Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er mánudagurinn 6. apríl, 96. dagur ársins. 6.45 13.32 20.19 6.27 13.16 20.08 Opið 07 til 01 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is F í t o n / S Í A www.icelandexpress.is Heimsborg Finnst þér gaman að versla, borða indverskt, kíkja á söfn eða bara týnast í iðandi mannlífi? London er málið, heillin. Vorin eru líka einstaklega spennandi tími í London. Með hækkandi hitastigi lifnar borgin við og nóg um að vera fyrir alla. Bókaðu spennandi vorferð til London á www.icelandexpress.is Ljúfa London! Tónleikaferðir, fótboltaferðir, Formúla 1, golfferðir til Manor of Groves, verslunarmannahelgin í London. Nánar á www.expressferdir.is og í síma 5 900 100 Express ferðir bjóða fjölbreyttar og skemmtilegar ferðir til London! Það er skylda að heimsækja Tate Modern nýlistasafnið. Þar eru alltaf fram- sæknar og umtaðalar sýningar í boði. Áhugafólk um prinsa, drottningar, gamla kónga, kastala og menn með stórar loðnar húfur finnst alveg eðalgaman í London! GATWICK EXPRESS Það tekur aðeins 25 mín. að skutlast niður í bæ 25 mín. Á tímum sífelldra ótíðinda var notalegt að rekast fyrir stuttu á litla undirmálsfrétt um eftirlætis- hugðarefnið uppeldismál, sem þó var í þessu tilfelli svolítil heims- endaspá eins og allt hitt. Þar mátti sjá að þau lúsheppnu börn sem eiga dásamlega foreldra munu síðar verða líkleg fórnarlömb hroðalegr- ar tilvistarkreppu. Út af dekrinu altso. ÞAÐ ER samkvæmt þessu ekki svo að bara þeim börnum sem búa við ólán sé hættast við að verða tak- mörkunum uppeldisins að bráð, heldur líka hinum sem eiga sælu- ríka æsku. Litlu dekurgrísirnir sem við ölum upp í mjúkri bómull verði skráplausir eins og skjald- bökuegg og eigi sér varla við- reisnar von þegar út í hinn harða heim er komið. Fullorðin verði þau sjálfhverfar rolur sem guggna við minnsta snefil af gagnrýni. VIÐ SEM stóðum í þeirri meiningu að til að vinna Nóbelinn í foreldra- hlutverkinu þyrfti að kvaka við þau viðstöðulaus aðdáunarkvæði um hæfileika þeirra, innri og ytri fegurð, gæsku og greind. Höfum pukrast með eigin bresti, vandað okkur við að hækka ekki róminn, leiðbeint með ástúð, beitt virkri hlustun 24/7, nært, hvatt, stutt, huggað og hughreyst baki brotnu. Allt svo þau yrðu stór og sterk og fengju óbilandi trú á sjálfum sér og mannkyninu. Höfum dulbúið brokkólí og gulrætur í fyndnum samlokuköllum sem tekur óratíma að föndra, lesið uppbyggilegar barnabókmenntir minnst daglega og laumað stafrófskennslu með- fram, slökkt á fréttunum og sungið í staðinn í bílnum til að efla tengsl- in. Umborið allskyns heimtufrekju og ofbeldi með óhagganlegri yfir- vegun. Við vorum úti á túni. EF NOKKUR leið á að vera að bæta fyrir klúðrið og koma krakkagrísunum til manns þarf nú að endurskoða uppeldisáætl- un heimilisins. Hér eftir verður bara hrósað á laugardögum. Hina dagana sýnum við þeim reglulega hversu miklu flinkari við erum að teikna og reikna, hlæjum kvikind- islega að mistökum og látum þau sjálf sjá um þvottinn sinn. Förum með þau í frostkaldan útiklefann í sundi. Á því sem áður var kall- að kósíkvöld verður nú horft misk- unnarlaust á Beitiskipið Potemkin og annan alþjóðlegan fróðleik en húslesturinn lagður undir fund- argerðir búnaðarþings. Þau sem vilja eignast samkeppnishæf börn verða nefnilega að vera grimm til að vera góð. Samkeppnishæf börn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.