Morgunblaðið - 31.12.2006, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.12.2006, Qupperneq 16
16 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ÁRIÐ 2006 verður sennilega lengi í minnum haft hjá meðlimum Hjálp- arsveitar skáta í Hveragerði. Um miðjan síðasta dag ársins 2005 brann húsnæði sveitarinnar og nánast allt hafurtask í einni svipan þegar lítill neisti í flugeldageymslu varð að miklu báli með tilheyrandi spreng- ingum og neistaflugi. Að sögn sjón- arvotta skutust flugeldar sem geymdir voru í húsinu út um allar trissur og reykinn er lagði frá eld- inum mátti greina víða á Suðurlands- undirlendinu. Meðlimir sveitarinnar, sem telja á þriðja tug, urðu fyrir miklu tjóni, enda var húsnæðið annað heimili þeirra og þar eyddu þeir mestum frítíma sínum að sögn Lár- usar Guðmundssonar, fyrrverandi formanns hjálparsveitarinnar. „Þarna brann okkar annað heimili og nánast allur búnaður sveitarinnar auk þess sem 31 árs saga sveit- arinnar, gamlar fundargerðir, við- urkenningar og myndir hurfu,“ segir Lárus. Hann segir að gamlárskvöldið sjálft hafi verið mjög sérstakt og það gleymist seint. „Lítið var skotið upp þetta kvöld auk þess sem brennunni og áramótaballinu var frestað. Þegar maður fór út og horfði í kringum sig sá maður hvað fólkið var stjarft og andlitin tóm.“ Að sögn Lárusar voru björgunarsveitarmenn og bæjarbúar allir einhuga um að sveitina yrði að byggja upp á nýjan leik. Fyrstu daga hins nýja árs hafi tæki og búnaður farið að berast til Hveragerðis frá björgunarsveitum í nágrenninu og aðeins viku eftir brunann hafi sveitin orðið útkallshæf. „Menn voru strax ákveðnir í að halda áfram, við héldum áfram að æfa af kappi og sinntum út- köllum,“ segir Lárus. Bjartsýnn á framtíð sveitarinnar Þrotlaus vinna fór í uppbyggingu sveitarinnar næstu mánuðina og menn þurftu sjálfir að leggja út fyrir kaupum á grundvallarbúnaði, þar til tryggingarnar fengust greiddar. Lár- us segir að þrátt fyrir að ekki séu öll kurl komin til grafar sé sveitin búin að kaupa mikið magn af nýjum græj- um; vélsleðum, talstöðvum og sjúkra- búnaði. „Pressan hefur verið gífurleg á okkur enda fer mikil vinna í það að byggja svona lagað upp frá grunni,“ segir Lárus. „En stuðningurinn sem við höfum fengið er ómetanlegur og maður finnur fyrir honum hvar sem er þegar nafn sveitarinnar ber á góma,“ segir Lárus og nefnir sem dæmi að sveitinni hafi borist mjög veglegur styrkur frá Lionsklúbbi Húsavíkur. Hvað meðlimi björgunarsveit- arinnar varðar segir Lárus hópinn hafa eflst mikið og margir gamlir fé- lagar sem hafi verið búnir að draga sig í hlé hafi komið aftur og lagt sitt af mörkum. „Þetta var mjög öflugur hópur fyrir en hann er enn sterkari í dag,“ segir Lárus. Sveitin hefur að- hafst í bráðabirgðahúsnæði í ár en reiknað er með því að næsta vor verði nýtt hús risið á reitnum þar sem hið gamla brann. Lárus telur því ekki ástæðu til annars en að líta bjartsýnn fram á veginn. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Lárus stendur hér í brunarústum húsnæðis björgunarsveitarinnar. 31 árs saga hvarf í einu vetfangi Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is Lárus Guðmundsson „Ég hugsa oft um þetta og þegar ég lít til baka trúi ég því eiginlega ekki að hann hafi næstum því verið dá- inn,“ segir Marta Sigurjónsdóttir en hún og Hermann Sigurgeirsson eignuðust dreng á vormánuðum sem fæddist með alvarlegan hjartagalla og var vart hugað líf um tíma. Drengurinn, sem hlaut nafnið Birk- ir, fæddist í Vestmannaeyjum en að- eins tæpum tveimur klukkutímum eftir fæðinguna kom þangað lækna- lið frá Reykjavík og flogið var með Birki og foreldra hans á Landspít- alann í Reykjavík þar sem hann gekkst undir hjartaþræðingu. „Þeg- ar allt þetta var að gerast gerðum við okkur ekki grein fyrir ástandinu, hversu alvarlegt þetta var í rauninni. Það var einhvern veginn svo fjar- lægt að hann ætti það á hættu að deyja,“ segir Marta. Hún segir að skjót viðbrögð lækna og heilbrigð- isstarfsmanna hafi orðið til þess að ekki fór verr. „Þeir björguðu ein- faldlega lífi hans. Við vorum svo heppin með allt, einhvern veginn small allt saman,“ segir Marta. Fljótlega eftir að upp komst um hjartagallann var tekin ákvörðun um að fljúga með Birki til Boston, þar sem víxla átti æðunum á nýjan leik. Eftir 10 langa daga í Boston var talið að Birkir væri kominn á rétta braut og fjölskyldan lagði af stað heim á leið. Upprennandi fótboltapeyi Þegar Marta og Hermann komu aftur til Eyja með Birki litla létu Eyjamenn ekki á sér standa og tóku á móti ferðalöngunum með mynd- arbrag. „Við urðum heimsfræg í Vestmannaeyjum og stuðningurinn sem við fengum er ólýsanlegur,“ segir Marta. „Enn þann dag í dag vindur fólk sér upp að manni og spyr hvort þetta sé strákurinn.“ Birkir hefur náð mjög góðum bata og reiknar Marta með því að hann hætti á lyfjagjöf í janúar, þótt eftirlit verði haft með honum fyrst um sinn. „Þetta er þannig séð búið í okkar huga,“ segir Marta, enda sé ekki á Birki að sjá að hann hafi þurft að hafa jafnmikið fyrir fyrstu ævidög- um sínum og raun ber vitni. Marta segir Birki hið fullkomna barn; hann sofi með eindæmum vel, sé sjálfum sér nægur og dundi sér mikið. „Svo held ég að við séum með tvo upprennandi fótboltapeyja á heimilinu,“ segir Marta, en eldri bróðir Birkis, Baldvin Ingi, æfir fót- bolta af miklum móð. Þau verða því hæg heimatökin hjá Birki þegar fram líða stundir. Heimsfrægur í Vestmannaeyjum Birkir litli í faðmi fjölskyldunnar Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Birkir Hermannsson Halla telur að árið 2006 verði lengi í minnum haft. Íslendingar hafi fengið mikla umfjöllun á alþjóðavísu og lært að bregðast við henni. Morgunblaðið/Ómar „Það sem stendur upp úr á árinu er alþjóðleg umfjöllun um íslenskt við- skipta- og fjármálalíf og hversu óundirbúin undir það við vorum,“ segir Halla Tómasdóttir, sem ráðin var framkvæmdastjóri Við- skiptaráðs í ársbyrjun. Halla telur árið einstakt að því leytinu til að Ís- land hafi aldrei hlotið jafnmikla fjölmiðlaumfjöllun á alþjóðavísu. „Þekking á Íslandi hefur fram að þessu verið frekar takmörkuð og ef hún hefur verið fyrir hendi hefur hún verið af jákvæðari toga en nú. Við höfðum öll vanmetið mikilvægi þess að stunda mikil og góð al- mannatengsl og virkt upplýs- ingaflæði og því réðum við í raun ekki ferðinni í þeirri umfjöllun sem átti sér stað,“ segir Halla. En með vaxandi alþjóðlegri umræðu um Ís- land sköpuðust einnig tækifæri fyr- ir Ísland að mati Höllu. „Við ákváðum að grípa tækifærið og fengum öfluga fræðimenn til þess að taka saman upplýsingar og stunda síðan markvisst upplýsinga- starf um íslenskt fjármálakerfi á lykilmörkuðum erlendis,“ segir Halla og vísar til Mishkin- skýrslunnar sem Tryggvi Þór Her- bertsson og Frederic Mishkin tóku saman og var kynnt á vormán- uðum. „Skýrslan var lykilþáttur í að snúa umræðunni við og kjör banka og fyrirtækja í landinu bötn- uðu í beinu framhaldi af því. Það má því segja að hún hafi verið merkilegasta framlag Viðskiptaráðs á árinu,“ segir Halla. Aukin áhersla á samvinnu Áður en Halla tók við starfi sínu í Viðskiptaráði stýrði hún meðal annars framkvæmd átaksins Auður í krafti kvenna og hún viðurkennir fúslega að starfsvettvangur hennar sé karllægur, en aðeins ein önnur kona gegnir stöðu framkvæmda- stjóra þeirra 32 viðskiptaráða sem starfrækt eru í Evrópu. „Ég hef aldrei veigrað mér við því að vinna í karllægu starfsumhverfi og hef frá unga aldri verið á vinnustöðum þar sem ég hef verið eina konan eða ein fárra,“ segir Halla. Aðspurð um hvort áherslur Við- skiptaráðs hafi breyst í kjölfar þess að kona er nú komin í brúna tekur Halla fram að það eitt að vera kona eða karl geri engan merkilegan í sjálfu sér. „En áherslurnar eru al- veg örugglega ekki eins. Ég þekki bæði af rannsóknum og eigin reynslu sem starfsmannastjóri að oftar en ekki leggja konur áherslu á samvinnu en karlar á sam- keppni,“ segir Halla og heldur áfram: „Ég vil árangur en ég vil einnig virkja fólk til samvinnu. Mis- hkin-verkefnið reyndi mjög á sam- vinnu fólks, en án hennar hefði því aldrei verið lokið á svo stuttum tíma,“ segir Halla og telur að á þessu sviði nýtist hennar styrk- leikar vel, enda oft erfitt að fá aðila úr einkageiranum og þeim opinbera til að vinna saman að sameig- inlegum markmiðum. „Við erum mjög fámenn og ef við getum ekki unnið saman að því að halda uppi jákvæðri ímynd og orðspori þjóð- arinnar þá er það miður og bitnar einfaldlega á öllum.“ Tækifærið aldrei verið betra Halla bendir á að með þeim öru breytingum sem alþjóðavæðingin hefur haft í för með sér hafi staðan breyst mikið og lítil þjóð hafi nú mjög gott færi á því að verða stærri í upplifun heimsins. Íslend- ingar hafi alltaf verið góðir í því að láta landið virka stærra en það er, en tækifærið hafi samt aldrei verið betra viðskiptalega séð, og jafnvel menningarlega, en einmitt núna. „Þetta ár verður lengi í minnum haft og ég held að við höfum öll lært mjög mikið. Lærdómskúrfan er brött í ár hjá hverju einasta fyr- irtæki og hverjum einasta ein- staklingi í viðskiptalífinu og það er vel,“ segir Halla að lokum. „Lærdómskúrfan brött í ár“ Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is Halla Tómasdóttir Már Guðmundsson flugvélavirki var staddur í höfuðborg Líbanons, Beirút, þegar átök milli Ísraela og Hizbollah-samtakanna blossuðu upp í sumar. Már gisti ásamt tveimur félögum sínum á hóteli sem aðeins var í 3–5 km fjarlægð frá þeim svæðum þar sem sprengjur Ísraela féllu. Eins og mörgum er eflaust enn í fersku minni var Má og fimm öðrum Íslendingum meinaður að- gangur að rútum sem Norðmenn útveguðu og voru notaðar í þeim tilgangi að flytja fólk yfir til Sýr- lands. „Við vorum í ákveðinni hættu sem ég held að við höfum ekki áttað okkur almennilega á fyrr en eftir á,“ segir Már. Atburðarásin hefði átt sér stað óþægilega nærri dvalarstað þeirra og þar sem þeir hefðu ekki gert sér almennilega grein fyrir ástandinu hefðu þeir ekki fært sig um set fyrr en sólar- hring síðar. „Þegar fór að líða á ferðina áttuðum við okkur smám saman á stöðu mála, stræti borg- arinnar voru nánast auð og við vor- um hvað eftir annað stoppaðir af lögreglu og spurðir að því hvaða er- indi við ættum út,“ segir Már og kveður borgina hafa breyst mikið í kjölfar sprenginganna. „Annars er Beirút einn skemmtilegasti staður sem ég hef komið til, eins konar Majorka Mið-Austurlanda þar sem lítið ber á evrópskum túristum,“ segir Már. Spurður hvort hann hyggist heimsækja borgina á ný er Már ekki lengi að svara því játandi. „Ég stórefast reyndar um að ég geti fengið fjölskylduna með mér á allra næstu árum, en ég mun samt snúa aftur einhvern daginn.“ Morgunblaðið/Kristinn Má líkar vel við Beirút og líkir henni við Majorka Mið-Austurlanda „Mun snúa aftur einhvern daginn“ Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is Már Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.