Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.2007, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 12.05.2007, Blaðsíða 2
Eftir Jón Karl Helgason jkh@hi.is G ott kvöld öllsömul og velkom- in á þessa kosningavöku sjónvarpsins, stemningin hérna í Helsinki er hreint út sagt mögnuð, enda styttist í að frambjóðendur stígi á svið, flytji loforð flokkanna, hver með sínu nefi, og fyrstu tölur fari að berast, þær koma í stafrófsröð, fyrst frá Austfjörðum, síðan Álandseyjum og Írak og nú er bara að bíða og sjá hvernig fer, veðbankar hafa verið að veðja á okkar mann enda hefur hann fullyrt að ef hann fái enginn atkvæði þá ætli hann ekki að vinna keppnina, en samkvæmt síðustu skoðannakönnunum gæti Ómar náð langt, nema Ske kynni að þeir Guðmundur Steingríms og Róbert komi á óvart í brekkusöngnum með Árna, og svo er Heiða auðvitað í baráttusæti með þetta líka fína lag eftir Dr. Gunna, en það er við ramman reip að draga, íslenski hópurinn hefur þurft að glíma við tæknileg mistök og í hópi erlendu keppendanna eru, auk full- trúa hinna staðföstu þjóða, finsk skrímsli, rússneskar babúskur, ekkert landsbyggð- arpakk, suður-amerískir innflytjendur og danskur söngfugl af íslenskum ættum, að ógleymdum hinum glysgjarna Boy George fjörutíu kílóum síðar - ég lýg þessu ekki: maðurinn hringsnýst eins og diskókúla á miðju sviðinu - enda heyrði ég því fleygt í vinstri-græna herberginu áðan að það sé bagalegt fyrir væntanlega stjórnarmyndun að okkar maður sé hvorki rauðhærður né ljóska en við tökum því eins og hverju öðru hundsbiti enda eigum við von á góðum gest- um hingað í viðtal, nokkrum flokkseig- endum, bresku Íslandsvinunum sem fylgd- ust með forkeppninni heima, ásamt netlögreglukórnum og hásum áhangendum handboltalandsliðsins og svo sýnum við upptökur frá kosningavökum víðsvegar um Hótel Borg, að ógleymdum þrautreyndum skemmtiatriðunum þeirra spaugstofumanna enda skiptir stöðugleikinn öllu, gleymum ekki að kosningar eru ekkert grín („ég er ekki að grínast“), þetta snýst um að kjósa betri framtíð, hefja allt annað líf á öðrum hnöttum, velja forystusauði fyrir íslenska þjóð, fella stóriðjustefnuna að nýjum orða- leppum, ekkert stopp á hana, hringja inn nýja tíma með gömlum tuggum, og stjórn- málafræðingarnir verða auðvitað á sínum stað til að lesa úr lófa þínum og segja álit sitt á auglýsingakostnaði fylkinganna, fylgi- ssveiflum og klæðaburði keppenda, já svo að segja öllu nema auðvitað tónlistinni og pólitíkinni, enda algjör aukaatriði, mestu skiptir að opna hjarta sitt, fá yfirdrátt hjá gleðibankanum og selja sig dýrt, það er far- ið að vora hérna í Helsinki, gamli bærinn og hálendið á brunaútsölu, allt á að seljast nema hvað rúmlega þriðjungur vill Stjórn- ina áfram, þriðjungur vill Siggu Beinteins og restinni er nokk sama, svo framarlega sem pítsurnar komi á réttum tíma og fjar- stýringin klikki ekki og svo vonumst við til að úrslitin liggi fyrir einhvern tímann um tíuleytið í kvöld eða fyrramálið, það verður sigurstund því allir flokkar eru bæði að missa fylgi og bæta við sig, allt eftir því við hvaða könnun er miðað, og það skemmtir ekki heldur fyrir að listahátíð var að hefj- ast, hér áðan rakst ég á skjögrandi álrisa á flækingi um miðbæinn, hann var með axla- bönd og belti og nýbúinn að höggva stræt- isvagn í herðar niður, hélt tópaskröfuspjald- inu hátt á loft, bauðst til að spila bæði við brúðkaup og jarðarför ríkisstjórnarflokk- anna þegar hann væri búinn með númerið sitt hér í kvöld og áður en við kvöddumst sagðist hann eiga von á því að norsku ráð- herrarnir fengju mörg stig frá okkur að þessu sinni, enda hefðu Norðmenn lofað að sjá um landvarnirnar heima næstu tólf- hundruð sextíu og tvö árin. Já, kæru áhorf- endur, það er góður andi í íslenska hópnum, stöðug upplausn, sólin kemur upp fyrir all- ar aldir í fyrramálið og aldrei að vita nema það hlaupi á snærið hjá okkur að þessu sinni. Einu sinni einu sinni enn Morgunblaðið/Eggert Fyrstu tölur „... enda heyrði ég því fleygt í vinstri-græna herberginu áðan að það sé bagalegt fyrir væntanlega stjórnarmyndun að okkar mað- ur sé hvorki rauðhærður né ljóska en við tökum því eins og hverju öðru hundsbiti enda eigum við von á góðum gestum hingað í viðtal, ...“ FJÖLMIÐLAR » ... en það er við ramman reip að draga, íslenski hóp- urinn hefur þurft að glíma við tæknileg mistök og í hópi er- lendu keppendanna eru, auk fulltrúa hinna staðföstu þjóða, finsk skrímsli, rússneskar ba- búskur, ekkert landsbyggð- arpakk, suður-amerískir inn- flytjendur og danskur söngfugl af íslenskum ættum, ... 2 LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ lesbók Eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sith@mbl.is ! Ég hefi búið til nýtt hugtak: póst- mótþrói. Mér finnst mjög við hæfi að búa til slíkt orð, allir eru alltaf að tala um póst-hitt og póst-þetta, póst- módernisma, póstkólóníalisma, póstrokk, póstpopp – er það ekki örugglega til? – tölvupósta og pósthús (sem eru í dauðateygjunum, nema um jólin), póstsögu og ruslpóst. Björk hitti naglann á höfuðið 1995 þegar hún skírði aðra breiðskífu sína fyrir alþjóðamarkað Post og var í jakka með flugpóstumslags- mynstri. Enn betri var titillinn á rímixinu, Telegram. Fyrst sendir maður handskrifað bréf í flugpósti. Svo sendir maður skeyti, því það er alltaf minni og minni tími fyrir samskipti. Þannig lýsti Björk samtímanum. Mig minnir annars að hún hafi sagt í við- tölum að titlarnir tengdust ömmu hennar, kannski voru plöturnar bréf frá London til ömmu á Íslandi. Mig minnir að það hafi ver- ið þannig. En þetta var á síðustu öld, mig gæti misminnt. En hugtakið mitt, póstmótþrói, er ekki mótþrói í garð bréfasendinga eða póstþjón- ustunnar yfirleitt. Það er ástandið sem kemur á eftir því að vera á móti einhverju. Eins og þegar maður vex upp úr því að vera unglingur. Eða vex frá því að vera skuld- bindingafælinn (þetta eru hugtök úr róm- antískum gamanmyndum, ekki til í veru- leikanum). Eða þegar maður vex upp í stríði. Hvernig verður manni þá innan- brjósts, að stríðinu loknu? Þegar allur móþrói hefur verið kæfður í blóði, sorg, fréttamyndum, flótta, endurbyggingu. Og sýndarsáttmálum. Þá ríkir póstmótþróinn. Póstmótþrói ríkir líka í fyrrum komm- únistaríkjum evrópskum þar sem mótþrói gagnvart kapítalismanum, einstaklings- hyggjunni og öðrum bráðhættulegum vest- rænum gildum var brýndur um áratuga- skeið. Nú vaða þar uppi auglýsingaskilti, ruslblöð, nýríkidæmi, bíóhlé, bloggarar, valkvíði, yfirvinna, japönsk tækni, skandin- avísk loftljós, mafíur og annar lúxus, sann- ur eða upploginn, og margir þeirra sem vörðu einangrunina hvað hatrammast aka nú um á Cherokee og reka eigin fyrirtæki. Já, ég veit, þetta er einfaldað dæmi. Naívt. En stundum þarf að gera meira en gott þykir til að útskýra ný (naív?) orð. Póst- mótþrói heitir það líka þegar stjórnarand- stæðingar komast í stjórn, hætta sam- stundis að vera á móti því sem lagt er fram, leggja sjálfir fram málin og njóta þess að horfa á hina gera sér upp viðbjóðinn. Innst inni eru nefnilega allir sammála – stundum er póstmótþrói sýndarhegðun. En póstmótþrói er hins vegar ekki það sama og uppgjöf. Póstmótþrói ber alltaf í sér mótþróann sjálfan með einhverju móti, ummerki eftir atið, ör eftir átökin, tor- tryggni gagnvart fyrrum andstæðingum – póstmótþrói er eins og óbærilegur léttleiki, ekki fullkominn léttleiki heldur svo óbæri- legur á köflum að um hann verður að semja nýtt hugtak. Sá sem haldinn er póstmót- þróa hefur annað hvort tapað, eða séð að mótþróinn hefur ekkert upp á sig og gert sér upp linku til þess að grafa undan ástandinu með öðrum hætti. Hann gengur til liðs við valdhafana, andstæðingana, for- eldrana, nágrannana (kapítalismann?) og molar styrk þeirra innan frá. Þriðji kost- urinn er auðvitað að mótþróagemsar átti sig á því að þeir höfðu rangan málstað að verja. Fjórði kostur er að upphafleg upp- reisn beri í raun árangur, en þá heitir til- finningin sigurvíma. Og mun vera sjaldgæf í hreinu formi. Við bíðum og sjáum hvað gerist í kvöld, við bíðum og sjáum hvað gerist í Palestínu og í Tíbet, við bíðum og sjáum hvað gerist hjá erfiðu unglingunum á efri hæðinni. Mannleg hegðun er óútreiknanleg. Við reynum samt af veikum mætti að gefa að- stæðunum viðeigandi heiti. Póstmótþrói. Ég ætla að tryggja mér einkaleyfi fyrir orð- inu. Póst- mótþrói UPPHRÓPUN Lesbók Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Ritstjórnarfulltrúi Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýs- ingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.