Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.2007, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.2007, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 5 Stjórnargrjótið Atvinnulausir verkamenn í atvinnubótavinnu á vegum landstjórnarinnar við að kljúfa stórgrýti í Öskjuhlíð, sem síðan var flutt á járnbraut og notað í sjóvarnargarða og undirstöður í Reyḱavíkurhöfn. Það þóttu forréttindi, þegar heimilisfeður, sem höfðu mátt þola at- vinnuleysi langtímum saman, komust í „stjórnargrjótið“. settu á allri viðleitni til þess að bæta kjör fátæk- linga, helst í hendur við fordæmingu þeirra á skattlagningu fjármagnseigenda, sem er talin draga úr hvatanum til fjárfestingar og auðsöfn- unar og stuðla þar með að fjárflótta og stöðnun, sem bitni á hinum verst settu. Og hafi þannig óvart óhjákvæmilega þveröfug áhrif á hinn upp- aflega ásetning. Allt er þetta gamalkunnugt og sígilt og ævinlega sett fram af sannfæringar- krafti þess, sem þykist gæddur siðferðilegum yf- irburðum, enda sett fram í nafni óvéfengjan- legrar lífsreynslu. Reynslan hefur hins vegar kennt okkur á löngum tíma að allar voru þessar siðferðilegu umvandanir á sandi byggðar. Það sem sett var fram sem blákaldur sannleikurinn í ljósi óyggj- andi lífsreynslu, reyndist einatt vera pólitískir fordómar, sem studdust við fátt annað en eigin- hagsmuni forréttindahópa. Atvinnuleysistrygg- ingasjóður, sem er fjármagnaður með iðgjöldum hinna tryggðu, varð fyrr en varði einn helsti út- lánasjóður og bakhjarl atvinnulífsins, enda sett- ust atvinnurekendur þar í stjórn og gerðust ein- att frekir til fjárins. Þegar Vinnuveitendasamband Íslands vildi kaupa íbúðarhús Ólafs Thors, hins ókrýnda for- ingja Sjálfstæðisflokksins um áratugi, voru við- skiptin fjármögnuð af Atvinnuleysistrygginga- sjóði. Þegar fjármagna þurfti Byggingasjóð ríkisins, t.d. vegna átaks um byggingu 1.250 íbúða í Breiðholtinu á sínum tíma, hafði Atvinnu- leysistryggingasjóður ráð á að kaupa skuldabréf Byggingasjóðs ríkisins. Sama máli gegndi, þeg- ar fjármagna þurfti þörf mál, eins og fastráðn- ingu fiskverkafólks, starfsmenntun í atvinnulíf- inu eða fæðingarorlof foreldra. Atvinnuleysistryggingasjóður hefur víða komið við sögu við að treysta undirstöður at- vinnulífsins. Þar að auki er hann í eðli sínu sveiflujöfnunarsjóður, sem safnast fé í góðæri, en borgar út meira en hann fær inn, þegar harðnar í ári og störfum fækkar. Sjóðurinn er því hentugt hagstjórnartæki, sem stuðlar að sveiflujöfnun og stöðugleika í efnahagslífinu. Og þess hefur ekki orðið vart, að hann dragi úr sið- ferðisþreki eða sjálfsbjargarviðleitni vinnandi fólks. Sjóðurinn hefur reynst atvinnulífinu öflug- ur bakhjarl, eða eins og Hannibal Valdimarsson, forseti ASÍ, sagði í skýrslu sinni 1956-58: „Þessi mikli öryggissjóður verkalýðsins mun vissulega verða þess megnugur, áður en langir tímar líða, að rétta atvinnulífinu hjálparhönd. “(bls. 9). Þannig fékk bókarhöfundur reyndar hug- myndina að titli bókarinnar: Öryggissjóður verkalýðsins – baráttan fyrir atvinnuleysis- tryggingum á Íslandi. Guðfaðir velferðarríkisins Haraldur Guðmundsson, alþingismaður og fyrsti ráðherra Alþýðuflokksins í ríkisstjórn hinna vinnandi stétta (1934-37) má með réttu heita guðfaðir íslenska velferðarríkisins. Hann undirbjó og náði fram lögfestingu almanna- trygginga 1936, eftir að hafa flutt málið á öllum þingum frá árinu 1929. Almannatryggingalögin eru hornsteinn íslenska velferðarríkisins. Reyndar lagði Haraldur fram tvö frumvörp haustið 1935. Hið fyrra varð að lögum um al- mannatryggingar: Sjúkratryggingar, slysa- tryggingar, elli- og örorkutryggingar og reynd- ar kafli um atvinnuleysistryggingar, sem eins og fyrr segir, náði aldrei að verða virk löggjöf í framkvæmd. Hitt frumvarpið fjallaði um ný fram- færslulög. Með þeim lögum var loksins afmáður sá smánarblettur á íslensku þjóðfélagi sem lýsti sér í því að fátækt fólk, sem þurfti á neyðarhjálp að halda, mátti sæta mannréttindasviptingu (t.d. missi kosningaréttar) og hreppaflutningum fjölskyldumeðlima. Tryggingastofnun ríkisins var stofnuð árið 1936 í því skyni að annast fram- kvæmd almannatryggingalaganna, og Haraldur Guðmundsson varð um langt skeið forstjóri hennar. Atvinnumálastofnun, sem jafnaðar- menn börðust lengi fyrir og vildu að stýrði mál- efnum vinnumarkaðarins og þar með talið at- vinnuleysistryggingum, varð hins vegar aldrei til fyrr en þá á seinustu árum undir heitinu Vinnumálastofnun ríkisins. Þess er áður getið að Jón Baldvinsson varð fyrstur manna til að flytja frumvarp til laga um atvinnuleysisskráningu og vinnumiðlun þegar árið 1923. Þeir sem fyrstir fluttu frumvarp til laga um atvinnuleysistryggingar árið 1928 voru þeir Erlingur Friðjónsson og Jón Baldvinsson, báðir þingmenn Alþýðuflokksins. Árið 1929 flytja þeir Haraldur Guðmundsson, Héðinn Valdimarsson og Sigurjón Á. Ólafsson, formað- ur Sjómannafélags Reykjavíkur, þingsályktun- artillögu um stofnun milliþinganefndar til að undirbúa setningu laga um alþýðutryggingar á Íslandi. Haraldur hélt síðan málinu vakandi á öllum þingum uns hann fékk aðstöðu til, sem at- vinnumálaráðherra, að tryggja málinu fram- gang árið 1936. Það urðu honum mikil vonbrigði að sá kafli laganna, sem fjallaði um atvinnuleysistrygging- ar, varð í reynd ekki virkur í framkvæmd fyrr en árið 1956, 33 árum eftir að Jón Baldvinsson bar málið fyrst fram á Alþingi. Það vantaði ekki að málið væri flutt á Alþingi, ár eftir ár. Allt frá árinu 1942 voru frumvörp eða þingsályktunar- tillögur um undirbúning nýrrar löggjafar um at- vinnuleysistryggingar fluttar á Alþingi á hverju ári í tólf ár, en ævinlega fyrir daufum eyrum. Þeir sem héldu málinu vakandi allan þennan tíma voru þingmenn úr röðum Alþýðuflokks og Sósíalistaflokks og má þar nefna til dæmis þing- mennina Gylfa Þ. Gíslason og Hannibal Valdi- marsson úr röðum alþýðuflokksmanna og þá Brynjólf Bjarnason og Gunnar Jóhannsson sem var þingmaður Sósíalistaflokksins frá Siglufirði. En ráðandi öfl á Alþingi, þ.e. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur þögðu málið kirfilega í hel. Yfirleitt urðu engar umræður í þingsal um mál- ið. Ef frumvörp og aðrar tillögur náðu lengra, sofnuðu þær svefninum langa í nefnd. Í krafti samtakanna Það var ekki fyrr en haustið 1955 að verkalýðs- hreyfingin greip til sinna ráða. Atvinnuástandið á árunum eftir stríð hafði reynst erfitt og verka- lýðshreyfingunni reyndist torsótt að varðveita kaupmátt launa á erfiðleika- og samdrátt- artímum. Árið 1955 sauð upp úr í kjarabarátt- unni. Þá skall á langvinnasta, harðasta og víð- tækasta verkfall launafólks sem háð hefur verið á Íslandi. Á þessum árum réð Eðvarð Sigurðs- son lögum og lofum í Dagsbrún en Hannibal var forseti Alþýðusambandsins. Það var í þessu verkfalli sem Guðmundur Jaki varð fyrst þjóð- kunnur þar sem hann fór fyrir verkfallsvörðum Dagsbrúnar í harðvítugum átökum. Þegar allt var komið í hnút og hvergi sá til lands um lausn mála gerðist það að Emil Jóns- son, leiðtogi jafnaðarmanna í Hafnarfirði, lagði fram hugmynd að lausn til að leysa deiluna. Hann vísaði til þess að fyrir Alþingi lægi frum- varp um hið gamla baráttumál verkalýðshreyf- ingarinnar um atvinnuleysistryggingar. Hann lagði það til, að stjórnvöld hétu því að beita sér fyrir lögfestingu atvinnuleysistrygginga og At- vinnuleysistryggingasjóðs og skyldi það sam- svara ígildi fjögurra prósentustiga kauphækk- unar sem bar í milli deiluaðila. Þetta hreif. Haraldur Guðmundsson, hinn aldni guðfaðir almannatrygginga á Íslandi, var kvaddur til að útfæra tillögurnar. Niðurstaðan varð þessi: „Atvinnuleysistryggingasjóður (…) skyldi fjármagnaður með því, að ríkið legði fram sem næmi tveimur prósentum af almennu dag- vinnukaupi Dagsbrúnarverkamanns og atvinnu- rekendur og bæjar- og sveitarsjóðir, hvorir um sig eitt prósent. Samanlagt voru þetta fjögur prósent af Dagsbrúnarkaupinu, það sem upp á vantaði að atvinnurekendur gengju að í loka- kröfum samninganefndar verkalýðsfélaganna. Þar með var krafan um lögfestingu atvinnuleys- istrygginga loksins í höfn, aldarþriðjungi eftir að Jón Baldvinsson hreyfði fyrst við málinu á Al- þingi 1923. Söguburður í stað sagnfræði Leiðarahöfundur Morgunblaðsins reisti sér og blaðinu dálítinn bautastein þegar hann sagði af þessu tilefni eftirfarandi: „En það er ríkisstjórninni (Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks undir forsæti Ólafs Thors) að þakka, að þessi leið var farin til lausnar verkfallinu, en alls ekki hinum ábyrgðarlausu æsingaseggjum, sem hófu það.“ Þetta er í stíl við aðrar goðsagnir, sem haldið hefur verið að bókaþjóðinni á undanförnum ára- tugum í þá veru, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fundið upp velferðarríkið á Íslandi og barist fyr- ir því að koma því á legg. Frá því að þessum sögulega áfanga var náð um miðjan sjötta áratug seinustu aldar, hafa margar ríkisstjórnir komið að breytingum á lög- gjöfinni um atvinnuleysistryggingar og atvinnu- leysistryggingasjóð. Að því verki hafa komið margir stjórnmálaleiðtogar úr ýmsum flokkum, enda málið ekki umdeilt, eftir að það hafði á ann- að borð sannað ágæti sitt. Meðal þessara stjórnmálamanna má nefna þá Braga Sigurjónsson og Eggert G. Þorsteinsson Jón Baldvin Hannibalsson, fæddur í Alþýðuhúsinu á Ísafirði 1939. á viðreisnarárunum; Hannibal Valdimarsson og Björn Jónsson í tíð vinstristjórnarinnar 1971- 74; Svavar Gestsson, sem félagsmálaráðherra í ríkisstjórnartíð Gunnars Thoroddsen (1980-83); Guðmund Árna Stefánsson, félagsmálaráðherra í tíð Viðeyjarstjórnarinnar (1991-95); Pál Pét- ursson og Árna Magnússon í tíð fráfarandi rík- isstjórnar. Yfirleitt hafa þessar breytingar verið gerðar í samráði við aðila vinnumarkaðarins, þótt stund- um hafi komið til árekstra á milli þeirra og rík- isvaldsins, ekki síst þegar Atvinnuleysistrygg- ingasjóður var innlimaður í ríkissjóð. Það var verk Geirs H. Haarde, sem virtist hafa gleymt því, hvernig var til sjóðsins stofnað í upphafi. Ebbi í Dagsbrún hefði ekki orðið kátur. Það telst þó ekki vera aðalatriði málsins, svo fremi sem sjóðurinn stendur undir upprunalegu hlut- verki sínu, þegar á reynir, nefnilega að greiða atvinnulausu fólki tímabundinn framfærslueyri og styrkja það gegnum starfsþjálfun og á annan hátt til að búa sig undir ný störf. Í upphafi voru látnar uppi efasemdir um, að þessi bók mundi rata inn á metsölulista bókaút- gefenda. Engu að síður á bókin erindi við alla þá, sem láta sig þjóðfélagsmál einhverju varða. Þess vegna skyldi maður ætla, að bókin ætti að vera á náttborði nýkjörinna þingmanna (og hinna gömlu líka); þeim mun ekki af veita. Að öðru leyti er þetta uppflettirit í baráttusögunni fyrir því að reisa og viðhalda norrænu velferð- arríki á Íslandi. Bókin er gagnleg öllum þeim, sem einhverra hluta vegna þurfa að kynna sér þetta efni. Seinni parturinn er samt sem áður hundleiðinlegur, enda er þar mestan part verið að fást við valdabaráttu um yfirráð yfir sjóðnum og bægslagang búrakrata, sem hafa hreiðrað um sig í kringum starfsemina. Æskilegt hefði verið að höfundur hefði leyft sér að fjalla meira um lífsháska þeirra sem verða fórnalömb at- vinnuleysis og hvað læra megi af reynslu þeirra og félagslegum aðgerðum þeim til styrktar. Lærdómur sögunnar Það er óhjákvæmilegt, þegar fjallað er um svo viðamikið efni á svo löngum tíma, að höfundi verði öðru hverju á í messunni. Nokkur dæmi: Höfundur heldur því fram (á bls. 68), að seinni tíma hagfræðingum komi saman um, að rík- isstjórn hinna vinnandi stétta (1934-37) hafi fundið upp haftabúskapinn, sem tröllreið ís- lenskum þjóðarbúskap fram undir Viðreisn. Vera má, að einstaka hægriöfgamenn haldi þessu fram, en flestir hagfræðingar vita betur. Haftabúskapurinn var tekinn upp á fyrrastríðs- árunum og viðhaldið árum saman eftir stríðslok. Vinstristjórn Hermanns Jónassonar á kreppu- árunum gerði ekki annað en ríkisstjórnir allt um kring gerðu, nefnilega að grípa til vernd- arstefnu (innflutningshafta) sem var viðbrögð við haftastefnu viðskiptalanda. Þetta afsakar engan veginn haftabúskapinn og ríkisforsjána, sem hefur verið rekin hér alla tíð á ábyrgð Sjálf- stæðis- og Framsóknarflokksins. Annað: Höfundur segir vinstristjórnina 1956- 58 vera „fyrstu ríkisstjórnina í NATO-landi, sem vinstrimenn áttu aðild að“. Þetta er fjar- stæða. Sósíaldemókratar eins og Ernie Bevin, utanríkisráðherra Atlees og Paul Henri Spaak, utanríkisráðherra Belga, fyrir nú utan krata- leiðtoga Norðmanna og Dana, voru á sínum tíma frumkvöðlar og burðarásar í varnarsam- starfinu við Bandaríkin gegnum NATO. Hægri menn eins og hægri armur breska íhaldsins og frönsku gaullistarnir voru á móti. Loks er þess að geta að umfjöllun höfundar um svokölluð „Ólafslög“ (sjá bls. 177-78) þarfn- ast endurskoðunar. Ólafslög, þar sem kjarni málsins var verðtrygging fjárskuldbindinga, þótt að öðru leyti væru þau um „efnahags- málapakka“, miðað við þáverandi aðstæður verðbólgu og misgengis, áttu uppruna sinn í frumvarpi, sem við Vilmundur Gylfason verk- stýrðum af hálfu þingflokks Alþýðuflokksins og var lagt fram um jólaleytið 1978 sem skilyrði fyrir áframhaldandi stjórnarsamvinnu. Verðtryggingarkaflinn var að mestu verk Jóns Sigurðssonar, forstöðumanns Þjóðhags- stofnunar, síðar þingmanns og ráðherra Al- þýðuflokksins (og bróðursonar Haraldar Guð- mundssonar, guðföður velferðarríkisins íslenska). Greinargerðin og rökstuðningurinn með frumvarpinu var höfundarverk Gylfa Þ. Gíslasonar, fv. ráðherra Alþýðuflokksins í Við- reisnarstjórninni. Eini maðurinn, sem eftir því sem best er vitað hafði ekkert til málanna að leggja um svokölluð Ólafslög, var Ólafur Jó- hannesson sjálfur. Þetta er ekki sagt Ólafi til hnjóðs, heldur að- eins til að halda til haga sögulegum stað- reyndum. Svona getur verið auðvelt að koma á kreik sögusögnum um sögulegar staðreyndir, sem síðan verða að goðsögnum, sem seinni tíma menn glepjast til að trúa. Höfuðkostur þessarar bókar er einmitt sá að hún segir sannleikann um baráttuna fyrir atvinnuleysistryggingum á Íslandi. Það voru mannréttindi sem náðust ekki fram baráttulaust. Það er lærdómur sögunnar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.