Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.04.2009, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 06.04.2009, Qupperneq 26
 6. APRÍL 2009 MÁNUDAGUR4 ● fréttablaðið ● páskaferðir Fallegt útsýni er eitt af því sem Íslendingar eiga kapp nóg af. Fjöll og hólar eru náttúrulegir útsýnis- pallar og má finna í öllum landshlutum. Að klífa fjall í góðu veðri og líta til allra átta þegar toppnum er náð er sannar- lega ljómandi tilfinning. Þá líta Íslendingar yfir ríki sitt og seinna meir er hægt að segja: „Sjáðu fjallið, þarna fór ég.“ - sg Náttúrulegir útsýnispallar Þótt Reykjanes sé frekar flatt er þar að finna nokkra hóla og jafn- vel fjöll. Ofan af Keili er víðsýnt til allra átta. Auðvelt er að ganga á fjallið að norðaustanverðu. Ofan rennisléttri og hrjóstrugri hásléttu Bolafjalls er mikilfeng- legt útsýni yfir Ísafjarðardjúp. Bolafjall stendur við Bolungarvík og er 638 metra hátt. Þar var ein af fjórum ratsjárstöðum sem Ratsjárstofnun rak fyrir hönd varnarliðsins. Brattur akvegur liggur á Bolafjall en hann er þó aðeins opinn í júlí og ágúst. Kambarnir er hún kölluð brekkan ofan við Hveragerði. Efst í henni er bílastæði og útsýnisskífa þar sem gott er að nema staðar og líta yfir flatlendi Suðurlands og allt til Vestmannaeyja. Drangey rís sæbrött fyrir miðjum Skagafirði. Frá henni er mikið víðsýni um byggðir fjarðarins. Drangeyjar er fyrst getið í Grettis sögu en þar hafðist útlaginn við seinustu árin ásamt bróður sínum Illuga og þrælnum Glámi og þar var hann veginn, helsjúkur, í skála sínum af Þorbirni öngli og mönnum hans. N Ý T T 2 0 % k y n n i n g a r a f s l á t t u r Ármúla 10 | sími: 5689950 | www.duxiana.is TILBOÐ 2 DUX 1001/Original 90x200cmXtandard yfirdýna 180x200cmAscot höfuðgafl og rykfaldur Aðeins kr. 420.000 3 litir: Beige, brúnt og svart Takmarkað magn Eitt skal yfir allt ganga segir Ragna Aðalsteinsdóttir bóndi á Laugabóli við Ísafjarðardjúp, sem fær sér betri mat á páskum en þá verða kindurnar líka að fá betra hey. „Ég geri nú ekki mikið til til- breytingar á páskunum, það verður jú að gera sömu verkin og vanalega,“ segir Ragna. „Jú, það er nú alltaf betri matur á borðum,“ segir hún. „En þá fá kindurnar náttúrlega betra hey, það dugir ekki að hugsa eingöngu um mannfólkið; skepnurnar verða líka að fá betra að bíta.“ Hún segir heyið vera í mörgum gæðaflokkum og fer það eftir ýmsu sem erfitt er fyrir borgar- börnin að greina frá. Hún segir enn fremur að dýrin skynji inn- ræti manna en þó skynji þau ekki sérlegan hátíðarblæ þótt hátíð sé í bæ. Ragna segir að ekki sé hægt um vik fyrir sveitunga í Inndjúpi að fara til kirkju um páskahátíð- ina en guðsþjónustur eru fátíðar í kirkjum sveitarinnar. Í Inndjúp- inu býr þó einn þekktasti guðs- maður þeirra Vestfirðinga en það er séra Baldur Vilhelmsson, sá sami og sagðist hafa gaman af því að jarða framsóknarmenn. Hann hefur sest í helgan stein fyrir all- mörgum árum. - jse Páskafæði fyrir menn og dýr Þegar Ragna gerir betur við sig en venjulega skal það sama ganga yfir skepnurnar, sem fá betra heyið um páskana.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.