Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2007, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 15 Sigríður Sumarið með Moniku er trúlega ein aðgengilegasta mynd leikstjórans Ingmar Bergman. Gláparinn Íupphafi þorra þegarfrostið bítur kinn dett- ur mér helst í hug að mæla með mynd sem kemur hita í kroppinn. Sólargeislar verma unga elskendur í sænska skerjagarðinum í mynd- inni Sumarið með Moniku (Sommaren med Mo- nika). Þetta er trúlega ein aðgengilegasta mynd leikstjórans Ingmar Bergman. Hún er frá árinu 1953, byggð á bók eftir Per Anders Fogelst- röm og hefur fallið í skuggann af meist- araverkum sem hann gerði síðar á ævinni. Sum- arið með Moniku fjallar á óvenju opinskáan og raunsæjan hátt um ást- arsamband unglinganna Moniku og Harry, sem leikin eru af Harriet And- ersson og Lars Ekborg. Mörg höfundareinkenni Bergmans eru þegar greinileg og gullfalleg myndatakan er í höndum Gunnars Fischer. Sigríður Pétursdóttir útvarpsmaður Lesarinn Orð eru geimskip, kafbátar, vængir, þaufara með okkur upp til himna og niður til vítis, fram og til baka, ætli það sé ekki þess vegna sem ég byrjaði snemma að lesa, og mun halda því áfram þar til eitthvað dimmt stöðvar mig. Ég les yfirleitt nokkrar bækur í einu, fer á milli ljóðabóka, grúska í sagnfræði, en þó ósjaldan ein eða tvær bækur sem fá mesta at- hygli, núna eru það Primal Vision, safn prósa og ljóða eftir Gottfried Benn, eitt af áhrifa- mestu þýsku skáldum síðustu aldar, og Lykkelige Kristoffer eftir Danann Martin A. Hansen, bók sem ég hreifst ákaflega af fyrir einum tíu árum og hlakka til að endurlesa, söguleg skáldsaga, hefur verið líkt við Fall konungsins eftir annan Dana, Johannes V. Jensen, við erum því að tala um stórmeistara, báðir töframenn í stíl en stíllinn „er æðri sann- leikanum því hann ber í sér staðfestingu sjálfrar tilverunnar“ skrifaði Benn fyrir rúm- um 50 árum; það er eftir miklu að slægjast í bókum Benn. Og svo er ég ennþá að hugsa um andrúmið í Theresu, bók Francois Mauriac sem Kristján Árnason þýðir ákaflega vel, hún kom út hjá Hávallaútgáfunni í fyrra, það er kraftaverkaútgáfa. Þeir sem eiga ekki The- resu, og smásagnasafn Gógóls sem kom líka út hjá þeim, ættu að drífa sig í næstu bókabúð; þær kosta lítið, en gefa mikið. Jón Kalman Stefánsson rithöfundur Jón Kalman „Er ennþá að hugsa um andrúmið í Theresu, bók Francois Mauriac.“ Yfir 1800 lausnir bárust á verðlaunagátunum sem birtust í Lesbókinni á Þorláksmessu. All- nokkuð var af villum í innsendum lausnum, sér- staklega í krossgátunni og helzti fingurbrjót- urinn í myndagátunni var „enda á“, þ.e.a.s. stafurinn Á sem var teiknaður úr garnendum. Verðlaunahafar í krossgátunni eru: 25 þúsund kr: Eiríkur Þormóðsson, Ögurási 3, Garðabæ 210. 20 þúsund kr: Gunnar Þór Þórhallsson, Strandvegi 2, Garðabæ 210 og Tómas Tómasson, Vaglaseli 2, Reykjavík 109. Verðlaunahafar myndagátunnar eru þessir: 25 þúsund kr.: Sólveig Sigurbjörnsdóttir, Óspak- sstöðum, Hrútafirði, Staður 500. 20 þúsund kr.: Reynir Brynjólfsson, Víðiteig 28, Mosfellsbæ 270 og Sigrún Sighvatsdóttir, Fífuseli 15, Reykjavík 109. Lausn myndagátunnar var þessi: Margir bera ugg í brjósti um hver verða örlög tungumáls okk- ar enda á íslenskan í vök að verjast um þessar mundir.Tilvera þjóðarinnar byggist á henni. Aldrei má sofna á verðinum. Lesbókin þakkar lesendum sínum þátttökuna. Verðlaunagáturnar

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.