Morgunblaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 31
Atvinnuauglýsingar
Yfirvélstjóri
Vantar yfirvélstjóra á Skinney SF sem gerð er
út frá Hornafirði. Upplýsingar í síma 470 8110.
Skinney - Þinganes HF.
Símsvörun
Starfskraftur óskast til starfa við símsvörun á
sendibílastöð í Reykjavík. Vinnutími er frá
kl. 8-13, 13-19, 10-17 til skiptis virka daga og
annan hvern laugardag frá kl. 11-17.
Nánari upplýsingar í síma 553 5129 frá kl. 10-12
virka daga.
Rafvirkjar
Óskum eftir rafvirkjum í vinnu.
Allar nánari upplýsingar
í síma 896 4901.
Lagerstarfsmaður
Lýsi hf. óskar eftir starfsmanni á lager
og í útkeyrslu
Óskum eftir að ráða röskan og ábyggilegan
starfskraft á lager og í útkeyrslu. Upplýsingar
gefur Snorri í síma 525 8113 eða sendið fyrir-
spurnir á snorri@lysi.is.
Lýsi hf.,
Fiskislóð 5-9.
www.lysi.is
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Málfundafélagið Óðinn
Aðalfundur
Málfundafélagið Óðinn heldur aðalfund sinn
miðvikudaginn 24. janúar kl. 18.30 í Valhöll,
húsi sjálfstæðismanna, á Háaleitisbraut 1,
2. hæð.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning stjórnar.
Gestur fundarins verður Illugi Gunnarsson,
frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
til alþingiskosninga í vor.
Kaffiveitingar. Hvetjum félagsmenn til að mæta.
Stjórnin.
Fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjanesbæ
Aðalfundur
Aðalfundur sem boðaður hafði verið
í dag, miðvikudaginn 17. janúar, hefur
verið frestað til fimmtudagsins
25. janúar kl. 20.00 í Sjálfstæðishúsinu.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fundarstjóri verður Björk Guðjónsdóttir
forseti bæjarstjórnar.
Ávarp: Árni Sigfússon bæjarstjóri.
Gestur fundarins verður
Árni Mathiesen fjármálaráðherra.
Fjölmennum.
Stjórnin.
Borgarafundur
í Hveragerði
Almennur borgarafundur verður haldinn í
Grunnskólanum í Hveragerði fimmtudaginn
18. janúar kl. 20:00 um tillögu að breyttu
aðalskipulagi austan Varmár í Hveragerði.
Á fundinum verða jafnframt kynnt 1. drög að
deiliskipulagi svæðisins.
Skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar.
Aðalfundur
Vélbátafélagsins
Kvikunnar
Fundarefni:
1. Skýrsla stjórnar lesin.
2. Kosning stjórnar.
3. Tillaga um ný félagsgjöld.
4. Önnur mál rædd.
Fundurinn verður haldinn laugardaginn
27. janúar kl. 14.00 á Bakkabraut 9.
Mætið vel og stundvíslega.
Kaffi og kleinur.
Stjórnin.
Listmunir
Listmunir
Erum að taka á móti verkum á
næsta listmunauppboð.
Vinsamlegast hafið samband sem
fyrst. Leitum sífellt að góðum
verkum fyrir viðskiptavini okkar.
Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 14,
sími 551 0400.
Félagsstarf
Næsta mynda- og fræðslu-
kvöld verður í sal félagsins í
Mörkinni 6 miðvikudaginn 17.
janúar kl. 20:00. Aðgangseyrir
600 kr., kaffi og meðlæti inni-
falið. Þar munu Einar Gunn-
laugsson og Leifur Þorsteinsson
fræða gesti í máli og myndum
um sögu og jarðfræði nokkurra
þekktra staða í nágrenni Reykja-
víkur, m.a. svæðið upp af botni
Hvalfjarðar og um Hengils-
svæðið.
Allir velkomnir.
GLITNIR 6007011719 I
I.O.O.F. 91870117811/2 I.O.O.F. 7. 1871177½ I.O.O.F. 18 1871178 M.T.W.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
HELGAFELL 6007011719 IV/V
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
Rétt tafla
MEÐ frétt af árangri tollgæslunnar
í Morgunblaðinu 11. janúar sl. birt-
ust rangar upplýsingar um haldlagt
magn. Á töflunni sem hér birtist eru
réttar upplýsingar, þ.e. bráðabirgða-
tölur frá Tollstjóranum í Reykjavík
fyrir árið 2006. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
/-0% %
&- %
(-0! !
( 1" 2(
@#+
%
-
-$
# 3
'
.
!
4 .
&
+
+
-
(
6 .
$-+
$
. /
/
&5%
.
.
BRAUTSKRÁNING stúdenta frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð fór
fram í hátíðarsal skólans 21. des-
ember sl. Alls útskrifaðist 101 stúd-
ent, 56 konur og 45 karlar.
36 útskrifuðust af félagsfræða-
brautum, 49 af náttúrufræðibraut,
21 af málabaut og 1 af framhalds-
leið útgerðartækni. (6 brautskráð-
ust af tveimur brautum samtímis).
Dúx af málabraut og náttúru-
fræðibraut var Katla Kristjáns-
dóttir. Semidúx af náttúrufræði-
braut var Helgi Jason Hafsteins-
son.
Þessir stúdentar luku náminu á
3½ ári með ágætiseinkunn og all-
mörgum umframeiningum.
Ljósmynd/Gunnar G. Vigfússon
Útskrift frá Menntaskólanum við Hamrahlíð
MIÐVIKUDAGSERINDI Orku-
stofnunar og ÍSOR verður haldið í
Víðgelmi, sal Orkustofnunar og
ÍSOR, á 1. hæð Orkugarðs á Grens-
ásvegi 9, Reykjavík, miðvikudaginn
17. janúar, kl. 13-14.
Hákon Aðalsteinsson sérfræð-
ingur á Orkustofnun fjallar um ann-
an áfanga Rammaáætlunar um nýt-
ingu vatnsafls og jarðvarma.
Unnið hefur verið að Ramma-
áætlun um nýtingu vatnsafls og
jarðvarma frá árinu 1999 í sam-
ræmi við framkvæmdaáætlun rík-
isstjórnarinnar, Sjálfbæra þróun í
íslensku samfélagi. Markmið áætl-
unarinnar er að leggja mat á og
flokka virkjunarkosti, jafnt vatnsafl
og háhita, með tilliti til orkugetu,
hagkvæmni, áhrifa á náttúrufar,
náttúru- og menningarminjar, svo
og hagsmuni allra þeirra sem nýta
þessi sömu gæði.
Nánari upplýsingar um efni fyr-
irlestrarins er á slóðinni http://
www.os.is/page/midv_170107.
Ókeypis aðgangur.
Rætt um vatnsafl og jarðvarma
Í 20 ár hafa Samskipti: fræðsla og
ráðgjöf staðið fyrir námskeiðum
fyrir foreldra. Á námskeiðunum er
fjallað um á hvern hátt foreldrar
geta brugðist við hegðun barna
sinna þannig að þeir stuðli að sem
mestum og bestum þroska. „Lögð
er áhersla á aðferðir sem for-
eldrar geta notað í daglegu amstri
til að kenna og þroska hjá börnum
sínum þætti eins og ábyrgð, tillits-
semi og sjálfstæði. Lögð er
áhersla á leiðandi uppeldisaðferð
sem hefur reynst vera ein besta
uppeldisaðferðin til að skapa
sjálfstraust og heilbrigði hjá börn-
um og unglingum,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Leiðbeinendur verða sálfræðing-
arnir Hugo Þórisson og Wilhelm
Norðfjörð. Þeir hafa yfir 25 ára
reynslu af störfum með foreldrum
barna á öllum aldri. Nánari upp-
lýsingar og skráning er á slóðinni
www.samskipti.org eða með því
að senda póst á hugo@hugo.is
Námskeið
að hefjast
fyrir foreldra
FYRSTI fræðslufundur ársins hjá
Garðyrkjufélagi Íslands verður
haldinn fimmtudaginn 18. janúar í
sal Orkuveitu Reykjavíkur á Bæj-
arhálsi 1, kl. 20.
Þar fjallar Guðrún Th. Guð-
mundsdóttir garðplöntufræðingur
um nýjar tegundir af reyni sem
sýnt hafa góð þrif hér á landi og
nefnist fyrirlesturinn: Áhugaverðir
nýliðar – Sorbus.
Guðrún er garðplöntufræðingur
frá Landbúnaðarháskóla Íslands og
starfar á umhverfissviði fyrir Sveit-
arfélagið Árborg.
Þess má geta að nú þegar eru
komnar 22 mismunandi tegundir
og yrki af Sorbus á frælista Garð-
yrkjufélags Íslands, þannig að upp-
lagt er að kynna sér hvað í boði er,
segir í fréttatilkynningu.
Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir fé-
laga og maka, en 800 kr. fyrir gesti.
Fræðslufundur
um nýjar teg-
undir af reyni
FRÉTTIR