Lesbók Morgunblaðsins - 14.07.2007, Side 13
kvíarnar
Hindirímur Íma Þöll Jónsdóttir syngur íslenska rímu, sem hún tónaði í indverskum stíl og Evan
Harlan leikur á harmónikku á tónleikum kvartettsins Andrómedu4 í Síldarminjasafninu.
Hátíðarsetning Gunnsteinn Ólafsson, listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðar á Siglufirði og upp-
hafsmaður félags um Þjóðlagasetur séra Bjarna Þorsteinssonar sem staðið hefur að undirbún-
ingi hátíðarinnar frá upphafi.
Fjallalangspil Guðrún Lára Pálmadóttir ásamt hljóðfærasmiðnum og dulcimer-meistaranum
Jerry Rockwell frá Ohio í Bandaríkjunum með fjallalangspil sem hún fjárfesti í.
Ljósmynd: Ragnar Ísleifur Bragason
Mjaðmahnykkur Sýning magadansnemanna
vakti verðskuldaða athygli hátíðargesta. Í
bakgrunni skörtuðu fjöllin sínu fegursta í
kvöldsólinni.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktss
og flaug okkur í hug að kjörið væri að gera
langspilssmíði að möguleika í smíðakennslu
grunnskólanna, hugsanlega í tengslum við tón-
listarkennsluna.
Áhuginn að aukast
Það sem Gunnsteini þótti markverðast á Þjóð-
lagahátíðinni í ár, auk stofnunar Þjóðlagaaka-
demíunnar, var langspilsnámskeiðið sem hann
segir vera hið fyrsta sinnar tegundar hér á
landi. ,,Einnig hafa margir lýst yfir ánægju með
armensku tónleikana. Að fá fólk frá Armeníu til
að halda tónleika hér heyrir líka til tíðinda. Rit-
aðar heimildir benda til þess að á Íslandi hafi
verið biskupar frá Armeníu í kringum árið
1000. Þar segir að ermskir biskupar hafi verið
hér á landi og verið áhrifamiklir. Það var gaman
að fá armenska flytjendur á þjóðlagahátíðina
því eflaust hafa þessir biskupar kringum 1000
líka verið logandi af músík, segir Gunnsteinn.
Aðspurður hvort áhugi á þjóðlagatónlist sé
að aukast telur Gunnsteinn að svo sé frekar en
að hann fari dvínandi. ,,Ég held því ekki fram að
þetta sé eitthvert æði og æska landsins heimti
að fá að hlusta á rímnakveðskap heima hjá sér á
kvöldin. Ég held að vakningin sé bæði hjá
áhuga- og fagfólki og að menntaðir tónlist-
armenn séu að vakna til vitundar um gildi þess-
arar tónlistar. Hún er hluti af sögu okkar og af
hverju ættum við ekki að spila hana eins og
aðra tónlist sem við höfum verið að flytja í
gegnum tíðina?
að til að skapa sinn eigin stíl,“ segir Íma Þöll en
í námi hennar við New England Conservatory í
Boston var einmitt markmiðið að finna sína eig-
in rödd í gegnum nám í mismunandi tónlistar-
hefðum og -stílum. En auk klezmer og ind-
verskrar tónlistar hafa djasssöngkonur verið
henni mikill innblástur. Þrátt fyrir sérhæfingu í
heimstónlist hefur Íma ekki snúið baki við
klassískum bakgrunni sínum og leggur áherslu
á að kenna nemendum sínum klassíska tækni,
sem hún lítur á sem góða undirstöðu.
Fyrsta íslenska langspilsnámskeiðið
Jerry Rockwell býr eins og áður sagði í Ohio í
Bandaríkjunum og lagði leið sína á Siglufjörð til
að halda langspilsnámskeið. Jerry var ánægður
með útkomuna og sagði af mikilli auðmýkt að í
raun hefðu nemendurnir kennt honum meira en
hann þeim, enda voru það íslensk þjóðlög sem
hópurinn spilaði á uppskeruhátíðinni, en Jerry
hefur fyrst og fremst einbeitt sér að amerískri
þjóðlagatónlist. Eftir námskeiðið og ein-
staklega vel heppnaða tónleika hans í Gránu,
þar sem Örn Magnússon var sérstakur gestur
og lék með honum á íslenskt langspil, kom
Jerry sér fyrir í smíðastofu gagnfræðaskólans á
staðnum og hóf smíði á amerísku fjallalangspili
(mountain dulcimer). Það var einkar notalegt
að fylgjast með Jerry að smíðum og ræða við
hann um tónlist og heimsins gagn og nauðsynj-
ar. Jerry hreifst mjög af landi og þjóð og er því
von til að hann sæki okkur Íslendinga aftur
heim síðar. Hann tjáði okkur að fjallalangspil
væri frekar einföld smíð en hann notar engin
rafmagnstæki til verksins og vill með því við-
halda gömlum aðferðum og handverki. Eins
skildist okkur á Erni Magnússyni að einfalt og
skemmtilegt væri að smíða íslenska langspilið
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. JÚLÍ 2007 13