Morgunblaðið - 31.12.2006, Side 34
34 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
STUÐNINGSMAÐUR leggur hönd sína á kistu Augusto Pinochets, einræð-
isherra í Chile frá 1973 til 1990. Pinochet lést í Santiago, höfuðborg Chile, 10.
desember. Hann var 91 árs að aldri. Pinochet var ábyrgur fyrir hroðalegum
grimmdarverkum í valdatíð sinni
þegar þúsundir manna sættu pyntingum og hurfu. Sagt er um Pinochet að
hann hafi klofið chilesku þjóðina jafnt lifandi sem látinn. Margir telja hann
hafa bjargað Chile frá því að verða marxískt ríki er hann steypti kjörinni
stjórn Salvadors Allende árið 1973. Aðrir telja að hann hafi verið grimdd-
arseggur hinn mesti sem eitrað hafi allt samfélagið og geri það enn eftir
dauða sinn. Þrátt fyrir nokkrar tilraunir tókst aldrei að fá Pinochet dreginn
fyrir dóm vegna glæpaverka herstjórnarinnar. Þykir mörgum sem það hljóti
að teljast mikið áfall fyrir réttarkerfið í Chile. Þúsundir stuðningsmanna Pi-
nochets syrgðu hann á hinn bóginn opinberlega og sóttu útför hans.
Pinochet allur
Reuters
Reuters
HRAUN rennur niður hlíðar eldfjallsins Mayon suður af Manila, höf-
uðborg Filippseyja. Eldfjallið gaus í ágústmánuði. Mayon sem er á
eyjunni Luzon er virkasta eldfjall Filippseyja og hefur gosið rúmlega
50 sinnum á síðustu 400 árum. Flytja þurfti um 40.000 manns á brott
þegar eldfjallið gaus í ár. Í nóvembermánuði fórust hundruð manna í
þorpum í nágrenni eldfjallsins þegar fellibylurinn Durian fór þar yfir.
Flestir týndu lífi í gríðarlegum aurskriðum sem fylgdu óveðrinu.
Eldgos á Filippseyjum
Reuters
FRANSKI knattspyrnusnilling-
urinn Zinedine Zidane „skallar"
ítalska varnarmanninn Marco Mate-
razzi í úrslitaleik heimsmeist-
arakeppninnar í knattspyrnu. Úr-
slitaleikurinn, sem fram fór 9. júlí,
var jafnframt kveðjuleikur Zidane
og var þetta því síðasta „afrek" hans
á knattspyrnuvellinum þar eð hann
var rekinn út af. Atvikið vakti mikla
athygli um heim allan og kom síðar í
ljós að Materazzi hafði látið ófögur
orð falla um ættmenni Zidane. Þótti
þetta dramatískur en jafnframt
heldur dapurlegur endir á glæsi-
legum ferli Zidane sem lék með stór-
liðum á borð við Juventus og Real
Madrid.
Eftirminnileg kveðjustund
Fréttamyndir af
erlendum vettvangi
Reuters
ELDUR stígur upp af alþjóðaflugvellinum í Beirút, höf-
uðborg Líbanons, eftir loftárás ísraelska flughersins. Ísr-
aelar réðust í sumar inn í landið í því skyni að uppræta
Hizbollah-hreyfinguna og frelsa tvo hermenn sem skæru-
liðar höfðu á valdi sínu. Aðgerðin kallaði miklar hörm-
ungar yfir íbúa Líbanons og Ísraelsher varð fyrir umtals-
verðu mannfalli. Aðgerðin þótti mistakast um flest og fór
svo að lokum að komið var á vopnahléi. Innrásin þótti
mikið áfall fyrir stjórn Ehuds Olmerts, forsætisráðhera
Ísraels. Ekki tókst að ná hernaðarlegum markmiðum
hennar og liðsmenn Hizbollah lýstu yfir sigri. Sýnt þykir
að Ísraelar hætti nú við einhliða brottflutning landtöku-
manna frá byggðum á Vesturbakkanum sem Olmert hafði
boðað.
Árás á Líbanon