Morgunblaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Ólaf Þ. Stephensen í London olafur@mbl.is JÁKVÆÐUR tónn var í viðræðu- nefnd Íslendinga að loknum fundum um öryggis- og varnarmál með hátt settum brezkum embættismönnum í London í gær. Eftir því, sem Morg- unblaðið kemst næst, kom ekki fram neinn áhugi af hálfu Breta á t.d. þátttöku í heræfingum eða eft- irliti við Ísland eins og fram hefur komið af hálfu Dana og Norðmanna. Engu að síður voru íslenzku full- trúarnir ánægðir með samtölin og telja að til lengri tíma litið geti nið- urstaða viðræðnanna orðið sú að Bretar gefi Norður-Atlantshafinu meiri gaum. „Þetta voru fyrst og fremst kynn- ingarfundir,“ segir Grétar Már Sig- urðsson, ráðuneytisstjóri utanríkis- ráðuneytisins og formaður íslenzku viðræðunefndarinnar. „Við veittum upplýsingar um það hvernig staðan er hjá okkur og hver okkar mark- mið eru.“ Sturla Sigurjónsson, ráðgjafi for- sætisráðherra í utanríkismálum, segir að markmið fundanna hafi ekki sízt verið að útskýra fyrir Bret- um þá hugsun, sem liggur að baki óskum Íslendinga um tvíhliða við- ræður við fjögur grannríki í NATO; Noreg, Danmörku, Kanada og Bret- land. „Ég held að eftir þessa fundi hafi þeir fengið ágætan skilning á því hvað við erum að hugsa og þá verður eftirleikurinn auðveldari.“ Uppteknir af öðrum svæðum Hugsun íslenzkra stjórnvalda er ekki sízt að auka upplýsingastreymi á milli NATO-ríkjanna við Norður- Atlantshaf varðandi hvers konar viðbúnað; bæði hernaðarlegan og jafnframt t.d. á sviði leitar og björg- unarmála, umhverfiseftirlits og fisk- veiðieftirlits. „Ef allir vita hverjir af öðrum og hvað aðrir eru að gera, má vonandi ná fram ákveðinni kostnaðarhagræðingu,“ segir Grét- ar. Grétar Már segir að í öryggis- og varnarmálum hafi Bretar að und- anförnu verið uppteknir af átaka- svæðum langt utan Evrópu, einkum Írak og Afganistan. „Við höfum ótt- azt að áherzlur þeirra séu að færast meira suður og austur á bóginn og að Atlantshafið gleymist í þeirri um- ræðu. Það er þess vegna mjög mik- ilvægt að fá tækifæri til að beina kastljósinu að þeim málum, sem þar eru til umræðu.“ Sturla bendir á að þótt brezka stjórnsýslan sé margfalt stærri en sú íslenzka, eigi hún fullt í fangi með að fást við viðfangsefni Breta í Afganistan, Írak og fleiri löndum þar sem þeir hafa nú herlið. „Það, sem gæti hugsanlega orðið útkoman úr þessum samtölum er að Norður- Atlantshafið færist aðeins ofar á forgangslistanum, þótt það verði ekki þar í efsta sæti.“ Þekkja vandamálin Grétar segir að á fundunum hafi meðal annars verið rætt um þann viðbúnað, sem nauðsynlegur yrði vegna stóraukinnar skipaumferðar um Norður-Atlantshafið, m.a. vegna olíu- og gasflutninga. „Þeir þekkja öll þau vandamál, sem þar er um að ræða og eru sömuleiðis meðvitaðir um þörfina á samstarfi um leitar- og björgunarmál,“ segir hann. Bretar hafa ekki hernaðarumsvif eða -viðbúnað í grennd við Ísland í sama mæli og t.d. Danir og Norð- menn. Sturla bendir hins vegar á að Bretar hafi lengi litið á hafsvæðið sunnan Íslands sem hluta af sínu heimasvæði. Áhugi á samstarfi um loftflutninga Grétar Már segir að brezku emb- ættismennirnir hafi sýnt áhuga á samstarfi við Ísland um þungaflutn- inga með flugi til Afganistans. Geir H. Haarde forsætisráðherra gaf fyr- irheit um það á leiðtogafundi Atl- antshafsbandalagsins í Riga í Lett- landi í nóvember að Ísland myndi auka stuðning sinn við friðargæzlu bandalagsins í Afganistan, meðal annars með loftflutningum. Á meðal þeirra, sem íslenzka við- ræðunefndin hitti, voru Peter Rick- ett, ráðuneytisstjóri brezka utanrík- isráðuneytisins, og Sarah Beaver, skrifstofustjóri alþjóðlegra öryggis- mála í varnarmálaráðuneytinu. Brezkir embættismenn tjáðu Morg- unblaðinu að fyrst og fremst hefði verið litið á fundina sem upplýs- ingaöflun af þeirra hálfu. Vonast til að Bretar gefi N-Atlantshafinu meiri gaum Morgunblaðið/ÓÞS Jákvæður tónn Viðræðunefnd Íslands var ánægð með fundina með brezkum embættismönnum í London í gær. Frá vinstri: Þórunn J. Hafstein, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Sturla Sigurjónsson, ráðgjafi í utanríkismálum í forsætisráðuneytinu. Í HNOTSKURN »Skip brezka flotans eru af ogtil á ferð á hafsvæðinu um- hverfis Ísland. »Brezkar Hercules-vélar lentu55 sinnum á Keflavík- urflugvelli á síðasta ári. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is TEKJUDREIFING atvinnutekna hefur verið því sem næst óbreytt frá árinu 1993 en dreifing heildartekna, þ.e. atvinnutekjur að viðbættum fjármagns- tekjum, hefur orðið talsvert ójafnari á þessu tímabili. Mest bar á þessu árið 2005 en það ár var 1% framteljenda með um helming allra fjármagnstekna sem taldar voru fram í landinu. Sé þetta 1% tekið út úr reikningsdæm- inu er hækkun stuðulsins mun minni. Þetta er meðal þess sem kemur fram í áfanganiðurstöðu rannsóknar sem Ragnar Árnason, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands, kynnti á fyrirlestri í skól- anum í gær. Hann og fleiri hafa unn- ið að rannsókninni frá í haust og er von á að ítarlegri niðurstöður verði birtar innan 2–3 mánaða. Í rannsókninni er tekjudreifing reiknuð út frá Gini-mælikvarðanum en því hærri sem tölurnar eru því meiri er ójöfnuðurinn. Útreikning- arnir byggjast á gögnum frá ríkis- skattstjóra og taka til allra framtelj- enda í landinu, yfir 150.000 manns, og ítarlegri sundurliðun á tekjum þeirra. Framteljendum er skipt í tvo hópa, einstaklinga og hjón og sam- búðarfólk. Þeim er síðan skipt í tekjuhópa (hver hópur er 1% af framteljendum) og raðað frá lægsta 1% upp í hæsta 1%. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Ragnar að helstu niðurstöður rannsóknarinnar væru þær að dreif- ing atvinnutekna hefði nánast ekkert breyst frá árinu 1993. Þá hefðu raun- tekjur hækkað mjög mikið, um 60– 100% og ekki væri sjáanlegt að nokkur tekjuhópur hefði setið eftir. Ef hins vegar væri tekið tillit til heildartekna kæmi í ljós að efstu tekjuhóparnir hefðu hækkað umtals- vert og mesta hækkunin hefði orðið í tekjuhæsta hópnum. Af þessu mætti draga þá ályktun að mjög háar fjár- magnstekjur tiltölulega fárra mjög auðugra aðila hefðu valdið hækkun Gini-stuðulsins fyrir heildartekjur. Ragnar benti á að árið 1993 hefðu fjármagnstekjur verið um 2–3% af heildartekjum en í lok tímabilsins um 16–17%. Þær hefðu hækkað á öllu þessu tímabili en tekið kipp árið 2000 og sérstaklega hefði hækkunin orðið mikil árið 2005. „Þetta er veru- leg breyting í eðli tekjumyndunar á Íslandi,“ sagði hann. Á tekjuárinu 2005 hefði um helmingur allra fjár- magnstekna orðið í hæsta 1%-tekju- hópnum og námu þær um sexföldum atvinnutekjum í þeim flokki. „Það er ekki hægt að segja það með neinni sanngirni að þeir sem minna höfðu hafi setið eftir en hins vegar er hægt að segja það að þeir sem höfðu mest, þeir hafa líka fengið mest.“ Gríðarháar fjármagnstekjur Í samantekt Ragnars vegna fyr- irlestrarins segir m.a. að hér virðist vera um að ræða tiltölulega fáar fjöl- skyldur sem hafi gríðarlegar fjár- magnstekjur sem oft séu í tengslum við alþjóðleg viðskipti. Þessar upp- hæðir séu svo háar að kysu þessar fjölskyldur að telja fjármagnshagn- að sinn til skatts erlendis myndi Gini-kvarðinn hér á landi lækka tals- vert en einnig þjóðartekjurnar. Ragnar sagði að vegna þess hversu skammt væri liðið frá því fjármagnstekjur urðu verulegur hluti af tekjum Íslendinga hefði þótt rétt að gera þennan greinarmun á atvinnutekjum og fjármagnstekjum. Segir ekkert um fátækt Rétt eins og aðrir mælikvarðar á tekjudreifingu er Gini-mælikvarðinn gallaður, að sögn Ragnars, þótt hann sé sá sem helst er notaður þegar tekjudreifing er reiknuð út. „Það ber að varast að oftúlka niðurstöður. Þær segja í sjálfu sér ekki mikið um jöfnuð eða ójöfnuð, segja eiginlega ekki neitt um fátækt og eiginlega ekki neitt um félagshópa,“ sagði hann. Um væri að ræða tölfræðilega hópa og kvarðinn gæfi t.d. ekki mynd af því hvort tilteknir fé- lagshópar, s.s. einstæðar ungar mæður, öryrkjar eða aðrir, væru á leið upp eða niður kvarðann. Töluverðar umræður urðu sl. haust um tekjuskiptingu í þjóðfélag- inu. Aðspurður hvort sú umræða hefði hrundið rannsókninni af stað sagði Ragnar að hann hefði lengi haft áhuga á þessu atriði en auk þess hefði umræðan haft sín áhrif. „Í þessu sambandi er kannski rétt að það komi fram að á minni tíð sem ungur maður, starfsmaður á Þjóð- hagsstofnun, árið 1975, þá held ég að ég hafi verið fyrsti maður til að reikna út Gini-stuðla fyrir íslenska tekjudreifingu. Því var síðan haldið áfram á Þjóðhagsstofnun í allmörg ár. Síðan var hún lögð niður og síðan þá hafa þessar upplýsingar ekki leg- ið fyrir,“ sagði Ragnar Árnason. Þar sem um áfanganiðurstöður er að ræða kunna þær að breytast síð- ar. Verulega bætist einnig við þær. Dreifing atvinnutekna nánast óbreytt Ef aðeins er tekið tillit til atvinnutekna hefur ójöfnuður ekki aukist frá 1993–2005 en dreifing heildartekna hefur orðið talsvert ójafnari, samkvæmt áfanganiðurstöðu nýrrar rannsóknar Í HNOTSKURN » Samkvæmt rannsókninnihefur dreifing atvinnu- tekna verið því sem næst jöfn frá 1993–2005. Því hefur ekki verið um vaxandi ójöfnuð at- vinnutekna að ræða. » Þegar fjármagnstekjureru teknar með í reikning- inn kemur í ljós að dreifing heildartekna hefur orðið tals- vert ójafnari frá 1993, sér- staklega eftir 2000. » Fjármagnstekjur eruvaxtatekjur, leigutekjur, arðgreiðslur af hlutabréfum og slíku og söluhagnaður af hlutabréfum.                       ! "! #     %    #$ "!  &'  $       (    (  )  ! %$ "!  &'  $  #$* + # ** Ragnar Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.