi að hann geti laðað fram fylgi við breytta stefnu í Írak. Stað- fest var skömmu fyrir jól að Bush íhugi að fjölga tímabundið í herliðinu í Írak í þeirri von að þannig megi auka öryggi óbreyttra borgara. Fjölgun hermanna gæti einnig verið fallin til að greiða fyrir stórsókn gegn vígasveitum sjíta- leiðtogans Moqtada al-Sadr sem ýmsir þeir sem sérfróðir teljast segja óhjákvæmilega eigi að takast að skapa stöðugleika í landinu. Á það er bent að ekki er hlaupið að því að fjölga bandarískum hermönnum í Írak án þess að herforingjar geti í auknum mæli nýtt vara- liðssveitir sem reynast myndi afar viðkvæm að- gerð í pólitísku tilliti. Haft er fyrir satt að bandarískir herforingjar vilji að verkefni liðs- aflans verði breytt í þá veru að honum verði einkum beitt til að styrkja hersveitir Íraka og elta uppi hryðjuverkamenn í stað þess að berj- ast nú við hinar ýmsu vígasveitir sem láta til sín taka í landinu. Stjórnvöld í Írak eru sögð áforma að fela íröskum öryggissveitum að halda uppi gæslu í höfuðborginni, Bagdad, og fara þess á leit við Bandaríkjamenn að sveitir þeirra haldi uppi gæslu í úthverfum hennar til að tryggja að vígaflokkar og hryðjuverkamenn eigi ekki greiða leið að alþýðu manna. Er þá jafnframt gert ráð fyrir að Bandaríkjamenn leggi til ráðgjafa sem fylgi sveitum Íraka. Í skýrslu þingnefndarinnar er að finna svipaða hugmynd og lagt til að bandarískum ráðgjöfum og þjálfurum á sviði hernaðar verði fjölgað til muna í því skyni að auka bardagagetu liðsafla stjórnvalda í landinu. Hvað hernaðarþáttinn varðar eru ýmsir möguleikar fyrir hendi og telja verður líklegt að Bush forseti og undirsátar hans horfi til rót- tækra aðgerða í því efni. Ljóst er að ríkis- stjórnin þolir ekki óbreytt ástand öllu lengur fremur en almenningur í Bandaríkjunum. Takmarkað svigrúm Í pólitísku tilliti er svigrúm Bandaríkja- manna afar takmarkað. Stjórn Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, stendur höllum fæti. Stjórninni hefur ekki tekist að hafa hemil á vígasveitum sjíta og er deilt um hvort vilja eða getu skorti í því efni. Forsætisráðherrann er talinn hallur undir sjítaklerkinn Moqtada al- Sadr sem fer fyrir Mahdi-hernum svonefnda. Láti Bandaríkjamenn til skarar skríða gegn sveitum þeim sem falla undir þann liðsafla kann sú aðgerð að veikja stjórn forsætisráð- herrans enn frekar. Þá er á það bent að al-Sadr sé einn fárra leiðtoga í Írak sem haft geti ein- hver áhrif á framgöngu vígasveita sjíta. Bandaríkjamenn hafa og freistað þess að þrýsta á Nuri al-Maliki og aðra leiðtoga sjíta um að þeir leiti eftir sáttum við súnníta. Slíkt beri m.a. að gera með því að heita réttlátri skiptingu olíutekna landsins. Súnnítar eru ráð- andi á svæðum þar sem litla olíu er að finna og óttast leiðtogar þeirra að sjítar og Kúrdar í norðurhlutanum áformi að rjúfa einingu rík- isins og skilja þá eftir bjargarlitla. Ljóst sýnist að reynist sjítar og kúrdar ekki viljugir til að leita leiða til að sefa ótta súnníta aukast líkur á að Írak klofni fyrr frekar en síðar í þrennt. Í raun má halda því fram með góðum rökum að sú þróun sé þegar hafin. Vísað skal til þess að mikill uppgangur einkennir nú efnahagslífið í Kúrdahéruðunum í norðri og sjálfstjórn þeirra verður styrkari með degi hverjum. Viðræðum hafnað við Sýrlendinga og Írana Í pólitísku tilliti er ástandið í Írak því afar erfitt og vandfundinn leikur í stöðunni. Margir eru þeirrar hyggju að ástandið í Írak verði ekki bætt án þess að jafnframt verði leit- að leiða til að setja niður önnur deilumál í Mið- Austurlöndum. Í skýrslu Vinnuhópsins er lagt til að Bandaríkjamenn leiti eftir viðræðum við Írana og Sýrlendinga í því skyni að koma á stöðugleika í Írak og jafnframt eru stjórnvöld hvött til að hafa frumkvæði að því að hafnar verði á ný friðarviðræður Ísraela og Palest- ínumanna. Tony Blair hefur verið sérlegur talsmaður þess síðarnefnda og hefur forsætis- ráðherrann fullyrt að hryllingurinn í Írak teng- ist öðrum deilumálum í þessum heimshluta. Þessa söguskýringu er augljóslega erfitt að rökstyðja. Bush forseti hefur sagt að viðræður við Írani og Sýrlendinga komi aðeins til greina fallist leiðtogar þessara þjóða á ströng skilyrði Bandaríkjamanna. Forsetinn lýsti því enda yfir á sínum tíma að Íran myndaði ásamt Írak og Norður-Kóreu „öxul hins illa“ í heimi hér og hefur margoft gagnrýnt Sýrlendinga harðlega. Skömmu fyrir jól tók Tony Blair efnislega und- ir afstöðu forsetans er hann sagði stjórnvöld í Íran vinna skipulega að því að auka enn á vand- ann í þessum heimshluta. Þar væru við völd öfgamenn sem ógnuðu nágrönnum sínum í Mið-Austurlöndum. Í Palestínu hefur spenna í samskiptum rík- isstjórnar Hamas-samtakanna og Fatah- hreyfingar Mahmoud Abbas forseta farið jafn og þétt vaxandi á árinu sem senn verður kvatt. Upp úr hefur soðið nokkrum sinnum en þó aldrei eins og nú í desembermánuði þegar ítrekað kom til átaka milli herflokka hreyfing- anna tveggja. Algjör óvissa ríkir um fram- haldið og engan veginn verður greint að póli- tísk skilyrði séu ríkjandi fyrir því að hafnar verði á ný viðræður Ísraela og Palestínu- manna. Hamas-hreyfingin neitar enn að við- urkenna tilverurétt Ísraelsríkis og hyggst snið- ganga kosningar sem Abbas forseti hefur boðað til. Líkur á friðarviðræðum eru litlar sem engar; á nýja árinu sýnist stærsta verkefni kjörinna leiðtoga Palestínumanna vera að koma í veg fyrir frekari innbyrðis átök. Í Ísrael stendur stjórn Ehuds Olmerts for- sætisráðherra höllum fæti. Herförin í sumar gegn Hizbollah-hreyfingunni í Líbanon mis- tókst um flest og stuðningur við það stefnumál stjórnvalda að flytja landtökumenn einhliða á brott frá nokkrum byggðum á Vesturbakk- anum er horfinn. Olmert hefur hafnað tillögum þeim sem finna má í skýrslu Vinnuhópsins um Írak þar sem segir m.a. að Ísraelum beri að skila Sýrlendingum aftur Gólan-hæðum. George W. Bush er maður baráttuglaður og forsetinn hefur lýst yfir því að fjarri fari að haf- in sé leit að „útgönguleið með sæmd“ í Írak. Bush hafnar öllu tali um brottflutning herafl- ans en vera kann að forsetinn glati frumkvæði í málefnum landsins nú þegar demókratar hafa náð meirihluta á þingi og greining og tillögur Vinnuhópsins liggja fyrir. Einhverjir kunna að telja að ástandið geti varla versnað og því geti nýja árið vart orðið Bush erfiðara en það sem senn er liðið. Reynsl- an frá Írak kennir það eitt að slík bjartsýni er óráðleg. „Annus horribilis“ Reuters Erfiðleikar George W. Bush Bandaríkjaforseti og Condoleezza Rice utanríkisráðherra gera grein fyrir þróun mála í Írak. » Á árinu sem nú er að líða hrundi stefna Bush forseta íÍrak til grunna. Ástandið þar virðist aðeins lúta einu lög- máli; að geta sífellt farið versnandi. Í flestum efnum rættust spár hinna svartsýnustu og þegar horft er fram á veginn blasir aðeins við eitt: óvissa. Alþjóðamál Ásgeir Sverrisson | asv@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.