Morgunblaðið - 31.12.2006, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
„Ég held að þetta sé besta árið mitt í
fótboltanum hingað til, þetta var í
raun hálfgert draumatímabil hjá
mér með Malmö því það gekk nánast
allt upp,“ sagði Ásthildur Helgadótt-
ir landsliðsfyrirliði í knattspyrnu,
leikmaður með Malmö FF í Svíþjóð
og bæjarfulltrúi í Kópavogi. Hún var
búsett á Íslandi á árinu en flaug
reglulega til Svíþjóðar til að taka
þátt í leikjum með sínu liði og stóð
uppi sem einn af bestu leikmönn-
unum í sterkustu deild í heimi.
Ásthildur flutti heim síðasta vetur
eftir að hafa leikið með Malmö í rúm
tvö ár og gekk til liðs við Breiðablik.
Forráðamenn Malmö töldu hana síð-
an á að leika áfram með þeim, enda
þótt hún stundaði vinnu á Íslandi,
sem verkfræðingur hjá Línuhönnun.
„Ég ætlaði alltaf að spila með
Breiðabliki en þegar ég fann að ég
var í góðri æfingu, hafði aldrei verið
í betra líkamlegra ástandi, þá tímdi
ég ekki að sleppa því tækifæri að
spila áfram úti. Fyrir knattspyrnu-
mann er alltaf skemmtilegast að
spila við bestu aðstæður og þar sem
gæðin eru mest. Ég er virkilega
þakklát vinnuveitendum mínum hjá
Línuhönnun fyrir að gera mér þetta
kleift, þeir studdu vel við bakið á
mér, en þessi ferðalög mín bitnuðu
að sjálfsögðu talsvert á vinnu minni
hjá fyrirtækinu.
Þetta var vissulega svolítið erfitt,
sérstaklega undir lokin á tímabilinu,
en ég ákvað að gera þetta svona,
eins vel og ég gæti, og er ánægð með
hvernig til tókst. Hér heima hélt ég
mér í formi með því að hlaupa sjálf
og þegar ég fór út í leikina náði ég
yfirleitt einni til tveimur æfingum
með liðinu í hverri ferð. Mér tókst að
halda mér í toppformi, líkamlega,
allt tímabilið, og um leið í góðri leik-
æfingu,“ sagði Ásthildur, sem varð
þriðji markahæsti leikmaður
sænsku úrvalsdeildarinnar með 19
mark í 21 leik, og hún var tilnefnd
sem einn af þremur bestu sókn-
armönnum deildarinnar.
„Mér tókst að skora fleiri mörk en
í fyrra, auk þess sem ég lagði upp
fleiri mörk og krækti í einhverjar
vítaspyrnur að auki. Þá voru mörkin
fjölbreytt, sem er alltaf gaman, og
svo var það mikill heiður að fá þessa
tilnefningu í lokin, því sænska úr-
valsdeildin er að mínu mati sterk-
asta deild í heimi um þessar mund-
ir.“
Ásthildur er ekki jafn ánægð með
frammistöðu íslenska kvennalands-
liðsins á árinu. „Nei, það vantaði ein-
hvern neista og stemmningu í liðið í
ár. Síðan hafa kynslóðaskiptin verið
talsverð, og í framhaldi af því vorum
við í vandræðum með varnarleikinn
og miðjuspilið. Breiddin er svo lítil
hjá okkur að það munar mikið um
sterka leikmenn sem hætta, eins og
t.d. gerðist með Laufeyju Ólafs-
dóttur. Auk þess þarf að bæta um-
gjörðina í kringum liðið, þar er
margt sem þarf að laga og er til-
tölulega einfalt að gera. En við eig-
um að vera á meðal tólf bestu liða í
Evrópu og ættum að eiga góða
möguleika á að komast í næstu úr-
slitakeppni Evrópumótsins, enda
lentum við þar í hagstæðum riðli,“
sagði Ásthildur Helgadóttir, sem er
bæði leikhæsti og markahæsti leik-
maður kvennalandsliðs Íslands frá
upphafi.
„Þetta var hálfgert
draumatímabil hjá mér“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ásthildur Helgadóttir var í hópi markahæstu og bestu leikmanna sænsku
úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
Ásthildur Helgadóttir
„ÞETTA er bara alveg eins og í gamla daga.
Við gerum út á efri brú og horfum svo eftir
hval. Ef við sjáum einn reynum við að átta
okkur á hvað hann er stór og hvort ekki sé
allt í lagi með dýrið. Svo byrjum við að elta
hann,“ segir Sigurður G. Njálsson, skipstjóri á
Hval 9, ánægður með að hvalveiðar í atvinnu-
skyni séu hafnar að nýju. „Sumir hvalir eru
varir um sig svo það er ekki auðvelt að ná
þeim enda eru skipin ekki beint nútímaleg og
því ekki með nein tæki til þess. Maður þarf að
reyna að hugsa eins og hvalur,“ bætir Sig-
urður við.
Hvalveiðar voru bannaðar fyrir tveimur
áratugum og í framhaldinu var einnig lagt
bann við hvalveiðum í vísindaskyni. Árið 2004
hófust hrefnuveiðar í vísindaskyni að nýju og
nú hefur sjávarútvegsráðherra gefið leyfi til
að veiða 9 langreyðar og 30 hrefnur í atvinnu-
skyni á fiskveiðiárinu 2006–2007.
Hjá Hval hf. síðan 1954
Skiptar skoðanir eru um hvalveiðar bæði
hér heima sem erlendis en Sigurður telur þær
nauðsynlegar til að viðhalda jafnvægi í lífrík-
inu. Hann hóf störf hjá Hval hf. árið 1954 og
hefur starfað sem messi, háseti og stýrimaður
og svo sem skipstjóri. „Fyrst þegar ég byrjaði
var mest verið að veiða búrhval og hann var
nýttur í lýsi og mjöl. Síðar var byrjað að nýta
kjötið en fyrst um sinn fór það mest í hunda-
fóður til Bretlands. Seinna byrjuðu Japanar
að kaupa af okkur kjötið til manneldis og þá
varð gjörbreyting á okkar starfi enda hækkaði
verðið á kjötinu mjög mikið,“ rifjar Sigurður
upp. „Veiðunum var mjög vel stýrt og okkur
var refsað ef við tókum of marga hvali. Við
máttum því alls ekki ofveiða hvalinn eins og
hefur verið gert í mörgum fiskstofnum.“
Sigurður segist hafa orðið miður sín þegar
hvalveiðar voru bannaðar árið 1986 en hann
þóttist þó viss um að það yrði aðeins til
skamms tíma. „Ég gerði út á trillu í sjö ár og
svo vann ég í tæp tíu ár hjá Hafnarfjarð-
arhöfn. Það var því auðvitað sérstakt fyrir
mig að byrja aftur að veiða hval enda var ekki
beinlínis bjart framundan í þeim efnum.“
Yngri kynslóðir Íslendinga þekkja eflaust
lítið til hvalveiða en Sigurður segir að allir
sem störfuðu á Hval 9 á árinu hafi verið gaml-
ir hvalveiðimenn. „En ef ríkisstjórnin gefur
háan kvóta á næsta ári þarf helst að hafa tvö
skip og þá má ætla að við þurfum að ráða
fleira fólk til starfa, enda eru sumir okkar að
hætta sökum aldurs,“ segir Sigurður sem er
orðinn 67 ára og á því ekki mörg ár eftir í
bransanum.
„Maður þarf að reyna
að hugsa eins og hvalur“
Morgunblaðið/Sverrir
Sigurður G. Njálsson skipstjóri er ánægð-
ur með að vera farinn að veiða hval að
nýju en hann hóf upphaflega störf hjá
Hval hf. árið 1954.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
Sigurður G. Njálsson
„Ég fór frá því að vera algjör
áhugaljósmyndari yfir í það að
vera starfandi ljósmyndari og fékk
óvænt alls kyns tækifæri sem mig
hefði ekki órað fyrir að mér
mundu gefast í ársbyrjun,“ segir
Rebekka Guðleifsdóttir ljósmynd-
ari, sem skaust upp á stjörnuhim-
ininn í ár og hlaut umfjöllun í The
Guardian, Observer og Wall
Street Journal auk þess sem hún
nýtur gríðarlegra vinsælda á ljós-
myndavefnum flickr.com. „Það er
margt búið að gerast í ár og öll
athyglin og umtalið sem ég hef
fengið hefur verið mjög hvetjandi
og sannfært mig um að ég væri á
réttri braut í lífinu,“ segir
Rebekka.
Aðspurð hvað framtíðin beri í
skauti sér segist Rebekka ekki
skipuleggja sig langt fram í tím-
ann, heldur nægi henni að taka
eina viku í einu. Hún segist hafa
þurft að afþakka ýmis verkefni að
undanförnu til að geta einbeitt sér
að skólanum. „Ég er tiltölulega
nýbyrjuð á þessari braut og vildi
ekki taka þann pólinn í hæðina að
fara að vinna sem ljósmyndari,
heldur ætla ég fyrst og fremst að
þróa mig sem listamann.“
Rebekka hefur þó tekið ýmis
minni verkefni að sér, s.s. port-
rettmyndir og listrænar myndir af
hljómsveitum. „Þetta eru verkefni
sem gefa mér lausan tauminn sem
listamanni og því hef ég sinnt
þeim,“ segir hin efnilega listakona
að lokum.
Athyglin og um-
talið hvetjandi
Ljósmynd/Rebekka Guðleifsdóttir
Kuldaleg sjálfsmynd Rebekku í íslenskri vetrarsól. Myndin birtist á vefn-
um flickr.com á dögunum og hlaut mikið hrós frá notendum vefsins.
Rebekka
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
Guðleifsdóttir
Hjörvar Steinn Grétarsson, hefur ekki set-
ið auðum höndum í ár, en hinn 13 ára
gamli Reykvíkingur gerði sér lítið fyrir og
vann Norðurlandamótið í skólaskák í sínum
aldursflokki, varði titilinn unglingameistari
Reykjavíkur, gerði jafntefli við Lenku
Ptacnikovu, Norðurlandameistara kvenna,
og vann sér rétt til þátttöku á Íslands-
mótinu í skák, yngstur keppanda frá upp-
hafi, svo fátt eitt sé nefnt.
„Það hefur verið mikið að gera í skákinni
í ár en það minnkar yfir hátíðarnar. Svo
fer allt á fullt í febrúar, mars,“ segir
Hjörvar. Í febrúar hyggst Hjörvar taka
þátt í Norðurlandamóti og öðru alþjóðlegu
móti í millitíðinni. Aðspurður hvort hann
hyggist verja Norðurlandatitilinn, segir
Hjörvar á brattann að sækja, enda sé hann
nú á yngra ári en hann hafi verið á því
eldra þegar hann vann titilinn.
Að mati Hjörvars var Norðurlandamótið
sem hann vann ekki erfiðasta mót sem
hann hefur tekið þátt í og hann er ekki
viss um að sigurinn í Finnlandi hafi verið
sá stærsti á ferlinum, heldur hafi það verið
meira afrek að komast áfram í áskor-
andaflokki. „Sumum andstæðingum rúllaði
ég alveg upp og átti svo sem engar erfiðar
skákir, þótt margir andstæðingarnir hafi
náttúrulega verið góðir á sínu sviði,“ segir
Hjörvar.
Hjörvar er nú í áttunda bekk og segir
ekkert stórmál að sameina skákina og skól-
ann, allt hafist þetta með vinnuseminni.
Hann er þó hræddur um að minni tími gef-
ist fyrir skákina þegar hann fer í fram-
haldsskóla. „Ég held samt áfram í skákinni
þar til mér finnst þetta orðið leiðinlegt,
sem ég held ekkert að muni gerast á næst-
unni,“ segir Hjörvar. „Mér finnst skákin
mjög skemmtileg og félagsskapurinn er
góður.“
Morgunblaðið/Ásdís
Hjörvar Steinn hefur það náðugt yfir hátíðirnar og safnar orku fyrir átök á komandi ári
Hefst allt með
vinnuseminni
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
Hjörvar Steinn
Grétarsson