Morgunblaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 20
heilsa 20 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ „ÉG KYNNTIST þessu í gegnum einn félaga minn sem er núna með mér í þessu,“ segir Arnar Freyr Vigfússon, einn aðstandenda Mjölnis, en það er íþróttafélag sem stendur fyrir æfingum í bar- dagalist, m.a. í brasilísku jiu jitsu. „Við höfðum báðir verið í öðrum bardagaíþróttum, því sem kallað er „dauðar“ bardagaíþróttir. Það sem skilur okkur frá öllum öðrum er að það sem við erum að æfa er „lifandi“.“ Dauðar bardagaíþróttir er það kallað þegar andstæðing- urinn sýnir enga mótspyrnu og lif- andi þýðir þannig að tveir mót- herjar berjast af fullum þunga hvor með sinni tækni. Brasilískt jiu jitsu gengur út á að ná yf- irburðastöðu gagnvart andstæð- ingnum og fá hann til að gefast upp með lás, svæfingu eða ein- hvers konar taki. Dæmi um lás væri að snúa það mikið upp á handlegg andstæðingsins að það ylli sársauka og hann gæfist upp. Slíkt er yfirleitt talið mannúðlegri leið til að yfirbuga árásarmann en t.d. brjóta kjálka hans með kýl- ingu eða sparki. „Það varð eiginlega ekkert aft- ur snúið eftir að ég kynntist þessu,“ segir Arnar, en nú eru í gangi námskeið á vegum Mjölnis þar sem brasilískt jiu jitsu er kennt. Æfingahúsnæðið er á Mýr- argötu 2–8. „Við stofnuðum félag- ið nokkrir sem komum saman úr öðrum klúbbum,“ útskýrir Arnar og viðbrögðin við nýja klúbbnum segir hann hafa verið framar von- um. „Þessi klúbbur var ekki til fyrir ári en nú er fullt út úr dyr- um hjá okkur á öllum nám- skeiðum, í 400 fm húsnæði,“ segir hann létt. Eins og er er eingöngu boðið upp á námskeið fyrir fullorðna, aldurstakmarkið er 15 ár. Barist af „lifandi“ list Morgunblaðið/Kristinn Jiu jitsu Þeir sem æfa brasilískt jiu jitsu læra að verja sig í bak og fyrir. Nýtt lyf gegn offitu er núkomið á markað hér-lendis sem virkar á aðraviðtaka en önnur offitu- lyf, sem hingað til hafa verið notuð við meðferð offitusjúklinga. Lyfið, sem ber heitið Acomplia, hefur verið í þróun í tuttugu ár. Bretar urðu fyrstir til að setja það á almennan markað í sumar. Skandinavíulöndin fylgdu í kjölfarið í haust og lyfið hlaut síðan samþykki íslensku Lyfja- stofnunarinnar í nóvember sl. Fram- leiðandi lyfsins er franski lyfjarisinn sanofi-aventis, en umboðsaðili þess hér á landi er Vistor. Nýja lyfið, sem er lyfseðilsskylt, verður kynnt á Læknadögum í dag, en að sögn Magnúsar Júlíussonar, lyfjafræðings hjá Vistor, eru nokkrir tugir Íslend- inga farnir að nota lyfið. Acomplia blokkerar viðtaka í svo- kölluðu innankannabínóíðakerfi, sem ekki var vitað um fyrr en upp úr 1990. Kerfi þetta tekur þátt í að við- halda orkujafnvæginu, stjórnar mat- arlyst og líkamsþyngd, blóðfitu- og blóðsykursefnaskiptum. Ofvirkni og ofát má tengja stöðugri ofvirkni í þessu kerfi. Ef þetta kerfi er ofvirkt aukast líkur á hjarta-, æða- og efna- skiptasjúkdómum. Aukaverkanir eru sagðar almennt vægar og lagast á nokkrum vikum. Helstar eru ógleði, svimi, kvíði og niðurgangur. Að sögn Magnúsar fara fyrstu áhrif að sjást á fyrstu fjórum til átta vikunum, en hámarksárangur náist eftir um níu mánaða notkun. Lífsstílslyf að mati Þjóðverja Tryggingastofnun ríkisins tekur enn sem komið er engan þátt í kostn- aði við Acomplia. Vonir standa til að greiðsluþátttaka fáist samþykkt síð- ar í samræmi við það sem tíðkast með önnur offitulyf, en fólk þarf að vera með þyngdarstuðul yfir 40 til að fá niðurgreidd offitulyf eða með al- varlega efnaskiptasjúkdóma og er þá þyngdarstuðullinn lækkaður niður í 30. Dagsskammtur nýja lyfsins ónið- urgreiddur leggur sig nú á 444 krón- ur. Þrátt fyrir að þýsk heilbrigðisyf- irvöld viðurkenni að nýja lyfið hjálpi fólki við að léttast og geti verið gott fyrir sykursjúka og hjartasjúklinga hafa Þjóðverjar hafnað því að greiða lyfið niður, en líta þess í stað á það sem lífsstílslyf. „Það er alltaf spennandi þegar fram á sjónarsviðið koma ný lyf enda er offituvandamálið stórt. Þetta er hins vegar engin töframegrunarpilla nema jafnframt sé tekið á lífsstíls- þættinum,“ segir Karl Kristjánsson, endurhæfingarlæknir á Grens- ásdeild. „Lyfið hefur áhrif á fituefna- skipti og fitubúskap, bætir næmi fyr- ir insúlíni í líkamanum og hefur því hugsanlega jákvæð áhrif á þá, sem hafa skert sykurþol og byrjandasyk- ursýki. Lyfið getur líka virkað já- kvætt á þá, sem eru með efnaskipta- heilkenni,“ segir Karl. Notkun lyfsins miðast nú fyrst og fremst við að draga úr löngun í mat, en rann- sóknir benda til að það kunni jafn- framt að draga úr reykingafíkn, að sögn Magnúsar. Vinna þarf með atferlið „Ennþá er þetta nýja lyf óskrifað blað, en ég legg áherslu á að svona lyf muni ekki gagnast ef ekki er sam- hliða lögð alvarleg vinna í grunn- vandamálið sem er atferlisvandi við- komandi sjúklinga,“ segir Lúðvík Á. Guðmundsson, formaður Félags fag- fólks um offitu og yfirlæknir yfir of- fitumeðferðinni á Reykjalundi. Tvö önnur offitulyf hafa verið í notkun hér á landi undanfarin þrjú til fjögur ár. „Xenical truflar fitumeltingu með þeim afleiðingum að hluti fitunnar rennur ómeltur í gegn og Reductil dempar á hinn bóginn hungurtilfinn- inguna. Nýja lyfið Acomplia dregur líka úr matarlöngun, en eftir öðrum leiðum en hin lyfin og hefur jafn- framt jákvæð áhrif á fituefnaskipti og sykurefnaskipti í líkamanum. Lík- aminn framleiðir sín eigin kannabis- efni, sem hafa m.a. áhrif á matarlyst- ina og stjórnun fituefnaskipta og sykurefnaskipta. Nýja lyfinu er ætl- að að vinna á þessum boðefnum sem er ný nálgun. Ef vel er passað upp á að sinna atferlismeðferðinni getur svona lyf örugglega virkað sem við- bótarhjálp, en fylgi ekki virk atferl- ismeðferð mun lyfið eitt og sér ekki gera mikið gagn því á bak við atferlið getur verið svo margt annað en hungurtilfinningin ein og sér. Það má ekki gleymast. Orsakir offitu geta verið fjölmargar og oft liggja að baki áföll eða aðstæður, sem skapað hafa þessu fólki vítahring, sem það kemur sér ekki út úr af sjálfsdáðum. Það er ekki hægt að segja að lyfin, sem komu á markaðinn fyrir þremur og fjórum árum, hafi valdið neinni bylt- ingu, en séu þau rétt notuð hafa þau gagnast einstaka manni samhliða at- ferlisbreytingum. Ef fólk dettur ofan í það að líta á lyfin sem skyndilausn og nota þau gagnrýnislaust situr það uppi með aukaverkanir en lítil áhrif. Það þarf alltaf að vanda mjög vel notkun lyfja. Við erum fyrst og fremst að fást við atferli fólks, sem maður stýrir ekki nema að hluta til með lyfjum,“ segir Lúðvík. Nýtt offitulyf virkar á nýja viðtaka AP Lyfjanýjung Nýja lyfið hefur áhrif á fituefnaskipti og hefur jákvæð áhrif á þá, sem hafa skert sykurþol. Læknar telja að lyfið eitt og sér geri lítið gagn ef ekki fylgja lífsstílsbreytingar hjá offitusjúklingum. Engin töfralausn fylgir nýju offitulyfi, að því er læknar sögðu Jóhönnu Ingvarsdóttur. Það getur þó hjálpað samhliða al- vöru atferlismeðferð í átt að breyttum lífsstíl. RANNSÓKNIR sýna að offita og hreyfingarleysi er alvarleg ógn við heilsu og lífsgæði manna. Hlutfall of feitra fer vaxandi á Vesturlöndum, en sá telst of feit- ur sem hefur þyngdarstuðul yfir 25. Nærri lætur að um helmingur fullorðinna karla í Evrópu sé of feitur og nær 40% kvenna. Offita eykst í sumum löndum hraðar en annars staðar án þess að fyrir liggi ein- hlítar skýringar. Líklegt er þó að þeir, sem borða mjög fituríkan mat, drekki mikið af gosdrykkjum og eins er sláandi fylgni milli offitu foreldra og offitu barna þeirra. Ofþyngd og offita hefur verið að aukast bæði meðal barna og fullorðinna á Íslandi og árið 2002 var svo komið að um 57% karla og 40% kvenna á aldrinum 15–80 ára voru yfir kjörþyngd. Um 23% níu ára barna voru yfir kjörþyngd árið 2004, samkvæmt tölum frá Lýðheilsustöð. Fólk, sem er talsvert yfir sinni kjör- þyngd, er líklegra til að þjást af sjúkdómum, svo sem sykursýki II, hjarta- og æðasjúkdómum, sumum teg- undum krabbameins, gallsteinasjúkdómum, veik- leikum í stoðkerfi, þunglyndi og fleiri kvillum en hin- ir sem eru í kjörþyngd. Ógnar heilsu og lífsgæðum Morgunblaðið/Kristinn Áhrifavaldarnir Rannsóknir sýna að næring, hreyfing og holdafar hafa mikil áhrif á heilsufar manna. BRASILÍSKT jiu jitsu (BJJ) hefur að mestu verið þróað af Gracie- fjölskyldunni í Brasilíu. Ein ástæð- an fyrir vinsældum BJJ í dag er sig- urganga Royce Gracie, sem vann oftsinnis svokallað Ultimate Fight- ing Championship. Slík keppni hóf göngu sína árið 1993 og var mark- miðið með henni að finna út hvaða bardagalist virkaði best og var sú regla helst að engar reglur eða fáar giltu. Þarna kepptu menn sem æft höfðu box, júdó, karate, sumo, sava- te, tae kwon do, kickbox, freestyle wrestling og ýmislegt fleira. Nefnd- ur Royce Gracie vann alla sem hann keppti við, þrátt fyrir að vera yf- irleitt minnstur keppenda. Í allri bardagalist eru ákveðnar aðferðir notaðar til að reyna að sigra árás- armann, en þegar á reyndi dugðu aðrar aðferðir lítt gegn Gracie. Hvað er brasilískt jiu jitsu?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.