Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 15
Gláparinn
Ég hef verið að bjóða ótrúlegasta fólki heimí stofu til mín. Jafnvel fólki sem hefur
ekkert gott upp á að bjóða. Það er auðvelt að
detta í svona samkomur. En nú reyni ég að
velja félagsskap minn betur og beiti því oftar
fjarstýringunni til að slökkva á sjónvarpinu.
Stærsta ástæðan fyrir sjónvarpsglápi mínu
var atvinnuskaði. Ég taldi mér trú um mik-
ilvægi þess að fylgjast vel með til að vaxa í
starfi. Ég komst þó fljótlega að því að ég
græddi ekkert á 85% áhorfsins. Þá mundi ég
hversu margt er hægt að læra af því sem illa
er gert. Ég hélt áfram að bjóða inn í stofu á
minn kostnað.
Ekki ætla ég að gera lítið úr þeirri hugsun sem
hefur sprottið upp hjá mér við áhorfið, sér-
staklega aukinni femínískri vitund. Það er þó
allt of auðvelt að nýta sjónvarpið sem afslöpp-
unartæki og hleypa þannig viðmótslaust inn á
sig hugmyndum um upphafningu ofbeldis og
forheimsku.
Ég óttast að allir raunveruleikaþættirnir, Am-
erican hitt og þetta, leitin endalausa að göml-
um klisjum í nýjum búningi, að ógleymdum
sápuóperum, sama í hvaða gæðum, drepi að
lokum í okkur alla trú á vitsmunalíf. Sjálf
þakka ég fyrir að á milli mín og þeirra í sjón-
varpinu skuli stundum vera heilt haf og alltaf
eitt stykki fjarstýring.
Ég hvet þig til að velja vel hverjum þú hleypir
inn í stofu og inn í sálina. Skoðaðu dagskrána,
athugaðu dóma. Ef löngun til áhorfs er mikil
þrátt fyrir lélegt framboð sjónvarpsefnis
skaltu skella þér út á næstu vídeóleigu. Þitt er
frelsið til að velja og, það sem ekki síður er
mikilvægt, frelsið til að hafna.“
Elísabet Ronaldsdóttir
kvikmyndagerðarkona
Morgunblaðið/Eyþór
Elísabet Ronaldsdóttir „Ég óttast að allir raunveruleikaþættirnir, American hitt og þetta,
leitin endalausa að gömlum klisjum í nýjum búningi, að ógleymdum sápuóperum, sama í hvaða
gæðum, drepi að lokum í okkur alla trú á vitsmunalíf. “
Hlustarinn
Maður getur bara vonað að lesendur farinú ekki setja saman einhvern tónlistar-
prófíl byggðan á misvísandi upplýsingum úr
geisladiskastaflanum. Það væri nú meiri lesn-
ingin.
Ég náði mér í Voltu og held áfram að vera
aðdáandi, ekki síst Marks Bell, sem galdrar af
list fyrir sykurmolatappann.
My Name is Buddy – nýja platan hans Ry
Cooder ber hinn lífsleiða undirtitil... another
record by... Enginn lífsleiði samt í frábæru ur-
ban-kántríi með hjáleiðum í allar áttir.
Kameljónski píanistinn Uri Caine er svo
margslunginn tónlistarmaður að tilraun til að
greina hann er eins og að defragmentera int-
ernetið. Bedrock tríóið hans og platan Shelf
Life – sérkennilegt, en spilaglatt fusion dæmi.
Uppistaðan í staflanum er allt sem ég á eftir
Gyorgi Ligeti. Það eru ekki nema sex eða sjö
diskar, en þeir gefa þó ágæta mynd af fjöl-
breyttu ævistarfi þessa ungverska tónsmiðs,
gyðings sem hrökklaðist undan tveimur ógn-
arstjórnum á ævi sinni og þurfti að fara í felur
með nýsmíðar sínar. Mæli með Ligeti Project
seríunni frá Teldec.“
Pétur Grétarsson
slagverksleikari
Morgunblaðið/G.Rúnar
Pétur Grétarsson „.Mæli með Ligeti Project seríunni frá Teldec.“
Vísir, 8. maí 2007 10:39
Óli Tynes skrifar:
Sautján ára stúlka grýtt í hel
Sautján ára kúrdísk stúlka var grýtt í hel í
Írak í síðasta mánuði fyrir að verða ástfangin af
jafnaldra sínum af öðrum trúflokki. Mikill fjöldi
karlmanna tók þátt í ódæðinu, sem ættingjar
hennar áttu frumkvæði að. Lögreglumenn
fylgdust með, en aðhöfðust ekkert. Myndir af
morðinu hafa nú verið settar út á netið.
Dúa Khalil Aswad bjó í þorpi skammt frá
Mosul í norðurhluta Íraks. Hún tilheyrir trú-
flokki sem kallast Yezidi, en varð ástfangin af
pilti sem er súnní múslimi. Á myndbandinu má
sjá að átta eða níu menn ráðast inn í hús þar
sem Dúa hafði leitast hælis. Þeir draga hana út
á götu og byrja að grýta hana. Fleiri karlmenn
taka þátt, og láta grjóthnullunga dynja á stúlk-
unni.
Blóðug og grátandi reynir Dúa að forða sér,
en kemst hvergi. Eftir um það bil hálftíma hníg-
ur hún niður. Það er haldið áfram að grýta hana
þartil hún deyr.
Morgunblaðið/Kristinn
Ljóðskáldið | Sjón fæddur í Reykjavík 1962
Ljóðabækur Sjóns, Sigurjóns Birgis Sigurðssonar: Sýnir 1978, Madonna 1979, Birgitta (hleruð samtöl) 1979, Hvernig elskar maður hendur 1981, Reiðhjól blinda mannsins 1982, Sjónhverfingabókin 1983, Oh!: (isn’t it wild) 1985,
Leikfangakastalar sagði hún það er ekkert til sem heitir leikfangakastalar 1986, Drengurinn með röntgenaugun, ljóðasafn 1986, Ég man ekki eitthvað um skýin 1991, Myrkar fígúrur 1998.
tilraun til endurlífgunar Dúu Khalil Aswad
mannshöndin líkist þöndum væng
hvort sem hún sleppir
lófafylli af smásteinum
eða hnefastóru grjóti
steinvölurnar
þjóta yfir vatnið –
gera andartaks hlé
á flugi sínu áður en þær falla
hnullungurinn ann sér ekki hvíldar fyrr en hann
hafnar í líkama ástfanginnar sautján ára stúlku
(annað er nýleg smáfrétt
hitt minning um sumarnótt)
*
hugurinn sleppir ekki takinu
hvorki af minningabrotum né fréttum
hann líkist aldrei þöndum væng
*
guði trúbræðra hinnar grýttu
býð ég þetta ljóð í skiptum fyrir líf hennar