Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 17 á framhaldsstigi háskólanáms Á hverju ári veitir Landsvirkjun styrki til nemenda á framhaldsstigi háskólanáms sem eru að vinna að lokaverkefnum í meistara- og doktorsnámi. Á árinu 2007 verður varið allt að 4 milljónum króna í námsstyrki og verður styrkjunum úthlutað í apríl næstkomandi. Hver styrkur verður að lágmarki 400 þúsund krónur. Markmiðið með námsstyrkjunum er að efla menntun og hvetja til rannsókna á hinum marg- víslegu sviðum sem tengjast starfsemi Landsvirkjunar. Umsækjendur eru sérstaklega hvattir til að kynna sér hina fjölbreyttu starfsemi Landsvirkjunar á vefsíðu fyrirtækisins. Styrkjunum er ætlað að standa undir hluta af kostnaði við lokaverkefni sem hafin eru eða munu hefjast á árinu 2007. Umsækjendur þurfa að leggja fram lýsingu á verkefninu, meðmæli leiðbeinanda og rök- stuðning fyrir því að verkefnið tengist starfsemi Landsvirkjunar. Umsóknum ásamt fylgi- gögnum skal skilað á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, merktum: „Námsstyrkir Landsvirkjunar 2007“. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um styrkveitinguna og starfsemi Landsvikjunar er að finna á vefsíðu Landsvirkjunar, www.lv.is. Fyrirspurnir má senda á netfangið styrkir@lv.is. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2007. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Landsvirkjun er í hópi stærstu fyrirtækja landsins. Fyrirtækið býður viðskiptavinum bestu lausnir í orkumálum og tryggir með því grundvöll nútíma lífsgæða. Landsvirkjun fæst við fjölbreytt rannsóknar- starf á sviði náttúruvísinda, verkfræði og orkumála. Það er helsti raforkuframleiðandi landsins og er í forystu fyrir byggingu orku- vera sem hafa í gegnum tíðina verið meðal stæstu framkvæmda í landinu. Landsvirkjun rekur umfangsmikla fjármálastarfsemi á alþjóðamarkaði vegna fjármögnunar á verk- efnum fyrirtækisins. Hjá Landsvirkjun starfa rúmlega 200 manns með fjölbreytta menntun. Dótturfélög eru þrjú talsins og er Landsnet þeirra stærst. Þá á Landsvirkjun hlutdeild í mörgum félögum, innlendum og erlendum, á sviði orkumála, fjarskipta, ráðgjafar og framkvæmda. Landsvirkjun stefnir að því á hverjum tíma að vera í fararbroddi í framsækinni nútíma stjórnun og leggur áherslu á jafnrétti og tækifæri til starfsþróunar. Styrkir til nemenda P I P A R • S ÍA • 6 07 79 Árið 2006 verður sennilega lengi í minnum haft hjá Magnúsi Scheving, framkvæmdastjóra Latabæjar, en vinsældir þáttanna um íþróttaálfinn Sportacus og félaga hans í Latabæ hafa aldrei verið meiri en einmitt nú. „Það sem kannski stendur upp úr á árinu er það að við stækkuðum áhorfendahópinn og fórum í dreif- ingu víðar en í Bandaríkjunum og Suður-Ameríku. Við tókum til dæmis Bretland „með stormi“ og byrjuðum í Ástralíu og á Norðurlöndunum og fengum gríðarlega góðar móttökur,“ segir Magnús. Viðurkenningarnar létu ekki á sér standa í kjölfar land- vinninganna; Juliana Mauriello, sem leikur Sollu stirðu, var tilnefnd til Emmy-verðlauna, þáttaröðin fékk EMIL-verðlaunin í Þýskalandi fyrir besta barnaefni sem og Bafta- verðlaunin fyrir besta alþjóðlega barnaefnið. Heiðursverðlaun Edd- unnar komu svo í hlut Magnúsar sjálfs. Magnús segir að í ár hafi það kom- ið í ljós hversu vel þátturinn höfðar til barna, sama hvar þau eru stödd í heiminum. „Við erum að ná þeim markmiðum sem stefnt var að í upp- hafi í þeim efnum. Krakkar í Mexíkó tóku til dæmis gríðarlega vel á móti okkur,“ segir Magnús og bætir við að árangurinn megi að miklu leyti þakka því viðhorfi hans og annarra aðstandenda þáttanna að hvika hvergi frá gæðum, jafnvel þótt áhorf- endur séu að langstærstum hluta börn. Magnús segir að árið hafi verið mjög erfitt en um leið mjög skemmti- legt og innihaldsríkt. „Við höfum unnið hörðum höndum að því að byggja upp þetta vörumerki,“ segir Magnús og skýrir frá því að útrás Latabæjar sé frábrugðin annarri út- rás að því leytinu til að Latibær sé vörumerki sem byggt hafi verið upp frá grunni. „Íslenska útrásin felst nánast alltaf í því að íslensk fyrirtæki hafa keypt vörumerki, lyfjafyrirtæki, verksmiðjur og verslanir og þannig vaxið og dafnað, en þessu er öðruvísi farið með okkur,“ segir Magnús. Höfundur, leikari og framkvæmdastjóri Spurður um hvernig það fari sam- an að vera höfundur þáttanna, aðal- leikari þeirra og framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir Magnús það vissulega hafa sína ókosti sem meðal annars felist í aukinni þreytu og hverfandi tíma fyrir sjálfan sig og sína nánustu. Auk þess sé fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins ekki sá miðpunktur sem hann er í hefð- bundnum fyrirtækjum þar sem Magnús sjálfur ferðast heimshorn- anna á milli í kynningarskyni. Kost- irnir eru þó ótvíræðir að mati Magn- úsar. „Við þurfum ekki einhvern fókushóp fyrir börnin heldur förum við á staðinn og hoppum með tíu þús- und börnum í Frakklandi eða fimm þúsund í Ástralíu,“ segir Magnús og bætir við að fyrir vikið séu tengslin milli aðstandenda Latabæjar og barnanna mun betri, sem sé í raun einn helsti kostur fyrirtækisins. Magnús skýrir einnig frá því að vegna þeirrar sjaldgæfu stöðu að höfundur, leikari og framkvæmda- stjóri þáttaraðarinnar sé einn og sami maðurinn hafi kastljós fjölmiðla beinst að honum í meira mæli en ella og hann hafi því átt auðveldara með að vekja athygli á fyrirtækinu. Framtíðin björt En skyldi framtíðin vera björt hjá hinum önnum kafna athafnamanni? „Þetta er bara eins og með alla vinnu, maður þarf að leggja mikið á sig og samkeppnin er mikil eins og Íslendingar þekkja manna best “ segir Magnús og bætir við að ef mað- ur leggi mikið á sig skili það yfirleitt árangri að lokum. „Sem dæmi um ár- angurin má nefna að nýleg könnun bendir til þess að 70% bandarískra mæðra þekki vörumerkið Latabæ [Lazytown].“ Á nýju ári hefjast sýningar ann- arrar þáttaraðar Latabæjar auk þess sem leiknar sýningar sem sameina söng og hreyfingu verða settar upp víðs vegar um heiminn. „Erum að ná þeim markmiðum sem stefnt var að“ Morgunblaðið/Eggert Meðal verðlauna er Magnús hlaut á árinu voru heiðursverðlaun Eddunnar sem hann veitti viðtöku með eftirminnilegum hætti. Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is Magnús Scheving flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.