Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.2007, Page 4
4 LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
lesbók
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
H
úsið stendur við
Reykjatorg, alveg
við höfnina, og gló-
ir eins og demant-
ur hvernig sem
viðrar á öllum tím-
um dags þar sem marglitt, glært
stuðlaberg kastar litum í allar áttir.
Umrætt hús er að vísu ekki ennþá til
né heldur Reykjatorg en þetta er sú
sýn sem aðstandendur Tónlistar- og
ráðstefnuhússins sem verið er að
byggja hafa af húsinu, sem áætlað er
að rísi í árslok árið 2009. Það er
Teiknistofa Hennings Larsens í
Kaupmannahöfn sem hannar húsið
en hún hefur áður hannað nýja
óperuhúsið í Kaupmannahöfn og
vann samkeppni sem haldin var um
hönnun Tónlistarhússins. Teikni-
stofan hefur allan tímann verið í
nánu samstarfi við Ólaf Elíasson
sem hannaði glerhjúpinn utan um
húsið.
Að stækka miðbæinn
Ósbjørn Jacobsen er færeyskur
arkítekt sem býr í Danmörku og er
hann listrænn stjórnandi verkefn-
isins. „Aðaláskorunin var að skapa
umhverfi sem skæri sig úr,“ segir
hann aðspurður hvernig hugmyndin
að húsinu varð til. „Þá er staðsetn-
ingin við höfnina mjög mikilvæg og
við yrðum fyrir miklum vonbrigðum
ef svæðið yrði fyllt af háhýsum,“
bætir hann við og talar um að þeir
hafi lagt áherslu á að hafa þetta
stóra hús eins lágreist og hægt væri
til þess að það myndi falla vel að lág-
reistri borgarmynd Reykjavíkur.
„En þetta er svæði sem Reykvík-
ingar þekkja illa þótt þetta sé fáeina
metra frá miðbænum, fólk keyrir
bara þarna fram hjá. Við viljum fá
fólk til þess að ganga hingað líka, við
viljum stækka miðbæ Reykjavíkur
að höfninni.“
Ósbjørn vonar að haldið verði
áfram að gera hafnarsvæðið aðlað-
andi en auk Tónlistar- og ráðstefnu-
hússins mun áðurnefnd teiknistofa
einnig hanna hótel sem verður rétt
hjá Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu.
„Það mun væntanlega rísa á eftir
Tónlistarhúsinu,“ segir hann en
upphaflega áttu byggingarnar að
vera tilbúnar samtímis. „En það
mun ráðast af praktískum atriðum,
hvernig gengur að færa vegi og svo
framvegis.“ Þótt hótelið sé önnur
bygging verður hægt að fara þurr-
um fótum þaðan yfir í Tónlistarhúsið
og hugmyndin er að húsin styðji
hvort við annað. „Þetta verður öllu
minni bygging en Tónlistarhúsið. En
það kom mér á óvart hversu erfitt
var að fá hótelherbergi í miðbæ
Reykjavíkur þannig að það er
örugglega ekki vanþörf á þessu hót-
eli.“
Sinfóníur, bíó, rokk-
tónleikar og óperur
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið er eins
og nafnið gefur til kynna fjölnota
hús og þótt tónleikasalurinn sé risa-
stór og taki 1.800 manns í sæti er
hann þó aðeins lítill hluti hússins.
Einnig verður ráðstefnusalur sem
tekur 750 manns í sæti og æfinga-
salur þar sem pláss er fyrir 450
manns auk eins minni salar sem tek-
ur 200 manns í sæti. Alla salina má
nota til tónleikahalds, þess vegna á
sama tíma enda salirnir vel hljóðein-
angraðir. „Húsið er vissulega
klæðskerasniðið fyrir sinfóníutónlist
en þarna er þó vel hægt að flytja
rokktónlist og alla mögulega tónlist
aðra,“ segir Ósbjørn. Stólana í ráð-
stefnusalnum er auðveldlega hægt
að fella inn í veggina og skapa þar
með möguleika á stóru rými fyrir
standandi tónleikagesti. Einnig er
hægt að setja upp óperur í húsinu.
„Þetta er vissulega ekki sér-
hannað óperuhús eins og það sem
við byggðum í Kaupmannahöfn en
þar eru áhorfendasvæðin aðeins um
15 prósent salarins vegna þess að
þar er hægt að hafa margar sviðs-
myndir í einu sem hægt er að skipta
auðveldlega um,“ segir Ósbjørn.
Hins vegar er gryfja til staðar til
þess að nota við óperusýningar, sér-
stakt aðgengi er til að vinna með
sviðsmyndir og snúningssvið er í
salnum og því er allt til reiðu til þess
að setja upp metnaðarfullar óp-
erusýningar.
Til viðbótar við alla þessa sali er
svo reiknað með veitingahúsum,
kaffihúsum, verslunum og kvik-
myndasal. „Þarna verða að minnsta
kosti tveir veitingastaðir og svokall-
aður „skýjabar“ auk annars kaffi-
húss sem verður við Reykjatorgið.
Þá verða fjölmargar búðir í húsinu,
tónlistarbúðir þar á meðal, vita-
skuld.“ Þetta hús eigi að vera allra
og eigi ekki að takmarkast við eitt-
hvert þotulið. „Þannig á það líka að
vera, þannig fæst líf í húsið.“
Listamaður í sæti
verkfræðinganna
Ósbjørn lætur vel af samvinnunni
við Ólaf. „Þetta var mjög sérstakt
verkefni innan verkefnisins. Það
voru reglulegir fundir og það var
vissulega mjög erfið vinna að gera
þessa steina eins gegnsæja og
Tónlistarhúsið við
» Þeir kasta frá sér
ljósi, bæði úr um-
hverfinu og földum
kösturum, þannig að
byggingin muni ávallt
glóa og skipta litum
Módel Í byggingunni verða veitingahús, kvikmyndahús, verslanir og vitaskuld tónleikasalir.
Tónlistar- og ráð-
stefnuhús að rísa í
miðbæ Reykjavíkur
Morgunblaðið/Frikki
Færeyski arkítektinn Ósbjørn Jacobsen er Færeyingur búsettur í Danmörku en gæti verið að flytja til Íslands.
Frá hafi Húsið mun gerbreyta hafnarmynd Reykjavíkur og sjást langar leiðir þegar ekið er inn í borgina.
Tónlistarhús hefur verið draumsýn
margra tónlistarmanna í áratugi en
í árslok ársins 2009 mun húsið lang-
þráða loksins verða tilbúið og ef allt
gengur eftir verða glæsilegra en
flesta óraði fyrir. En þá á ennþá eft-
ir að koma í ljós hvernig tekst að
skapa líf í húsinu. Hér birtist spjall
við aðstandendur byggingarinnar
sem og nýjar tölvugerðar myndir af
húsinu og umhverfi þess.