Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.2007, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 5
Stjórnargrjótið Atvinnulausir verkamenn í atvinnubótavinnu á vegum landstjórnarinnar við að kljúfa stórgrýti í Öskjuhlíð, sem síðan var flutt
á járnbraut og notað í sjóvarnargarða og undirstöður í Reyḱavíkurhöfn. Það þóttu forréttindi, þegar heimilisfeður, sem höfðu mátt þola at-
vinnuleysi langtímum saman, komust í „stjórnargrjótið“.
settu á allri viðleitni til þess að bæta kjör fátæk-
linga, helst í hendur við fordæmingu þeirra á
skattlagningu fjármagnseigenda, sem er talin
draga úr hvatanum til fjárfestingar og auðsöfn-
unar og stuðla þar með að fjárflótta og stöðnun,
sem bitni á hinum verst settu. Og hafi þannig
óvart óhjákvæmilega þveröfug áhrif á hinn upp-
aflega ásetning. Allt er þetta gamalkunnugt og
sígilt og ævinlega sett fram af sannfæringar-
krafti þess, sem þykist gæddur siðferðilegum yf-
irburðum, enda sett fram í nafni óvéfengjan-
legrar lífsreynslu.
Reynslan hefur hins vegar kennt okkur á
löngum tíma að allar voru þessar siðferðilegu
umvandanir á sandi byggðar. Það sem sett var
fram sem blákaldur sannleikurinn í ljósi óyggj-
andi lífsreynslu, reyndist einatt vera pólitískir
fordómar, sem studdust við fátt annað en eigin-
hagsmuni forréttindahópa. Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður, sem er fjármagnaður með iðgjöldum
hinna tryggðu, varð fyrr en varði einn helsti út-
lánasjóður og bakhjarl atvinnulífsins, enda sett-
ust atvinnurekendur þar í stjórn og gerðust ein-
att frekir til fjárins.
Þegar Vinnuveitendasamband Íslands vildi
kaupa íbúðarhús Ólafs Thors, hins ókrýnda for-
ingja Sjálfstæðisflokksins um áratugi, voru við-
skiptin fjármögnuð af Atvinnuleysistrygginga-
sjóði. Þegar fjármagna þurfti Byggingasjóð
ríkisins, t.d. vegna átaks um byggingu 1.250
íbúða í Breiðholtinu á sínum tíma, hafði Atvinnu-
leysistryggingasjóður ráð á að kaupa skuldabréf
Byggingasjóðs ríkisins. Sama máli gegndi, þeg-
ar fjármagna þurfti þörf mál, eins og fastráðn-
ingu fiskverkafólks, starfsmenntun í atvinnulíf-
inu eða fæðingarorlof foreldra.
Atvinnuleysistryggingasjóður hefur víða
komið við sögu við að treysta undirstöður at-
vinnulífsins. Þar að auki er hann í eðli sínu
sveiflujöfnunarsjóður, sem safnast fé í góðæri,
en borgar út meira en hann fær inn, þegar
harðnar í ári og störfum fækkar. Sjóðurinn er
því hentugt hagstjórnartæki, sem stuðlar að
sveiflujöfnun og stöðugleika í efnahagslífinu. Og
þess hefur ekki orðið vart, að hann dragi úr sið-
ferðisþreki eða sjálfsbjargarviðleitni vinnandi
fólks. Sjóðurinn hefur reynst atvinnulífinu öflug-
ur bakhjarl, eða eins og Hannibal Valdimarsson,
forseti ASÍ, sagði í skýrslu sinni 1956-58:
„Þessi mikli öryggissjóður verkalýðsins
mun vissulega verða þess megnugur, áður
en langir tímar líða, að rétta atvinnulífinu
hjálparhönd. “(bls. 9).
Þannig fékk bókarhöfundur reyndar hug-
myndina að titli bókarinnar: Öryggissjóður
verkalýðsins – baráttan fyrir atvinnuleysis-
tryggingum á Íslandi.
Guðfaðir velferðarríkisins
Haraldur Guðmundsson, alþingismaður og
fyrsti ráðherra Alþýðuflokksins í ríkisstjórn
hinna vinnandi stétta (1934-37) má með réttu
heita guðfaðir íslenska velferðarríkisins. Hann
undirbjó og náði fram lögfestingu almanna-
trygginga 1936, eftir að hafa flutt málið á öllum
þingum frá árinu 1929. Almannatryggingalögin
eru hornsteinn íslenska velferðarríkisins.
Reyndar lagði Haraldur fram tvö frumvörp
haustið 1935. Hið fyrra varð að lögum um al-
mannatryggingar: Sjúkratryggingar, slysa-
tryggingar, elli- og örorkutryggingar og reynd-
ar kafli um atvinnuleysistryggingar, sem eins
og fyrr segir, náði aldrei að verða virk löggjöf í
framkvæmd.
Hitt frumvarpið fjallaði um ný fram-
færslulög. Með þeim lögum var loksins afmáður
sá smánarblettur á íslensku þjóðfélagi sem lýsti
sér í því að fátækt fólk, sem þurfti á neyðarhjálp
að halda, mátti sæta mannréttindasviptingu
(t.d. missi kosningaréttar) og hreppaflutningum
fjölskyldumeðlima. Tryggingastofnun ríkisins
var stofnuð árið 1936 í því skyni að annast fram-
kvæmd almannatryggingalaganna, og Haraldur
Guðmundsson varð um langt skeið forstjóri
hennar. Atvinnumálastofnun, sem jafnaðar-
menn börðust lengi fyrir og vildu að stýrði mál-
efnum vinnumarkaðarins og þar með talið at-
vinnuleysistryggingum, varð hins vegar aldrei
til fyrr en þá á seinustu árum undir heitinu
Vinnumálastofnun ríkisins.
Þess er áður getið að Jón Baldvinsson varð
fyrstur manna til að flytja frumvarp til laga um
atvinnuleysisskráningu og vinnumiðlun þegar
árið 1923. Þeir sem fyrstir fluttu frumvarp til
laga um atvinnuleysistryggingar árið 1928 voru
þeir Erlingur Friðjónsson og Jón Baldvinsson,
báðir þingmenn Alþýðuflokksins. Árið 1929
flytja þeir Haraldur Guðmundsson, Héðinn
Valdimarsson og Sigurjón Á. Ólafsson, formað-
ur Sjómannafélags Reykjavíkur, þingsályktun-
artillögu um stofnun milliþinganefndar til að
undirbúa setningu laga um alþýðutryggingar á
Íslandi. Haraldur hélt síðan málinu vakandi á
öllum þingum uns hann fékk aðstöðu til, sem at-
vinnumálaráðherra, að tryggja málinu fram-
gang árið 1936.
Það urðu honum mikil vonbrigði að sá kafli
laganna, sem fjallaði um atvinnuleysistrygging-
ar, varð í reynd ekki virkur í framkvæmd fyrr
en árið 1956, 33 árum eftir að Jón Baldvinsson
bar málið fyrst fram á Alþingi. Það vantaði ekki
að málið væri flutt á Alþingi, ár eftir ár. Allt frá
árinu 1942 voru frumvörp eða þingsályktunar-
tillögur um undirbúning nýrrar löggjafar um at-
vinnuleysistryggingar fluttar á Alþingi á hverju
ári í tólf ár, en ævinlega fyrir daufum eyrum.
Þeir sem héldu málinu vakandi allan þennan
tíma voru þingmenn úr röðum Alþýðuflokks og
Sósíalistaflokks og má þar nefna til dæmis þing-
mennina Gylfa Þ. Gíslason og Hannibal Valdi-
marsson úr röðum alþýðuflokksmanna og þá
Brynjólf Bjarnason og Gunnar Jóhannsson sem
var þingmaður Sósíalistaflokksins frá Siglufirði.
En ráðandi öfl á Alþingi, þ.e. Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokkur þögðu málið kirfilega í hel.
Yfirleitt urðu engar umræður í þingsal um mál-
ið. Ef frumvörp og aðrar tillögur náðu lengra,
sofnuðu þær svefninum langa í nefnd.
Í krafti samtakanna
Það var ekki fyrr en haustið 1955 að verkalýðs-
hreyfingin greip til sinna ráða. Atvinnuástandið
á árunum eftir stríð hafði reynst erfitt og verka-
lýðshreyfingunni reyndist torsótt að varðveita
kaupmátt launa á erfiðleika- og samdrátt-
artímum. Árið 1955 sauð upp úr í kjarabarátt-
unni. Þá skall á langvinnasta, harðasta og víð-
tækasta verkfall launafólks sem háð hefur verið
á Íslandi. Á þessum árum réð Eðvarð Sigurðs-
son lögum og lofum í Dagsbrún en Hannibal var
forseti Alþýðusambandsins. Það var í þessu
verkfalli sem Guðmundur Jaki varð fyrst þjóð-
kunnur þar sem hann fór fyrir verkfallsvörðum
Dagsbrúnar í harðvítugum átökum.
Þegar allt var komið í hnút og hvergi sá til
lands um lausn mála gerðist það að Emil Jóns-
son, leiðtogi jafnaðarmanna í Hafnarfirði, lagði
fram hugmynd að lausn til að leysa deiluna.
Hann vísaði til þess að fyrir Alþingi lægi frum-
varp um hið gamla baráttumál verkalýðshreyf-
ingarinnar um atvinnuleysistryggingar. Hann
lagði það til, að stjórnvöld hétu því að beita sér
fyrir lögfestingu atvinnuleysistrygginga og At-
vinnuleysistryggingasjóðs og skyldi það sam-
svara ígildi fjögurra prósentustiga kauphækk-
unar sem bar í milli deiluaðila.
Þetta hreif. Haraldur Guðmundsson, hinn
aldni guðfaðir almannatrygginga á Íslandi, var
kvaddur til að útfæra tillögurnar. Niðurstaðan
varð þessi: „Atvinnuleysistryggingasjóður (…)
skyldi fjármagnaður með því, að ríkið legði fram
sem næmi tveimur prósentum af almennu dag-
vinnukaupi Dagsbrúnarverkamanns og atvinnu-
rekendur og bæjar- og sveitarsjóðir, hvorir um
sig eitt prósent. Samanlagt voru þetta fjögur
prósent af Dagsbrúnarkaupinu, það sem upp á
vantaði að atvinnurekendur gengju að í loka-
kröfum samninganefndar verkalýðsfélaganna.
Þar með var krafan um lögfestingu atvinnuleys-
istrygginga loksins í höfn, aldarþriðjungi eftir að
Jón Baldvinsson hreyfði fyrst við málinu á Al-
þingi 1923.
Söguburður í stað sagnfræði
Leiðarahöfundur Morgunblaðsins reisti sér og
blaðinu dálítinn bautastein þegar hann sagði af
þessu tilefni eftirfarandi:
„En það er ríkisstjórninni (Sjálfstæðis- og
Framsóknarflokks undir forsæti Ólafs
Thors) að þakka, að þessi leið var farin til
lausnar verkfallinu, en alls ekki hinum
ábyrgðarlausu æsingaseggjum, sem hófu
það.“
Þetta er í stíl við aðrar goðsagnir, sem haldið
hefur verið að bókaþjóðinni á undanförnum ára-
tugum í þá veru, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
fundið upp velferðarríkið á Íslandi og barist fyr-
ir því að koma því á legg.
Frá því að þessum sögulega áfanga var náð
um miðjan sjötta áratug seinustu aldar, hafa
margar ríkisstjórnir komið að breytingum á lög-
gjöfinni um atvinnuleysistryggingar og atvinnu-
leysistryggingasjóð. Að því verki hafa komið
margir stjórnmálaleiðtogar úr ýmsum flokkum,
enda málið ekki umdeilt, eftir að það hafði á ann-
að borð sannað ágæti sitt.
Meðal þessara stjórnmálamanna má nefna þá
Braga Sigurjónsson og Eggert G. Þorsteinsson
Jón Baldvin Hannibalsson,
fæddur í Alþýðuhúsinu á Ísafirði 1939.
á viðreisnarárunum; Hannibal Valdimarsson og
Björn Jónsson í tíð vinstristjórnarinnar 1971-
74; Svavar Gestsson, sem félagsmálaráðherra í
ríkisstjórnartíð Gunnars Thoroddsen (1980-83);
Guðmund Árna Stefánsson, félagsmálaráðherra
í tíð Viðeyjarstjórnarinnar (1991-95); Pál Pét-
ursson og Árna Magnússon í tíð fráfarandi rík-
isstjórnar.
Yfirleitt hafa þessar breytingar verið gerðar í
samráði við aðila vinnumarkaðarins, þótt stund-
um hafi komið til árekstra á milli þeirra og rík-
isvaldsins, ekki síst þegar Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður var innlimaður í ríkissjóð. Það var
verk Geirs H. Haarde, sem virtist hafa gleymt
því, hvernig var til sjóðsins stofnað í upphafi.
Ebbi í Dagsbrún hefði ekki orðið kátur. Það
telst þó ekki vera aðalatriði málsins, svo fremi
sem sjóðurinn stendur undir upprunalegu hlut-
verki sínu, þegar á reynir, nefnilega að greiða
atvinnulausu fólki tímabundinn framfærslueyri
og styrkja það gegnum starfsþjálfun og á annan
hátt til að búa sig undir ný störf.
Í upphafi voru látnar uppi efasemdir um, að
þessi bók mundi rata inn á metsölulista bókaút-
gefenda. Engu að síður á bókin erindi við alla
þá, sem láta sig þjóðfélagsmál einhverju varða.
Þess vegna skyldi maður ætla, að bókin ætti að
vera á náttborði nýkjörinna þingmanna (og
hinna gömlu líka); þeim mun ekki af veita. Að
öðru leyti er þetta uppflettirit í baráttusögunni
fyrir því að reisa og viðhalda norrænu velferð-
arríki á Íslandi. Bókin er gagnleg öllum þeim,
sem einhverra hluta vegna þurfa að kynna sér
þetta efni. Seinni parturinn er samt sem áður
hundleiðinlegur, enda er þar mestan part verið
að fást við valdabaráttu um yfirráð yfir sjóðnum
og bægslagang búrakrata, sem hafa hreiðrað
um sig í kringum starfsemina. Æskilegt hefði
verið að höfundur hefði leyft sér að fjalla meira
um lífsháska þeirra sem verða fórnalömb at-
vinnuleysis og hvað læra megi af reynslu þeirra
og félagslegum aðgerðum þeim til styrktar.
Lærdómur sögunnar
Það er óhjákvæmilegt, þegar fjallað er um svo
viðamikið efni á svo löngum tíma, að höfundi
verði öðru hverju á í messunni. Nokkur dæmi:
Höfundur heldur því fram (á bls. 68), að seinni
tíma hagfræðingum komi saman um, að rík-
isstjórn hinna vinnandi stétta (1934-37) hafi
fundið upp haftabúskapinn, sem tröllreið ís-
lenskum þjóðarbúskap fram undir Viðreisn.
Vera má, að einstaka hægriöfgamenn haldi
þessu fram, en flestir hagfræðingar vita betur.
Haftabúskapurinn var tekinn upp á fyrrastríðs-
árunum og viðhaldið árum saman eftir stríðslok.
Vinstristjórn Hermanns Jónassonar á kreppu-
árunum gerði ekki annað en ríkisstjórnir allt
um kring gerðu, nefnilega að grípa til vernd-
arstefnu (innflutningshafta) sem var viðbrögð
við haftastefnu viðskiptalanda. Þetta afsakar
engan veginn haftabúskapinn og ríkisforsjána,
sem hefur verið rekin hér alla tíð á ábyrgð Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokksins.
Annað: Höfundur segir vinstristjórnina 1956-
58 vera „fyrstu ríkisstjórnina í NATO-landi,
sem vinstrimenn áttu aðild að“. Þetta er fjar-
stæða. Sósíaldemókratar eins og Ernie Bevin,
utanríkisráðherra Atlees og Paul Henri Spaak,
utanríkisráðherra Belga, fyrir nú utan krata-
leiðtoga Norðmanna og Dana, voru á sínum
tíma frumkvöðlar og burðarásar í varnarsam-
starfinu við Bandaríkin gegnum NATO. Hægri
menn eins og hægri armur breska íhaldsins og
frönsku gaullistarnir voru á móti.
Loks er þess að geta að umfjöllun höfundar
um svokölluð „Ólafslög“ (sjá bls. 177-78) þarfn-
ast endurskoðunar. Ólafslög, þar sem kjarni
málsins var verðtrygging fjárskuldbindinga,
þótt að öðru leyti væru þau um „efnahags-
málapakka“, miðað við þáverandi aðstæður
verðbólgu og misgengis, áttu uppruna sinn í
frumvarpi, sem við Vilmundur Gylfason verk-
stýrðum af hálfu þingflokks Alþýðuflokksins og
var lagt fram um jólaleytið 1978 sem skilyrði
fyrir áframhaldandi stjórnarsamvinnu.
Verðtryggingarkaflinn var að mestu verk
Jóns Sigurðssonar, forstöðumanns Þjóðhags-
stofnunar, síðar þingmanns og ráðherra Al-
þýðuflokksins (og bróðursonar Haraldar Guð-
mundssonar, guðföður velferðarríkisins
íslenska). Greinargerðin og rökstuðningurinn
með frumvarpinu var höfundarverk Gylfa Þ.
Gíslasonar, fv. ráðherra Alþýðuflokksins í Við-
reisnarstjórninni. Eini maðurinn, sem eftir því
sem best er vitað hafði ekkert til málanna að
leggja um svokölluð Ólafslög, var Ólafur Jó-
hannesson sjálfur.
Þetta er ekki sagt Ólafi til hnjóðs, heldur að-
eins til að halda til haga sögulegum stað-
reyndum. Svona getur verið auðvelt að koma á
kreik sögusögnum um sögulegar staðreyndir,
sem síðan verða að goðsögnum, sem seinni tíma
menn glepjast til að trúa. Höfuðkostur þessarar
bókar er einmitt sá að hún segir sannleikann
um baráttuna fyrir atvinnuleysistryggingum á
Íslandi. Það voru mannréttindi sem náðust ekki
fram baráttulaust. Það er lærdómur sögunnar.