Morgunblaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
íþróttir
Rífast um markið hjá Maradona á HM 1986 >> 4
HJÓLIÐ HEILLAR EKKI
JÓHANNES HARÐARSON LEIKMAÐUR START HEFUR
ENN EKKI NÁÐ SÉR AF MEIÐSLUM EFTIR TÆPT ÁR >> 4
Þetta fyrirkomulag er algjörlega út í
hött, ég hef bara aldrei séð aðra eins
vitleysu og skil ekki í mönnum að
bjóða upp það,“ segir Boldsen í sam-
tali Nordjyske. „Álagið á leikmenn er
alltof mikið. Reynið að bjóða knatt-
spyrnumönnum á heimsmeistaramóti
að leika tíu kappleiki á sextán dögum.
Ég er ansi hræddur um að enginn
knattspyrnumaður myndi samþykkja
það, þeir myndu hreinlega neita að
leika upp á þessi býti,“ segir Boldsen.
„Því miður er þessi vitlausa leikja-
áætlun staðreynd á heimsmeistara-
móti og ekki er hægt að segja að Evr-
ópumót landsliða sé betur skipulagt.
Engu máli skiptir í hversu góðu lík-
amlegu formi maður mætir til leiks á
jafn fáránlega skipulagt mót og þetta
þar sem ætlast er til þess að
maður leiki tíu leiki á 16 dög-
um. Leikmenn munu koma
eins og undnar tuskur til síns
heima að mótinu loknu. Þetta
ofurmannlega álag mun mest
bitna á félagsliðunum sem
borga okkur launin. Það tekur
langan tíma að jafna sig eftir
svona keppni og það mun
koma niður á framgöngu okk-
ar með félagsliðunum,“ segir
Boldsen sem býr sig nú undir
heimsmeistaramótið ásamt fé-
lögum sínum í danska lands-
liðinu.
Boldsen segir að ekki veiti
af því að lengja úrslitakeppni
HM og EM um viku, hið
minnsta, eða þá að fækka lið-
um og leikjum.
Leikjafyrir-
komulag HM
er fáránlegt
JOACHIM Boldsen, einn fremsti og
eikreyndasti leikmaður danska
andsliðsins í handknattleik, segir
að það sé ekki heil brú í leikjaskipu-
agi heimsmeistaramótsins í hand-
knattleik sem hefst í Þýskalandi á
östudag. Mótið sé alltof stutt og
álagið á leikmenn muni keyra úr
öllu hófi. Þau lið sem komst í átta
iða úrslit leika 10 leiki á 16 dögum.
Tíu landsleikir á 16 dögum
Átök Sigfús Sigurðsson tekur Joachim
Boldsen ekki neinum vettlingatökum.
Eftir Guðmund Hilmarsson
ummih@mbl.is
FORRÁÐAMENN sænska
knattspyrnuliðsins GAIS í
Gautaborg hafa sett sig í
amband við Fylkismenn
með það fyrir augum að
kaupa miðvallarleikmanninn
Eyjólf Héðinsson. Hörður
Antonsson formaður meist-
araflokksráðs Fylkis sagði í
amtali við Morgunblaðið að
viðræður við GAIS um hugs-
anleg kaup væru á
byrjunarstigi.
Eyjólfur er 22 ára
og er einn af lyk-
ilmönnum Árbæjar-
liðsins en hann lék
alla 18 leiki liðsins í
Landsbankadeild-
inni á síðustu leik-
tíð. Hann er samn-
ingsbundinn Fylki
til loka árs 2008.
Tveir útlendingar hafa ver-
ið til reynslu hjá Fylkis-
mönnum síðustu
daga, Sasa Braneza,
þrítugur framherji
frá Króatíu, og Mads
Beierholm, 22 ára
miðjumaður frá Dan-
mörku. Hörður Ant-
onsson sagði við
Morgunblaðið að ekki
væri búið að taka
ákvörðun hvort þeim
yrði boðinn samning-
ur en hann taldi það þó lík-
legra en ekki
Eyjólfur
Héðinsson
Sænska liðið GAIS vill
fá Eyjólf til liðs við sig
EIÐUR Smári Guðjohnsen
var ekki í leikmannahóp
Spánar - og Evrópumeist-
araliðs Barcelona í gær er lið-
ið lék síðari leik sinn gegn 2.
deildarliðinu Alaves í
spænsku bikarkeppninni.
Barcelona hafði betur í fyrri
leiknum 2:0 og var því á
brattann að sækja fyrir Ala-
ves. Barcelona komst í 2:0,
Alaves jafnaði en Saviola
skoraði sigurmarkið á 63.
mínútu Argentínumaðurinn
Saviola kann vel við sig í
framlínu Barcelona gegn Ala-
ves en hann skoraði þrennu á
Nou Camp í 3:2 sigri Barce-
lona en Saviola skoraði eitt
mark í fyrri leiknum en
Barcelona er komið í 8-liða
úrslit keppninnar. Saviola er
25 ára gamall og hefur hann
verið í herbúðum Barcelona
frá árinu 2001 en hann lék
með River Plate í heimalandi
sínu á árunum 1998-2001. Ár-
ið 1999 var hann valinn knatt-
spyrnumaður ársins í S-Am-
eríku en þá var hann aðeins
18 ára. Hann var markahæst-
ur á heimsmeistarakeppni
yngri landsliða í Argentínu
árið 2001 en þar var hann
markahæstur og var valinn
leikmaður keppninnar.
Saviola hefur ekki átt fast
sæti í framlínu Börsunga og á
síðustu tveimur tímabilum
hefur hann leikið sem láns-
maður með Mónakó í Frakk-
landi og Sevilla á Spáni
Saviola með þrennu fyrir
Börsunga - Eiður hvíldur
Morgunblaðið/ÞÖK
Gaman á æfingu Íslenska landsliðið í badminton æfði í gær fyrir Evrópukeppni B-þjóða sem hefst á miðvikudag-
inn í Laugardalshöll. Ragna Björg Ingólfsdóttir og Katrín Atladóttir skemmtu sér vel á æfingunni í gær. /B2
miðvikudagur 17. 1. 2007
íþróttir mbl.is
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 22/25
Staksteinar 8 Bréf 25
Veður 8 Minningar 26/30
Úr verinu 12 Menning 33/35
Viðskipti 13 Leikhús 34
Erlent 14 Myndasögur 36
Menning 15 Dægradvöl 37
Höfuðborgin 16 StaðurStund 38/39
Akureyri 16 Dagbók 40/41
Landið 17 Víkverji 40
Suðurnes 17 Velvakandi 40
Daglegt líf 18/21 Bíó 38/41
Forystugrein 22 Ljósvakamiðlar 42
* * *
Innlent
Margrét Sverrisdóttir hefur
ákveðið að gefa kost á sér í embætti
varaformanns Frjálslynda flokksins.
Hún mun jafnframt óska eftir að
leiða lista flokksins í Reykjavík-
urkjördæmi suður. » Forsíða
Samkomulag milli Spalar ehf. og
Vegagerðarinnar sem tryggir 250
milljónir króna til undirbúnings
framkvæmda við tvöföldun þjóðveg-
arins á Kjalarnesi og gerð nýrra
ganga undir Hvalfjörð var und-
irritað í síðustu viku.
» Baksíða
Frost fór í gær niður í rúmar 29
gráður í Svartárkoti í Bárðardal.
Nokkuð er þó í að kuldamet falli, en
mesti kuldi sem mælst hefur á land-
inu er 38 gráða frost á Grímsstöðum
og Möðrudal 22. janúar 1918.
» Baksíða
Erlent
Minnst 70 létu lífið og vel á annað
hundrað særðust í tveim tilræðum í
anddyri þekkts háskóla í Bagdad í
gær. Mörg fórnarlambanna voru
stúdentar og kennarar. Nuri al-
Maliki, forsætisráðherra Íraks, for-
dæmdi ódæðin og sagði að hinir seku
yrðu eltir uppi, sama hve langan
tíma það tæki. Alls féllu yfir 100
manns í landinu í ofbeldisaðgerðum í
gær. Að sögn fulltrúa Sameinuðu
þjóðanna er talið að rösklega 30.000
hafi fallið í ofbeldisaðgerðum í fyrra
en enginn viti þó nákvæmlega hve
margir hafi dáið. » Forsíða
Ástand Fidels Castro Kúbuleið-
toga er mjög alvarlegt eftir þrjár
misheppnaðar aðgerðir vegna
þarmakvilla, að því er sagði í
spænska blaðinu El País. Stjórn-
arerindreki í sendiráði Kúbu í Madr-
íd sagði á hinn bóginn að fréttin væri
„tilbúningur“. » 14
Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur
gve@ismennt.is
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
hélt sína þriðju Borgarnesræðu á
fundi Samfylkingarinnar í Borgar-
nesi sem haldinn var í gær. Ingi-
björg lagði út frá sáttmála um nýtt
jafnvægi, jafnvægi á milli höfuð-
borgarinnar og landsbyggðarinar,
kvenna og karla, launafólks og fjár-
magnseigenda, umhverfis og stór-
iðju, hagvaxtar og stöðugleika, Ís-
lands og Evrópu. Hún sagði að það
væri hlutverk stjórnvalda að um-
breyta persónulegum vanda í opin-
ber málefni og opinberri velsæld í
persónulega velsæld.
,,Líta ber á Ísland sem eina heild,
ekki á að hugsa alltaf út frá lands-
byggð og borgarbyggð, heldur á
fólk að eiga raunverulegt val um bú-
setu, en það þýðir
að eiga jöfn tæki-
færi, tækifæri til
menntunar, fjöl-
breytta atvinnu,
menntatengda
menningu. Enn-
fremur er mikil-
vægt að hafa
framhaldsskóla í
heimabyggð til að
þurfa ekki að
senda börnin frá sér.“
Ingibjörg fjallaði um hversu ófull-
komið lýðræðið er og hversu völdum
og áhrifum er misskipt í þjóðfélag-
inu, ekki síst milli karla og kvenna.
,,Það skaðar samfélagið allt,“ sagði
Ingibjörg ,,að ekki hefur verið tekið
mið af þörfum og óskum kvenna.
Kyngreindar upplýsingar skortir
um hvernig staða karla og kvenna
er á öllum sviðum.“ Hún tók sem
dæmi Hagþjónustu landbúnaðarins,
sem hefur ýmsar upplýsingar um
aldur bústofns eða hlutfall kvíga og
tarfa, en ekki t.d. upplýsingar um
kynjahlutfall eða aldursskiptingu
karla og kvenna í bændastéttinni.
Störf ættu að vera óháð staðsetn-
ingu og sagði Ingibjörg að hugsa
mætti sér ákveðna jafnréttishug-
sjón í því að flytja verkefni og störf,
t.d. að 20% starfa væru óháð stað-
setningu og að landsbyggðarfólk
væri sérstaklega hvatt til að sækja
um. ,,Atvinnufrelsið í landinu þarf
að bæta, það má hugsa sér breytt
form á stuðningi við bændur t.d.
beingreiðslur á annan hátt, og aukið
frelsi til nýsköpunar og þróunar, til
fullvinnslu og sölu afurða. Það getur
leitt af sér bættan hag neytenda og
bænda.“
Samfylkingin vill sátt-
mála um nýtt jafnvægi
Skaðar samfélagið að ekki er tekið mið af óskum kvenna
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
STJÓRN Íbúasamtakanna Betra Breiðholt (ÍBB) af-
henti Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, borgarstjóra Reykja-
víkur, í gær undirskriftalista með tæpum þrjú þúsund
undirskrifum, þar sem mótmælt var opnun spilasalar í
verslunarmiðstöðinni í Mjódd.
Að sögn Helga Kristóferssonar, formanns ÍBB, eru
samtökin afar ánægð með afstöðu og framgöngu borg-
arstjóra í málinu. Segist hann finna fyrir mikilli sam-
stöðu frá íbúum annarra hverfa Reykjavíkur sem vilji
sporna við mikilli fjölgun spilakassa í borginni.
Morgunblaðið/RAX
Afhentu undirskriftalista
FUNDI launanefnda sveitarfélag-
anna og Félags grunnskólakennara
lauk á sjöunda tímanum í gær-
kvöldi án þess að niðurstaða feng-
ist en grunnskólakennarar vilja
leiðréttingu launa sinna, skv.
ákvæði í kjarasamningi. Ekki hefur
verið boðað til nýs fundar en reikn-
að er með að hann verði síðar í vik-
unni.
Í kjarasamningi grunnskóla-
kennara segir m.a.: „Aðilar skulu
taka upp viðræður fyrir 1. sept-
ember 2006 og meta hvort breyt-
ingar á skólakerfinu eða almenn
efnahags- og kjaraþróun gefi tilefni
til viðbragða.“ Með hliðsjón af
verðbólgu og leiðréttingu sem gerð
var á launum annarra starfsstétta
telja kennarar fulla ástæðu til að
laun þeirra verði leiðrétt í sam-
ræmi við aðra og hafa fundahöld
staðið yfir í vetur.
Gunnar Rafn Sveinbjörnsson,
formaður launanefndar sveitarfé-
laganna, vonast til að niðurstaða
fáist í vikunni. „Menn komu sér
saman um að ræða málin hver fyrir
sig og hittast síðan með það að
markmiði að ljúka málinu síðar í
þessari viku. Aðalatriðið er að við-
ræðum hefur ekki verið slitið.“
Ólafur Loftsson, formaður Fé-
lags grunnskólakennara, tekur
undir orð Gunnars og bætir við: „Á
meðan við erum enn að hittast og
ræða saman þá er enn von um að
við náum saman, en við höfum
hvorki fjarlægst það sérstaklega né
nálgast með síðasta fundi okkar.“
Vilja ljúka mál-
inu í vikunni KARLMAÐUR á þrítugsaldri hef-ur verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald til 26. janúar nk. vegna gruns
um kynferðisbrot gegn fjórum
stúlkum á aldrinum 5–12 ára. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu hefur
maðurinn, sem fæddur er árið
1980, komið við sögu lögreglu áður,
en ekki vegna kynferðisafbrota.
Meint brot áttu sér stað í Voga-
hverfi í Reykjavík síðdegis á mánu-
dag og tengjast mál stúlknanna
ekki. Manninum er gefið að sök að
hafa reynt að lokka stúlkurnar upp
í bíl sinn en ekki fékkst staðfest
hvers eðlis meint brot eru.
Stúlkurnar gátu gefið greinar-
góða lýsingu á bifreið mannsins og
var hann handtekinn um kvöldmat-
arleytið á mánudag. Málið er rann-
sakað hjá kynferðisbrotadeild
LRH.
Gátu lýst
bifreiðinni
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
kynningarblað frá Samtökum versl-
unar og þjónustu.