Morgunblaðið - 31.12.2006, Side 35

Morgunblaðið - 31.12.2006, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 35 Reuters NEPALSKUR óeirðalögreglumað- ur forðar sér á hlaupum er til óeirða kom í höfuðborginni, Kat- mandú, í aprílmánuði. Þá komu saman þúsundir lýðræðissinna sem sem kröfðust þess að konungdæmi yrði lagt af í landinu. Í desem- bermánuði náðu skæruliðar maó- ista og flokkar þeir sem nú fara með völdin í landinu samkomulagi um bráðabirgðastjórnarskrá sem felur í sér að forsætisráðherra mun fara með þau völd sem konung- urinn áður hafði. Gyanendra kon- ungur rak ríkisstjórnina frá völdum síðla árs 2005. Í apríl í ár var hann hins vegar knúinn til að leggja nið- ur völd eftir fjölmenn mótmæli og götuóeirðir. Gyanendra heldur enn konungstitlinum en er nú valdalaus með öllu. Konungur hrakinn frá völdum Reuters INDVERSKAR lögreglusveitir beita öflugum vatnsdælum gegn stúdentum sem söfnðust saman í Nýju-Delhí í ágústmánuði til að mótmæla áformum um að tryggja fleiri námsmönnum úr röðum hinna stéttlausu pláss í háskólum landsins. Óeirðir á Indlandi Reuters ELDRI maður sogar sígarettu af áfergju eftir að honum hafði verið bjargað úr rústum heimilis síns á eyjunni Jövu í Indónesíu í janúarmánuði. Maðurinn fannst í rústunum fjórum dögum eftir að mikið aurflóð steyptist yfir þorpið Kemiri. Bjargað úr rústunum DONALD Rumsfeld, hinn umdeildi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá því í byrjun nóvembermánaðar að hann hefði ákveðið að láta af embætti. Repúblíkanaflokkur George W. Bush forseta hafði þá beðið afger- andi ósigur í haustkosningunum vestra og misst meirihluta sinn í báðum deildum Bandaríkjaþings. Ófarir Bandaríkjamanna í Írak voru taldar helsta ástæða þess að kjósendur sneru baki við flokknum og var afsögn Rumsfelds rakin til þessa. Rumsfeld var einn helsti skipuleggjandi innrásarinnar í Írak og hann var talinn ábyrgur fyrir því að meiri liðsafla skyldi ekki vera beitt. Margir halda því fram að Bandaríkjamenn hafi aldrei ráðið yfir nægilegum herstyrk í Írak til að tryggja þar öryggi almennings. Á myndinni kveður George W. Bush varnarmálaráðherrann eftir að hafa tilkynnt um afsögn hans. Rumsfeld kveður Reuters Reuters TIL mikilla óeirða kom í París, höfuðborg Frakk- lands, í marsmánuði þegar ungt fólk mótmælti áformum stjórnvalda um breytingar á vinnulöggjöf- inni. Kveikt var í bílum og verslanir rændar en milljónir manna tóku einnig þátt í friðsamlegum mótmælagöngum sem efnt var til sökum þessa. At- vinnulöggjöfin nýja átti að ná til fólks sem er yngra en 26 ára og var gert ráð fyrir tveggja ára reynslu- tímabili þar sem atvinnurekendur hefðu rétt til þess að reka starfsfólk án þess að þurfa að gefa upp ástæðu fyrir því. Taldi ríkisstjórn Frakklands að með þessu móti mætti auka sveigjanleika á vinnu- markaði. Svo fór að stjórnvöld drógu lagabreyt- inguna til baka. Nýrri vinnulöggjöf mótmælt í París Reuters LEIKMENN landsliðs Ítala í knatt- spyrnu halda verðlaunagripnum á lofti eftir að hafa sigrað Frakka í úr- slitaleik heimsmeistaramótsins sem fram fór í Þýskalandi. Fabio Can- navaro, fyrirliði Ítala, var síðan val- inn leikmaður ársins af FIFA, Al- þjóða knattspyrnusambandinu. Ítalir heims- meistarar í knattspyrnu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.